Morgunblaðið - 03.10.1996, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 57
FORRÁÐAMENN Veiðifélags
Laxdæla hafa haft í nógu að snú-
ast að yfirfara tilboð í Laxá í Döl-
um, en skilafrestur rann út um
síðustu helgi. Mörg tilboð bárust,
þau hæstu nokkur upp á 12-15
milljónir króna samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins. Einnig
komu nokkur tilboð í Fáskrúð, en
þar eru aðrar og lægri tölur á ferð-
inni.
Fimmtug Veiðimálastofnun
Veiðimálastofnun er fimmtug í
ár og nýlega var haldin afmælis-
ráðstefna í tilefni áfangans. Guð-
mundur Bjarnason landbúnaðar-
ráðherra setti ráðstefnuna og síðan
ávarpaði Vífill Oddsson, stjórnar-
formaður Veiðimálastofnunar, ráð-
stefnugesti. Þór Guðjónsson, fyrr-
verandi veiðimálastjóp, rakti fjöru-
tíu fyrstu árin og Árni ísaksson
veiðimálastjóri tók síðari við og
reifaði síðustu tiu árin. í kjölfarið
rak hvert erindið annað, Sigurður
Guðjónsson ræddi um vistgerð ís-
lenskra veiðivatna, útbreiðslu og
stofngerðir fiska, Sigurður Már
Einarsson ræddi um auðlindina og
umgengni við hana, Magnús Jó-
hannsson fjallaði um fiskrækt,
Þórólfur Antonsson gerði stofn-
sveiflur og veiðispár að umræðu-
efni og loks komu ávörp gesta.
Síðan voru umræður og fundarslit.
Síðar um daginn var sérstök ráð-
stefna fyrir erlenda gesti og undir
kvöldið hélt Guðmundur Bjarnason
móttöku í tilefni dagsins.
Mögnuð fluga
í vor var viðtal við Grím Jónsson
járnsmið og fluguhnýtara í Morgun-
blaðinu. Hann sagði m.a. frá flugu
sem notuð hefur verið í þröngum
vinahópi í nokkur ár og Grímur
fullyrti að hefði reynst afburðavel.
I sumar varð notkun flugunnar, sem
Umhverfisráðuneytið
Fréttabréf
á alnetinu
ÚTGÁFA fréttabréfs umhverfis-
ráðuneytisins, Umhverfinu, er hafin
að nýju eftir nokkurt hlé. Útgáfan
er með nokkuð öðru sniði en áður,
þar sem það er gefið út á rafrænu
formi á Veraldarvefnum á heima-
síðu umhverfisráðuneytisins. At-
hygli skal vakin á því að heimasíð-
an hefur flutt og er nú með veffang-
ið: htt://www.mmedia.is/umhverfi/
Hugmyndin er að gefa út frétta-
bréfið út á tveggja mánaða fresti
til að byrja með a.m.k. og að hægt
verði að ganga að því vísu á heima-
síðu ráðuneytisins reglulega frá og
með októberbyrjun 1996. Efni
fréttabréfsins verður fyrst og
fremst fréttir af starfi ráðuneytisins
og af umhverfismálum almennt.
Það er von ráðuneytisins að frétta-
bréfið nýtist fjölmiðlum við frétta-
öflun og veiti jafnframt bakgrunns-
upplýsingar um umhverfismál og
störf ráðuneytisins.
Fyrir þá sem ekki hafa aðgang
að Veraldarvefnum verður hægt að
fá reglulega útprentun af frétta-
bréfinu ef sérstakleg er beðið um
það og nafn og heimilisfang viðtak-
anda sent ráðuneytinu.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
VÍFILL Oddsson, t.v., stjórnarformaður Veiðimálastofnunar, og
Árni ísaksson, veiðimálastjóri, brosleitir á fimmtugsafmæli Veiði-
málastofnunar.
ÓLAFUR Finnbogi Haralds-
son þreytir lax á undraflug-
una Snældu í Heiðarenda á
Fjallinu í Langá.
heitir Snælda, töluvert almennari,
sérstaklega í Langá á Mýrum er
leið á sumarið. Ingvi Hrafn Jóns-
son, einn leigutaka árinnar, sagði
í samtali við Morgunblaðið að
Snældan hefði slegið öllu öðru agni
við, sérstaklega á Fjallinu. Síðustu
íjórar vikurnar hefðu veiðst um 250
laxar á því svæði. 90 þeirra tóku
Snælduna og voru þó ekki nærri
öll hollin með þá flugu í vopnabúri
sínu. Snældan er túpufluga og lita-
afbrigðin eru nokkur. Best hefur
reynst svört með silfruðum glimm-
érströngum. Lýsingin hljómar ekki
frumlega, en það er útlit flugunnar
sem skiptir sköpum. Lokatala úr
Langá var 1.511 laxar, sem færði
ánni annað sætið á eftir Norðurá.
Það er nokkuð meira en í fyrra, er
1.390 laxar veiddust og 1994 veidd-
ust 927. Þetta er því allt á hraðri
uppleið í Langá.
Lokatölur
Veiði er nú að ljúka í Soginu og
virðist veiðin vera um 220 iaxar,
sem er slakt. Undir lokin kom smá-
fjörbrot í Bíldsfelli, einn daginn
veiddust 7 iaxar og annan daginn
einn 24 punda. Annars staðar var
dauft fram á lokadag.
Á fimmta hundrað laxar eru
komnir úr Stóru-Laxá sem er afar
gott. Á þriðjudag voru komnir 105
laxar af miðsvæðinu og 102 laxar
af efsta svæðinu. Á mánudag voru
komnir 211 á land á svæðurn 1 og
2. Veitt er út september.
Gallabuxnahelgi
Helgartilboð:
Susan, Debbie,
Goiding og Indiana
Áður kr.^rSUIÍ
Nú kr. 2.990.
Susan 602, Debbie 603,
Aður kr. TUBStT
Nú kr. 3.990.
O.fl. spennandi tilboð.
VERO
IWODA
Laugavegi 95. s. 552 1444.
Kringlan, s. 568 6244.
Brekkugötu 3, s. 462 7708.
PHILIPS
kaffikönnum
Café Boma
Vönduð kanna með HD 7256
leka loka.
Slekkur á sér sjálfkrafa.
kr.
Café Master
Þægileg, einföld og ódýr. HD7t'2
t
Café Gourmet
HD 5400
Falleg kaffivél sem sýöur
vatniö áður en hún hellir upp á.
Auðvelt er að færa hana til og
hitahellan heldur kaffinu
Café Roma Therm
Hellir upp á ilmandi kaffi
beint i hitabrúsann.
kr.
it.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 569 1600
Umboðsmenn um land allt.
©