Morgunblaðið - 23.10.1996, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Aukinn fjandskapur
Afganar
á flótta
HART hefur verið lagt að stríð-
andi fylkingum í Afganistan að
fallast á vopnahlé en engin
merki sáust þess í gær, að úr
bardögum hefði dregið. Eru
þeir mestir fyrir norðan höfuð-
borgina, Kabúl, og virðist þar
um þrátefli að ræða milli heija
Talebana og herstjórans Ahmad
Shah Masoods. Eins og ávallt
eru það óbreyttir borgarar, sem
hafa orðið verst úti í átökunum,
og hafa þeir orðið að flýja heim-
ili sín í stórum stíl.
Reuter
Reynt til þrautar að
semja um Hebron
Jerúsalem. Reuter.
SENDIMAÐUR Bills Clintons
Bandaríkjaforseta hætti í gær við
að snúa heim til Bandaríkjannna
í þeirri von, að ísraelum og Palest-
ínumönnum tækist að ná samning-
um um brottflutning ísraelsks her-
liðs frá borginni Hebron á Vestur-
bakkanum.
Dennis Ross, sendimaður
Bandaríkjastjórnar, sagði í yfírlýs-
ingu, að hann hefði hætt við brott-
förina vegna þess, að vel hefði
gengið í samningum um ýmis
borgaraleg málefni. Verr hefur
hins vegar miðað í samningum um
bottflutning ísraeiska herliðsins
frá Hebron en samkvæmt Óslóar-
samningunum átti það að fara
þaðan í vor.
Netanyahu bjartsýnn
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, fullyrti þó á sam-
eiginlegum blaðamannafundi með
Jacques Chirac, forseta Frakklands,
sem er í opinberri heimsókn í ísra-
el, að samningar myndu takast um
brottflutninginn mjög bráðlega.
Fulltrúar Palestínumanna gengu
út af samningafundi í fyrrinótt og
sögðu þá, að afstaða ísraela væri
sú sama og „herveldis gagnvart
hersetinni þjóð“. ísraelar sökuðu
aftur Palestínumenn um að vilja
draga samninga á langinn fram
yfir kosningar í Bandaríkjunum i
þeirri trú, að Clinton yrði þá harð-
ari í horn að taka gagnvart ísrael-
um.
Viðræðurnar um Hebron hófust
þó aftur í gærkvöld.
Eftirlitsmenn með kosningunum
hafa ekki tekið undir með Ortega um
að kosningamar hafí ekki farið heið-
arlega fram og Aleman skoraði í gær
á sandínista að styðja sig. Kvaðst
hann vona, að Ortega hefði þroskast
með árunum. Ekki er talið líklegt,
að sandínistar muni sætta sig við
Aleman sem forseta enda saka þeir
hann um að hafa notið stuðnings
fylgismanna Anastasio heitins
Somoza, einræðisherrans, sem
sandínistar steyptu af stóli 1979.
Margir óttast að kosningarnar,
sem áttu að leiða til sátta með þjóð-
inni, hafi alveg öfug áhrif og skerpi
enn andstæðurnar milli hægri- og
vinstrimanna í landinu.
Aleman er ákafur andstæðingur
sandínista og kommúnista og hann
er ekki búinn að gleyma því, að
hann var handtekinn og eigur hans
gerðar upptækar þegar Ortega var
forseti sandínistastjórnarinnar á ár-
unum 1979 tii 1990.
Aleman er fimmtugur að aldri,
lögfræðingur að mennt og kaffi-
ræktandi, og hann var kjörinn borg-
arstjóri í Managua 1990. Þá lét hann
það verða sitt fyrsta verk að taka
þúsundir sandínista af launaskrá hjá
borginni; hann lét mála yfir bylting-
arslagorðin á opinberum byggingum
og risastórum upphafsstöfum
sandínistaflokksins, FSLN, sem
blöstu við frá nærliggjandi hæð, lét
hann breyta í FIN en það þýðir „end-
ir“ á spænsku.
Eignum skilað?
Aleman hefur einnig gefið í skyn,
að þeir sandínistar, sem auðguðust
á því að gera eigur annarra manna
upptækar, verði að skila þeim aftur
og það gæti til dæmis átt við um
Ortega. Hann býr nú í glæsilegu
húsi, sem tekið var af bankamann-
inum Jaime Morales Carrazo, kosn-
ingastjóra Alemans.
Hægrimaðurinn Arnoldo Aleman sigurvegari í Nicaragua
Ortega neitar að
viðurkenna úrslit
Managua. Reuter.
DANIEL Ortega, leiðtogi sandínista í Nicaragua, neitaði í gær að viður-
kenna niðurstöðu forsetakosninganna í landinu á sunnudag og sagði, að
brögð hefur verið í tafli. Um miðjan dag í gær var búið að telja helming
atkvæða og þá hafði Arnaldo Aleman, frambjóðandi hægrimanna, fengið
48,54% atkvæða en Ortega 38,96%. Séu frambjóðendur fleiri en tveir og
fái einhver 45% atkvæða eða meira þarf ekki að kjósa á milli tveggja
efstu manna.
Ortega sagði á blaðamannafundi
í Managua í gær, að ekki hefði allt
verið með felldu með kosningarnar
og væru mörg dæmi um það. Sagði
hann meðal annars, að skeytum frá
yfírkjörstjórnum í kjördæmunum
hefði verið breytt og atkvæðatölur
sandínista lækkaðar. Var mikill hiti
í sumum stuðningsmanna hans, sem
sögðu kosningarnar hafa verið eina
svikamyllu.
Ortega skoraði á yfirvöld í landinu
að telja atkvæðin aftur og var tekið
líklega í, að það yrði gert þegar
fyrstu talningu væri lokið. Var búist
við, að það yrði í dag.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands, reynir að setja niður deilurnar
Aukið samstarf valdastofnana
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, lagði til á
mánudag að forsætisráðherra, helsti ráðgjafi
forsetans og forsetar beggja þingdeilda skyldu
hittast reglulega til að ræðast við og ná sam-
komulagi um mikilvæg mál. Er litið á þessa til-
lögu sem tilraun hans til að bæta samskipti
helstu valdastofnana í landinu og koma í veg
fyrir árekstra meðan hann bíður eftir hjartaað-
gerð í næsta mánuði.
Jeltsín lagði þetta til á fundi með Gennadí
Seleznyov, forseta dúmunnar eða neðri deildar
þingsins, og sagði meðal annars, að ótækt væri
eins og nú væri ástatt, að hver og einn reyndi
að fara sínu fram. Voru myndbrot frá fundi
þeirra sýnd í sjónvarpi og var Jeltsín skýrmælt-
ur og hress að sjá. Hann gengst undir aðgerð
um miðjan næsta mánuð.
Talsmaður Jeltsíns, Sergei Jastrzhembskí,
sagði, að Seleznyov hefði fallist á tillögu forset-
JELTSÍN ásamt Víktor Tsjernomyrdín,
forsætisráðherra Rússlands, á Barvíkha-
heilsuhælinu fyrir utan Moskvu í gær.
ans og því myndu þeir Víktor Tsjernomyrdín
forsætisráðherra, Anatolí Tsjúbaís, starfsmanna-
stjóri í Kremi, Seleznyov og Jegor Strojev, for-
seti sambandsráðsins eða efri deildarinnar, koma
saman til að ræða þau mál, sem efst væru á
baugi.
Rútskoj kosinn héraðsstjóri
Stuðningsmenn Jeltsíns eru í minnihluta í dúm-
unni en hann stendur betur að vígi í sambandsráð-
inu. Það skipa leiðtogar héraðanna og á sunnu-
dag tók þar sæti einn svarnasti óvinur Jeltsíns,
Alexander Rútskoj, fyrrverandi varaforseti. Hann
stýrði uppreisn þingsins gegn Jeltsín 1993 og sat
um tíma í fangelsi en sigraði nú með miklum
yfirburðum í héraðsstjórakosningum í Kúrsk.
Fréttaskýrendur segja, að valdabaráttan í
Kreml haldi áfram þótt Jeltsín hafi rekið Alex-
ander Lebed, yfirmann öryggismálanna, en
Seleznyov sagði, að þrátt fyrir sjúkleika sinn
væri forsetinn en með töglin og hagldirnar.
Tsjernomyrdín kynnti í gær eftirmann Lebeds,
ívan Rybkín, fyrir öðrum í öryggisráðinu og gaf
honum jafnframt fyrirmæli um að vinna að loka-
lausn á Tsjetsjníju-deilunni.
Kosning-
um í Bosn-
íu frestað
ÖSE, Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu, hefur ákveðið
að fresta sveitarstjórnarkosn-
ingum í Bosníu en þær áttu að
fara fram síðla í næsta mán-
uði. Er ástæðan pólitískir erfíð-
leikar alls staðar í landinu og
enginn vilji til samstarfs milli
stjórnmálaflokka. Búist er við,
að kosningunum verði frestað
fram á vor en þær eru forsenda
fyrir því, að flóttafólk geti snú-
ið aftur til síns heima. Fólk á
að kjósa í þeim sveitarfélögum,
sem það bjó í fyrir stríð, og það
gæti þýtt, að t.d. múslimar
næðu meirihluta í ýmsum bæj-
um, sem Serbar ráku þá frá í
stríðinu. Til þess mega Serbar
ekki hugsa og svo er einnig um
hin þjóðabrotin að sumu leyti.
40 fangar
létust
AÐ minnsta kosti 40 fangar lét-
ust þegar eldur kom upp í fang-
elsi í Caracas í Venesúela. Voru
það fangaverðir, sem áttu upp-
tök að eldsvoðanum, en þeir
höfðu lokað af einni álmu fang-
elsisins og kastað þar inn tárag-
assprengju. Er ekki vitað hvers
vegna þeir gerðu það en opinber
rannsókn hefur verið fyrirskipuð
Skamma
Kohl og
félaga
TALSMENN Vísindakirkjunn-
ar, sem runnin er upp í Banda-
ríkjunum, sökuðu í gær kristi-
lega demó-
krata, flokks-
bræður Helm-
uts Kohls,
kanslara
Þýskalands,
um ólýðræðis-
lega fram-
komu , en
flokkurinn
samþykkti, að
eftirlit yrði haft með meðlimum
safnaðarins og þeim bannað að
gegna opinberu embætti. í
Þýskalandi er söfnuðurinn sak-
aður um heilaþvott og skeija-
lausa gróðafíkn og hann hefur
verið sviptur stöðu sinni sem
trúfélag.
Eignir gyð-
inga notaðar
YFIRVÖLD í Sviss hafa viður-
kennt í fyrsta sinn, að banka-
innstæður í eigu pólskra gyð-
inga, sem létust í Helförinni,
hafi verið notaðar til að bæta
svissneskum borgurum þann
skaða, sem þeir urðu fyrir þeg-
ar eigur þeirra í Póllandi voru
gerðar upptækar eftir stríð.
Hafa samtök gyðinga krafíst
þess, að svissneska stjómin
greiði milljónir dollara í skaða-
bætur vegna þessa máls.
Mikil flóð í
Tælandi
NÍUTÍU og einn maður að
minnsta kosti hefur látið lífið
af völdum mikilla flóða í Tæ-
landi og eignatjónið er metið á
rúma sex milljarða ísl. kr. Er
enn versta veður í suðurhluta
landsins en flóðvatnið er þó far-
ið að sjatna nokkuð. Skemmdir
hafa orðið á 717.000 hekturum
ræktaðs lands og meira en millj-
ón gripa hefur drepist.
Kohl