Morgunblaðið - 31.10.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 25
Sakamáladrottning dóms
málaráðherra Noregs
ASUNNUDAGINN lauk 12.
bókastefnunni í Gautaborg
og fyrir víst ekki hinni síð-
ustu. Á blaðamannafundi kom fram
að 250 sýningaraðilar hefðu þegar
bókað fyrir haustið 1997 og jafn-
framt að aðsókn í ár hefði verið ívið
meiri en áður, svo lá við að slökkvi-
liðsmenn teldu vert að stöðva fólks-
strauminn vegna hættu á súrefniss-
korti.
Eins og áður hefur komið fram
tóku íslendingar þátt í pallborðsum-
ræðum bókastefnunnar bæði á
föstudaginn og laugardaginn. Þeim
sem þar fluttu mál sitt var einkar
vel tekið, en það voru Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra, Aðal-
steinn Davíðsson cand.mag. og
Kristinn Jóhannesson lektor ásamt
rithöfundunum Friðriki Erlingssyni
og Steinunni Sigurðardóttur. Mál og
menning og fleiri forlög kynntu ís-
lenska bókaútgáfu á sýningarsvæð-
inu og einnig var Norræna félagið
með uppiýsingaþjónustu.
Laugardagurinn varð einkum
dagur sakamálahöfunda, og ekki
laust við að austur-evrópskir
höfundar m.a. frá Ungveqa-
landi, hafi lent í skugga
þeirra hvað varðar almenna
athygli þann dag.
Áð morgni dags bauð for-
lagið Bra Böcker til blaða-
mannafundar með James
Ellroy, frá Los Angeles sem
kynnti My Dark Places
(Century Books, 1996) og
kvað þá bók vera fyrstu
skáldsögu sína sem ekki
væri skálduð, heldur væri
efni hennar byggt á minn-
ingum um glæp. í júní árið
1958 var móðir hans myrt.
Þá var James Ellroy tíu ára
gamall, einkabarn foreldra sem
höfðu skilið þegar hann var sex ára.
My Dark Places er byggð á leit hans
38 ár aftur í tímann. „Morðingi
móður minnar er enn ófundinn en
ég hef kynnst lífi hennar gegnum
þá rannsókn sem er grundvöllur
bókarinnar. Þannig hef ég komist
nær henni en áður,“ sagði James
Ellory sem á uppvaxtarárunum vissi
meira um götu- og undirheimalífið
í Los Angeles en um móður sína,
en hún hafði verið hjúkrunarkona
þar í borg. Ellroy hefur skrifað á
annan tug sakamálasagna og býr
ekki lengur í Los Angeles heldur í
Kansas City. Þegar hann var spurð-
ur um álit sitt á öðrum höfundum,
svaraði hann því til að hann læsi
ekki bækur, heldur hlustaði hann á
klassíska tónlist. „Ég skrifa hvort
sem er bestu bækurnar,“ segir þessi
Á Bókastefnunni í
Gautaborg var m.a.
fjallað um sakamálahöf-
unda. Einn af kunnari
sakamálahöfundum
Noregs, Anne Holt, birt-
ist á stefnunni, en hún
hefur tekið sæti dóms-
málaráðherra í nýrri
ríkisstjóm Noregs.
Kristín Bjarnadóttir
segir frá þessari „saka-
máladrottningu“ og
fleiri höfundum saka-
málasagna.
Anne Holt
sérkennilegi hávaxni maður sem
ævinlega gerir sig grimman í andlit-
inu þegar hann er ljósmyndaður.
- „Lastu áður en mamma þín
dó?“ datt þá einhvetjum í hug að
spyrja.
„Já. Þá las ég. Ævintýrabæk-
ur... allt mögulegt."
Kate Atkinson er eitt af þeim
höfundarnöfnum sem ekki varð
komist hjá að taka eftir í fjölmiðlum
þá daga sem stefnan stóð yfir. Það
var hún sem hlaut bresku
Whitbread-verðlaunin 1996 fyrir
fyrstu skáldsögu sína Behind the
Scenes at the Museum. Þar koma
þrjár kynslóðir við sögu í hverfi
verkafólks í York, sem frá upphafi
var heimabær höfundarins, sem nú
býr í Skotlandi.
Kate Atkinsson hefur helgað sig
ritstörfum síðan 1988 og hefur áður
hlotið verðlaun fyrir smásögu.
Næsta skáidsaga er væntanleg í
mars og sú þriðja er í smíðum, auk
þess sem hún hefur skrifað leikrit
fyrir Edinborgarleikhúsið. Hún segir
viðfangsefni sitt vera það að vera
skilin eftir, „að skilja sjálfa sig eftir
í ástarsambandi, að vera skilin eftir
sem barn, hið versta af öllu illu“.
„Hæ, ég heiti Anne Holt, saka-
málahöfundur og dómsmálaráðherra
Noregs." - Þannig kynnti hún sig,
sagði Kerstin Ekman, sem á bók í
haustbókaflóðinu Gör mig ievande
igen (Albert Bonniers 1996). Og
þetta var ekki tilvitnun í bók eftir
Jan Guillou, sem reyndar hefur skap-
að sögupersónu að nafni Anna Holt!
heldur að sjálfsögðu haft eftir dóms-
málaráðherranum í hinni nýju ríkis-
stjórn Noregs, Anne Holt. Titillinn
dómsmálráðherra var óvænt auglýs-
ing fyrir sakamálahöfundinn sem
var mætt til að kynna skáldsögur
sínar með lesbísku lögguna Hanne
Wilhelmsen í aðalhlutverki. Og að
rjúka á bókastefnu í vikulokin reynd-
ist þjóðráð að fá athygli fjölmiðla. í
sjónvarpsviðtali á laug-
ardagskvöldið var Anne Holt
spurð hvort dómsmálaráð-
herrann myndi hafa eitthvert
gagn af sakamálahöfuridin-
um. Hún taldi að svo myndi
ekki vera en hins vegar gæti
sakamálahöfundurinn haft
gagn af dómsmálaráðherra.
Jan Guillou, einn þekkt-
astu sakamálahöfundur Svía,
var þátttakandi í sama við-
tali og var fljótur til að vara
hana við því ef samstarfs-
menn hennar í ríkisstjórn
myndu hafa í huga að hún
ætlaði að taka þátt í samtali
um norskar sakamálasögur
ásamt Kim Smaage og Gunnar Staa-
lesen, sem hún og gerði. í kynningu
forlagsins Norstedts, sem nú gefur
út þriðju bók hennar Demonens död
í sænskri þýðingu, segir að Anna
Holt sé Sjöwall-Wahlöö Noregs,
byggi á hefð sem þau sköpuðu á
sama tíma, með samfélagsádeilu í
spennusagnaforminu og að reyndar
hafi Maj Sjövall verið hvað fyrst
Svía til að átta sig á höfundinum.
Fyrri bækur hennar er Blind Gud-
inna og Saliga áro de som törsta.
Seinasta bókin Demonens död, fjall-
ar um rétt barna í samfélaginu og
hefur selst í meira en 100 þúsund
eintökum í Noregi, einnig fært höf-
undinum verðlaun og stundum titil-
inn „Sakamáladrottning“.
Því má bæta við að á íslensku er
nýkomin út bók eftir Anne Holt:
Sælir eru þeir sem þyrstir.
Söng- og danssýning með erlendri og íslenskri dægurlagatónlist fyrri tíma
Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi eftir sýningu.
iVEITINGAHUSINU STAPA
Flytjendur eru:
RúnarJúlíusson.
Fyrsti kossinn, Hey hey, Ufsgleöi...
Helga Möller.
Reykjavikurborg, Ort í sandinn, Fever...
Jóhann Helgason.
Söknuöur, Yilli og Lúlla, Hcartbeat...
Rut Rcginalds.
Það er tóm vitleysa að reykja, Ríver deep mountain...
Guömundur Hermannsson.
Mustang Sally, Léttur i lundu...
Hallberg Svavarsson.
I feel good, Kecp a knocking...
Magnús Kjartansson.
Skólaball, Sólarsamba, Great balls of fire...
Ásamt hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar
og dönsurum frá Jóni Pétri og Köru.
Stjóm uppsetningar: Helena Jónsdóttir
og Magnús Kjartansson.
Hugmynd: Kristján Ingi Helgason
,*
HÁtidmWoi'
Frumsýning 2. nóvcmbcr - 2. sýning 9. nóvcmoer
3. sýning 16. nóvember ■ 4. sýning 23. nóvember
Upplýsinsar, miöa- .
og borðapantanir
í símum 421 2012
05 421 2526
Husið opnar sýninsardaga kl. 19:30
Sjóðið feúskúsið cftir leiðkciningum
takka með túrmeric kryddinu, kælið.
Fínsaxið icebergið, agúrkuna,
tómatana og steinseljúna.
Rífeð |)ví næst lambkagasalatið.
Blandið öllu grænmotinu saman
ásamt rækjunum og bnetunum.
L Að endingu er kúskúsinu
I og Newmans
:anch
Jressing bellt yfir.
KARL K. KARLSSON EHF.
Úmbo&aðili fýrir Ncwman's Own vöcur á íslandi
BIANDAÖ UKÆjNML 1 ISöAIAi
með rækjum, caslicw bnetuin, kúskús
og Newman's Own Rancli dressing *
Hráefni:
150 gj rækjur
2 bollar kúskús
1/2 bolli ristaðar caskew-knetur
1 vöndur lamkkagasalat
1/2 icekergköfuð
steinselja
1 sítróna
1/2 agúrka
2 tómatar
1/2 tsk tiirmeric
Newman's Own Ranck dressing