Morgunblaðið - 03.10.1996, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIMGAR
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 53
ARNA
STEINÞÓRSDÓTTIR
+ Arna Steinþórs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 4. maí
1958. Hún lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 22. september
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Bessastaða-
kirkju 2. október.
Elsku Arna.
Mig langar að kveðja
þig og það er erfitt. Þú
gafst okkur svo mikið
af kærleika þínum og
visku. Betri nágranna
hefur ekki verið hægt að hugsa
sér. Alltaf varstu tilbúin að hugsa
um stelpurnar mínar og aðstoða í
öllum málum sem ég bar undir þig.
Einnig varstu mikill félagi minn og
sýndir mér mikinn hlýhug, bæði
með framkomu þinni og gjöfum.
Þér treysti ég svo vel fyrir stelpun-
um mínum. Þær eru alltaf svo
ánægðar á heimili þínu. Upp í hug-
ann kemur margt. T.d. þegar þú
leist oft eftir yngri dóttur minni
nýfæddri heima hjá mér, svo ég
þyrfti ekki að hafa hana með mér
til og frá leikskóla með eldri börnin
okkar. Þá man ég líka eftir fyrsta
skiptinu sem hún fór í langan tíma
í pössun utan fjölskyldunnar, sex
mánaða gömul, þegar pabbi minn
var jarðaður. Þá treysti ég þér best
fyrir henni.
Hægt er að telja endalaust upp
það sem þú hefur gert fyrir mig
og fjölskyldu mína og það á ég
áfram í minningunni um þig. Við
vildum örugglega flest líkjast þér.
Alltaf ráðagóð, sátt, lítillát, æðru-
laus, alltaf að hugsa um aðra. Ynd-
isleg móðir, eiginkona, dóttir og
allt sem hægt er að nefna, ekki
síst nágranni og vinur. Það var svo
gott að hafa þig við hliðina á okk-
ur. Þú sýndir mér líka traust og
treystir mér fyrir þínum börnum.
Þú leyfðir þeim að koma til mín.
Það er alltaf ánægjulegt og gott
að hafa þau hjá okkur, börn sem
eru vel upp alin og skemmtileg, sem
hafa fengið mikla ástúð og um-
hyggju. Nú bið ég góðan Guð að
styrkja mig og gefa mér nægan
kærleik til að gefa þínum börnum
og þinni fjölskyldu. Ég veit að þú
hefðir gert það fyrir mig í sömu
sporum. Þú átt yndislega fjölskyldu
sem við fáum að hafa áfram við
hliðina á okkur. Þú hefur gefið
henni mikið. Þakka þér fyrir allt.
Um leið og ég kveð þig í bili,
með miklum söknuði, trúi ég að þú
sért núna í faðmi Guðs. „Því svo
elskaði Guð heiminn, að hann gaf
son sinn eingetinn, til þess að hver
sem á hann trúir glatist ekki, held-
ur hafi eilíft.“ (Jóh. 3.16.)
Elsku Andrés minn, Ása, Arnþór
Ingi og Auður Ásta mín. Við íjöl-
skyldan vottum ykkur okkar dýpstu
samúð, elsku vinir. Við munum
áfram biðja Guð að blessa ykkur
og styrkja um alla framtíð. Éinnig
vottum við Ástu móður Örnu inni-
lega samúð. Við vottum líka föður,
bróður, tengdaforeldrum og fjöl-
skyldum ykkar beggja, samstarfs-
fólki Örnu og vinum, okkar innileg-
ustu samúð og biðjum Guð um styrk
handa ykkur öllum. Eins vil ég biðja
Guð um kærleik handa hreppsbúum
í framtíðinni til að sýna Andrési og
börnunum.
Blessuð sé minning Örnu.
Sólbjörg Karlsdóttir.
Fyrir hönd Foreldra- og kennara-
félags Álftanesskóla viljum við
koma á framfæri innilegu þakklæti
fyrir óeigingjörn störf Örnu Stein-
þórsdóttur í þágu barna í Álftanes-
skóla mörg undanfarin ár.
vizku þinnar,
ástjarðar ljúfasta ljós.
(Jónas Hallgr.)
Kæri Andrés, Ása,
Arnþór Ingi og Auður
Ásta. Við sendum ykk-
ur okkar inniiegustu
samúðarkveðjur.
Stjórn Foreldra; og
kennarafélags Álfta-
nesskóla.
Hún Arna okkar er
dáin!
Þeir sem misst hafa
ástvin þekkja tilfinninguna, hrollinn
sem hríslast um mann, spurning-
arnar sem aldrei var spurt og svör-
in sem ekki fengust. Svo virðist sem
jörðin hætti augnablik að snúast
og grasið að gróa. En dauðinn ger-
ir sjaldan boð á undan sér, svo þeg-
ar allt í einu er klippt á þessa til-
veru bregður manni. Hversu vel sem
við þykjumst undir hann búinn kem-
ur hann okkur jafnan í opna skjöldu.
Hann er hinn kaldi veruleiki, stað-
reynd sem enginn fær flúið.
Kynni okkar Örnu mágkonu hóf-
ust þegar hún og Andrés bróðir
fóru að vera saman og ekki leið á
löngu þar til mikill vinskapur tókst
með okkur. í huga mínum er það
orðið lánsemi sem kemur fyrst upp
í hugann þegar ég hugsa um hana
Örnu mína, svo ótrúleg lánsemi að
hafa átt þess kost að kynnast henni.
Þú barst með þér sólskin og svalandi blæ,
það sáu víst flestir er komu á þinn bæ.
þó harmandi væru og hryggir í lund
þá hressti og nærði þín sænverustund.
(Ágúst Jónsson)
Heiðarleiki, traust og trú voru
einkenni Örnu en ef henni mislíkaði
eitthvað, skóf hún ekki utan af
því. Hún var alla tíð boðin og búin
að rétta hjálparhönd, sérstaklega
ef börnin voru annarsvegar, því
börn voru henni líf og yndi. Jafn-
barngóð kona og Arna var vand-
fundinn. Arna lifði fyrir fjölskyldu
sína og hef ég sjaldan séð eins sam-
rýnd hjón og Örnu og Andrés. Það
var eins og þau væru mótuð í sama
steininn. En eitt er víst að stórt
skarð hefur verið höggvið í raðir
okkar sem ekki verður hægt að
fylla. Sár ástvinamissir verður aldr-
ei bættur og það getur enginn kom-
ið í annars stað. Það er fátt sem
manni finnst jafntilgangslaust og
hörmulegt og þegar ung móðir er
kölluð burt frá þessu jarðlífi frá
börnum sinum. Én sólargeislarnir
ykkar Andrésars þau Ása, Arnþór
Ingi og Auður Ásta, munu alla tíð
verða lifandi minning um þig.
Þrátt fyrir veikindi sín bar Arna
höfuðið hátt og tók því sem koma
skildi með fádæma stillingu. Já-
kvæð hugsun og hugarró taldi hún
vænlega í baráttu við þann vágest
sem sótti að henni og fram á sið-
asta dag kvartaði hún aldrei og var
full af lífsgleði og bjartsýni. Það
er erfitt að sætta sig við að Arna
er ekki á meðal okkar, en við verð-
um hins vegar að læra að sætta
okkur við að hún er farin og munum
alltaf minnast þess tíma sem við
áttum með henni. Minninguna um
hana geymum við í hjarta okkar
og gleymum aldrei.
Með ástkærri þökk fyrir umliðna tíð,
örugga vináttu og orðin þín blíð.
Við kveðjum þig vinur sem fórst okkur frá
og framar á jarðriki megum ei sjá.
(Ágúst Jónsson)
Elsku Andrés, Ása, Amþór Ingi,
Auður Ásta, Steinþór, Ásta, Erlend-
ur, Vendý, mamma, pabbi og aðrir
ástvinir. Guð styrki okkur öll og
styðji á þessari erfiðu stundu. Minn-
umst orða Kahlils Gibran: Þegar
þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
aftur hug þinn, og þú munt sjá, að
þú grætur vegna þess sem var gleði
þín og þeim mun dýpri sem sorgin
grefur sig í hjarta manns, þeim
mun meiri gleði getur það rúmað.
Helga María, Þorsteinn,
Hlynur, Eyþór og Bryndís.
„Sorgin er gríma gleðinnar. Og
lindin, sem er uppspretta gleðinnar,
var oft full af tárum. Og hvernig
ætti það öðruvísi að vera? Þeim
mun dýpra sem sorgin grefur sig í
hjarta manns, þeim mun meiri gleði
getur það rúmað. Er ekki bikarinn,
sem geymir vín þitt, brenndur í eldi
smiðjunnar? Og var ekki hljóðpípan,
sem mildar skap þitt, holuð innan
með hnífum? Skoðaðu hug þinn
vel, þegar þú ert glaður, og þú
munt sjá, að aðeins það, sem valdið
hefur hryggð þinni, gerir þig glað-
an. Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.“ (Úr Spámannin-
um).
Okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur til aðstandenda. Kveðja.
Bekkjarsystur úr Fóstru-
skóla Islands.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJARNl EINARSSON,
frá Túni á Eyrarbakka,
Grettisgötu 52,
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt
2. októbers.
Jarðarförin auglýst síðar.,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Halldór Bjarnason,
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Halldóra Bjarnadóttir, Gunnar Þorvaldsson,
Guðmundur Bjarnason, Sigurrós Ólafsdóttir,
Ingibergur Bjarnason, Elsa Þ. Dýrfjörð,
barnabörn og barnabarnabörn.
Gleðji þig guðs stjörnur,
sem gladdi bezt
mig, og mörgu sinni,
vegstjarnan fagra
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR HJALTESTED
málarameistari og kaupmaður,
Brávallagötu 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 7. október
kl. 15.00.
Guðrún Ófeigsdóttir Hjaltested,
Valgerður Hjaltested, Ófeigur Hjaltested,
Pétur Hjaltested,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
FRIÐRIK ÁGÚSTSSON
prentari,
Heiðarlundi 7a,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 4. október kl. 13.30.
Herdís Gunnlaugsdóttir,
Gunnlaugur Friðriksson,
Ágúst Friðriksson, Dagmar Kaldal,
Sigríður J. Friðriksdóttir,
Erla Friðriksdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi okkar,
SVAVAR ÁRMANNSSON
aðstoðarforstjóri,
Álfheimum 48,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 4. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á Krabbameinsfélagið.
Ingibjörg Egilsdöttir,
Ármann Jakobsson,
Hildur Svavarsdóttir, Halldór Svavarsson,
Ásta Svavarsdóttir,
Ingibjörg Svavarsdóttir,
Brynja og Ingibjörg Halldórsdaetur.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
PÉTURS I. GUÐJÓNSSONAR
bifvélavirkja,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalar-
heimilisins Höfða, Akranesi, fyrir ein-
staka umönnun og hlýhug.
Sigrún Clausen,
Arnór Pétursson, Áslaug Magnúsdóttir,
Guðfinna Pétursdóttir, Smári Vilhjálmsson,
Guðjón Pétursson, Maria Sigurbjörnsdóttir,
Arinbjörn Pétursson, Jóhanna Jónasdóttir,
Þorsteinn Pétursson, Gerða Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug vegna fráfalls og jarðarfarar eig-
inmanns míns, föður, stjúpföður,
tengdaföður, afa og langafa,
GUÐNA MAGNÚSSONAR
málarameistara,
Hlévangi,
áður Suðurgötu 35,
Keflavik.
Vignir Guðnason,
Birgir Guðnason,
Eirikur Guðnason,
Steinunn Guðnadóttir,
Árnheiður Guðnadóttir,
Ellert Eiriksson,
Hansína Kristjánsdóttir,
Guðríður Arnadóttir,
Harpa Þorvaldsdóttir,
Þorgerður Guðfinnsdóttir,
Neville Young,
Jónas H. Jónsson,
Guðbjörg Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við fráfall móður okkar, tengdamóður,
ðmmu og langömmu,
MARÍU MAGNÚSDÓTTUR,
Hagamel 53,
Reykjavik,
Magnús Leopoldsson, Björk Valsdóttir,
Hallur Leopoldsson, Guðrún Gísladóttir,
Elvar Steinn Þorkelsson, Guðný Ósk Diðriksdóttir,
Þórhallur Björnsson,
Unnar Þór Gunnarsson,
Maria Sif Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.