Morgunblaðið - 23.10.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.10.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996 15 ERLEIMT Krappar haustlægðir valda veðurofsa í Bandaríkjunum Metúrkoma og flóð í norðausturríkjunum AFLEITT veður gekk á mánudag yfir hluta Nýja Englands og varð til þess að ríkisstjórar Maine, Massachusetts og Nýja Hampshire lýstu yfir neyðarástandi á flóða- svæðum meðfram strandlengju ríkj- anna, samkvæmt Reutcrs-íréttum. Flæddu ár víða yfír bakka í tveimur síðast töldu ríkjunum. Veðrið olli manntjóni og usla í New York-ríki og Nýju Jersey sl. laugardag. Að sögn íslenskra veðurfræðinga verð- ur lægðin, sem valdið hefur þessu veðri, að engu orðin þegar hún berst hingað til lands. Gífurleg úrkoma fylgdi veðrinu og mældist hún til að mynda 35 sentimetrar á mánudag. A Logan- flugvellinum í Boston var 101 árs gamalt rigningarmet slegið en þar mældist úrkoman 19,8 sentimetrar á mánudag. Gamla metið var 12,26 sm. I Portland í Maine-ríki mældist úrkoman 20,1 sem en fimm ára gamalt met, frá því fellibylurinn Bob gekk þar yfir 1991, var 19,3 sm. Verst urðu íbúar í strandhéruðum í norðanverðu Massachusettsríki úti og urðu hundruð manna að leita skjóls í neyðarskýlum, sem opnuð voru. í bænum Newburyport stóð vatn i hnésbætur og olli miklu tjóni á íbúðarhúsum. Haglél í Texas Illviðri gekk yfír norðurhluta Tex- asríkis á mánudag og olli tjóni á mannvirkjum ásamt því sem sam- göngur fóru mjög úr skorðum. Eyði- lögðust íbúðarhús og misstu hundr- uð manns heimili sín. Fjöldi fólks slasaðist er það varð fyrir fljúgandi þakplötum en vindhraðinn var um 120 kílómetrar á klukkustund. Gífurleg úrkoma féll á stuttum tíma með þeim afleiðingum að víða flæddi fyrirvaralaust og olli það umferðaröngþveiti í Dallas og Fort Worth. Þá skemmdust bifreiðar og hús af völdum hagléls þar sem korn- in voru á stærð við tennisbolta. Féll fímm sentimetra snjór á mörk- um Texas og Oklahómaríkis. Búist var við áframhaldandi stormaveðri í Texas en orsök þess var sögð kuldaskil sem smokrað hafa sér inn yfír Bandaríkin frá Kanada og öflugir háloftavindar yfír Nýju-Mexíkó. Eldar í Kaliforníu Her slökkviliðsmanna freistaði þess í gær, að ná tökum á skógar- og kjarreldum sem geisa á nokkrum stöðum í suðurhluta Kalifomíu og höfðu eyðilagt 80 villur og 8.000 hektara gróðurlands. Vatni var meðal annars sturtað úr sértilbúnum flugvélum og þyrlum yfír eldana en ekkert fékkst við þá ráðið. Hættulegastir eru eldar í San Diego-sýslu sem ógna byggð. Þús- undir manna höfðu yfírgefíð heimili sín af ótta við eldana. Eyðilögðust 60 hús í borginni Carlsbad og var bærinn San Marcos í hættu en bæj- arbúum var fyrirskipað að drífa sig á brott þaðan. Stefndu eldamir til sjávar og þótti byggð ríkra manna á Malibu-ströndinni vera í hættu. Reuter SLÖKKVIFLUGVÉL sturtar vatni yfir kjarr- og skógarelda í Corral-gljúfri við Malibuströndina í Kaliforníu í gær. Ný bandarísk lög um sjálfbærar fiskveiðar Nokkrar gerðir af í^rsnaku,daskói«. Svart, brúnt, rautt, gr*nt. I Verð kr. 1.900 Barnaspariskór Ug^Svart, hvitt, rautt, btótt. SKÓVERSLUNIN m KRINGLUNNI SÍHfll 568 9345 Tvísköttunarsamningar sem stjórntæki í alþjóðaviðskiptum Þorvaröur Gunnarsson Þóröur Magnússon Félag viöskipta- og hagfræðinga heldur morgunarverðarfund um tvísköttunarsamninga, á Hótel sögu, Skála kl. 8:00 - 9:30. fimmtudaginn 24. okt. Efni fundarins er tvísköttunarsamningar í alþjóðlegum fyrirtækjarekstri. Á fundinum verður m.a. komið inn á: ■ Hvað eru tvísköttunarsamningar og hvaða not eru af þeim? ■ Hver er reynsla íslenskra fyrirtækja af tvísköttunarsamningum? ■ Verða íslensk fyrirtæki af viðskiptatækifærum vegna vöntunar á tvísköttunarsamningum? ■ Hvaö hafa önnur lönd verið að aöhafast í þessum málum? ■ Geta tvísköttunarsamningar aukið erlenda fjárfestingu hérlendis? ■ Notkun tvísköttunarsamninga í erlendum fjárfestingarákvörðunum. Frummælendur verða: Þorvarður Gunnarsson, lögg. endurskoðandi. Endurskoðunarskrifstofu Sig. Stefánssonar Deloitte &Touche Þórður Magnússon, framkvæmdastjóri HF. Eimskipafélags íslands FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA OG HAGFRÆÐINGA Fundurinn hefst kl. 8:oo, stendur til 9:30 og er öllum opinn. Veiðileyfagjald mest 3% af andvirði afla NÝ LÖG um sjálfbærar fiskveiðar í Bandaríkjunum kveða á um að sett verði á veiðileyfagjald, sem nema megi allt að þremur hundraðshlutum af andvirði afla. í lögunum er viðskiptaráðherra falið að sjá um framkvæmd veiði- leyfakerfisins. Veiðileyfagjaldið á að taka til tvenns kyns kvóta, einstaka fískveiðikvóta, sem að hluta til má millifæra, og byggðakvóta, sem bundnir eru við ákveðið byggðarlag. Gjaldið má nema allt að þremur prósentum þeirrar íjárhæðar, sem útgerðarmaður fær fyrir fiskinn þeg- ar hann kemur frá borði. Veiðileyfa- gjaldinu er ætlað að ná aftur beinum kostnaði af rekstri og framkvæmd kvótakerfisins. Hluti gjalds til að lána sjómönnuni í Bandaríkjunum eru svæðisbund- in fískveiðiráð og verður þeim sam- kvæmt nýju lögunum heimilt að mæla með því að fjórðung veiðileyfa- gjalda af einstökum kvótum og byggðakvótum megi nota til að veita smábátum og nýliðum í greininni lán til að kaupa kvóta eða veiðileyfí, sem úthlutað er. Lögin gilda út september árið 2000 og má viðskiptaráðherra ekki samþykkja nýja áætlun um einstaka kvóta þangað til. Ráðherranum er gert að skila skýrslu um mitt ár 1999 þar sem hann gerir grein fyrir umdeildum atriðum varðandi ein- staka kvóta, þar á meðal hveijir fái slíka kvóta í upphafí, millifærslu kvóta og erlent eignarhald á kvótum. Lögin eru viðbót við hin svokölluðu Magnuson-lög, sem sett voru fyrir um 20 árum, meðal annars til þess að stugga útlendingum burt úr 200 mílna efnahagslögsögu Bandaríkja- manna. í skýrslu viðskipta-, vísinda- og samgöngunefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings um lögin segir að þótt tekist hafí að mestu leyti að tryggja að Bandaríkjamenn einir veiði í efnahagslögsögunni hafi það ekki haft í för með sér að afli banda- rískra sjómanna yrði stöðugur og stofnarnir sjálfbærir eins og búist hafi verið við. Afla má auka um 30% Segir í skýrslunni að samkvæmt mati vísindamanna geti sjálfbær afli bandarískrar útgerðar náð 10,3 millj- ónum tonna á ári, sem sé 30% meira en ársaflinn um þessar mundir. Seg- ir enn fremur að mat af þessu tagi kunni að vera ónákvæmt, en engu að síður geti bætt vemdun og físk- veiðistjórnun leitt til þess að hægt verði að treysta á meiri afla til langs tíma til mikilla hagsbóta fyrir Banda- ríkjamenn. TOSHIBA myndbandstækin meö Pro-Drum myndhausnum eru bylting frá eldri gerðum. 40% færri hlutir, minni bilunartíðni, skarpari mynd. Toshiba Pro-Drum nr 1 á topp 10 lista What I/ideo. Verð frá kr. 38.610 star. <0 O Ö - V)--«- táu: rrtr - !:!■ Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 - Sími 562 2901 og 562 2900 - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.