Morgunblaðið - 03.10.1996, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 47
H
Ú
I
>
.
j
I
I
I
J
I
í
I
I
I
I
3
,
j
I
AÐSEIMDAR GREINAR
Hver ræður?
FLUTNINGUR op-
inberra stofnana frá
Reykjavík er iiður í ijöl-
þættum aðgerðum
gegn byggðaröskun-
inni í landinu. Nauðsyn
slíkra aðgerða hefur á
síðari árum hlotið al-
menna viðurkenningu.
Fólksflutningarnir til
höfuðborgarsvæðisins,
einhæfni atvinnulífsins
í öðrum landshlutum,
margvíslegur aðstöðu-
munur eftir búsetu og
fleiri einkenni þjóðfé-
lagsþróunarinnar á síð-
ari áratugum hafa í æ
ríkari mæli mótað stjórnmálaum-
ræðuna í landinu. Allir þingflokkar
og fjölmörg hagsmunasamtök hafa
lýst yfir stuðningi við flutning ríkis-
stofnana sem lið í byggðastefnu
opinberra aðila.
a) Stofnanaflutningur dregur úr
miðstýringu og stuðlar að vald-
dreifingu í þjóðfélaginu.
b) Flutningur einstakra ríkis-
stofnana og stofnun útibúa frá
öðrum eru liðir í jöfnun aðstöðu
þegnanna til að njóta hinnar marg-
víslegu þjónustu sem opinberir aðil-
ar inna af hendi.
c) Flutningur rikisstofnana
stuðlar að íbúafjölgun út um land.
Með stofnunum myndu flytjast
hópar fólks úr sérhæfðum starfs-
stéttum sem nú eru nær eingöngu
bundnar höfuðborgarsvæðinu.
d Stofnanaflutningur hefði í för
með sér fjölþættari atvinnutæki-
færi utan höfuðborgarsvæðisins.
e) Tilvist ríkisstofnana víða um
land hefði í för með sér aukin
umsvif í viðskipta- og athafnalífi
landsbyggðarinnar.
f) Flutningur tiltekinna stofn-
ana getur styrkt uppbyggingu
ákveðinna atvinnugreina í einstök-
um iandshlutum.
Markmið:
1. Stofnanaflutningur sé liður í
almennum byggðaþróunaraðgerð-
um.
2. Stofnanaflutningur dragi úr
miðstýringu, stuðli að dreifingu
valds og leiði til aukins lýðræðis.
3. Stofnanaflutningur jafni að-
stöðu þegnanna um allt land til að
njóta þjónustu ríkisins.
4. Stofnanaflutningur leiði til
fjölgunar íbúa landsbyggðarinnar
og dragi úr þenslu höfuðborgar-
svæðisins.
5. Stofnanaflutningur leiði tii
jafnari dreifingar atvinnutækifæra
um iandið með því að skapa sér-
menntuðu fólki starfsgrundvöll ut-
an Reykjavíkur.
6. Stofnanaflutningur styrki
efnahagskerfi einstakra landshluta
með því að auka viðskipti og fram-
kvæmdir innan þeirra og fjár-
magnsstreymi frá miðstöðvarsjóð-
um ríkiskerfisins.
7. Stofnanaflutningur dragi úr
húsnæðiskröfum í miðbæjarhverf-
um Reykjavíkur og geri þannig
skipulagsvanda höfuðborgarinnar
á því sviði minni en ella.
8. Stofnanaflutningur leiði ekki
til lakari virkni einstakra hluta
þess.
9. Stofnanaflutningur skerði
ekki starfsgetu stofnunar þótt
tímabundnir erfiðleikar séu eðlilega
oft samfara siíkri breytingu.
10. Stofnanaflutningur hafi að-
eins minniháttar kostnaðarauka í
för með sér fyrir einstakar stofnan-
ir og helst meiri hagkvæmni fyrir
þjóðarheildina vegna ódýrari og
fljótvirkari samskipta þegnanna við
ríkiskerfið.
Landhelgisgæsla íslands hefur
þá sérstöðu meðal stofnana ríkisins
að meginþáttur starfseminnar fer
ekki fram á ákveðnum stað, heldur
er á sjó og í lofti. Þetta eðli Land-
helgisgæslunar gerir hana hæfari
til flutnings en ella. Það má teljast
kostur að fjarlægð iíeflavíkur frá
höfuðborgarsvæði er svo lítil að til
hagræðis má vera á
umþóttunartíma. Þarf
þá ekki að tefja þótt
einhver aðstaða, svo
sem fyrir varðskip og
flugvéiar, kunni ekki
strax að vera fullbúinn
fyrir hendi í nýjum
heimkynnum, þar sem
notast má áfram við
það sem búið var við
meðan ráðrúm gefst
til nauðsynlegra að-
gerða. Margt stuðlar
að því að flutningur
Landhelgisgæslunnar
til Keflavíkur megi
komast í framkvæmd
án langs aðdraganda.
Sala varnarliðseigna
Samningar um kaup varnarliðs-
ins á vörum og þjónustu skulu
verða gefnir frjálsir. Öllum sem
áhuga hafa á slíkum viðskiptum
verður gefinn kostur á að taka
þátt í útboðum, uppfylli þeir ákveð-
in efnisleg skilyrði. Markmiðið er
að tryggja öllum seljendum vöru
og þjónustu jafnan aðgang að
samningum við varnarliðið.
í ofangreindri tilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu segir enn-
fremur að með þessum breytingun-
um sé brugðist við ítrekuðum at-
hugasemdum við rekstur Sölu
varnarliðseigna með hagræðingu
og því að fela stofnuninni aukin
verkefni og ítrekað er að flytja
skuli rekstrareiningu Umsýslu-
stofnunar til Suðumesja til hag-
ræðis og vegna nálægðar við Kefla-
víkurflugvöll.
Til umhugsunar: Ofangreint er
samtíningur úr nefndaráliti nefnd-
ar sem skipuð var til að kanna
staðarval ríkisstofnana 1975 og úr
nefndaráliti nefndar sem skipuð var
til að vinna að tillögugerð um flutn-
ing stofnana frá höfuðborgarsvæði
til landsbyggðar 1993. Báðar
nefndirnar voru skipaðar af forsæt-
isráðuneyti. Auk þessa er vitnað
til tilkynningar frá utanríkisráðu-
neyti vorið 1995 sem fjallaði um
flutning Sölu varnarliðseigna til
Suðurnesja.
Þetta er birt hér til upplýsingar
vegna umræðu um flutning ríkis-
Hverjir ráða ferðinni?
Frið.ión Einarsson
spyr hvort allt hvíli á
pólitísku handafli
og' klíkuskap?
stofnana undanfarið i fjölmiðlum
og til þess að varpa ljósi á mark-
mið og ástæður. Það vekur furðu
undirritaðs að þrátt fyrir nefndar-
álit og tillögugerðir virðist engin
fastmótuð stefna vera til í þessum
málum. Flutningur ríkisstofnana
frá höfuðborgarsvæði til lands-
byggðar virðist velta á valdi ein-
stakra embættismanna og í engu
samræmi við ofangreindar tillögur
þing- og embættismanna. Undirrit-
aður veltir því fyrir sér hveijir ráði
ferðinni og hvort allt hvíli á póli-
tísku handafli og klíkuskap?
Nefna má sem dæmi flutning
Umsýslustofnunar til Suðurnesja.
Það var ákveðið að flytja rekstrar-
einingu til Suðurnesja vegna hag-
ræðis og sparnaðar vorið 1995 og
voru embættismenn tíðir gestir á
Suðurnesjum til að undirbúa flutn-
ing og skoða aðstæður. Enn hefur
ekkert gerst í því máli og hafa
yfirlýsingar embættismanna vérið
í allar áttir og þegar spurt er hvern-
ig gangi koma engin svör. Emb-
ættismennirnir segja að ástæða
þess að ekkert hafi gerst í málinu
sé vandræðagangur í pólitísku
valdatafli og að starfsmenn stofn-
unarinnar séu á móti flutningnum
til Suðurnesja.
Er nokkur furða að menn spyiji
hver sé stefna ríkisstjórnarinnar í
þessum málum og hver í raun ráði
ferðinni, stjórnmálamenn, embætt-
ismenn eða einstakir starfsmenn
stofnana.
Það verður að gæta jafnvægis í
þessum málum og vinna að þeim
á þann hátt að mark sé takandi á
yfirlýsingum og ákvarðanatöku
ráðamanna.
Virðingarfylist.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Markaðs- og atvinnumála-
skrifstofu Reykjanesbæjar.
OROBUU
KYNNING
AFSLÁTTUR
af öllum OROBLU sokkabuxum
fimmtudaginn, 3- okt. og föstu-
daginn, 4. okt. kl. 13.00-17.00.
■ BONJOUR 30
Nýjar frábærar lycra stuðnings/
nuddsokkabuxur - 50 den.
Venjulegt verð 467 kr. - kynningarverð 374 kr.
Ath. Leitið ekki tangtyfir skammt - lægsta verðið á 0R0BLU sokkabuxunum er á íslandi
1
1 APÓTEK AU STLTRBÆJAR Háteigsvegi 1 -Sími 562 1044
Friðjón
Einarsson
*
Utgerðarfélagið Stakksvík hf. - Reykjanesbæ
auglýsir eftirtaldar eignir félagsins til sölu:
Húsið er um 4.400ferm. að stœrð og hefur að stórun hluta verið endumýjað til
að uppfylla ströngustu kröfur Evrópusambandsins. Húsið er að hluta til í leigu.
Fiskvinnsluhús á Vatnsnesvegi 2, Keflavík (Stóra-milljón).
Hlutir og hlutabréf í: Skipaafgreiðslu Suðumesja.
Um er að rœða 25% ífélaginu að nafnvirði kr. 5.500.000.
Olíusamlagi Keflavíkur og nágrennis.
Um er að rœða 9,7% ífélaginu að hókfœrðu verðmœti
skv. reikningum þess ca kr. 10.700.000.
Fiskmarkaðinum hf., Hafnarfirði.
Hlutur að nafnverði kr. 420.000.
Einnig er möguleiki á sölu félagsins í heild ásamt eignum og skattalegri stöðu þess.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Böðvar Jónsson,
stjómarformaður Stakksvíkur hf.
Hs. 421 1743, vs. 421 1700, GSM 896 0362.
RANNIS
Rannsóknarráð Islands auglýsir
styrki úr eftirfarandi sjóðum með umsóknarfrest
til 15. nóvember 1996
Vísindasjóði er hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir.
Tæknisjóði er hefur það hlutverk að styðja nýsköpun í íslensku
atvinnulífi með því að efla tækniþekkingu, rannsóknir og þróunarstarf.
Bygginga- og tækjasjóði er hefur það hlulverk að styrkja tækjakaup og
uppbyggingu á aðstöðu til rannsókna í vísindum og tækni.
Umsækjendur geta verið:
Vísindamenn og sérfræðingar.
Háskólastofnanir og aðra vísinda- og rannsóknastofnanir.
Fyrirtæki, einstaklingar og samtök er hyggjast vinna að rannsóknum
og nýsköpun.
Veittir eru femskonar styrkir úr ol'angreindum sjóðum sem hér segir:
1. "Verkefnisstyrkir" til fræðilegra og hagnýtra verkefna.
Miðað er við að upphæð styrkja geti numið allt að 5.000 þús kr.
2. "Forverkefna- og kynningarstyrkir"
* til undirbúnings stærri rannsókna- og þróunarverkefna, allt að 600 þús kr.
* til að fylgja eftir og koma á framfæri niðurstöði verkefna sem lokið er
styrkir til undirbúnings umsókna í 4. rammaáætlun Evrópusambandsins,
allt að 300 þús. kr.
3. Starfsstyrkir"
Veittar verða tvær tegundir starfsstyrkja:
* "Rannsóknarstöðustyrkir" eru veittir úr Vísindasjóði til tímabundinna starfa
vísindamanna, er nýlega hafa lokið doktorsprófi eða hlotið samsvarandi
menntun við viðurkennda háskóla. Styrkir era veittir til allt að 3ja ára við
innlenda stofnun og nema launum sérfræðings.
* "Tæknimenn í fyrirtæki" er heiti styrkja sem veittir eru úr Tæknisjóði til
fyrirtækja í þeim tilgangi að ráða vísinda- og/eða tæknimenntað fólk til starfa.
Styrkir eru veittir til allt að 3ja ára og nema hálfum launakostnaði sérfræðings.
* 4. "Bygginga- og tækjakaupastyrkir"
* Veittir eru styrkir út Bygginga- og tækjasjóði til að styrkja kaup á tækjum og
búnaði og byggja upp aðstöðu til rannsókna fyrir vísinda- og rannsóknasarfsemi
Eyðublöð á tölvudisklingi og leiðbeiningabæklingur verða tilbúin til afhendingar
fimmtudaginn 3. október nk. hjá Rannsóknarráði íslands, Laugavegi 13,
sími 562 1320, fax 552 9814. Eyðublöðin er einnig hægt að ná í á Internetinu
á heimasíðu RANNÍS. Slóðin er: http://www.centrum.is/rannis/
- kjarni máisins!