Morgunblaðið - 08.10.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 1996 27
Trúðaskól-
inn í æfíngu
BYRJAÐ er að æfa barna- og fjöl-
skylduleikritið „Trúðaskólinn“
eftir Friedrich Karl Waecther og
Ken Campell hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Bessi Bjarnason
leikur prófessorinn. Lævísan trúð
leikur Halldóra Geirharðsdóttir,
Belg trúð leikur Eggert Þorleifs-
son, Bólu trúð leikur Helga Braga
Jónsdóttir og Dropa trúð leikur
Kjartan Guðjónsson. Höfundur
búninga er Helga Rún Pálsdóttir,
leikmynd gerir Steinþór Sigurðs-
son, lýsingu annast Lárus Björns-
son, hreyfingar og dans Lára
Stefánsdóttir, leikstjóri og þýð-
andi er Gisli Rúnar Jónsson.
Felunet fyrir anda
og gæsaskyttur
Irr. 4.900.
Tvöfaldar kuldaúlpur fyrir
rjúpnaskyttur og alla
fjölskylduna, kr. 3.800.
Afgreiðum í póstkröfu hvert á land sem er
Gámapokar ehf.,
Langholtsvegi 109, 104 Reykjavík
sími 568 7821, fax 588 9318.
Sumarliði
ísleifsson
Nýjar bækur
• ÍSLAND - framandi land er
eftir Sumarliða ísleifsson sagn-
fræðing. íslendingum hefur löngum
leikið forvitni á að
vita hvaða augum
útlendingar líta
þá og þessi bók
er nýnæmi að því
leyti að þar er að
finna eins konar
heildaryfírlit yfir
margvíslegar
hugmyndir Vest-
ur-Evrópubúa um
ísland og íslend-
inga á liðnum öldum. „Höfundur
lýsir á afar aðgengilegan en jafn-
framt fræðilega og traustan hátt
hvernig land og þjóð voru sýnd í
myndum og á landakortum og
hvernig þessar hugmyndir breyttust
frá öndverðu til loka 19. aldar, eink-
um á tímaskeiðinu frá 1500 til
1900“, segir í kynningu.
Fyrstu frásagnir af íslandi eru
an á sig aðra mynd þegar menn
fóru að venja komur sínar til lands-
ins og skrifa ferðalýsingar og íslend-
ingar sjálfír að semja varnar- og
landkynningarrit.
Sumarliði ísleifsson styðst við
mikinn fjölda rita og mynda og eru
rúmlega 200 myndir birtar í bók-
inni^ margar þeirra í lit.
Utgefandi er Mál og menning.
Bókin er 241 bls. í stóru broti, Birg-
ir Andrésson gerði kápu og prent-
vinnslu annaðist Prentsmiðjan Oddi
hf. Fullt verð erkr. 4.990, en hún
er bók mánaðarins í október og kost-
arkr. 3.490 þann mánuð.
• BÓKMENNTAFRÆÐISTOFN-
UN Háskóla íslands og Háskólaút-
gáfan hafa gefið út ritið Litteratur
og kjonn í Nord-
en (Kynferði og
bókmenntir á
Norðurlöndum)
undir ritstjórn
Helgu Kress,
prófessors í al-
mennri bók-
menntafræði við _
Háskóla ísladns. í
því eru 87 erindi
eftir jafnmarga
höfunda sem flutt voru á 20. þingi
International Association for
Scandinavian Studies (IASS, AI-
þjóðasamtaka um norræn fræði)
en það var haldið í Reykjavík sumar-
ið 1994. Skrifa höfundar á norsku,
dönsku og sænsku, auk ensku og
þýsku. Greinar í ritinu fjalla um bók-
menntir og kynferði frá ýmsum sjón-
arhólum og er þeim raðað í 11 hluta
eftir tímabilum og bókmenntateg-
undum, frá miðöldum til samtímans.
Bókin gefur áhugamönnum um bók-
menntir yfirlit yfir strauma og stefn-
ur í nýrri bókmenntaumræðu. Kápu
prýðir ljósmynd af verki Ásmundar
Sveinssonar, „Jónsmessumótt".
Sigrún Sigvaldadóttir hannaði
kápu.
Ritið erí stóru broti, 755 bls. að
stærð og fyigir því ítarleg nafna-
skrá. Bókin er til sölu í Bóksölu stúd-
enta við Hringbraut, Bókabúð Máls
og menningar og hjá Eymundsson í
Reykjavík, auk nokkurra bókaversl-
ana úti á landi. Dreifingu annast
Bókmenntafræðistofnun og Háskóla-
útgáfan í sameiningu.
Helga Kress
opnir
LANDSFUNDUR
r^ 1# SJALFSTÆÐISFLOKKSINS
rundir um
EI N STAKLINGSFRELSI
-JAFNRÉTTI í REYND
Fjölskyldan, sameiginleg
ábyrgð foreldra
Hótel Saga - A salur
Erindi flytja:
Þórunn Gestsdóttir,
upplýsinga- og ferðamálafulltrúi
Sólveig Pétursdóttir,
alþingismaður
FLjálmar Jónsson,
alþingismaður
Jóhanna Vilhjálmsdóttir,
nemi
Fundarstjóri:
Jónmundur Guðmarsson,
stjórnmálafræðingur
Launamunur kynjanna
Hótel Saga - Sunnusalur
Erindi flytja:
Inga Jóna Þórðardóttir,
borgarfulltrúi
Sigríður Anna Þórðardóttir,
alpingismaður
Pétur H. Blöndal,
alþingismaður
Inga Dóra Sigfúsdóttir,
stjórnmálafræðingur
Fundarstjóri:
Glúmur Jón Björnsson,
Völd og áhrif kynjanna
Grand Hótel - Setur
Erindi flytja:
Lára Margrét Ragnarsdóttir, HK
alþingismaður
Margrét K. Sigurðardóttir,
viðskiptafrædingur og
formaour Hvatar
Drífa Hjartardóttir,
bóndi og formaður
Kvenfélagasambands íslands
Árni M. Mathiesen,
alþingismaður
Fundarstjóri:
Jón Helgi IFjörnsson,
P ífn “•
rekstrarhagfræðingur
Freísi og jafnrétti
Grand Hótel - Hvammur
Erindi flytja:
Katrín Fjeldsted,
læknir
Ásdís Halla Bragadóttir,
aðstoðarmaður menntamálaráðherra
Ólafur Þ. Stephensen,
blaðamaður
Ellen Ingvadóttir, löggiltur
dómtúlkur og skjalapýðandi
Fundarstjóri:
Þorsteinn Jóhannesspn,
forseti bæjarstjórnar ísafjarðarbæjar
Menntun, ungt fólk
og jafnrétti
Grand Hótel - Gallery
Erindi flytja:
Katrín Gunnarsdóttir,
fulltrúi
Arnbjörg Sveinsdóttir,
alþingismaður
Guðlaugur Þór Þórðarson,
formaður SUS
Svanhildur Hólm Valsdóttir.
nemi
Fundarstjóri:
Halldór Guðmundsson,
arkitekt