Morgunblaðið - 23.10.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996 17
ERLENT
Flugslysið í Perú
Flugrit-
arnir rann-
sakaðir í
Bandaríkj-
unum
Lima. Reuter.
TEKIST hefur að ná flugritum
Boeing-757 þotu perúska flugfé-
lagsins Aeroperu af hafsbotni og
hafa þeir verið sendir til Banda-
ríkjanna til rannsóknar.
Talið er, að flugritarnir varð-
veiti upplýsingar sem leitt geti í
ljós hvers vegna þotan fórst upp
úr miðnætti skömmu eftir flugtak
2. október sl.
Flugstjórinn sagðist í samtölum
við flugturn ekki lengur njóta
stjórntölvu þotunnar eða mæli-
tækja, vissi ekki hvort hann var
staddur yfir landi eða sjó eða hvert
þotan stefndi. Er hann freistaði
þess að snúa til baka brotlenti
þotan á sjó og fórust allir sem um
borð voru, 61 farþegi og niu
manna áhöfn.
Tæknilegar bilanir?
Perúsk stjórnvöld hafa skellt
skuldinni á tæknilegar bilanir í
þotunni en menn frá flugfélaginu,
flugvélaverksmiðjunum, framleið-
endum hreyflanna, Öryggisstofn-
un samgöngumála (NTSB) í
Bandaríkjunum, sem vinna að
rannsókn slyssins, hafa varast að
geta sér til um hugsanlegar ástæð-
ur slyssins.
Alnæmissmit-
aðir öðlast
nýja von
New York. The Sunday Telegraph.
HOMMAR í Bandaríkjunum
hafa öðlast nýja von. Það
virðist ekki vera sami
dauðadómurinn og áður að vera
smitaður af alnæmisveirunni og
margir gera sér vonir um að eiga
langt líf fyrir höndum. Sumir hafa
breytt líftryggingarsamningum
sínum í eftirlaunasjóði og aðrir
hafið nám að nýju. Allt er þetta
að þakka lyfjum, sem hafa verið á
markaðnum í nokkur ár, en þeim
er það sameiginlegt að koma í veg
fyrir, að veiran geti nýtt sér ákveð-
inn hvata, svokallaðan hvítukljúf
(proteasa), en hann er nauðsynleg-
ur til að hún geti fjölgað sér.
Nýju lyfin uppræta ekki al-
næmisveiruna en þau virðast geta
haldið henni í skefjum. Hefur það
vakið vonir meðal þeirra, sem eru
smitaðir eða sjúkir, og kannski
sérstaklega hjá hommum í Banda-
ríkjunum, sem hafa orðið mjög
illa úti af völdum sjúkdómsins.
Þeir búast nú margir við að geta
lifað lengur en áður var talið lík-
legt og lifað lífinu sem nokkurn
veginn heilbrigðir einstaklingar.
Afangasigur
Margir læknar telja, að nýju
lyfin séu fyrsti áfangasigurinn í
baráttunni við alnæmið og þeir
geta sagt kraftaverkasögur af
Ný lyf virðast geta
haldið alnæmisveirunni
í skefj um en þau eru
dýr og virka ekki á alla
fólki, sem var að dauða komið á
sjúkrahúsi, en reis upp eins og
Lazarus forðum og tók aftur til
við sitt fyrra líf.
Dr. David Rose, forstöðumaður
alnæmisdeildar á Mount Sinai-
sjúkrahúsinu, segir, að þessi
árangur sé raunverulegur og engin
blekking. Lyfin þijú, sem banda-
ríska lyfjaeftirlitið hefur sam-
þykkt, koma eins og fyrr segir í
veg fyrir, að veirunni geti fjölgað
með hjálp hvítukljúfs og þá nær
ónæmiskerfíð sér aftur á strik að
því marki, að stundum er ekki
unnt að mæla veiruna í blóði.
Til að byrja með verða sjúkling-
ar að taka allt að 17 pillur á dag
og er um að ræða blöndu, sem
inniheldur meðal annars lyf gegn
veirum og vítamín. Lyfín halda
aðeins sjúkdómnum niðri og hon-
um skýtur aftur upp ef ekki er
staðið rétt að inntökunni. Margir
læknar segjast samt vona, að í
framtíðinni verði alnæmi ekki
banvænna en sykursýki nú.
HOMMAR í Bandaríkjunum 1981. Á þessum tíma viðgekkst
mikið fjöllyndi og ýtti það undir hraða útbreiðslu alnæmis.
Nýju lyfín eru hins vegar dýr,
ársmeðferð kostar nú á bilinu
300.000 til 1.300.000 kr. Auk
þess virka þau ekki alltaf, sérstak-
lega þegar um er að ræða langvar-
andi sýkingu, og aukaverkanimar
geta verið slæmar, uppköst, niður-
gangur, nýrnasteinar og útbrot.
Eftir að nýju lyfín komu á
markað hefur mikið verið um það
rætt hvort þau eigi að standa öll-
um til boða eða aðeins þeim, sem
hafí efni á þeim. Sumir alnæmis-
sjúklingar eru raunar tryggðir en
sjúkratryggingafyrirtækin horfa
með skelfíngu fram á að þurfa
að borga hundruð milljarða kr.
vegna alnæmisins og segjast ekki
munu rísa undir því.
Jeffrey Karaban, varaformaður
alnæmissamtaka í New York, seg-
ist hins vegar hafa áhyggjur af
öðru. „Þessi lyf hafa verið á mark-
aðnum í þijú eða fjögur ár í til-
raunaskyni og á suma hrífa þau
ekki. Fjölmiðlar eru hins vegar
orðnir þreyttir á alnæminu og
fínnst nú skemmtilegra að lýsa
þessum lyfjum sem kraftaverki.
Það er hættulegt," segir Karaban.
Ótímabær bjartsýni
Þess hefur orðið vart, að sumir
hommar álíta, að nú sé unnt að
ráða við alnæmið eins og flesta
aðra kynsjúkdóma og því sé óhætt
að fara að stunda sama fyrir-
hyggjulausa fjöllyndið og algengt
var á áttunda áratugnum. Aðrir
hafa áhyggjur af, að áhugaleysi
almennings geti veikt pólitísk
áhrif þeirra, sem hafa verið mikil.
Hvað sem þessu líður er það
víst, að lyfin hafa hjálpað mörg-
um. Franklin Courson, 47 ára
gamall maður í New York, hafði
verið með í æð í tvo mánuði þeg-
ar hann fór að taka þau í febrúar
sl. í sumar gekk hann á fjöll í
Perú. Jack Doxey, fyrrverandi
verslunarstjóri, hefur séð veiru-
fjöldann hrapa um 80% frá því í
maí og fyrir það segist hann þakk-
látur guði og lyfjafyrirtækjunum.
Deila vegna fjárfestinga á Kúbu
Danir gegn refsi-
aðgerðum ESB
Brussel. Reuter.
DANMÖRK hótar að beita neitun-
árvaldi gegn refsiaðgerðum, sem
Evrópusambandið hyggst grípa til
í því skyni að svara refsiaðgerðum
Bandaríkjanna gagnvart fyrirtækj-
um, sem hafa fjárfest á Kúbu.
Ástæðan er sú að danska stjórn-
in telur að hinar fyrirhuguðu gagn-
aðgerðir feli í sér fullveldisafsal af
hálfu Danmerkur. Danska stjórnin
vill ekki taka ákvörðun, sem gæti
veikt stöðu hennar í dómsmáli fyrir
dönskum dómstólum, sem snýst um
það hvort henni sé heimilt sam-
kvæmt stjórnarskránni að framselja
ríkisvald til stofnana ESB.
Breiðist vonandi ekki út til
fleiri sviða Evrópuréttar
Evrópusambandið hefur nú þeg-
ar kært málið til Heimsviðskipta-
stofnunarinnar. Framkvæmda-
stjórn sambandsins vonaðist til að
utanríkisráðherrarnir myndu sam-
þykkja refsiaðgerðir gegn Banda-
ríkjunum í næstu viku, en þær von-
ir eru nú að engu orðnar.
„Danir eru í vandræðum heima
fyrir og vilja þess vegna mjög treg-
ir til að samþykkja ný lög,“ segir
ónefndur embættismaður annars
ESB-ríkis. „Við vonum að þetta
muni ekki breiðast út til annarra
sviða Evrópuréttarins.“
Missa Slóvakar
af lestinni?
Bratislava. Reuter.
SÉNDIHERRA Evrópusambands-
ins í Slóvakíu segir að það sé und-
ir Slóvökum sjálfum komið hvort
þeir komist inn í ESB og gefur í
skyn að verði umbótum í lýðræðis-
átt ekki hraðað, geti þeir misst
af lestinni.
Hinn nýi utanrikisráðherra
Slóvakíu, Pavol Hamzik, hefur ít-
rekað lýst því yfír að Slóvakía
verði í hópi þeirra A- og Mið-Evr-
ópuríkja, sem fyrst gangi í ESB
og NATO.
Sendiherra ESB, Georgious
Zawos, sagði hins vegar á fundi
í bænum Stupava: „Slóvakar geta
eingöngu vonazt eftir aðild að ESB
ef þeir leggja sjálfir eitthvað á
sig, jafnt á sviði lýðræðis sem
efnahagsmála."
Sendiherrann ræddi um áform
ESB um að taka inn ríki frá Aust-
ur- og Mið-Evrópu og sagði: „Nú
nálgast hinar endanlegu álitsgerð-
ir, samningaviðræður og ákvarð-
anir, sem verða teknar á seinni
hluta ársins 1997. Slóvakía verður
að skilja hvað þetta þýðir og
bregðast við.“