Morgunblaðið - 03.10.1996, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
)Ve£aini^urenít
STJÖRNUR HAUSTSINS
Gréta Boöa, föröunaniicistari.
kynnir nýju haust- og oetrar-
litina í dag og á morgun.
• Glæsilegir litir.
• Glæsileg tilboð.
• Verið velkomin.
• Vinsamlegast pantið
tíma í förðun.
Snyrtivönaierslunin -^
Hafnarfiröi
'
Hber-CMtell
í dag og á morgun frá
kl. 15:00 - 18:00 Kynnir S
Vilbergsdóttir Faber Caste
myndlistavörur, þar á meðal e
athyglisverðar nýjungar.
kiptavinum er veittur 1
sem kynningin
afsláttár
OKABUÐI
Laugavegi 11
Mikið
úrval af
haust-
fatnaði.
inraarion
Reykjavíkurvegi 64
Halnarfirði
Sími 565 I 147
opið á laugardögum
frá kl. 10-14.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Strætóraunir
KÆRA Þórdís.
Ég las bréf þitt í Morg-
unblaðinu föstudaginn 27.
september sl. og sam-
hryggist þér. Ég skil vel
hvernig þér líður. Mér hef-
ur liðið eins, þótt ekki hafi
strætó steypt lífi mínu í
glötun! En reynsla mín af
strætó eftir 15. ágúst sl.
er þessi:
1. Til að komast í mið-
borgina get ég nú valið um
tvo vagna í stað fjögurra
áður (ég bý í Smáíbúða-
hverfi).
2. Náinn vinur minn á
að mæta í vinnu kl. 2 en
kemur alltaf of seint, hvað
hann ekki gerði áður.
3. Ég er mun lengur en
áður að komast í miðborg-
ina.
4. Strætó er því miður,
oftar en hitt, of seinn.
Um daginn lagðist ætt-
ingi minn inn á Sjúkrahús
Reykjavíkur, Fossvogi. Ég
heimsótti hann einn dag-
inn eftir hádegið, en þurfti
að ná í banka fyrir kl. 16.
Vagninn átti að vera á
Sléttuvegi kl. 15.48 og á
Grensási kl. 15.55. Þar
sem ég ætlaði í útibú Is-
landsbanka á Réttarholts-
vegi, átti þetta að nást.
En ég missti af bankanum,
því strætó kom of seint.
Ég veit að ekki er við vagn-
stjórana að sakast. Þeir
gera sitt besta.
Með bestu kveðju, Þór-
dís, og vona ég að þú end-
urheimtir líf þitt.
Einar
Nafnlaus bréf
SÍFELLT berast til Morg-
unblaðsins bréf og ábend-
ingar frá fólki sem lætur
ekki nafns síns getið, eða
lætur nafn fylgja með, en
hvorki heimilsfang né
síma. Blaðið getur hvorki
birt nafnlausar ábendingar
né greinar og því er nauð-
synlegt að nafn viðkom-
andi, heimilsfang og/eða
símanúmer fylgi bréfum
af þessu tagi.
Það sama gildir um þá
sem hringja, en vilja ekki
láta nafns síns getið.
Velvakandi
Þakkir til
starfsfólks
Blómavals
ÉG FÓR í Blómaval sl.
fimmtudagskvöld, en þá
var fræðslukvöld um
haustlauka og haust-
skreytingar. Þetta var ekki
einungis fræðsla, heldur
stóð starfsfólkið sig mjög
vel og flutti bæði fróðleg
og skemmileg erindi. Mig
langar að þakka Blómavali
og starfsfólki þess fyrir
frábært framtak og þjón-
ustu.
Kristjana Birgis,
Yrsufelli 12, Reykjavík.
Grimmd
gagnvart dýrum
GRIMMD gagnvart dýrum
er meiri á Islandi en marg-
ir gera sér grein fyrir.
Refsdrápið nýverið er
eitt af mörgum dæmum
um slíkt. Nákvæm lýsing
fréttamanns af grimmdar-
verkinu er furðuleg. Fyrir
nokkrum dögum birtist
mynd í Morgunblaðinu af
stoltum veiðimanni með
byssu í hendi og fallegu
hreindýri liggjandi í valn-
um fyrir framan hann.
Slíkar myndir birtast nú-
orðið á þessum árstíma og
eru yfirleitt öllu verri en
þessi mynd, því oftast
liggja dýrin í blóði sínu á
þessum myndum.
Hreindýrin á Islandi
hafa það oft erfitt á hörð-
um vetrum þegar snjór
liggur yfir öllu mánuðum
saman. Þá leita þau til
byggða eins og flestir vita
og valda oft tjóni í görðum
fólks. Mig langar að beina
þeirri spurningu til Sam-
bands dýraverndarfélaga
íslands hvort ekki væri
rétt að gefa þessum dýrum
sjórekið hey á harðasta
tímabilinu?
Að lokum langar mig
að spyija Samband dýra-
verndarfélaga íslands
hvort ekki sé kominn tími
til þess að annaðhvort
banna útigöngu hrossa á
íslandi, eða skylda eigend-
ur þeirra til að koma sér
upp yfirbyggðum skýlum
fyrir hrossin og_ að gefa
þeim reglulega? Ótal dæmi
eru um skaðsemi útigangs-
hrossa í þessu harðbýla
landi.
Ragnheiður Sigurðard.
Gæludýr
Kettlingar
FIMM fallegir kettiingar
fást gefins á gott heimili.
Upplýsingar í síma
567-2168.
Köttur tapast í
Þingvallasveit
STEINGRÁR fressköttur
týndist við Kárastaði í
Þingvallasveit 22. septem-
ber sl. Hann er með rafgul
augu, óvenju langt skott,
er mjög mannelskur og
gegnir nafninu Kúri. Hann
er ómerktur. Ef einhver
hefur séð til ferða hans
síðan er hann beðinn um
að láta vita í síma 587
2899.
HOGNIHREKKVISI
Farsi
LJAIS&LASS/ceúLTMfí-T
„ 00 hcf oJcjrei sk./l)& af fu/e/ýu pa& eru
f&stirpappirarci stáersitu-
shj-fborðunuryt, ■"
Víkveiji skrifar...
EGAR umræður spruttu hér
á landi um úrbætur í vega-
málum, i kjölfar heimsóknar for-
seta íslands til suðurhluta Vest-
fjarða, varpaði vinur Vikverja
meðal annars fram þeirri hugmýnd
að fyrirtæki, stofnanir og einstakl-
ingar tækju að sér vegarkafla og
sæju um viðhald þeirra. Þessi hug-
mynd, sem vinurinn varpaði fram
meira í gamni en alvöru, minnti
Víkverja á það sem hann sá á
ferðalagi í Bandaríkjunum fyrir
skömmu. Meðfram hraðbrautum
þar í landi eru víða reistir veggir,
eða hljóðmanir, en sá hængur er
á, að veggirnir verða fljótt skítug-
ir, skemmdarvargar krota á þá
ýmis misskemmtileg skilaboð og
svo mætti iengi telja. Til að
tryggja að veggirnir líti vel út
hafa ýmis félagasamtök, fyrir-
tæki og heilu fjölskyldurnar „ætt-
leitt“ veggjarhluta. Sá hluti er
kyrfilega merktur „fósturforeldr-
inu“ og ýtir þannig undir að fólk
standi við stóru orðin og haldi
veggnum fallegum. Víkveiji efast
nú reyndar um að þetta fólk fari
sjálft á staðinn með skrúbb og
sápu. Líklega greiðir það fasta
upphæð til að standa straum af
viðhaldskostnaði og tryggja fag-
urt umhverfi, en niðurstaðan er
a.m.k. hin sama.
xxx
Ú ÞEKKIR Víkverji ekkert
til vegamála í Bandaríkjun-
um og veit því ekki hvort ríkisvald-
ið þar hefur eyrnamerkt háar fjár-
hæðir til vegamála og innheimtir
þær í bensínverði. Ef til vill hugsa
margir Bandaríkjamenn sem svo,
að nógu háir séu nú skattarnir og
aðrar álögur, þó menn fari nú
ekki í þokkabót að greiða aukalega
fyrir framkvæmdir. Hins vegar eru
ávallt einhveijir fúsir til að leggja
meira af mörkum. Bandaríkja-
menn hafa jú meðal annars vakið
athygli utan landsteinanna fyrir
að „ættieiða“ hvali, svo það ætti
ekki að koma nokkrum manni á
óvart þó þeir taki að sér hluta úr
vegg. Islendingar gætu tekið þetta
sér til fyrirmyndar og „ættleitt"
holurnar í þjóðvegunum. Svo er
auðvitað hægt að yfirfæra hug-
myndina yfir á ýmsar fram-
kvæmdir aðrar. Það hafa Banda-
ríkjamenn líka gert og þar er kom-
in skýringin á öllum mannanöfn-
unum, sem víða má sjá greypt í
steinhellur í opinberum görðum.
Þar hafa einstaklingar greitt
ákveðna upphæð fyrir og þar með
auðveldað borgaryfirvöldum að
prýða umhverfið.