Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 15 LANDIÐ Atvinnumál í brennidepli á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum Miðstöð allra flugsamgangna verði byggð á Keflavíkurflugvelli SKORAÐ var á samgönguráð- herra á 19. aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS), sem haldinn var í Sand- gerðisbæ um helgina, að beita sér fyrir stofnun starfshóps til að móta tillögur um framtíðarstefnu- mótun í flugsamgöngum á íslandi. í ályktun aðalfundarins sagði að eðlilegra væri að styrkja fram- tíðarhlutverk Keflavíkurflugvallar en að kosta til dýrum endurbótum á Reykjavíkurflugvelli. Atvinnu- mál voru í brennidepli á aðalfund- inum en einnig voru samþykktar ályktanir um vegamál, fíkniefna- vandann og niðurfellingu gjalda á slökkvi- og björgunarbúnaði. A seinni degi fundarins voru flutt fjölmörg erindi undir yfir- skriftinni Atvinnumál á Suðurnesj- um - horft til framtíðar. Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSS, segir að umræður hafi verið þróttmiklar, raktir hafi verið möguleikar í atvinnuuppbyggingu á svæðinu og samkeppnisstaða Suðurnesja metin. „Mönnum finnst vera viss þáttaskil í atvinnu- málum um þessar mundir og telja heldur bjartari tíma vera framund- an. Þannig eru vonir bundnar við að við séum að komast upp úr dal atvinnuleysis sem við höfum vissu- lega verið í,“ sagði Guðjón. Sem dæmi um möguleika í at- vinnumálum nefnir Guðjón hugsanlega byggingu magnesíum- verksmiðju en búist sé við frum- niðurstöðum um hana í byijun næsta árs. Þá væri unnið að at- hyglisverðri nýsköpun i Vogum þár sem verið væri að gera tilraun- ir með sæsniglaræktun. Þar væri stefnt að því að framleiða útflutn- ingsvöru til útflutnings á markaði í austur-Asíu. Tvöföldun Reykjanes- brautar efst á blaði Samþykkt var ályktun um for- gangsröðun verkefna í vegamálum á Suðumesjum til næstu ára. Efst á blaði er tvöföldun Reykjanesbraut- ar. í öðru lagi er lagt til að lokið verði lýsingu við Reykjanesbraut að Flugstöð, afleggjara að Vogum, Reykjanesveg að Sorpeyðingarstöð og Garðveg. Einnig er lagt til að nýir yegir verði lagðir annars vegar frá Ósabotnum að Stafnesi og hins vegar frá Bláa lóninu til Grindavík- ur. í þriðja lagi er lagt til að hafist verði handa við lagningu Suður- strandarvegar frá Reykjanesi um Grindavík til Þorlákshafnar. Loks er óskað eftir því að tveir vegir, Grindavíkurvegur og Sandgerðis- vegur, verði lýstir upp. Aðalfundurinn skoraði á stjórn- völd í annarri ályktun að koma til móts við sveitarfélög sem end- urnýja þurfi slökkvi- og björgunar- búnað, með þvi að endurgreiða virðisaukaskatt og fella niður önn- ur opinber gjöld. í greinargerð með ályktuninni segir að frá því að lög um virðisaukaskatt hafi tekið gildi árið 1988 hafi aðflutn- ingsgjöld af slíkum búnaði ekki fengist felld niður. Aðalfundurinn telur í hæsta máta óeðlilegt að ríkið skattleggi öryggisþjónustu sveitarfélaga með þessum hætti. Mývatnssveit Útför Jónasar á Helluvaði Mývatnssveit. Morgunblaðið. Útför Jónasar Sigurgeirssonar á Helluvaði var gerð frá Skútu- staðakirkju laugardaginn 26. október að viðstöddu miklu fjöl- menni. Sóknarpresturinn séra Öm Friðriksson flutti minningarræðu og jarðsöng. Kór kirkjunnar söng og organisti var Sólveig Anna Jónsdóttir. Baldvin Kr. Baldvins- son söng einsöng. Samleik á org- el og fiðlu léku Herdís Jónsóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir. Jónas á Helluvaði fæddist 4. desember 1901. Hann lést á Húsavík 18. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurgeir Jónsson og Sólveig Sigurðardótt- ir. Eiginkona Jónasar var Hólm- fríður ísfeldsdóttir, hún lést 22. ágúst síðastliðinn. Þau eignuðust fímm börn sem öll eru á lífi. Fjölmenni kynnti sér Veljum íslenskt á Selfossi Morgunblaðið/Sig. FRÁ framleiðslusýningunni á Selfossi um helgina. Jóns. Ný íslensk rúta vakti mesta athygli Selfossi - Sýning á framleiðsluvör- um nokkurra fyrirtækja á Selfossi var haldin um síðustu helgi í tilefni átaksins „Veljum íslenskt", sem fyr- irtæki á Suðurlandi tengdu eigin átaki undir heitinu „Veljum sunn- lenskt". Á sýningunni var kynnt fram- leiðsla þriggja kjötvinnslustöðva, tveggja pizzustaða, Guðnabakarí kynnti brauðmeti, Set hf. sýndi röraframleiðslu, Plastiðjan fram- leiðslu á gosdryklgaflöskum, Fönd- urskúrinn steyptar keramikstyttur, Lyngholt kynnti Okkar krydd, MBF mjólkurvörur, Trésmiðja KÁ kynnti skrifstofuhúsgögn og fjölmiðlafyr- irtæki og auglýsingastofur kynntu starfsemi sína. Sýningin var fjölsótt og sér- staka athygli vakti ný hópferða- bifreið frá Guðmundi Tyrfings- syni hf. sem smíðuð var á Sel- fossi. Bifreiðin tekur 30 farþega, er búin salerni og þess gætt að vel fari um farþegana. Góð afkoma bæjarsjóðs Akraness Tekjur hafa aukist um 10% Akranesi - Allt bendir til að fjár- hagsafkoma Akraneskaupstaðar verði mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir á þessu ári og ljóst er að þessi bati hjálpar til að skuldir bæjarsjóðs verða greiddar hraðar niður en gert var ráð fyrir. Þá má einnig búast við að meiru fjár- magni verði veitt til framkvæmda á næsta ári. Átta mánaða uppgjör bæjar- sjóðs sem kynnt var fyrir skömmu gefur til kynna að afkoman verði mun betri en gert var ráð fyrir. Tekjur á árinu hafa aukist um 10%, sem lætur nærri að vera um 50 milljónir króna og á móti kem- ur að gjöld hafa einungis aukist um 2% eða um 10 milljónir króna. Að sögn Gísla Gíslasonar bæjar- stjóra er þessi bati einkum til kom- inn vegna góðs atvinnuástands í kaupstaðnum sem vonir standa til að verði viðvarandi. Gísli segir að ljóst sé að hægt verði að greiða eitthvað hraðar niður skuldir og miðað við þriggja ára fjártiagsáætl- unina líti þetta mjög vel út. „Við reiknum einnig með því að geta eitthvað aukið framkvæmdir á næsta ári og þá verður mjög líklega fyrst hugað að sorpmálum bæj- arbúa, sem hafa verið í nokkrum ólestri í kaupstaðnum,“ sagði Gísli. Haukur rakari fluttur Borgarnesi - Rakarastofa Hauks rakara Gíslasonar er flutt af „Rakarahorninu“ á neðstu hæð verslunarhúss Kaupfélags Borgfirðinga við Egilsgötu. Nýlega flutti Haukur rakari Gíslason starfsemi sína úr hús- inu á mótum Egilsgötu, Brákar- brautar og Borgarbrautar, yfir á jarðhæð verslunarhúss Kaupfélagsins við Egilsgötu. Kvaðst Haukur vera ánægður með breytinguna og taldi hana hafa góð áhrif á viðskiptin. Fólk sem ætti erindi í kaupfé- lagið rækist inn, fólk sem ann- ars hefði ekki komið til hans á gamla staðnum. Svo skemmtilega vildi til að Einar málari Ingimundarson var fyrsti viðskiptavinur Hauks á nýju stofunni en hann var það einnig þegar Haukur opnaði á „Rakarahorninu“ fyrir 35 árum. Mikilvægt að efla félagsstarf unglinga Hvolsvelli - Skólaskrifstofa Suð- urlands hefur undanfarið gengist fyrir fræðslufundum fyrir foreldra og skólafólk á Suðurlandi. Þórólf- ur Þórlindsson og Finnur Gunnars- son fjölluðu um gengi sunnlenskra nemenda á samræmdum prófum, vímuefnaneyslu, forvarnastarf og fleira á fundi sem haldinn var í Félagsheimilinu Hvoli í síðustu viku. Kom fram í máli þeirra að eitt það mikilvægasta til að halda unglingum frá vímuefnum væri að efla félags- og tómstundastarf. Samvinna foreldra og vitneskja um að þeir hafi áhrif með því að skipta sér af hlutunurn. Þá taldi Þórólfur að fijálslyndi íslendinga gagnvart áfengi og tóbaki væri allt of mikið því neysla allra ungl- inga hæfist á þessum efnum og því ættum við ekki að líta á það sem sjálfsagðan hlut að krakkar byijuðu að neyta þeirra. I könnun sem gerð hefur verið á áfengisneyslu unglinga kemur fram að sunnlenskir unglingar neyta að meðaltali ekki meira áfengi en aðrir unglingar, hins vegar kemur í ljós að þeir sem það gera neyta áfengis oftar en aðrir. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir FRÁ fræðslufundi Skólaskrifstofu Suðurlands á Hvolsvelli. Einnig kom fram í máli þeirra að stórefla þurfi verkmenntun á Islandi og einnig að mjög minnk- andi aðsókn í raungreinar í Há- skólanum sé áhyggjuefni. Er jafn- vel talið að samræmdu prófin eigi stóran þátt í þessu og kom fram á fundinum bæði meðal fundar- gesta og fyrirlesara að það form sem nú sé á samræmdu prófum þarfnist endurskoðunar og sé í raún ekkert sem réttlæti það að aðeins sé prófað í þeim greinum sem nú er gert. Það mætti bæði fjölga þeim eða fækka því vægi þessara greina sé orðið of mikið á kostnað annarra námsgreina. Kemur það meðal annars fram í því að framhaldsskólarnir taki minna tillit til skólaeinkunna í öðrum fögum þegar þeir velji nemendur inn í skólana. Morgunblaðið/Theodór HAUKUR rakari Gíslason snyrtir hár og skegg Einars málara Ingimundarsonar, fyrsta viðskiptavinarins á nýrri rakarastofu Hauks í kaupfélaginu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.