Morgunblaðið - 23.10.1996, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.10.1996, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÍSLEIFUR MAGNÚSSON + ísleifur L. Magnússon fæddist í Bolungar- vík 27. mars 1927. Hann lést á Land- spítalanum 23. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Kristín Lárusdóttir og Magnús Einarsson. Systkini ísleifs eru: Þorbjörg Jónína (látin), Lárus Guð- mundur (látinn), Margrét, Fjóla (lát- in), Rannveig, Sól- ey, Lilja, Einar og Magnús Kristján. Eiginkona ísleifs var Hall- dóra Pálína Hall- dórsdóttir, d. 11. september 1987. Þau giftust 18. júlí 1952. Hún var dóttir hjónanna Elínar E. Jónsdótt- ur og Halldórs H. Kristjánssonar. Dætur ísleifs og Halldóru eru Elín Halldóra, f. 1952, og á hún eina dótt- ur; og Kristín, f. 1953, gift Stefáni Ingólfssyni og eiga þau þijú börn. Útför ísleifs var gerð frá Fella- og Hólakirkju 1. októ- ber. Mig langar með nokkrum fá- tæklegum orðum að minnast bróð- ur míns ísleifs Magnússonar sem er látinn. Isleifur var sjöundi í röð tíu barna Kristínar Lárusdóttur og Magnúsar Einarssonar. Þar sem fjölskyldan var stór og lífsbar- áttan hörð æxluðust mál þannig að misseris gömlum var ísleifi komið í fóstur til hjónanna Sigríð- ar Auðunsdóttur og Jóhannesar Jónssonar í Reykjavík. Man ég fyrst eftir ísleifi sex ára gömlum, en þá fékk hann að koma í heim- sókn vestur til að hitta okkur systkinin og foreldra sína. Þetta átti aðeins að verða stutt heimsókn en þegar leið að því að ísleifur færi suður, hafði hann reiknað út að það væri mikið meira fjör að vera í Bolungarvík með hinum stóra systkinahópi og þvemeitaði að fara aftur. Þar með varð ísleif- ur fastur meðlimur í þessari stóru fjölskyldu sem bjó í litlu húsi við Hafnargötuna í Bolungarvík. Þó að efnisleg gæði væru af skornum skammti og húsnæði þröngt var oft mikið fjör hjá okk- ur systkinunum og margt brallað. Við bjuggum samt við aga í upp- eldinu og hver fjölskyldumeðlimur hafði sínu hlutverki að gegna. ísleifur var þar engin undantekn- ing og fór hann barnungur að vinna við fiskverkun með föður sínum, og var það eflaust sá skóli sem nýttist honum best þegar fram liðu stundir, en hann var alla tíð vinnuþjarkur mikill og ein- stök snyrtimennska var honum í blóð borin. Tvítugur fór ísleifur til sjós og var árum saman á togurum, síld- ar- og vertíðarbátum með hinum ýmsu skipstjórum. Árið 1952 kvæntist hann Halldóru Pálínu Halldórsdóttur og hófu þau búskap í Tómasarhaga 9 í Reykjavík og eignuðust dætumar Elínu Hall- dóru og Kristínu. Ég minnist þess hve notalegt það var að koma til þeirra Isleifs og Dúllu og hvað ég var alltaf innilega velkomin. Elskulegt og hlýtt viðmótið var þeim eðlilegt og velferð annarra var þeim rík í huga. Vegna vinnu sinnar á sjónum var ísleifur langdvölum að heiman, í saltfisktúrum við Grænland eða í siglingum til erlendra hafna. Þetta gerði það að verkum að hann hafði ekki tækifæri til að taka jafn ríkan þátt í uppeldi dætra sinna og hann hefði kannski kosið. ísleifur naut þess hins vegar mjög að fylgjast með og taka þátt í uppeldi afabarnanna og langafa- bams og bar hann þau á höndum sér og fannst greinilega mikið til þeirra koma. Eftir að ísleifur hætti á sjónum starfaði hann um tíma hjá Skelj- ungi. Seinna hóf hann rekstur sendibfls og var það lifíbrauð hans til margra ára. ísleifur var mikið prúðmenni og vel liðinn meðal vinnufélaga hvort sem var til sjós eða lands enda hægur og stilltur maður að eðlis- fari. Hann hafði góða kímnigáfu þegar því var að skipta og áttum við systkinin góðar stundir saman, en því miður of fáar. ísleifur veiktist af krabbameini fyrir tveimur ámm og bar sjúkdóm sinn í hljóði og með þeirri karl- mennsku og æðruleysi sem ein- kenndi hann, allt til hinstu stund- ar. Ég kveð þig, minn elskulegi bróðir, með söknuð og trega í hjarta en með þakklæti í huga fyr- ir þær samverustundir sem við átt- um saman. Ég berst fyrir bylgjum og stormi frá landi til lands. Ég bið ekki Iýðinn um lof eða lárviðarkrans. Ég þrái að vera með vinum, og þó er ég alls staðar einn, alls staðar útlendingur, alls staðar fórusveinn. Kvæði mín eru kveðjur. Brimið brotnar við naust. Ég kom að sunnan í sumar og sigli í haust. (Davíð Stef.) Sóley Magnúsdóttir. JOHANN SVANUR YNGVINSSON + Jóhann Svanur Yngvins- son fæddist í Reykjavík 30. maí 1977. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 14. október síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 21. október. Það var ákveðinn ungur maður sem hóf nám í Iðnskólanum í Reykjavík í haust. Markmið hans var skýrt, nú skyldi námið tekið föstum tökum. Námið sóttist hon- um vel, Jóhann Svanur stefndi að ágætis einkunnum í öllum greinum og hefði eflaust lokið námi með góðum vitnisburði. Hann var staðráðinn í að leggja sitt af mörkum til að svo yrði. Það dugir þó skammt þegar hinn mikli sláttumaður kemur og vitjar manns eins óvænt og raun bar vitni. Við munum minnast Jóhanns Svans sem góðs félaga í dagsins önn. Aðstandendum sendum við samúðarkveðjur. Kennarar við grunndeild málmidna IR. íslendingar 1 hópi efstu þjóða BRIPS Ródos, Grikkland! ÓLYMPÍUMÓTIÐ Ólympíumótið í brids er haldið dag- ana 19. október til 2. nóvember. Upplýsingar um árangur íslenska liðsins eru í textavarpi Sjónvarps- ins, bls. 246, og á heimasíðu Bridge- sambands Islands: http://www.is- landia.is/isbridge/ Einnig eru upp- lýsingar um mótið á heimasíðu Al- þjóðabridssambandsins: http://wbf.bridge.gr/Rhodes.96/ rhodes.htm ÍSLENSKA ólympíuliðið hefur fikr- að sig jafnt og þétt upp eftir stiga- töflunni og var í 4. sæti í sínum riðli eftir 9. umferðir en datt í 5. sætið eftir 10. umferð. Alls eru spilaðar 35 umferðir í undankeppn- inni og fjórar efstu þjóðirnar í riðlin- um komast í úrslitakeppnina sem hefst á þriðjudag í næstu viku. íslendingar töpuðu öðrum leik sínum á mótinu gegn ísraelsmönn- um í 7. umferð á mánudag, 17-32 í impum eða 12-18 í vinningsstig- um. Það má segja að leikurinn hafi tapast á einu spili, þegar Sævar Þorbjömsson og Jón Baldursson spiluðu 1 grand redoblað á hætt- unni og fóm 3 niður eða 1.600. Á þessu spili græddu ísraelsmennimir 16 impa. íslendingamir létu þetta áfall ekkert á sig fá og unnu tvo næstu leiki með yfirburðum. Fyrst Slóven- iu í 8. umferð 23-7 (60-25), og síð- an Máritaníu 25-0 (85-8). Aðal- steinn Jörgensen og Matthías Þor- valdsson spiluðu báða þessa leiki, þann fyrri með Guðmundi Páli Am- arsyni og Þorláki Jónssyni, og þann síðari með Jóni og Sævari. Hraktir í alslemmu í 10. umferð spiluðu íslendingar við Tyrki, sem hafa verið í efstu sætum riðilsins frá upphafi. Þetta var nokkuð köflóttur leikur. Tyrk- irnir fóru m.a. í alslemmu þar sem bæði vantaði trompásinn og ÁK í öðmm lit. En á móti komust þeir í tvö heppnisgeim sem unnust og þeir sluppu vel í þessu spili: Vestur gefur, allir á hættu. Norður ♦ KD10852 1104 ♦ Á83 ♦ Á5 Vestur ♦ 94 VG ♦ 76 ♦ KDG87632 Suður ♦ 3 ♦ ÁKD98632 ♦ 105 ♦ 109 Við annað borðið voru sagnir skrautlegar: Vestur Norður Austur Suður SÞ JB 4 lauf 4 spaðar pass 5 hjörtu pass 6 spaðar dobl 6 grönd pass pass dobl 7 hjörtu pass pass dobl// Opnun Sævars var annaðhvort hindrun með langan lauflit eða 7-8 slaga hönd með hjartalit. Þetta setti Tyrkina út af laginu því þegar suð- ur vildi sýna góðan hjartalit með 5 hjörtum þá hélt norður að sögnin sýndi fyrirstöðu og stuðning við spaðann. Þess vegna stökk hann í 6 spaða og eftir það doblaði Jón allt sem sást. Með tígli út er alslemman tvo niður því þá getur austur tekið tíg- ulslag þegar hann kemst inn á spaðaás. En Sævar spilaði út laufa- kóng og nú slapp sagnhafi einn niður með því að fría spaðalitinn; spaðanía kom önnur frá vestri og tromptían var innkoma í blindan. Við hitt borðið opnaði vestur á 3 laufum en síðan tóku Guðmundur og Þorlákur við og enduðu í 6 hjört- um í suður. En nú fann vestur tígul- útspilið og slemman fór 1 niður. Island græddi samt 3 impa en leikn- um lauk með jafntefli, 44-43 eða 15-15. Eftir 10 umferðir voru íslending- ar í 5. sæti með 193 stig. Efstir voru ítalir með 219 stig, þá ísraels- menn með 207,5 stig, síðan Ástral- ir með 205_stig og Júgóslavar með 198 stig. í næstu sætum á eftir Islendingum voru Tævanbúar með 192,5 stig, Norðmenn með 187 stig, Bretar með 186 stig og Indveijar með 181. í 10. sæti voru Tyrkir me_ð 176 stig. í hinum riðlunum voru Frakkar efstir með 215 stig en næstir komu Pólveijar með 203 stig, Spánveijar með 201 stig og Nýsjálendingar me_ð 200 stig. í kvennaflokki spila 44 þjóðir í tveimur riðlum. Eftir 7 umferðir voru Svíar og Danir efstir í öðrum riðlinum en í hinum ísraelsmenn og Bandaríkjamenn. 3 grandafórn Hollendingum hefur gengið allt í mót það sem af er Ólympíumót- inu. Þeir mættu íslendingum í töflu- leik á mánudag og leiknum lauk með sigri íslendinga, 21-9. íslend- ingarnir voru mun beittari eins og þetta spil sýnir. Suður gefur, enginn á hættu Norður ♦ 105 ¥ÁG53 ♦ K743 ♦ DG9 Vestur Austur ♦ Á42 ♦ K7 ¥ KD ¥ 10987 ♦ ÁG10982 ♦ D65 ♦ 102 ♦ 7653 Suður ♦ DG9863 ¥643 ♦ -- ♦ ÁK84 Við annað borðið sátu Jón og Sævar AV en Westerhof og Jansen NS: Vestur Norður Austur Suður JB Westerh. SÞ Jansen pass pass 3 spaðar 3 grönd// Hindrun Jansens í 3. hendi er ekki hefðbundin en þessi staða býð- ur gjarnan upp á slíkt. Jón átti ekki mikið fyrir 3 granda sögninni og fór raunar tvo niður eftir að norður spilaði út spaðatíu. En það var ágætis fórn, hvort sem var fyr- ir spaðabútinn eða geimið sem Guð- mundur Páll og Þorlákur sögðu við hitt borðið. Þeir sátu NS en Wobbo de Bauer og Bauke Muller AV: Vestur Norður Austur Suður BM GPA WdB ÞJ 1 tígull pass 1 spaði 2 tíglar pass pass 4 spaðar/ Guðmundur fann opnun á norð- urspilin og eftir það fór Þorlákur eðlilega í 4 spaða. Vestur spilaði út hjartakóng og nú gat vörnin þrætt spilið niður. Vestur tekur fyrsta spaðann á ás, tekur hjarta- drottningu og fær síðan hjarta- stungu þegar austur fer inn á spaðakóng. En vestur reyndi of fljótt að taka tígulásinn og þá slapp Þorlákur heim með 10 slagi og 8 impa til íslands. Aldrei að hætta „Við hættum aldrei að segja fyrr en við erum doblaðir," sögðu Bandaríkjamennirnir Larry Robbins og Jerry Goldfein í samtali við ólympíumótsblaðið á Ródos. Til sannindamerkis var þetta spil úr leik Bandaríkjanna og Tælands birt: Norður gefur, enginn á hættu. Norður ♦ K8764 ¥ K ♦ KD9842 ♦ 8 Vestur Austur ♦ ÁG ♦ D953 ¥ D109752 ¥ 643 ♦ Á5 ♦ 106 ♦ KG6 ♦ D1075 Suður ♦ 102 ¥ ÁG8 ♦ D73 ♦ Á9432 Robbins átti greinilega enga opn- unarsögn í kerfinu sínu á norður- spilin því hann byijaði á passi en náði sér svo vel á strik: Vestur Norður Austur Suður LR JG pass pass 1 lauf dobl 1 tígull pass pass 1 hjarta 1 spaði 2 hjörtu pass pass 2 spaðar pass 3 tíglar 3 hjörtu 4 tiglar pass 5 tíglar dobl/// Það getur enginn láð vestri lokadoblið en þessi samningur vannst þegar spaðaásinn lá rétt og sagnhafi fékk að trompa tvo spaða í borði með sjöunni og drottning- unni. Guðm. Sv. Hermannsson auglýsingor TIL SÖLU Persnesk kisa Til sölu silfurpersi (læða). Upplýsingar í síma 421 5268. FELAGSLIF I.O.O.F. 7 = 1781023872 = □ Glitnir 5996102319 III - 1 Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Skyggnilýsingafundur Bjarni Kristjánsson, miðill verður með skyggnilýsingafund mið. 23. okt. kl. 20.30 i Sjálfeflissaln- um við Nýbýlaveg 30, Kópavogi. (Ath. gengið inn frá Dalbrekku). □ Helgafell 5996102319 IV/V 2 Frl. SAMBAND ÍSLENZKRA '*$!&!' KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58-60 Samkoma ( kvöld kl. 20.30 í Kristniboössalnum. Ræðumað- ur: Sr. Magnús Guðjónsson. Allir hjartanlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Safnaðarfundur í kvöld kl. 19.00. Safnaðarmeðlimir eru hvattir til að mæta vel. Austur ♦ ÁG76 ¥75 ♦ KDG942 ♦ 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.