Morgunblaðið - 23.10.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996 19
LISTIR
Nefið sem týndist
Ljóð og
litríkar
konur
MYNDLIST
Gallcrí Fold
MÁLVERK
Kjartan Guðjónsson. Gallerí Fold:
Opið kl. 10-18 virka daga, kl. 10-17
laugard. og kl. 14-17 sunnud. til
27. okt.; aðgangur ókeypis.
ÞAÐ hefur iöngum verið vitað, að
orka og athafnasemi hefur næsta lít-
ið með aldur að gera; fjölmörg dæmi
úr listasögunni sýna að skapandi
listamenn eru oft þá fyrst að komast
almennilega í gang, þegar aðrir eru
famir að hugsa til kyrrlátra kvöld-
stunda eftirlaunaáranna.
Af tveimur sýningum með rúm-
lega árs millibili er ljóst að Kjartan
Guðjónsson fyllir fyrri flokkinn. Vor-
ið 1995 sýndi hann rúmlega fimmtíu
málverk á stórri sýningu í Hafnar-
borg í Hafnarfirði, og nú er hann
mættur aftur með rúmlega tuttugu
oh'umálverk og nokkurn fjölda teikn-
inga, þannig að hann heldur sig klár-
lega vel að verki.
Kjartan hefur gefið sýningunni
yfirskriftina „Konan og ljóðið“, sem
er í góðu samræmi við þau viðfangs-
efni sem hann er að fást við. I mál-
verkunum er konan í fyrirrúmi, oft-
ast nakin, sterkleg og munúðarfull
í senn, en þó fyrst og fremst sem
formrænn vettvangur átaka lita og
áferðar; sem fyrr notar listamaðurinn
ríkulegt litaspjald og leggur mikla
vinnu í að nýta það sem best í hverju
verki fyrir sig.
Vinnsla litanna minnir um sumt á
ákafa expressjónista fyrr á öldinni,
þar sem staðlitir viku fyrir átaka-
meiri hræringum. Þannig er tæpast
nokkurn tíma hægt að tala um heila
litfleti í þessum málverkum, heldur
dansa litatónarnir fram og aftur inn-
an sama flatarins. Þetta sést t.d. vel
í blússu konunnar í „Má ég ekki
mamma“ (nr. 1), sem og í líkömum
kvennanna í „Ljúfur svefn“ (nr. 4)
og „Á mjúkum beði“ (nr. 7); jafnvel
skuggarnir í „Vökumaður" (nr. 6)
titra af fjölbpeyttum blæbrigðum lit-
anna.
Hér er að finna ýmis atriði mynd-
byggingar sem listamaðurinn hefur
beitt áður, eins og að sýna mynd
inni í mynd og að tvískipta fletinum
milli ólíkra efnisþátta; þetta gengur
yfirleitt vel upp, þó það kunni á
stundum að virka ofgert, t.d. í „Kona
fiskimannsins" (nr. 9).
Líkt og áður ríkir mikil litagleði í
verkunum, sem einnig byggjast á
léttri formskrift módelteikningarinn-
ar. Heildarsvipurinn er nokkru dekkri
en oft áður, og bláir undirtónar eru
ríkjandi í flestum verkanna, eins og
myndefni þeirra eigi ættir að rekja
til draumaheima og skáidskapar
fremur en raunveruleikans. Það er
einmitt eðlilegt að svo sé og þá eink-
um með tilvísun til Ijóðlistarinnar.
Auk málverkanna eru hér fleiri
verk Kjartans; framan við sýningar-
salinn hafa verið settar upp skreyting-
ar hans við ljóð Jóns úr Vör. Þessar
myndir sýna vel sterka og létta teikn-
ingu listamannsins, sem nýtur sín hér
mun betur en í málverkunum þar sem
litauðgin ber hana oft ofurliði. Þessar
teikningar hefur hann unnið á síðustu
þremur áruin, og má þar sjá þá þróun
ímynda og myndbyggingar, sem á sér
stað áður en lokaniðurstaða fæst; til
dæmis um þetta má benda á skreyt-
ingar undir yfirskriftinni „Hríslan“
og „Kistan bíður þín“.
Kjartan, er sem fyrr heill í sinni
list og trúr þeim viðfangsefnum sem
hann er að fást við; á meðan svo er
mun sköþunargleðin halda áfram að
vera leiðarljósið í listinni, og er það
vel:
Eiríkur Þorláksson.
GRÁGLETTNI ræður ríkjum í
óperu Dmitri Shostakovitsj,
„Nefinu“, sem sýnd er í Amster-
dam fram undir mánaðarlok.
Hún segir frá Ploton Kuzmitsj
Kovaljov, sem tekst að týna nef-
inu og var fyrsta óperan sem
Shostakovitsj samdi, aðeins tví-
tugur.
Tónskáldið rússneska hóf
að semja óperuna í kjölfar þess
hversu frábærar viðtökur
1. sinfónía hans hlaut en hana
samdi Shostakovitsj aðeins
nítján ára. Var „Nefið“
frumsýnt í Malíj- leikhúsinu í
Leníngrad árið 1930, þegar
frjálsræði var einna mest á
Sovéttímanum en það gerði
Shostakovitsj kleift að semja
óáreittur mörg af sérkennileg-
ustu og framúrstefnulegustu
verkum sínum. Er „Nefið“, sem
byggt er á sögu Gogols, ágætt
dæmi um þau verk, gróf árás á
skrifræðið í Sovétríkjunum, sem
er m.a. lýst þegar Kovaljov
hyggst lýsa eftir nefi sínu í
dagblaði en fær ekki vegna þess
að svo furðuleg auglýsing muni
ergja lesendurna.
Leikstjóri sýningarinnar í
Amsterdam er David Pountney,
en hún er sett upp í Hollensku
óperunni í Amsterdam Muziek-
theater. í dómi í The Sunday
Times fær uppsetningin blend-
inn dóm, leikdómarinn telur
hana vaxa verkinu að nokkru
leyti yfir höfuð og að ekki tak-
ist fyllilega að koma hinni sér-
kennilegu rússnesku kímnigáfu
til skila. Söngur og tónlistar-
flutningur sé hins vegar allur
til fyrirmyndar og þessi upp-
setning hafi þrátt fyrir allt sann-
fært sig um að verkið standist
fyllilega tímans tönn.
'STÓRKOSTLEGUR SPARNAÐUR
frábæru verði
Notaðir bílaleigubílar
af árgerð 1996 til sölu á
Bílarnir eru allir í fyrsta flokks
ástandi og þeim hefur aðeins
verið ekið u.þ.b. 20.000 km.
Þeir hafa fengið 15.000 km Verð miðað við beina sölu:
þjónustuskoðun hjá b&l og Hyundai Accent U 4 dyra
eiga eftir rúmlega tvö ár í 820^000^lcr.
verksmiðjuábyrgð. Kaupendum Hyundai Accent LSI 5 dyra, vökvastýri
bjóðast lánskjör til allt að 5 880.000 kr.
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT 12, SlMI: 568 1200 beint 581 4060
OKEYPIS VETRARDEKK
K A U P B Æ T I