Morgunblaðið - 31.10.1996, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
MORGUN3LAÐIÐ
FRETTIR
Stafræn mynd frá Kodak.
AÐALSTEINN Jörgensen og Matthías Þorvaldsson spila við Eddy Manoppo
og Henky Lasut í 8-liða úrslitum á Ródos.
íslenska liðið úr leik á ÓL í brids
Liðið áfram talið í
hópi þeirra sterkustu
Leiðari Alþýðublaðsins
Samstarf við Sjálf
stæðisflokk ekki
lengur sjálfsagt
ALÞÝÐUBLAÐIÐ birtir næstum því
heilsíðuritstjórnargrein í gær, undir
fyrirsögninni „Sögulegt tækifæri í
uppsiglingu“.
I forystugrein blaðsins er gerð
grein fyrir helstu utanríkisstefnu-
málum Alþýðuflokksins á undan-
förnum áratugum. Samstarfi Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks á við-
reisnarárunum 1958 til 1971 er lýst
á þann veg að það „skilaði ótrúlegum
áföngum til bættra lífskjara í kjölfar
þess að hvers kyns viðskiptahöft
voru skorin burt.“
Leiðarahöfundur segir að allar
götur frá því að sú ríkisstjórn féll
árið 1971 hafi „Viðreisnardraumur-
inn lifað j btjóstum fijálslyndra
manna úr röðum bæði Alþýðuflokks
og Sjálfstæðisflokks“.
Er í framhaldi þessa lýst ríkis-
stjórnarsamstarfi þessara sömu
flokka frá því vorið 1991 tii vors
1995. „Þegar horft er yfir feril þeirr-
ar ríkisstjórnar blasir við, að draum-
urinn var í rauninni draugur sögunn-
ar,“ segir orðrétt, „Sjálfstæðisflokk-
ur nútíðarinnar reyndist hvorki hafa
leiðtogana, kjarkinn né hugmynda-
þróttinn sem einkenndi Sjálfstæðis-
flokk fyrri áratuga."
Leiðarahöfundur gerir Landsfund
Sjálfstæðisflokksins að umræðuefni
og segir m.a.: „Innan Sjálfstæðis-
flokksins héldu fijálslyndir menn
lengi í vonina um að afstaða foryst-
unnar til ofangreindra mála [GATT
og ESB], auk grundvaliaratriða á
borð við veiðileyfagjald, væri ekki
ásetningur heldur pólitískt umferð-
arslys ..."
TILLAGA til þingsályktunar um
aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni
var tekin fyrir í fyrsta sinn á Al-
þingi á mánudag. Flutningsmaður
tillögunnar er Guðný Guðbjörns-
dóttir, Kvennalista, ásamt sjö öðr-
um þingmönnum stjórnarandstöð-
unnar.
Tillagan gengur út á það, að
ríkisstjórninni verði falið að skipa
nefnd sem hafl það verkefni að
beita sér fyrir að „skipulaga verði
brugðizt við málum er varða kyn-
ferðislega áreitni í opinberum stofn-
unum og á öðrum vinnustöðum" og
að skipuleggja fræðslu um slíka
áreitni. Tryggt verði að starfs-
mannastjórar, trúnaðarmenn, dóm-
BISKUP íslands hefur auglýst
lausa stöðu sóknarprests á Þingvöll-
um í Árnesprófastsdæmi. Séra
Hanna María Pétursdóttir, sóknar-
prestur og þjóðgarðsvörður, hefur
sótt um lausn frá embætti sínu frá
og með 1. nóvember nk.
Lög um veitingu prestembætta
fela kirkjumálaráðherra að veita
lausar sóknarprestsstöður og verð-
ur svo enn, en jafnhliða prestemb-
ættinu er einnig auglýst laus staða
staðarhaldara á Þingvöllum og
verða störfin veitt einum og sama
einstaklingi.
landsfund Sjálfstæðisflokksins geti
enginn velkst í vafa um eðlisbreyt-
ingu flokksins sem formaður þess
hafi staðfest í ræðu á fundinum. Í
meginatriðum væri stefna flokksins
sú að veiðileyfagjald komi ekki til
greina, heldur skulu miðin áfram
þokast í hendur örfámenns hóps,
sem fær ókeypis sérleyíi til að raka
saman auði á kostnað fólksins í
landinu. Aukin tengsl við Evrópu
eru ekki á dagskrá og GATT verður
áfram tragikómedía, þar sem hin
upphaflegu markmið um lækkun á
verðlagi innfluttrar matvöru hafi
snúist upp í ranghverfu sína.
Bent er á að á sama tíma gerist
það að formaður Framsóknarflokks-
ins birtir ný viðhorf til veiðileyfa-
gjalds og skapar snertiflöt milli jafn-
aðarmanna og sjálfs sín. Þessi við-
horf auk ummæla um myntsamstarf
Evrópulanda hafi flutt Framsóknar-
flokkinn til á hinu pólitíska landa-
korti, í gagnstæða átt við Sjálfstæð-
isflokkinn.
Leiðarahöfundur telur einsýnt að
Sjálfstæðisflokkurinn sé „ekki leng-
ur hinn sjálfsagði samstarfsflokkur
jafnaðarmanna". Hann telur að
samvinna Framsóknarflokksins og
jafnaðarmanna sé líklegri til að
geta af sér breytingar í átt til auk-
ins fijálsræðis og heilbrigðrar sam-
keppni.
Hnykkt er á þessu í lok leiðarans.
„Þróun síðustu missera og sú geijun
sem virðist í uppsiglingu kann nú
loks að skapa jarðveg fyrir ríkis-
stjórn, þar sem helsti stjórnarand-
stæðingurinn verður Sjálfstæðis-
flokkur sérhagsmunanna."
arar og lögfræðingar eigi kost á
slíkri fræðslu. Til að svo megi verða
óska tillöguflytjendur eftir því, að
komið verði á fót fræðslukerfi fyrir
starfsmenn ríkisins, þar sem þeir
læri hvernig bregðast skuli við kyn-
ferðislegri áreitni komi hún upp á
vinnustað eða í trúnaðarsambandi
í opinberri stofnun.
Kynferðisleg áreitni var gerð
refsiverð samkvæmt íslenzkum lög-
um árið 1992, en hún getur sam-
kvæmt 198. gr. hegningarlaga
varðað allt að tveggja ára fangelsi.
Nánari skilgreiningu á kynferðis-
legri áreitni er þó ekki að finna í
lögunum. Flutningsmenn tillögunn-
ar vilja að úr þessu verði bætt.
Starf staðarhaldara felst einkum
í umsjón með fræðlustarfi á Þing-
völlum, móttöku hópa og gesta, auk
þess sem staðarhaldari sinnir fræði-
störfum, er tengjast sögu og nátt-
úru Þingvalla.
Umsóknir berist biskupi íslands
fyrir 30. nóvember nk. En nánari
upplýsingar um störf staðarhald-
ara veitir Sigurður Oddsson, fram-
kvæmdastjóri Þingvallanefndar, og
tekur hann einnig á móti umsókn-
um um starf staðarhaldara enda
er ráðið í þá stöðu af Þingvalla-
nefnd.
Það voru vonsviknir
Islendingar sem urðu að
játa sig sigraða í 8 liða
úrslitum Ólympíumóts-
ins í brids á þriðjudag.
Guðmundur Sv.
Hermannsson fylgdist
með viðureigninni við
Indónesíu.
ÞAÐ var greinilegt frá upphafi
leiksins, að nokkuð skorti á venju-
lega baráttugleði íslenska liðsins.
Til þessa geta Iegið ýmsar ástæð-
ur, enda má oft lítið út af bregða
til að menn missi einbeitingu. Og
svo virtist að skellur, sem íslending-
arnir fengu gegn Rússum í næstsíð-
ustu umferð riðlakeppninnar á
mánudag, sæti nokkuð í spilurun-
um, hefði áhrif á sjálfstraustið og
yki á taugaspennuna.
Þetta var að minnsta kosti skoð-
un Kanadamannsins Erics Kokishs,
sem þjálfaði íslenska liðið í sumar
en hann hefur einnig þjálfað það
indónesíska.
„íslendingar voru sterkari á
pappírnum og ég taldi raunar fyrir-
fram að þeir væru líklegir til að
vinna mótið. En þeir virðast ekki
hafa átt góðan leik á meðan Indó-
nesíumenn spiluðu vel. Liðsformið
sveiflast alltaf eitthvað upp og nið-
ur í löngu móti. íslendingar voru
óheppnir að því leyti að niðursveifl-
an virðist hafa byijað síðasta dag
riðlakeppninnar og haldið áfram í
8-liða úrslitunum. Ég bjóst við að
Indónesarnir myndu spila vel úr
spilunum, en íslendingarnir hafa
yfirburði í sögnum. Mér sýndust
hins vegar að nokkrar slemmu-
sveiflur lenda Indónesíu-megin og
því virðast sagnkerfi íslendinganna
ekki hafa nýst þeim sem skyldi,“
sagði Kokish.
Hann sagði að íslenska liðið
þyrfti ekki að leggja árar í bát. „Ég
tel að liðið ætti að halda saman því
efniviðurinn er mjög góður og öll
vinnan hefur stefnt í rétta átt. Lið-
ið er tvímælalaust í hópi þeirra
sterkustu," sagði Kokish.
Tap í fyrstu lotu
Það má segja, að leikurinn við
Indónesíu hafi tapast strax í fyrstu
lotunni af fjórum, þegar Indónes-
arnir náðu 30 stiga forskoti. Það
má segja, að fyrsta spil leiksins
hafi gefið tóninn.
Norður gefur, enginn á hættu
Norður
♦ -
♦ 6432
♦ KG1095
+ G843
Vestur Austur
♦ 973 ♦ ÁKDG104
♦ D5 ♦ G8
♦ D643 ♦ Á72
♦ D952 + 107
Suður
+ 8652
♦ ÁK1097
♦ 8
+ ÁK6
Við annað borðið sátu Guðmund-
ur Páll Arnarson og Þorlákur Jóns-
son AV og Danny Sacul og Franky
Karwur NS:
Vestur Norður Austur Suður
GPA DS ÞJ FK
pass 1 spaði 2 hjörtu
2 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu
pass pass dobl//
Á þennan eða mjög svipaðan
hátt gengu sagnir í öðrum leiknum
í 8-liða úrslitum, bæði í opnum
flokki og kvennaflokki. En allir
sagnhafar fengu a.m.k. 11 slagi í
hjartasamningi með því að svína
tígli og trompa 3 spaða í blindum.
Það gerði Karwur og fékk 650 fyr-
ir. Þetta voru ekki góð úrslit fyrir
ísland en við hitt borðið var upp-
skera Jóns Baldurssonar og Sævars
Þorbjörnssonar einnig rýr. Þeir sátu
NS gegn Henky Lastut og Eddy
Monoppo.
Vestur Norður Austur Suður
EM JB HL SÞ
pass 1 lauf 1 hjarta
dobl 3 hjörtu 3 spaðar//
AÐALFUNDUR Landssambands
íslenzka útvegsmanna verður
haldinn í 57. sinn í dag. Rúmlega
200 fulltrúar, flestir af lands-
byggðinni, sækja fundinn.
Helztu málefni fundarins verða
afkoma og afkomuhorfur sjáv-
arútvegsins, veiðistjórn á úthöf-
unum, menntun og réttindi skip-
stjóra og vélstjóra, „eftirlitsiðnað-
urinn“, sjávarútvegsfyrirtæki á
hlutabréfamarkaði, kvótakerfið
Nú opnaði Lasut á sterku laufi,
þótt hápunktarnir uppfylltu ekki
alveg venjuleg skilyrði. Venjulega
er reynt að trufla sagnir andstæð-
inganna sem mest, eftir að þeir
hafa opnað á kröfusögn, og því gat
Sævar átt mun en hann átti. 3
hjörtu Jóns voru hindrun og Sævar
veðjaði á að þessar sagnir hefðu
sett AV út af laginu og passaði því
3 spaða. Og það gerði Jón einnig,
eftir umhugsun. Lasut fór aðeins 1
niður á 3 spöðum og Indónesía
græddi 12 stig. Lokatölur Ieiksins
voru 180-115, Indónesíu í vil.
Of miklir peningar!
Brids er mjög vinsæl íþrótt í
Indónesíu, og kemur þar næst á
eftir babminton, að sögn Bert Toar
Polii, framkvæmdastjóra indónes-
íska bridssambandsins. Vel er fylgst
með afrekum indónesísku spilar-
anna í þarlendum fjölmiðlum og 5
blaðamenn fylgdu liðinu til Ródos.
Samt eru ekki nema um 5.000
skráðir keppnisspilarar í landinu,
eða álíka margir og á íslandi, og
um 50 þeirra þykja nægilega sterk-
ir til að koma til greina í landsliðið.
Polii sagði að núverandi forseti
bridssambandsins hefði gerbreytt
aðstöðu spilara á síðustu tveimur
árum, með því að afla fjárstuðnings
frá fyrirtækjum. „Við höfum raunar
of marga kostunaraðila þessa
stundina," sagði Polii og brosti.
Vegna þess hefur indónesíska
bridssambandið getað tekið lands-
liðsspilara á launaskrá, og liðs-
mennirnir á Ródos hafa því stundað
brids allt þetta ár á fullum launum,
ferðast um heiminn og tekið þátt í
mótum.
í liðinu á Ródos eru þrír gamal-
reyndir spilarar, sem hafa verið
fastamenn í indónesískum landslið-
um í 25 ár, en hinir þrír eru korn-
ungir.
og auðlindaskattur.
Þá flytja Þorsteinn Pálsson sjáy-
arútvegsráðherra og Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra ávörp
á fundinum. Fundurinn er haldinn
á Hótel Sögu og hefst hann klukk-
an 14 í dag, fimmtudag. Fundað
verður til kvölds og hafizt handa
á ný að morgni föstudags. Fundin-
um lýkur þá síðdegis með stjórnar-
kjöri.
Leiðarahöfundur áiyktar að eftir
Aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni
Ríkisstarfsmenn
sæki námskeið
Þingvallaprestakall
laust til umsóknar
Aðalfundur LÍÚ í dag