Morgunblaðið - 31.10.1996, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Forsenda þess að búa
til góða kvikmynd er
að vera sannur
Bandaríski leikarinn
Seymour Cassel kom
hingað til lands sem
gestur Kvikmynda-
hátíðar Reykjavíkur en
hann hefur leikið í um
það bil 70 kvikmyndum.
Einar Örn Gunnars-
son hitti hann að máli
og forvitnaðist um líf
hans og leikferil.
HVERNIG kynntist þú John
Cassavetes og hvemig
hófst samstarf ykkar?
„Móðir mín var í skemmtana-
bransanum þannig að ég held að
þetta hafi verið í_ blóðinu," segir
Seymour Cassel. „Á seinni mennta-
skólaárum tók ég þátt í leiklist. Það
hvarflaði þó ekki að mér að starfa
í leikhúsi fyrr en síðar. Ég hafði
verið í hemum, ætlaði ekki i' skóla
og leitaði mér því að vinnu. Eg kíkti
í blöðin og sá auglýsingu frá leik-
húsi í Bloomfieldshills Michigan þar
boðnir voru leiklistartímar í skiptum-
fyrir iærlingsvinnu.- Þar fékk ég
vinnu við að byggja leikmyndir, fór
á sviðið og komst að því undireins
að þetta var það sem ég vildi gera
í lífinu. Síðar dreif ég mig til New
York og sá þar auglýsingu í fag-
blaði sem hét Show Business en þar
auglýsti Verkstæði John Cassavetes
þrjá námsstyrki. Ég mætti til við-
tals hjá honum og sagði hann mér
að Burt Lane sæi um alla kennslu
því sjálfur væri hann önnum kafínn
við að framleiða mynd. Cassavetes
var að flýta sér í upptöku og þá
spurði ég hvort ég mætti horfa á
og hann svaraði því játandi.
Eftir einn til tvo tíma sá ég að
það var ekki nóg starfsiið til þess
að framkvæma hlutina eins hratt
og stjómendumir vildu. Ég fór að
hjálpa þeim og gerði það það sem
eftir lifði nætur.
Um morguninn spurði John
Cassavetes mig hvað mér fyndist
og ég sagði að mér þætti þetta
skemmtilegt og spennandi.
Ég spurði hann hvenær næsta
taka yrði og þá svaraði hann: „í
kvöld.“ Þá spurði ég hvort ég
mætti koma aftur og tók hann
því vel. Upp frá því mætti ég
hvað eftir annað. Fyrir mig var
þetta tækifæri til að vinna með
fólki sem ég kunni vel við. Við
John urðum bestu vinir og fyr-
ir mér var hann eins og eldri
bróðir. Við vorum báðir svolítið
geggjaðir með sama skopskyn
og sömu sýn á lífið og mann-
eskjur. Mig langaði til að vinna
með honum við hvað sem var.
Cassavetes hefur haft mest
áhrif á líf mitt, sérstaklega í
þessu fagi, og það var hann sem
opriaði augu mín fyrir erlendri kvik-
myndagerð.
Þegar hann var að taka einhver
atriði, vildi hann gjarnan heyra hvað
okkur samstarfsmönnum fannst um
viðkomandi töku. Hann spurði sí-
fellt, ekki vegna þess að hann væri
ekki viss um hvað hann væri að
gera heldur vegna þess að hann
vildi að við værum þátttakendur.
Cassavetes bjó aldrei til kvik-
myndir í þeim tilgangi að ná að
stjórna gerðum fólks heldur til að
opinbera fóik hvert fyrir öðru og
sýna því að við erum öll eins, þrátt
fyrir ólíkan litarhátt og ólíka tungu.
Við glímum öll við sömu vandamál-
in, sérstaklega hvert gagnvart öðru.
Kvikmyndir hans eru alltaf um hin-
ar mannlegu hliðar og um hvað fólk
er vanhæft til að eiga samskipti á
heiðarlegan hátt. Við erum svo vör
um okkur og hann kom alltaf að
hinni brothættu eða viðkvæmu hlið
persónanna.
Það sem mér þykir hvað best við
myndir Cassavetes er að fæstar
þeirra hafa endi en það er einmitt
í góðu samræmi við lífið því að það
kemur alltaf annar dagur. Þó maður
fái ekki einhverja lokaniðurstöðu þá
er maður reynslunni ríkari."
- Hvernig var Cassavetes sem
leikstjóri?
„Hann leitaði sannleikans í því
sem hann var að gera. Kvikmynda-
handrit sín skrifaði hann eins og
leikrit. Hann gerði sér grein fyrir
því að mikilvægt er að taka verk
upp í þeirri tímaröð sem það gerist
í þvi þannig geta leikararnir fyigt
persónunum eftir og þróast með
þeim.
Cassavetes lagði mikla áherslu á
að leikararnir skemmtu sér og nytu
þess sem þeir voru að gera. Hvers
vegna á maður ekki að njóta þess
að gera hluti í leiknum sem maður
gæti aldrei komist upp með í eigin
lífi? Góður leikari setur tilfínningar
sínar í leikinn og því leiðist mér
þegar ég sé fólk reyna að leika
tilfinningar. Slíkt fólk getur al-
veg eins leikið fyrir framan
spegil því þar fínnur það þann
eina sem nýtur leiksins."
- Þú hefur starfað að gerð
margvíslegra mynda með óháð-
um kvikmyndagerðarmönnum
en jafnframt leikið í stórmynd-
um á borð við Dick Tracy. Hver
er munurinn á að leika í stór-
mynd eða mynd gerðri af „óháð-
um aðilum"?
„Jú ég hef til að mynda leik-
ið í Dick Tracy og Ósiðlegu til-
boði (Indecent Proposal). Það var
gaman að leika í Dick Tracy því það
var margvíslega samsettur hópur
sem vann að henni. Sérstaklega
fannst mér gaman að útliti myndar-
innar, búningum, lýsingu ogtímabil-
inu sem sagan á að gerast á. Þetta
voru langar tökur. Warren Beatty
tekur starf sitt alvarlega og er mik-
ill nákvæmnismaður. Ég tók ekki
þátt í gerð Dick Tracy peningana
vegna.
Eg kann vel við Robert Redford ,
og hann bað mig að taka að mér
hlutverk í Ósiðlegu tilboði, eftir að
hann hafði séð mig í Kaldri hunda-
súpu (Cold Dog Soup). Það sem
skemmtilegast var að takast á við í
Ósiðlegu tilboði var að ég þurfti ekki
að segja mikið heldur tjá mig með
látbragði.
Menn leika í Hollywoodmyndum
peninganna vegna en í hinum ánægj-
unnar vegna. Ég reyni samt að gera
það sem mig langar til þegar ég leik
í svona myndum. Það er ekki erfítt
að vinna með mér en heldur ekki
auðvelt, því ég er ekki tilbúinn að
gera hvað sem er. Ég reyni alltaf
mitt ýtrasta.
Ég skammast mín ekki fyrir að
gera hlutina peninganna vegna en i
ég geri samt ekki mikið að því. Ég
leik í stuttmyndum fyrir útskriftar-
nema í USC án þess að taka nokkuð
fyrir. Þegar ég leik í slíkum myndum
þá fer ég fram á ákveðið frelsi sem
leikari og geri það ánægjunnar vegna.
Maður verður að miðla af því sem
maður hefur lært í þessum bransa.
Ég hef komist að þeini niðurstöðu .
að forsenda þess að búa til góða kvik-
mynd er að vera sannur. Sem áhorf- ‘
andi geri ég miklar kröfur þó ég )
geti sætt mig við að menn geri mis-
tök. Ég legg litla áherslu á tæknileg-
ar brellur eða einhveija tilbúna feg-
urð. Ég þarf ekki að sjá hvað kvik-
myndavélin getur gert og hvort mynd
er fílmuð í einni lotu og þar með
orðin tæknilegt afrek. Þegar ég fer
í bíó vil ég að sagan tali til mín,
manneskjumar höfði til mín og ég i
geti samsamað mig persónunum. Ég
segi við unga kvikmyndagerðarmenn: f
„Safnið í kringum ykkur hópi manna )
sem þið hafíð trú á og hefur trú á
ykkur - fólki sem hefur hugmyndir
- og hjálpist að við að búa til mynd.““
I - Vissirðu eitthvað um íslenska
kvikmyndagerð áður en þú komst
hingað?
„Já, ég er í nefnd sem íjallar um
tilnefningar erlendra kvikmynda til
Óskarsverðlauna og_ hafði því séð i
Börn náttúrunnar. Ég hitti Friðrik f
Þór Friðriksson í Los Angales en *
mynd hans hafði þá verið tilnefnd. )
Mér þykir vænt um að vera í þess-
ari Óskarsverðlaunanefnd því þannig
gefst mér tækifæri til að sjá myndir
sem ég annars myndi ekki sjá og fæ
jafnframt tækifæri til að fara á kvik-
myndahátíðir."
KVIKMYNPIR
Rcgnboginn
EINSTIRNI ★ ★ ★ V2
SÖGUMAÐURINN flinki, John Sayles, fer
á kostum í myndinni Einstirni (Lone Star),
sem hefur alla burði til þess að ganga ekki
síður vel á almennum sýningum en á hátið-
um. Efnið er beinskeytt morðrannsókn en
Sayles kryddar hana með fjölda litrikra per-
sóna sem allar hafa sína sögu að segja og
tengjast málinu á einn eða annan hátt - og
allar leiknar af sterkum skapgerðarleikurum.
Tvær kynslóðir Bandaríkjamanna og mexíkó-
skra innflytjenda í Frontera, bæ á mörkum
Texas og Mexíkó, koma við sögu.
Einstirni hefst á beinafundi og ryðbrunn-
inni fógetastjörnu. Sam Deeds (Chris Coo-
per) lögreglustjóri telur að hér séu fundnar
líkamsleifar Charlie Wade (Kris Kristoffer-
son), óvinsæls lögreglustjóra sem hvarf á
sjötta áratugnum, en getgátur hafa jafnan
verið uppi um afdrif hans og er nafn lögreglu-
Syndir feðranna
mannsins, föður Deeds, gjaman nefnt í því
sambandi. Deeds leitar sannleikans og finnur
hann að lokum.
Sayles tengir saman persónurnar og tíma-
skeiðin á þann hátt að
hvergi sést nálarfar á frá-
sögninni, þetta verður ekki
betur gert. Myndin er einnig
sögustund í sambúð ólíkra
kynþátta við landamæri sem
aðskilja ríka og snauða, og
hvernig fortíðin getur sett
mark sitt á samtímann ef hróflað er við henni.
Sayles er hér með sína langbestu mynd og
aðgengilegustu, sem á örugglega eftir að
auka mikið við aðdáendahóp þessa snjalla
kvikmyndagerðarmanns sem er lítt með hug-
ann við miðasöluna. Allir leikararnir standa
sig frábærlega, Kristofferson er skemmtilega
illkvittinn skratti, Elizabeth Pena, Cooper,
Frances McDormand og Joe Morton, öll setja
þau svip sinn á þessa einföldu en þó margsl-
ungnu söguskoðun.
-r/ / / Rcgnboginn
miwmwwip
\íT
*p.
ASTIN ER KALDARI
EN DAUÐINN ★ ★ 'h
24.oktdber - 3-nóvember 1996.
TYRKLAND er Ianda-
mæraríki í fleiri en einum
skilningi, liggur á mörkum Asíu og Evrópu
og heims múslima og kristinna manna. I aug-
um fjölda Evrópumanna nær Tyrkland ekki
prófí sem siðmenntað ríki, einkum vegna aft-
urhaldssamra trúmála sem varpa skugga á
ímynd landsins. Astin er kaldari en syndin
bætir hana ekki, þetta er mynd byggð á sönn-
um atburðum sem gerðust fyrir skömmu.
Aðalpersónan, söngkonan Belgin (Bennu Ge-
red), naut mikilla vinsælda, en afbrýðisamur
og mislukkaður fyrrum eiginmaður hennar
myrti hana með köldu blóði - og hlaut fyrir
þriggja mánaða dóm.
Miðaldamyrkrið sem virðist ráða í tyrk-
nesku þjóðlífí og réttarfari skapar hyldýpi sem
erfítt er að brúa. Hún hlýtur að vera stremb-
in og illa þokkuð vinnan brúarsmiðanna -
Canan Gerede leikstjóra myndarinnar og ann-
ars, hugrakks fólks sem vill sjá mennskar
aðstæður í þessu ríki karlrembunnar en rekur
sig einkum á vegg trúarofstækis. Ástin... lýs-
ir ástandinu að mörgu leyti vel, að lokinni
sýningu hefur áhorfandinn fengið innsýn í
framandi þjóðfélag þar sem konan er einskis
metin, barátta hennar fyrir jafnrétti lífshættu-
leg. Tyrkland gæti verið á annarri plánetu.
Fjarlægur hugsunarháttur og stirður leikur
deyfir að vísu áhrifin, þau eru næg samt.
Gerede er með í bígerð mynd um hið hörmu-
lega mál Sophiu Hansen.
Sæbjörn Valdimarsson
Skoplegar
þversagnir
KVIKMYNPIR
Rcgnboginn
ÁHUGAMAÐURINN ★ ★ ★
ÁHUGAMAÐUR er betri myndin
af tveimur sem gestur Kvik-
myndahátíðar Reykjavíkur, óháði
bandaríski leikstjórinn Hal Hartley,
hafði með sér í farteskinu. I henni
koma fram bestu höfundareinkenni
þessa lúmska húmorista. Myndin er
kómedía þversagna og persónur
hennar hafa einhvern veginn misst
tökin á tilverunni. Áhugamaður er
fyndin og skemmtileg mynd með
dularfuliu spennuplotti, sem minnir
á Hitehcock, en hefur svipaðan hú-
mor gagnvart dauðanum og finnst
í myndum Coen-bræðra (Fargó).
Eins og í bestu myndum Hartleys
er þessi ekki síst fyndin vegna þess
hve leikstjórnin er hófstillt og leik-
stíllinn lágstemmdur og eðiilegur,
sama á hveiju gengur.
Persónusafnið er venju fremur
fjölskrúðugt og undirstrikar hinar
skoplegu þversagnir sem allstaðár
fyrirfinnast í myndinni. Isabelle
Hubbert leikur jómfrú sem þó er
með brókarsótt, Martin Donovan
(sem leikur mikið fyrir Hartley) er
sagður dauður en lifir (minnislaus
reyndar), leigumorðingi og sadisti
sem kemst í tæri við þau af ástæðum
sem of langt mál er að rekja, hann
er hagfræðingur. Þetta er eins og
með floppídiskana, sem alltaf er
verið að tala um í myndinni og skipta
svo miklu máli; eitthvert erlent risa-
fyrirtæki hefur morðingja á sinni
launaskrá. Fyrir það fyrsta eru þeir
ferkantaðir en ekki disklaga og svo
er ekkert floppí við þá heldur eru
þeir gijótharðir.
Ur þessu semur Hartley oft frá-
bærlega fyndna en líka alvörugefna
kómedíu um fólk í leit að sjálfu sér
fyrst og fremst. Leikurinn er allur
mjög góður. Og myndin er eðalfín
skemmtun.
Rcgnboginn
ALDINGARÐURINN
EDEN ★ ★
STRAUMUR ólöglegra innflytj-
enda til Bandaríkjanna frá Mexíkó er
mikill. Sögusvið mexíkósku mynd-
arinnar Aldingarðurinn Eden eftir
Maríu Navaro er landamærabærinn
Tijuana, en margra mílna stálveggur
skilur á milii hans og Bandaríkjanna.
Við stálvegginn bíður fjöldi Mexí-
kóbúa og leitar færis að sleppa í gegn-
um gæslu Bandaríkjamanna. Hand-
ansveggjarins liggur fyrirheitna land-
ið. Á skilti er skrifað: Áf hveiju stend-
ur þessi veggur ennþá nú þegar Ber-
línarmúrinn er fallinn?
Fylgst er með ungum Mexíkóbúa
sem ætlar yfir, ungri bandarískri
stúlku sem hann kynnist, bróður
hennar og fjölda annarra, en helsti
gallinn við annars mjög athyglis-
verða mynd er sá að það vantar í
hana kjölinn. Hún leitar svolítið
stefnulaust út og suður í einlægri
frásögn af voninni um að komast
yfír en líka tætingslega sjálfsmynd
Mexíkóbúa sem á einhvern hátt hef-
ur tapast niður þarna við landamær-
in; tengslin við söguna, menningar-
arfinn og þjóðarstoltið.
Arnaldur Indriðason
Stjörnu-
gjofm
Aldingarðurinn Eden ★ ★
Ameríka ★ ★ ★ ★
Áhugamaðurinn ★ ★ ★
Ástin er kaldari en dauðinn ★
★ 'h
Brimbrot ★★★'/!
Chabert ofursti ★ ★ ★ lh
Daður ★ ★
Dauður ★ ★ 'h
Einstirni ★ ★ ★ 'h
Fortölur og fullvissa ★ ★ ★
Heima er verst ★ ★ 'h
Hringrás tímans ★ ★
Hvíta blaðran ★ ★ ★ V2
Kolya ★ ★ ★
Kristín Lafranzdóttir ★ ★
Kyrrstaða ★ 'h
Litla systir ★ ★
Nanette og Boni ★ ★
Núll á kelvin ★ ★ ★
Tvær ástfangnar stúlkur ★ ★
Örlög ★ ★
\
!
i
i
\
1
i
I
i
I