Morgunblaðið - 03.10.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 45
„Valfrjálst“ tilvísanakerfi
í heilbrigðisþj ónustunni
í BYRJUN júlímán-
aðar sl. kynnti heil-
brigðisráðuneytið
stefnuyfirlýsingu sína
um „aðgerðir til að
efla heilsugæslu og
hafa áhrif á verka-
skiptingu í heilbrigðis-
þjónustu". Ljóst er að
stefnuyfirlýsing þessi
tengist uppsögnum
heilsugæslulækna fyrr
á árinu og er hluti af
samkomulagi þeirra
og ráðuneytisins. Ekk-
ert samráð var haft
við aðra lækna en þá Ólafur F.
sem starfa á heilsu- Magnússon
gæslustöðvum í eigu
ríkisins.
í frétt Morgunblaðsins þann 9.
júlí sl. er greint frá áðurnefndu
samkomulagi „um breytta skipan
heilsugæslu". Þar er jafnframt
greint frá að tekið verði upp „val-
frjálst stýrikerfi" og að ókeypis
verði hjá heilsugæslulæknum og
afsláttur hjá sérfræðingum fyrir
þá skattgreiðendur sem samþykkja
„að greiða upphæð á milli t.d. 1500
og 2000 krónur". Við lestur á
stefnuyfirlýsingu ráðuneytisins
kemur í ljós að með því að kjósa
hið „valfrjálsa stýrikerfi“ eru ein-
staklingar í raun að undirgangast
tilvísanakerfi sem felur í sér veru-
lega takmörkun á aðgengi að sér-
fræðiþjónustu lækna frá því sem
nú er.
Þó að ýmislegt jákvætt megi
finna í áðurnefndri stefnuyfirlýs-
ingu er þar einnig margt að finna
sem er afar gagnrýnivert. Hér á
eftir er ætlunin að koma á fram-
færi nokkrum athugasemdum við
stefnuyfirlýsinguna og það „val-
ftjálsa stýrikerfi", sem hún boðar.
Hæpnar
staðhæfingar
í inngangi áðurnefndrar stefnu-
yfirlýsingar eru settar fram hæpn-
ar staðhæfingar. Þar er m.a. að
fínna svohljóðandi setningu: „Svo
langt er gengið að fullyrt er að
heilbrigðisyfirvöld séu með af-
skiptaleysi sínu að leggja heilsu-
gæslukerfið og þar með heilbrigði-
skerfíð allt í rúst.“ Þó að víða sé
úrbóta þörf í heilsugæslu lands-
manna fær áðurnefnd fullyrðing
ekki staðist. Einnig hefur því verið
haldið fram í umræðu um tillögurn-
ar, að heilsugæsla í Reykjavík og
nágrenni sé lakari en á landsbyggð-
inni. Slíkar staðhæfingar eru fjarri
sanni. íbúar höfuðborgarsvæðisins
búa við miklu meira öryggi í heil-
brigðismálum en íbúar landsbyggð-
arinnar. Þeir fyrrnefndu eiga flest-
ir greiðan aðgang að heimilis-
lækna- og sérfræðiþjónustu utan
sjúkrahúsa og við innlögn á sjúkra-
hús þurfa íbúar höfuðborgarsvæð-
isins ekki að undirgangast langar
og jafnvel hættulegar ferðir, eins
og gildir um dreifbýlisfólkið.
Sjálfsagt er að efla frumheilsu-
gæslu og heilsuvernd á höfuðborg-
arsvæðinu, en það þýðir ekki að
skerða þurfí aðgang fólks að sér-
hæfðri læknisþjónustu með
skömmtunar- og miðstýringarað-
gerðum. Kostnaðarstýring til frum-
heilsugæslunnar er þegar fyrir
hendi og góð frumheilsugæsla þarf
ekki á verndandi einokunarstöðu
að halda gagnvart annarri læknis-
þjónustu.
í áðurnefndum inngangsorðum
stefnuyfirlýsingar ráðuneytisins
má einnig lesa eftirfarandi:
„Astandið er talið verst í Reykjavík
þar sem sjálfstæð starfsemi sér-
fræðinga er talin ógna uppbygg-
ingu heilsugæslunnar og taka frá
henni verkefni." Haldið er fram,
að „sérfræðingar fari gjarnan inn
á verksvið heilsugæsl-
unnar“. Vafalítið má
fínna allmörg dæmi um
það. Hitt er þó öllu
mikilvægara að m.a.
vegna góðrar og að-
gengilegrar þjónustu
sjálfstætt starfandi
sérfræðilækna utan
sjúkrahúsa geta heim-
ilislæknar á höfuð-
borgarsvæðinu með
skjótum hætti fengið
rétta sjúkdómsgrein-
ingu og viðeigandi
meðferð fyrir skjól-
stæðinga sína, án inn-
lagnar á sjúkrahús.
Þetta sparar samfélag-
inu mikla fjármuni og sjúklingum
óþarfar þjáningar!
Erlendar fyrirmyndir
óþarfar
í umræðu um hið væntanlega
„valfijálsa stýrikerfi" hefur komið
fram að fyrirmynd þessa kerfís sé
komin frá Danmörku. Það er skoð-
un mín að læknisþjónusta utan
sjúkrahúsa sé mun betri hérlendis
en á hinum Norðurlöndunum.
Reynsla mín af læknisstörfum í
miðstýrðu heilsugæslukerfí í Sví-
þjóð er sú, að Svíar ættu frekar
að taka okkur sér til fyrirmyndar
en öfugt. íslendingar hafa nokkra
reynslu af tilvísanakerfi, en slíkt
kerfí var lagt niður fyrir rúmum
áratug. í byijun sl. árs hugðist
þáverandi heilbrigðisráðherra, Sig-
hvatur Björgvinsson, endurvekja
tilvísanakerfíð. Skoðanakannanir
þá staðfestu andstöðu almennings
við tilvísanakerfíð.
„Valfijálsa stýrikerfið" er í raun
ekki annað en tilvísanakerfí með
nýrri nafngift og í nýjum búningi.
Það er því áhyggjuefni, að nokkrir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
hafa lýst sig fylgjandi hugmynd-
inni, þrátt fyrir að síðasti lands-
fundur flokksins hafi hafnað tilvís-
anakerfinu. „Valfijálsa stýrikerfíð"
er síst betra en tilvísanakerfí Sig-
Heppilegra er að fella
niður gjaldtöku á heilsu-
gæslustöðvum hjá börn-
um, öldruðum og
öryrkjum, að mati
“5
Olafs F. Magnússonar,
en að koma á „val-
frjálsu stýrikerfi“.
hvats Björgvinssonar og virðist
bæði flóknara og dýrara í fram-
kvæmd.
Fyrirheit um niðurgreidda
þjónustu
Ein ástæða þess að mörgum líst
vel á „valfijálsa stýrikerfíð" við
fyrstu sýn er sú að þar er að finna
fyrirheit um verulegar niðurgreiðsl-
ur á komugjöldum á heilsugæslu-
stöðvar umfram það sem nú er.
Einnig er lofað auknum afslætti
hjá sérfræðingum. Þessar niður-
greiðslur eru í sjálfu sér ágætar
en óþarft er að tengja þær við
miðstýringar- og skömmtunarkerfí
á borð við „valfrjálsa stýrikerfíð“,
sem að auki hefur kortaútgáfu og
skriffínnsku í för með sér.
í dag þarf einstaklingur, sem
orðinn er 16 ára að greiða 12.000
krónur vegna læknishjálpar utan
sjúkrahúsa, áður en hann fær af-
sláttarkort. Fyrir börn yngri en 16
ára í sömu fjölskyldu þarf að greiða
samanlagt 6.000 krónur til að fá
afsláttarkort.
Þetta þýðir að fyrir hjón með
fjögur börn, þar af þijú eldri en
16 ára, er útlagður kostnaður í
dag, áður en allir fjölskyldumeðlim-
ir fá afsláttarkort, 66.000 krónur.
Þessi sama sex manna fjölskylda
þarf aðeins að greiða um 10.000
krónur fyrir ókeypis aðgang að
heilsugæslustöðvum og afslátt hjá
sérfræðingum, ef merkt er við reit
á skattframtali þar sem gengist er
undir „valfijálst stýrikerfí". Hér er
því um mjög miklar niðurgreiðslur
að ræða umfram það sem nú er
vegna kostnaðar við læknishjálp.
Að mínu mati eru þessar niður-
greiðslur vegna kostnaðarþátttöku
sjúklinga svo háar að fólk á í raun
og veru ekki annars úrkosti en að
merkja í reitinn á skattframtalinu,
þar sem gengist er undir „valfijálsa
stýrikerfíð“. Miklu sanngjarnara
og hagkvæmara væri að fella niður
öll komugjöld á heilsugæslæustöðvr^
ar án þess að koma á tilvísana-
kerfí. Það væri einnig heppilegra
fyrir almenning. Ég hef raunar
þegar lýst þeirri skoðun minni að
falla beri frá „valfijálsa stýrikerf-
inu“. í staðinn verði felld niður
gjaldtaka á heilsugæslustöðvum
hjá börnum yngri en 16 ára og
einstaklingum 67 ára og eldri og
öðrum lífeyrisþegum.
Höfundur er sjálfstætt starfandi
heimilislæknir í Reykjavík.
f1
II
lóntæknistofnun
Framtíðarlausnir í umbúða-
málum - Mámsstefna
Nýleg tilskipun Evrópusambandsins um umbúðir og umbúðaúrgang
er hluti af EES-samningnum. íslensk fyrirtæki og sveitarfélög þurfa
að bregðast við ákvæðum tilskipunarinnar strax á næstu misserum.
Námsstefnan er ætluð fyrirtækjum og sveitarfélögum sem hanna, framleiða,
nota, selja, kaupa eða farga umbúðum. Fjallað verður m.a. um nýja umbúða-
löggjöf, þróun umbúðamála í Evrópu og hvernig íslenskt atvinnulíf geti upp-
fyllt kröfúr sem löggjöfin setur.
Aðalfyrirlesarar eru Gunilla Jönson prófessor í flutnings- og umbúðatækni og
Kaj Ringsberg doktor í vörustjórnun við Háskólann í Lundi.
Námsstefnan er haldin í Borganúni 6, föstudaginn ll. október, kl. 08:30-
17:00.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 587 7000.