Morgunblaðið - 31.10.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 23
LISTIR
Sódómska og
samkynhneigð
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
JÖKLAKORINN minnist tíu ára afmælis og heldur um þessar
mundir tónleika á Snæfellsnesi. Myndin er tekin á tónleikum
kórsins i Stykkishólmskirkju sl. sunnudag.
Jöklakórinn heldur
afmælistónleika
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
Fagnaðar
tónleikar í
Kópavogi
ÞRENNIR tónleikar verða
haldnir í Listasafni Kópavogs
- Gerðarsafni í tilefni þess,
að bæjaryfirvöld hyggjast
reisa hús yfir tónlistina í
Kópavogi. Tónleikarnir verða
á sunnudag, mánudag og
þriðjudag og er aðgangur
ókeypis.
Fjöldi listamanna kemur fram
á tónleikunum og verða atrið-
in 37 talsins. Þar verður
sungið og spilað, allt frá ein-
Ieik upp í hljósmsveitir og
kóra.
Teikningar og líkön af hús-
inu verða til sýnis á tón-
leikunum.
70. sýningá
Þrek og tár
SJÖTUGASTA sýning á verki
Ólafs Hauks Símonarsonar í
Þjóðleikhúsinu er í kvöld
fimmtudagskvöld.
Þrek og tár var frumsýnt
í september í fyrra og gekk
fyrir fullu húsi allt síðasta
leikár og hefur notið sömu
vinsælda nú í haust, en sýn-
ingum fer fækkandi.
„Þrek og tár er Reykjavík-
ursaga frá sjöunda áratugn-
um, ljúfsár en iðandi af lífs-
gleði, ferðalag um land minn-
inganna, skreytt tónlistar-
perlum þessa tíma,“ segir í
kynningu.
Djöflaeyjan
keppir um
óskarinn
ÍSLENSKIR kvikmynda-
gerðarmenn tilnefndu á
þriðjudagskvöld kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Djöflaeyjuna, sem framlag
íslands til keppni um Óskars-
verðlaun, sem afhent verða
í apríl á næsta ári.
Atkvæði greiddi 91 og
segir Karl Pétur Jónsson,
kynningarfulltrúi íslensku
kvikmyndasamsteypunnar,
að Djöflaeyjan hafi fengið
51 tilnefningu, Benjamín
dúfa 22 og Agnes 18 at-
kvæði.
LEIKLIST
Thc Dublincr
THEIMPORTANCEOF
BEING OSCAR
Höfundur: Micheál MacLíammóir
sem vann sýningarhandrit upp úr
verkum Oscars Wildes. Leikari:
Martin Tighe. Aðstoðarmaður:
Manju Nair. Kynning: Gary Gunning.
Þriðjudagur 29. október.
OSCAR Wilde var íri sem yfirgaf
Dublin til að setjast að í London.
Micheál MacLíammóir var Englend-
ingur, Alfred Will-
more að nafni, sem
yfirgaf London til að
setjast að í Dublin
og gerast íri. Wilde
var hampað af ensk-
um broddborgurum
um árabil en fall
hans varð mikið.
Hann var dæmdur í
fangelsi fyrir sód-
ómsku og dó bitur
og snauður í París.
MacLíammóir yfir-
gaf England vegna
þess þrönga stakks
sem samfélag þeirra
tíma sneið honum og
sambýlismanni
hans, Hilton Ed-
wards, og í Irlandi
fann hann griðastað.
Kona ein í höfuðstað
þvísa lands sagðist
aldrei hafa séð neitt misjafnt til
þeirra; ekki einn einasti kvenmaður
hafi heimsótt þá árin sem þeir
leigðu hjá henni.
Þeir félagar stóðu fyrir frægu
leikfélagi, „The Gate“, þar sem
Edwards setti verkin á svið en
MacLíammóir var í stjörnuhlutverk-
inu. Þeir komu James Mason og
Orson Welles áleiðis í leiklistinni
auk þess sem MacLíammóir samdi
og ferðaðist um með einleik um
Oscar Wilde, verk hans og örlög.
Þessi einleikur, sem hefur verið leik-
inn áfram eftir lát MacLíammóirs,
m.a. nýlega í London, var á sínum
tíma þarft inniegg í þá tíma sem
vildu þegja örlög Wildes og hans
nóta í hel. Breski höfundurinn Neil
Bartlett sótti á sömu mið í nýlegri
sýningu sinni, „The Picture of Dor-
ian Gray“, þ.e. að blanda saman
lífi Wildes og vérkum, en gerði ekki
betur en MacLíammóir í einleik
þessum.
Verkið er mjög haganlega samið
og ber af öðrum svipuðum verkum
um Gertrude Stein og Karen Blixen
sem hafa verið leikin hér á undan-
förnum árum. Hér er leikarinn
ekki í h'ki Oscars Wildes allan tím-
ann heldur les upp ljóð og úr bréf-
um og leikur persónur úr þekkt-
ustu verkum hans eins og „The
Picture of Dorian Gray“, „An Ideal
Husband" og auðvitað „The Imp-
ortance of Being Earnest“, sem
titill verksins vísar í. Texti Wildes
fær því að njóta sín óbrenglaður,
þó í stuttum þáttum sé, en ekki
eins og í áðurtöldum einleikjum þar
sem öllu ægir saman og „höfundur-
inn“ er látinn mæla allt af munni
fram í eigin per-
sónu.
Það er vel til
fundið að setja
þennan einleik upp
í húsnæði írsku
kráarinnar „The
Dubliner". And-
rúmsloftið nær því
að vera nokkuð
írskt: Guinness-
bjór á borðum,
leiksýningin byij-
aði ekki fyrr en
hálftíma of seint
og undirritaður var
snuðaður um af-
ganginn er miðar
voru greidair. Uppi
á lofti er bekkjum
raðað fyrir framan
grænmálaðan
vegg, stólum og
borði komið fyrir
auk nauðsynlegustu leikmuna og
þar leikið.
Gary Gunning kynnti Oscar
Wilde snarplega fyrir áhorfendum,
að vísu ekki fyrr en í lok hlés.
Martin Tighe fór með textann, en
naut auk þess dyggrar aðstoðar
Manju Nair með Ijós og leikmuni.
Martin hefur til að bera hljóm-
mikla rödd og góða framsögn og
þónokkra útgeislun á sviði. Hann
fer vel með textann þrátt fyrir tölu-
verð mismæli en hann er óþarflega
stífur á sviðinu. Þegar hann sagði
frá eða las upp færði hann sig úr
einni stellingunni í aðra, af stólnum
yfir á bekkinn og til baka. Þarna
hefði örlítil leikstjórn annars aðila
komið sér vel til að láta þáttinn
renna betur og sníða af leiknum
helstu agnúana. En textinn stend-
ur alltaf fyrir sínu og Tighe náði
að koma honum skammlaust frá
sér í öllum hans krúsindúllum og
margbreytileika. Fyrir þetta ber að
þakka.
Sveinn Haraldsson
FYRIR tíu árum var stofnaður
kór sem hlaut nafnið Jöklakór-
inn. Hann samanstendur af fé-
lögum úr 4 kirkjukórum á
norðanverðu Snæfellsnesi. Upp-
hafið var það að kirkjukór
Stykkishólmskirkju fékk boð um
að taka þátt í ferð til ísraels til
að syngja við jólamessu í Betle-
hem. Kórinn bauð öðrum kirkju-
kórum á norðanverðu Snæfells-
nesi að taka þátt í ferðinni og
mynda einn kór. Jöklakórinn
söng síðan í Betlehem á jólum
árið 1986. Góð tengsl sköpuðust
við undirbúning ferðarinnar og
í ferðinni sjálfri og þau hafa
haldist síðan. Jöklakórinn hefur
starfað flest árin síðan, komið
saman, æft og haldið tónleika.
Þetta er gott dæmi um samstarf
á milli nálægðra byggðarlaga
sem færir íbúa nær hvor öðrum
Ljóðakvöld
á Súfist-
anum
í KVÖLD, fimmtudag 31.
október, verður efnt til ljóða-
kvölds í Súfistanum, bóka-
kaffinnu í Bókabúð Máls og
menningar að Laugavegi_ 18.
Þar lesa þau Óskar Árni Ósk-
arsspn, Linda Vilhjálmsdótt-
ir, Árni Ibsen, Jónas Þor-
bjarnarson og Gylfi Gröndal
úr nýjum ljóðabókum.
Upplestrarkvöldið hefst kl.
20.30 og stendur til 22. Að-
gangur er ókeypis og öllum
heimill.
og leiðir af sér önnur sambönd.
Til að minnast 10 ára afmælis-
ins hefur kórinn æft í haust ný
og gömul verkefni og efnir nú
til fernra tónleika á Snæfells-
nesi. Fyrstu tónleikar kórsins
voru í Stykkishólmskirkju sunnu-
daginn 27. október. Efnisskráin
var fjölbreytt, bæði kirkjuleg
verk og léttari sönglög. Kórinn
var skipaður um 100 söngmönn-
um og skilaði vel söng sínum.
Stjórnendur kórsins eru söng-
stjórar krikjukóranna, Friðrik
V. Stefánsson, Grundarfirði, Kay
W. Lúðvíksson, Hellissandi,
Kjartan Eggertsson, Ólafsvík og
Sigrún Jónsdóttir, Stykkishólmi.
Næstu tónleikar verða í
Grundarfjarðarkirkju 1. nóv. kl.
21, Röst á Hellissandi laugardag-
inn 2. nóv. kl. 16 og í Ólafsvíkur-
kirkju þá um kvöldið kl. 20.
Ljóðakvöld
á Kaffi
Puccini
KAFFI Puccini á Vitastíg lOa held-
ur ljóðakvöld í kvöld, fimmtudag
31. október. Ljóðskáld dagsins er
borgarskáldið Tómas Guðmunds-
son.
Jón Júlíusson leikari les úr verk-
um Tómasar og tónlist við ljóð
hans mun hljóma í húsakynnum
staðarins frá kl. 20.
Dagskráin hefst kl. 22 en staður-
inn er opinn virka daga til kl. 23.30
og til kl. 1 um helgar. Allir eru
velkomnir og aðgangur er ókeypis.
„Stefnt er að því að hafa dag-
skrár af menningarlegum toga á
staðnum með reglulegu millibili,“
segir í kynningu.
MARTIN Tighe í hlut-
verki sínu í einleik Mic-
heáls MacLíammóirs um
Oscar Wilde.
Nýir verðbréfasjóðir Kaupþings í Lúxemborg hafa fengiö frábærar
undirtektir. Vegna mikiltar eftirspurnar verðum við í símafæri ti
klukkan tíu og veitum íslenskum sparifjáreígendum allar nánari
upplýsingar um nýjar og spennandi leiðir til öruggrar ávöxtunar.
Njóttu islenskrar leiðsagnar um aiþjöðlegan fjármálaheim