Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 B 23
IITVIBINMMAl IC^I Y^IKIC^AF?
JNI ■ ■r ■■■■■ W/aL/vJ7L / v-?// n/vJ^/v/X
Rafvirki óskast
Óskum eftir að ráða rafvirkja. Þarf að geta
unnið sjálfsætt. Fjölbreytt vinna.
Umsóknum skal skila inn til afgreiðslu Mbl.
fyrir 18. október, merktum: „R - 1205“.
A
KO PAVOGSBÆR
Frá Fræðslu- og menningarsviði
Kópavogs
Starfsmenn vantar á skrifstofu Fræðslu- og
menningarsviðs Kópavogs:
Ritara á skólaskrifstofu - 100% starf.
Starfsmann í afgreiðslu og símavörslu
- 50% starf eftir hádegi.
Umsóknarfrestur er til 18. október nk.
Upplýsingar á skrifstofu Fræðslu- og menn-
ingarsviðs í síma 554 1988.
Starfsmannastjóri.
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
auglýsir lausar stöður við grunnskóla
Reykjavíkur:
Hamraskóli
Sérdeild fyrir einhverfa
í sérdeild Hamraskóla vantar þroskaþjálfa
eða leikskólakennara í hálft til heilt starf.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 567 6300.
Foldaskóli
Stuðningsfulltrúa vantar í 1/2 starf í Folda-
skóla.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri í síma 567 2222.
11. október 1996.
Fræðslustjórinn í Reykjavík.
Deildarstjóri
bókhalds
Verðbréfafyrirtæki óskar eftir að ráða deildar-
stjóra sem hefur umsjón með bók- og reikn-
ingshaldi fyrirtækja. Hann mun einnig taka
þátt í uppbyggingu og rekstri tölvukerfis.
Kröfur um hæfni:
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi viðskipta-
fræðimenntun af endurskoðunarsviði eða
sambærilega menntun. Reynsla í bókhaldi
og reikningshaldi er mikilvæg. Kröfur eru
gerðar til agaðra vinnubragða, samstarfs og
liðsvinnu.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar upp-
lýsingar um menntun og fyrri störf. Farið verð-
ur með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og
öllum umsóknum verður svarað. Þeim, sem
telja sig uppfylla þær kröfur sem að ofan grein-
ir, er boðið að senda inn umsókn til KPMG
Sinnu ehf. fyrir 17. október 1996.
inna ehf.
Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf
Vegmúli 3
108 Reykjavtk
Sími
Fax
588-3375
533-5550
KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á sviði stjómunar- og
starfsmannamála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu.
KPMG Sinna ehf. er í samstarfi við KPMG Management
Consulting.
Skrifstofustarf
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar óskar að
ráða skrifstofumann til starfa sem fyrst.
Starfið er fólgið í símasvörun og almennri
afgreiðslu, móttöku og umsjón með umsókn-
um þ.m.t. gerð greiðslumats, aðstoð við út-
hlutun umsókna, frágangi á skjölum tengdum
fasteignasölu, skjalavörslu og almennum
skrifstofustörfum.
Við leitum að manneskju, sem er lipur og
þægileg í framkomu og hefur reynslu af tölvu-
vinnslu og skrifstofustörfum. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf strax.
Laun skv. samningi starfsmanna Hafnar-
fjarðarkaupstaðar.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Húsnæðisnefndar Hafnarfjarðar, Strand-
götu 11, 220 Hafnarfirði fyrir 18. okt. nk.
Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra
Hópstjóri
Sjálfsbjargarheimilið
óskar eftir hópstjóra til starfa nú þegar.
Um er að ræða 100% starf. Æskileg mennt-
un til starfans er á sviði uppeldisfræði.
Sjúkraliði kæmi til greina.
Umsóknarfrestur er til 27. október 1996 og
skal umskóknum skilað skriflega til Guðrúnar
Erlu Gunnarsdóttur, hjúkrunarforstjóra, þar
sem nánari upplýsingar fást.
Sjúkraliði eða sóknarstarfsmaður
óskast einnig til starfa. Um er að ræða 100%
starf og æskilegt að viðkomandi hafi reynslu
af aðhlynningarstörfum.
Sjálfsbjargarheimilið er ætlað hreyf ihömluðu fólki, er þarfnast aðstoð-
ar og umönnunar allan sólarhringinn. íbúar eru 45 og starfsmenn
um 50. Hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, sjúkraliðar,
læknar, Sóknarstarfsmenn og aðrir starfsmenn vinna við heimilið.
Við vinnum nú sérstaklega að því að auka lífsgæði íbúa heimilisins.
Boðin eru góð starfskjör og gott starfsumhverfi á vinnustað í hjarta
borgarinnar.
Vélfræðingur
- vélvirki
Innflutningsfyrirtæki vill ráða vélfræðing eða
vélvirkja tii sérhæfðrar viðgerðarþjónustu og
ýmissa annarra starfa. Leitum að vandvirkum
og laghentum fagmanni með enskukunnáttu
og sgtarfsreynslu við díselvélar.
Aldur innan við 40 ár.
Umsóknir, með upplýsingum um aldur,
menntun og starfsferil, sendist til afgreiðslu
Mbl. fyrir 24. október, merktar: „V - 4377“.
Tækniteiknara
- ritara
Fyrirtækið: Tæknideild Mosfellsbæjar.
Starfið: Tækniteiknun, ritvinnsla, skjala-
varsla, afgreiðsla og varsla teikninga ásamt
aðstoð við embætti byggingafulltrúa.
Kröfur: Æskilegt er að umsækjandi hafi
starfsreynslu, sé vanur að vinna sjálfstætt
og sýna frumkvæði í starfi. Ekki er gerð krafa
um aðra tölvukunnáttu en almenna rit-
vinnslu. Um hálfs dags starf er að ræða.
Laun í samræmi við kjarasamning Starfs-
mannafélags Mosfellsbæjar.
Upplýsingar: Umsóknareyðublöð og frekari
upplýsingar fást hjá Ráðningarþjónustunni.
Umsóknarfrestur er til 18. október.
pflSSTRÁÐNINGARÞJÓNUSTAN
.. Jón Baldvinsson, Háaleitisbraut 58-60
Sími 588 3309. fax 588 3659
Fræðslufulltrúi U
Samband íslenskra sparisjóða óskar að ráða fræðslufulltrúa til starfa. Um er að ræða nýtt
starf. Fræðslufulltrúa er ætlað að hafa umsjón með fræðslustarfsemi sparisjóðanna, sjá um gerð
og dreifingu fræðslu- og kennsluefnis og skipuleggja námskeið fyrir starfsfólk og viðskiptavini
sparisjóðanna. Sjálfur mun fræðslufulltrúi ekki annast kennslu nema að litlu leyti.
Meðal helstu verkefna eru:
• Fagleg starfsmenntun og starfsþj álfun starfsmanna sparisjóðanna í þjónustu og
samskiptum við viðskiptamenn.
• Framhaldsmenntun starfsmanna í tengslum við nýjungar f starfsemi sparisjóðanna
og breyTingar á bankamarkaðnum.
• Fræðsla fyrir starfsfólk þar sem kynnt er starfsemi og þjónusta fyrirtækja
sparisjóðanna, Kaupþings, SP - Fjármögnunar og Sparisjóðabankans.
• Samþætting á fræðslustarfsemi sparisjóðanna og uppbygging á heildstæðu
fræðslustarfi fyrir starfsfólk þeirra.
Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun, t.d. kennaramenntun. Góð tölvu- og
íslenskukunnátta er nauðsynleg. Viðkomandi þarf að vera dugandi og hugmyndaríkur, hafa
skipulagshæfileika og eiga auðvelt með mannleg samskipti. Lögð er mikil áhersla á eigið
frumkvæði við úrlausn verkefna.
Laun eru samkvæmt samningum SÍB.
Farið verður með allar umsóknir.sem trúnaðarmál.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingarfást á
skrifstofu Guðna Jónssonar, Háteigsveigi 7, og skal
umsóknum skilað á sama stað. Umsóknarfrestur er til f _
23. október næstkomandi. ■■
GUÐNIJÓNSSON SPARISJÓÐURINN
RÁLXdÖL & rád\i\c;arnónusta
HÁTEIGSVEGI7,105 KEYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22 —fyVÍV jjÍg Og píVlCl