Morgunblaðið - 23.10.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.10.1996, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐNILÚTHER _ SALÓMONSSON + Guðni Lúther Salómonsson fæddist í Ólafsvík 6. september 1912. Hann lést á sjúkra- húsinu í Stykkis- hólmi 30. sept- ember siðastliðinn og fór útför hans fram frá Ólafsvík- urkirkju 8. október. Þeir hverfa einn af -nfirum, sem settu svip sinn á lífið í Ólafsvík á mínum uppvaxtar- árum. Einn af þeim var hann Lúlli frændi minn, Guðni Lút- her hét hann og var oftast kallaður Lúlli, eða Lúlli Sal. Hann var föður- bróðir minn og var hluti af mínu lífi. Hann var bæði góður og traust- vekjandi. Eg varð fyrir því á unga aldri að missa móður mína. Hjá þeim sem verða fyrir slíkum missi, brestur eitthvað í tilverunni og tilhneiging verður til að leggja ofurtraust á þær persónur í lífinu sem eru traustvekj- andi. Ég leit mikið upp til hans Lúlla og fannst hann traustvekjandi "persóna. Lúlli og pabbi minn voru góðir bræður. Eg man hvað mér fannst notalegt að sitja hjá þeim við eld- húsborðið heima í Oafsvík og hlusta á þá spjalla saman um daginn og veginn, um aflabrögð bátanna og lífið í litla „plássinu" okkar heima. Einnig minnist ég Lúlla með munn- hörpuna sína og pabba með harm- onikkuna. Þeir bræður voru mjög tónelskir og höfðu gaman af að spila. Þeir höfðu ekki lært á hljóð- *S36ri og ekki veit ég til þess að þeir hafi þekkt nótur. Allt var spil- að eftir eyranu. Ég flutti ung frá Ólafsvík, en kom svo aftur mörgum árum seinna sem fullorðin með mína fjölskyldu. Þá kynntist ég frænda mínum aftur og átti oft notalegar stundir með honum og konu hans Fríðu. Fríða var óþreytandi að koma með heitar kleinur, pönnukökur og fleira góð- gæti til okkar íjöiskyidunnar. En fyrsta árið sem ég bjó í Ólafsvík eftir að ég flutti þangað aftur, þjuggum við í sömu götu og þau. Asamt því að vinna í fiski tók Lúlli að sér að vinna sem löggæslumaður á hinum ýmsu samkomum í Ólafs- og nágrenni. Þetta var oft erf- itt starf og vanþakklátt, en honum fannst þetta líka skemmtilegt og lærdómsríkt. Hann kynntist mörg- um góðum mönnum sem unnu með honum við löggæsluna. Margir þeirra urðu siðar góðir vinir hans og mat hann þá mikils. Lúlla frænda mínum fannst mik- ið til þess koma, þegar kosningar voru heima í Ólafsvík og Alexander Stefánsson og fleiri frammámenn fengu hann til að vinna á kosninga- stað við dyravörslu. Lúlli tók þetta starf mjög alvarlega og var mikið í mun að skila þessari vinnu sam- viskusamlega. Hann hlakkaði alltaf Íil kosninga og hefði viljað láta jósa oftar. Frænda mínum þótti afskaplega vænt um litla bæinn sinn, Ólafsvík. Hann var einn af þeim sem byggðu þennan bæ upp og vildi honum allt það besta. Hann fylgd- ist með þróun staðar- ins, frá fátækt og alls- leysi lítils þorps til fal- legs og vel megandi bæjar með mikla möguleika. Það var þeim hjón- um Lúlla og Fríðu erf- itt, þegar þau þurftu heilsu sinnar vegna að flytjast úr húsi sínu Sandholti 14 á Dvalar- heimilið Jaðar í Ólafs- vík. Þau voru aldrei sátt við þennan flutning. Einnig þurftu þau síðan að flytja á sjúkrahúsið í Stykkis- hólmi. Sá flutningur fór einnig mjög illa í þau. Öllu því góða fólki sem annaðist þau Lúlla og Fríðu, bæði á Jaðri i Ólafsvík og sjúkrahúsi Stykkishólms, vil ég færa kærar þakkir fyrir góða umönnun. Fríða lést hinn 13. maí síðastliðinn. Lúlli og Fríða voru með fjárbú- skap í mörg ár. Þeirra unaðsreitur var í Klettakoti í Fróðárhreppi, en þar dvaldi Fríða mörg sumur við heyskap og Lúlli þegar hann var ekki bundinn við aðra vinnu. Þau hjón voru mjög gjafmild. Þau voru sígefandi til vina og vandamanna, kjötið á haustin, harðfiskinn sem Lúlli herti og saltkjötið góða, sem smakkaðist svo vel og var svo frá- bærlega lagað af honum frænda mínum. Lúlli vann mest alla ævi sína í Ólafsvík við hin ýmsu störf, mest við fiskvinnslu. Hann dvaldi um tíma í Keflavík, þá ungur maður. En það sem honum Lúlla var minn- isstæðast frá bernskuárum sínum og hann talaði oft um, var þegar hann var sendur í sveit. Honum fannst erfitt að fara frá foreldrum og bræðrum og erfitt að vinna á engjum langan vinnudag, oftast blautur og kaldur á fótum. En það var ekki til siðs að kvarta og ekki alltaf hlustað á börn. Þeir voru ekki réttháir litlu „vinnumennirnir" sem urðu að vinna fyrir sér snemma á öldinni. Ég hef oft hugsað um það, hvað lífsbaráttan hefur verið hörð hjá afa mínum og ömmu, sem þurftu að senda syni sína svona unga að heim- an. En það var ekkert val. Þau voru fátæk og erfitt að brauðfæða mörg börn. Ég sá frænda minn seinni hluta sumars í síðasta sinn. Var hann þá orðinn mjög þreyttur og farinn að heilsu. Ég og fjölskylda mín kveðj- um Lúlla og þökkum honum fyrir allt það sem hann hefur gert fyrir okkur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hvíl í friði, kæri frændi minn. Guð blessi minningu þína. Ragnheiður S. Helgadóttir. + Vigdís Ólafía Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 8. janúar 1917. Hún lést á kvennadeild Landspítalans 12. október síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Lilja Guðríður Brands- dóttir, f. 22. maí 1889 í Króki í Hraungerðishreppi í Árn., d. 25. júlí 1959, og Jón Gríms- son sjómaður, f. í Keflavík 12. júlí 1892, d. 5. ágúst 1977. Hálfsyst- ir Vigdísar var Aðalheiður Tryg&vadóttir, f. 10. nóvember 1912, d. 22. september 1994. Alsystkini Vigdísar eru: Guðný, f. 24. júní 1914, d. 25. júlí 1918, Sigurður, f. 23. mars 1918, d. 8. október 1972, Jóhanna, f. 20. mars 1920, d. 11. júní 1973, Unnur f. 23. ágúst 1921, Stef- Elskulega svilkona okkar. Þú komst sem gleðigjafi inn í fjölskylduna, svo blíð, brosmild og söngelsk, þegar þú giftist Friðvini Þorbjörnssyni elsta bróðurnum, sem andaðist 22. júní 1991 eftir langvar- án, f. 7. maí 1923, Bragi, f. 9. október 1925, og Logi, f. 29. ágúst 1928. Hinn 24. septem- ber 1955 giftist Vig- dís Friðvini Sigur- tryggva Þorbjörns- syni múrara frá Siglufirði, f. 15. nóvember 1923, d. 22. júní 1991. Börn þeirra eru: Odd- björn, f. 20. septem- ber 1956, kvæntur Sólveigu Ólafsdótt- ur og eiga þau þijú börn; Jón Þór, f. 20. febrúar 1958, kvæntur Jódísi Gunnars- dóttur og eiga þau fjögur börn; Lilja Guðný, f. 29. apríl 1959, gift Ófeigi Guðmundssyni og eiga þau tvær dætur. Utför Vigdísar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. andi veikindi. Þú hugsaðir um hann og þú hjúkraðir honum af allri þinni góðvild, svo aðdáun vakti. Börnin ykkar bera vitni um gott uppeldi frá góðum foreldrum. Við svilkonurnar, Svanbjörg, gift næstelsta bróðurnum Sigurði; svo kom Hallgrímur Þór, sem drukkn- aði aðeins tvítugur að aldri, ókvænt- ur; og Hulda, gift Guðjóni yngsta bróðurnum, minnumst að á okkar heimilum var alltaf gleði þegar Vigga og Friðvin komu í heimsókn. Börnin okkar geisluðu af gleði og spurðu hvort eitthvað væri í tösk- unni hjá Viggu. Þar leyndist alltaf eitthvað fyrir börnin. Þú elskaðir börnin, þú söngst fyrir þau og sagð- ir þeim sögur. Börnunum þótti jafn vænt um þig og okkur þeim eldri. Við munum kærleikann hjá ykk- ur (þið voruð eldri en við) þegar von var á fyrsta barninu hjá ykkur, og öðru og þriðja barninu. Þetta voru gleðidagar, tíminn leið hratt, börnin stækkuðu, þá var strax farið að huga að ferðalögum, og þá voru veiðiferðir efst á lista. Friðvin átti gamlan, en góðan og traustan jeppa. Þétt var raðað í jeppann, því allir urðu að komast með. Þetta eru ógleymanlegar ferð- ir. Nú er komið að ferðinni löngu. Við vitum að vel er tekið á móti þér; af kærleik og hlýju. Óskir okkar til barnanna þinna og okkar eru að þeim hlotnist gæfa til að líkjast þér. Blessuð sé minning þín. Besti faðir, bama þinna gættu, blessun þín er múr gep allri hættu. Að oss hlúðu, hryggð burt snúðu, hjá oss búðu, orð þín oss innrættu. (Pétur Guðmundsson.) Hulda og Svanbjörg. VIGDÍS ÓLAFÍA JÓNSDÓTTIR ARNYSVALA KRISTJÁNSDÓTTIR + Árný Svala Kristjánsdóttir fæddist í Hafnar- firði 1. janúar 1927. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 12. október síðast- liðinn. Foreldrar Árnýjar voru Guð- björg Elín Jónsdótt- ir og Kristján Bene- diktsson. Systkini Árnýjar: Ölafur, Jón og Margrét. Árný giftist Nando Welpo Whil- es, þau slitu sam- vistir. Börn Árnýjar: Oddur Árni og Margrét Lilja. Útför Árnýjar fór fram í kyrrþey að hennar ósk. Mig langar að minnast Svölu vinkonu minnar í fáum orðum. Hún fæddist í Hafnarfirði og 6 mánaða gömul fer hún í fóstur til föðurömmu sinnar, Margrétar Steinunnar Guðmundsdóttur, að Þorbergsstöðum í Laxárdal. Hún er þar til 12 ára aldurs eða þar til amma hennar lést. Þá fer hún til föðursystur sinnar, Lilju Benediktsdóttur, og Sigurðar Björns- sonar brúarsmiðs í Reykjavík og er hjá þeim í 6 ár. Hún fer að vinna fljótlega eftir ferm- ingu. Vann mikið við matargerð, var m.a. 10 ár á sama stað matráðskona hjá Sem- entsafgreiðslunni. Hún vann um tíma í Kefla- vík í mötuneyti og þar kynntist hún mannin- um sínum. Þau bjuggu um tíma í Bandaríkjunum og þar fæddist dóttir þeirra Mar- grét Lilja. Þau slitu samvistir. Ég kynntist Svölu þegar við unnum á sama vinnustað á sjúkra- húsi fyrir rúmum 30 árum. Við áttum oft samleið á morgnana. Hún var þá einstæð móðir, komin heim frá Bandaríkjunum. Það var erfitt hjá einstæðri móður á þess- um árum, en Svala var dugleg og þetta gekk vel. Hún var aldrei í vandræðum með að fá vinnu, hún var bæði dugleg og samviskusöm. Hún minntist stundum á bernsku sína, hvað hún naut mik- ils ástríkis hjá ömmu sinni á Þor- bergsstöðum. íbúð keypti hún sér fyrir 7 árum, í Suðurhólum í Breið- holti. Þar átti hún fallegt heimili. Hún gekk ekki heil til skógar sein- ustu árin og hætti að vinna fyrir tæpum þremur árum, 67 ára. Þá hafði hún meiri tíma fyrir fjölskyld- una, að heimsækja dóttur sína, tengdason og börn, og eins að taka á móti þeim. Seinustu árin voru langömmu- börnin tvíburarnir Karen og Katrín Baldvinsdætur og nafna hennar, Svala, augasteinarnir hennar. Ég vil að lokum þakka henni samverustundir okkar og vináttu og við Jói kveðjum hana með þess- um versum. Þinn andi, Guð, til Jesú Krists mig kalli og komi mér á hina réttu ieið, svo ætíð ég að bijósti hans mér halli í hverri freisting, efa, sorg og neyð. Þinn andi, Guð minn, upp mig sifellt lýsi með orði þínu Ijósi sannleikans í lífi’ og dauða það mér veginn vísi til vors hins þráða, fyrir heitna lands. (V. Briem.) Margréti Lilju og fjölskyldu hennar sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guðný E. Eiríksdóttir. SIGRÚNÁSTA PÉTURSDÓTTIR + Sigrún Ásta Pétursdóttir fæddist í Reykjavík 27. febrúar 1941. Hún lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 12. október síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Fossvogs- kirkju 21. október. Nú hef ég kvatt í hinsta sinn eina þá stærstu konu sem mér hef- ur hlotnast að kynnast á lífsleið- inni. Sía var ekki hávaxin frekar en systkini hennar, en hún var klett- urinn í hafinu, staðfastur vinur með ótakmarkað pláss fyrir aðra í hjarta sínu. Hún krafðist ekki mikils af öðrum en hafði ógrynni að gefa. Sía var ótal sinnum skjól mitt í æsku og einnig eftir að ég taldist til fullorðinna. Ég á margar yndis- legar minningar um samvistir við hana og þessar minningar eru einn af mínum stærstu fjársjóðum. Sía sýndi okkur styrk sinn í lífi, leik og að lokum í baráttu sinni við sjúkdóminn sem þó að lokum hafði betur. Hún var samt sigurvegari því hún kom meiru í verk á lífsleið sinni en margur annar. Ég veit að hún var sátt við lífsstarf sitt og hún var stolt af því að hafa komið af stað vakningu innan sinnar starfs- stéttar þrátt fyrir veikindi sín. Söknuðurinn er sár, en ekkert getur tekið minningarnar um þessa merkilegu konu frá mér og ég veit að hún vakir yfir okkur öllum. Elsku Pálmi, Ásta, Ester, Rúnar, makar og börn, megi guð gefa ykk- ur styrk í sorg ykkar. Eg byrja reisu mín, Jesú, í nafni þín. Höndin þín helg mig leiði, úr allri hættu greiði. Jesú, mér fylgi í friði með fögru engla liði. (Hallgr. Pét.) Guðrún Ben. í formála minningargreina um Sigrúnu Ástu á blaðsíðu 36 í Morgunblaðinu sunnu- daginn 20. október var tilfært rangt dánarár systur hennar, Eygerðar Laufeyjar. Hún lést 1989. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCll-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðall- ínubil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.