Morgunblaðið - 03.10.1996, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LOKAPUNKTURINN á dagskrá Jazz ’96 voru tónleikar
New Jungle kvartetts Pierre Dörge.
Djass fyrir Evrópu
TÓNLIST
llótcl Saga
RÚREK 96
Sextett Sigurðar Flosasonar. Sig-
urður Flosason altósaxófónn, Veig-
ar Margeirsson trompet, Óskar
Guðjónsson tenórsaxófónn, Agnar
Már Magnússon píanó, Gunnlaugur
Guðmundsson kontrabassi, Einar
Valur Scheving trommur. Sveiflu-
kvintett Levinsons, Schevings og
Webers. Dan Levinson klarinett,
Arni Scheving víbrafónn, John
Weber píanó, Þórður Högnason
kontrabassi, Tom Melito trommur.
HÁPUNKTUR RúRek 96 djass-
hátíðarinnar var án efa síðastliðið
föstudagskvöld á Hótel Sögu. Var
tónleikahaldið með evrópsku yfir-
bragði enda tímamótaviðburður í ís-
iensku djassiífi þetta kvöld þegar
mögnuðum flutningi Sextetts Sig-
urðar Flosasonar var útvarpað beint
til milljóna hlustenda yfir meginland
Evrópu af 20 útvarpsstöðvum. í því
samhengi var viðeigandi að sjá með-
ai áheyrenda síðar um kvöldið einn
af æðstu embættismönnum Evrópu-
sambandsins, Emmu Boninu, sjávar-
útvegsmálastjóra ESB, í fylgd ís-
lensku forsetahjónanna, hlýða á
glaðlegan samleik Levinsons, Sche-
vings og Webers kvintettsins í sí-
gildri sveiflumúsík úr lagasafni kon-
ungs sveiflunnar Benny Goodmans.
Sextett Sigurðar Flosasonar flutti
eingöngu djassverk eftir Sigurð fyrir
tónleikagesti á Sögu og aðra Evr-
ópubúa við útvarpsviðtækin. Tónlist-
in er nútíma bopp af amerískum toga
spunnin, bæði eldri verk af geisla-
diskinum Gengið á lagið og ný verk
af nýútkomnum geisladiski Sigurðar.
Það var einvalalið í sextettinum,
allt ungir íslenskir djassleikarar,
sumir komnir gagngert frá útlöndum
til að taka þátt í þessum flutningi
og hópurinn samstilltur og vel með
á nótunum, samleikur og innkomur
fagmannlegar og sköpunarkraftur í
impróvísasjónum. Fyrirliðinn þó ætíð
í fremstu röð enda löngu kominn í
fararbrodd íslenskra blásara og djas-
slagasmiða en virðist þó alltaf vera
að taka framförum. Flutningur Sig-
urðar verður æ persónulegri og sjálf-
stæðari með árunum og hef ég ekki
heyrt hann blása af meiri yfirvegun
og smekkvísi hið gullfallega verð-
launaverk sitt In Memoriam en þetta
kvöld. Að öðrum ólöstuðum var ein-
staklega rytmískur kontrabassaleik-
ur Gunnlaugs Guðmundssonar eftir-
tektarverður, þó ekki tæki hann
miklar áhættur.
Sveiflukvintett Levinsons var á
allt öðrum slóðum djasssögunnar í
fágaðri og hófstilltri sveiflu sígildra
djasslaga af efnisskrá smásveita
Benny Goodmans, við góðar undir-
tektir áheyrenda. Leikin voru ýmis
alkunn lög eftir Benny Goodman,
gítarleikarann Charlie Christian, sem
lagði drjúgan skerf til djasssögunnar
áður en hann lést ungur að árum,
og fleiri sígild svíngnúmer. Byijaði
kvintettinn tónleikana á hinu sívin-
sæla Let’s Dance og sveiflan varð
heitari þegar á leið en inn á milli
voru tekin rólegri lög á borð við hið
tregablandna Goodbye og Moonglow
hélt öllum sínum sjarma í tærri og
glitrandi sveiflu víbrafónleiks Árna
Schevings.
Djasshátíð RúRek lauk svo á laug-
ardaginn með tónleikum stórsveitar
Reykjavíkur og leik New Jungle
kvartetts Pierre Dörge í bláendann
á vel heppnaðri djassviku.
Ómar Friðriksson
Léttir lífsþræðir
MYNPLIST
Kjarvalsstaðir
ÞRÁÐLIST
Guðrún Gunnarsdóttir. Opið kl. 10-18
alla daga til 20. október. Aögangur
300 kr. (gildir á allar sýningar);
sýningarski-á 900 kr.
í MIÐRÝMI Kjaiwalsstaða má
segja að sé að finna yfirlætislaust
andóf við þá ágætu en um leið
ágengu myndlist sem fyllir salina
sitt hvoru megin. Grannur þráður
er magnaður upp í fínleg og marg-
ofin form, sem virðast fremur snú-
ast um að vernda eigin tilveru og
innsta kjarna en að birta hann
áhorfendum í listskrúðugri útrás frá
veggjum rýmisins. Þessi einfaldleiki
kemur í fyrstu á óvart, en vinnur
mjög á við nánari skoðun.
Slík hefur oftar en ekki verið
reynslan af því að kynnast verkum
Guðrúnar Gunnarsdóttur; þau vinna
mjög á við nánari skoðun. I sýning-
um hennar í gegnum árin hefur
komið fram að listakonan hefur
óhrædd tekist á við ný efni innan
veflistarinnar, og hér fylgir hún
eftir þeim tilraunum sem hún hefur
verið að fást við undanfarin ár með
því að vinna með víra og gúmmí.
Með slíkum efnum er þróunin í
þessum miðli vissulega komin nokk-
urn veg frá upphafi sínu í klassísk-
um vefstól. í stuttri ritgerð í sýning-
arskrá bendir Auður Ólafsdóttir á
að oft hafi verið nefnt að veflist
síðari ára væri komin mjög inn á
svið höggmyndagerðar, en um leið
hafi höggmyndalistin leitað nýrra
og oft mýkri efna, og því væri hér
í raun um ákveðinn samruna miðla
að ræða. Hugtakið þráðlist nær ef
til vill einna best að skýra það sem
hér er á ferðinni, og þessi vinnuað-
ferð býður upp á umtalsverða kosti,
svo vitnað sé í orð Auðar:
„Hefðbundin vinna við vefstól
krefst mikils undirbúnings, útreikn-
inga, ögunar og þolinmæði og gefur
lítið svigrúm fyrir expressjónísk til-
þrif eða skapandi „slys“ á borð við
það þegar málari rekur blautan
pensil í striga. Þráðarskúlptúrar
Guðrúnar eru ailir ofnir af fíngrum
fram, mótaðir berum höndum líkt
og stríður leir. Það er ekki erfitt
að sjá hvílíkt frelsi aðferðafræði
vírþráðarins býður upp á í saman-
burði við hinn klassíska vef.“
Morgunblaðið/Þorkell
GUÐRÚN Gunnarsdóttir: Þörungar, 1996.
Þetta frelsi er vandmeðfarið, og
listakonan notar það af mikilli hóg-
værð í þeim verkum sem hún sýnir
hér. Fyrst ber að nefna að málm-
þráðurinn verður að lífrænum form-
um í höndum hennar; köngulóavef-
ir, mosaþembur, þörungar og annar
sjávargróður - slík eru tengslin sem
formin skapa í þeim íyþmíska
spuna, sem Guðrún hefur leikið af
fingrum fram.
Þessi form skiptast í raun i tvo
meginflokka á veggjunum. Annars
vegar eru lokuð, nær hnöttótt verk,
þar sem margþættir vírar verða að
þéttofinni heild, líkt og skel sem
verndar óþekktan kjarna lífsins
gagnvart umhverfinu; þó leita þessi
form oftar en ekki út á við, þar sem
gúmmístrangar eða vírendar standa
út frá þéttum massanum - tilvísun-
in í fálmkennda leit lífs í þróun er
hér afar nærtæk.
Þessi leit verður kerfisbundin og
ákveðin í opnari verkunum, þar sem
net eru lögð fyrir umhverfið; vefir
köngulóarinnar, breiður mosans og
önnur viðkvæm tengivirki náttúr-
unnar eru hér endurspegluð með
•SAKAMÁLASÖGUR munu
skipa verðugan sess á bókasýn-
ingunni sem verður haldin í
Gautaborg 24.-27. október.
Verður haldinn „Dagur spæjar-
ans“ og kynntar nýjar bækur
um sakamálasögur.
•NORSKA ríkissjónvarpið hef-
ur boðað til óvenjulegrar sam-
einföldum hætti, þar sem styrkur
þeirra jafnt sem veikleiki blasir við.
Sú örlitla óregla sem fylgir þessum
vefnaði nýtur sín vel á hvítum
veggjunum í rými, þar sem beinar
línur ríkja; smæð þráðanna og létt-
leiki verður afl verkanna og styrk- |
ur, þegar betur er að gáð.
Skráin sem fylgir þessari sýningu •
er á sama formi og hefur verið )
notað vegna sýninga íslenskra lista-
manna á Kjarvalsstöðum undanfar-
in misseri; lítill bæklingur með
stakri ritgerð og yfirliti yfir feril
viðkomandi, auk korta með mynd-
um af einstökum listaverkum. Þetta
form er ódýrt og handhægt, sem er
í senn kostur og galli, og látleysi
þess á vel við í þessu tilviki.
íslensk veflist - í þessu tilviki ,
hentar heitið þráðlist ef til vill betur '
- er í mikilli þróun, og hér getur I
að líta ákveðinn anga þeirra breyt-
inga, sem eru í deiglunni; um leið
er hægt að sannfærast enn og aft-
ur um að það þarf ekki alltaf stærð
og umfang til að skapa eftirtektar-
verða list.
Eiríkur Þorláksson
7“ i
keppni í samvinnu við Grieg- |
félagið þar í landi. í tengslum í
við Grieg-hátíð sem sýnd verð- "
ur í sjónvarpinu árið 1998 er
boðað til samkeppni um að
ljúka við píanókonsert sem
Edvard Grieg Iauk ekki við.
Er búist við því að tónskáld
hvaðanæva að muni taka þess-
ari áskorun.
Þýskir bókadagar í Reykjavík
Blikktrommuleik-
ur á Töfrafjalli
Bókadagar eru nýbreytni og í senn kynning og sölumark-
aður erlendra bóka. Jóhann Hjálmarsson leit inn hjá
Eymundsson í Austurstræti til að forvitnast um þýska
höfunda og bókaútgáfu.
Á Þýskum bókadögum hjá Eymundsson í
Austurstræti eru engar bækur eftir Johann
Wolfgang von Goethe, en aftur á móti bók
um hann. Að sögn Jónfinns Joensen versiun-
arstjóra var ákveðið að bókadagarnir kynntu
sérstaklega samtímabókmenntir og þess
vegna eru elstu höfundarnir bræðurnir Thom-
as og Heinrich Mann, Erich Maria Remarque
og Heinrich Böll svo að einhverjir séu nefnd-
ir. Meðal yngri manna eru Giinter Grass og
Patrick Súskind.
Haft var samráð við þýsk bókaforlög og
afráðið að velja nútímaverk, einkum skáld-
sögur. Af rúmlega 500 titlum eru 300 skáld-
verk, allt kiljur. Verð þeirra er frá 500-2.000
kr. Meðal efnisflokka eru líka listaverkabæk-
ur, ævisögur, sagnfræði og alfræðibækur.
Forlög sem taka þátt í bókadögunum eru m.
a. Suhrkamp, Fischer, Ddv, Rowohlt, Heyne,
Ullstein, Piper, Goldmann og Diogenes.
Jónfinn Joensen sagði að Þýsku bókadag-
arnir væru til dæmis gott tækifæri fyrir bóka-
söfn til að bæta við og fylla í eyður, en ekki
síst væri tilgangurinn að sýna almenningi
hvað væri að gerast í þýskri bókaútgáfu.
Reynt væri að gefa hugmynd um það sem
helst er á döfinni í þýskum bókmenntum.
Ljóðabækur væru þó ekki með, þær seldust
lítið. Fyrir 10 árum var þýsk bókasýning á
Kjarvalsstöðum og var þá Eymundsson einn-
ig með í ráðum.
Þýskir ferðamenn helstu kaupendur
Þeir sem eru að læra þýsku, þýskukennar-
ar, Þjóðverjar hér á landi og einnig ýmsir
grúskarar spyija helst um þýskar bækur í
bókabúðum, en af þeim er lítið framboð.
Þýska er almennt ekki jafn mikið lesin og
norræn tungumál. Mest er sala hvers kyns
léttmetis. Þýskir ferða-
menn eru helstu kaupendur
þýskra bóka hér á landi,
að sögn Jónfinns.
Skáldsögur í kiljum eru
sem fyrr segir áberandi á
Þýskum bókadögum.
Töfrafjallið eftir Thomas
Mann fæst fyrir 1.875 kr.
, Mefistó Klaus Manns
1.150 kr., skáldsögur
Heinrichs Manns á 1.495
kr. stykkið, bækur Christu Wolf 1.295 kr.
stykkið, Blikktromma Gúnters Grass fyrir
1.535 kr., þýsk bókmenntasaga í tveimur
bindum 2.460 á bók og skáldsaga eftir Sten
Nadony 1.295 kr. Sama
verð er á sérkennilegri
sögu Patricks Súskinds,
Die Geschicte von Herrn
Sommer með litmyndum
eftir Sempe. Kostur er á
skáldsögum eftir jafn vin-
sæla höfunda og Stefan
Zweig, Erich Maria Rem-
arque og Carl Zuckmayer
fyrir rúmlega þúsund
krónur.
Listaverkabækur, innbundnar og með
íjölda litmynda, eru á bilinu 2.000-6.000 kr.
Veglegt sagnfræðirit mikið myndskreytt eins
og Chronik der Deutschen (eins konar Aldir)
kostar 2.995 kr. Uppsláttarrit í nokkrum h
bindum geta kostað um 6.000 kr. Níu binda *
verk um Þýska bankann má fá á 9.850 kr. |
og virðist upplagt fyrir Seðlabankann sé það
ekki þar fyrir. Ævisögur stjórnmálamanna,
til að mynda Genschers, Kohls og Brandts
eru á viðráðanlegu verði. Ný bók um Albert
Speer eftir breska blaðamanninn Gittu Serony
kostar 4.195 kr., en það tók hana tólf ár að
setja saman þessa 900 bls. bók um arkitekt
og vígbúnaðarráðherra Hitlers sem alltaf
virðist spennandi eins og fleira frá nasistatím- p
unum.
Námsbækur og orðabækur eru á boðstólum .
og geisladiskur sem inniheldur orðasafn. *
Nýja þýska réttritunarbókin er til og er seld
á 2.560 kr.
Bókadagar gefa góða raun
Danskir, grænlenskir og bandarískir bóka-
dagar hafa verið áður hjá Eymundsson og
gefið góða raun. Ætlunin er að halda bóka-
dögum áfram og kemur þá röðin að öðrum L
löndum.
Eigi að finna að vali bókanna á Þýsku |
bókadögunum er það helst að eldri samtíma- k
höfundar tijóni þar á kostnað yngri höfunda. 9
Einnig er það galli að engar ljóðabækur eru
frá landi Gottfrieds Benns, Hans Magnus
Enzensbergers, Reiners Kunze og Sarah
Kirsch.
Það hlýtur að vera nokkurt áhyggjuefni
að léttmeti selst best í bókabúðum hérlendis
og erlendii' höfundar vandaðra bókmennta
komast með naumindum inn fyrir þröskulda t
bókabúðanna hér. Erlendir bókadagar geta
vissulega haft áhrif á að menn fari nú að
lesa annað en afþreyingu þótt sjálfsagt sé |
að hafa hana tiltæka.