Morgunblaðið - 31.10.1996, Síða 26

Morgunblaðið - 31.10.1996, Síða 26
26 ELMMTUDAGUR 31, OKTÓBER 199fi , , .. MORGUNBLAÐIÐ LISTIR VIÐ athöfnina á Björgun 96, talið frá vinstri, Bjarni Axelsson sljórnarmaður Landsbjargar, Jónas Gíslason vígslubiskup, Gunnar Tómasson forseti Slysavarnafélags Islands, með þeim á myndinni eru nokkrir björgunarsveitarmenn sem tóku þátt í ráðstefnunni. Bókagjöf til björgun- arsveitarmanna Á RÁÐSTEFNUNNI Björgun 96, sem haldin var á Hótel Loftleið- um um sl. helgi og sótt af björg- unarsveitarmönnum um land allt, færði Jónas Gíslasonvígslu- biskup Slysavarnafélagi íslands og Landsbjörg að gjöf bókina „Um tilurð böls og þjáningar í heiminum". Snjóflóðin á Vest- fjörðum á sl. ári urðu Jónasi til- efni til þess að festa hugmyndir um þetta efni á blað og er bókin gjöf til þeirra rúmlega 500 björg- unarsveitarmanna sem unnu þar að björgunarstörfum. Jónas til- einkar bókina íbúum Súðavíkur og Flateyrar sem og þeim er unnu að björgunastarfi þar á árinu 1995. Bókin „Um tilurð böls og þján- ingar i heiminum" er gefin út af Vídalinssjóði Skálholtsskóla. Morgunblaðið/Þorkell Unglist gekk vonum framar LISTAHÁTÍÐIN Unglist, sem lauk síðastliðinn sunnudag, gekk von- um framar og var aðsókn feiki- góð, að sögn Markúsar H. Guð- mundssonar aðtoðarforstöðu- manns hjá Hinu húsinu. Hann kvað hafa verið fullt út úr dyrum á flest- um uppákomum hátíðarinnar, auk þess sem þátttakendur hefðu ekki verið fleiri í annan tíma. Unglist hefur verið haldin sex sinnum í Reykjavík en Akur- eyringar tóku nú í fyrsta sinn þátt í hátíðinni. Segir Markús það einungis fyrsta skrefið en á næsta ári sé stefnt að því að fá sem flesta staði úti á landi til Iiðs við hátíð- ina. Þá sé hugsanlegt að erlendir Iistamenn verði fengnir til að troða upp. Á meðfylgjandi mynd sjást tveir af fjölmörgum gestum Ung- listar virða fyrir sér verk á mynd- listarsýningu í Hinu húsinu. Morgunblaðið/Kristinn JÓN Garðar Henrysson: „Útskrift og hamraborg". UMTALSVERT MYNPLIST Hafnarborg MÁLVERK OG BLÖNDUÐ TÆKNI Jón Garðar Henrysson. Opið kl. 12-18 alla daga nema þriðjud. til 4. nóvem- ber; aðgangur 200 kr. (gildir á báðar sýningar), sýningarbók 1.200 kr. HLUTVERK myndlistar er eitt þeirra umræðuefna sem aldrei verð- ur tæmt þannig að allir verði sáttir við niðurstöðuna, og því er við- fangsefnið dæmt til að koma upp aftur og aftur og þá um leið lita alla afstöðu manna til þess með hvaða hætti ber að nálgast listina. Skoðanir manna hafa verið eins fjölbreyttar á þessu sviði og þær eru margar. Það er rík hefð fyrir því í sögunni að myndlistin eigi að vera áróðurstæki - boðberi „réttra“ skoðana í trúarlegum, pólitískum eða félagslegum skilningi. Önnur hefð er sú að listin eigi að bjóða upp á andlega hvíld frá amstri dags- ins, eða þá að vera almenn skreyt- ing á umhverfi mannsins. Loks má nefna þá skoðun að listin eigi ein- faldlega að helgast sjálfri sér og engu öðru - hún snerti menn eður ei alfarið á eigin forsendum. Á 18. öld (og raunar fyrr) var nokkur eftirspurn eftir þeirri teg- und myndlistar, sem var fyrst og fremst sköpuð sem forvitnilegt umræðuefni; slík myndlist var gjarna tengd sögu, og jafnvel unnin í flokkum mynda, sem gátu vakið mikið og skemmtilegt umtal fólks á meðal, og þar með lífgað upp á samkvæmi, þó sjaldan væru það æðstu andleg verðmæti, sem þannig voru tekin fyrir. Er á engan hallað þó William Hogarth sé nefndur sem einn helsti meistari þessarar teg- undar myndlistar, sem gjarna var tengd heitinu „Conversation Piece“ - listaverk til að tala um. Jón Garðar Henrysson skapar þessa tegund myndlistar, og á þess- ari fyrstu einkasýningu sinni hefur hann fyllt aðalrými Hafnarborgar með vandlega unnum, skipulega uppbyggðum og umtals-verðum listaverkum. Hér ber hæst tvær sögur, annars vegar „Sjóvíti og sjóskrímsl" og hins vegar söguna „Hin íslenska sleikjufantasía", sem einnig hefur verið gefin út á bók í tilefni af opnun sýningarinnar; raunar er efni beggja að nokkru fléttað saman, sem verður þó aðeins til að auka við margbreytileikann. Á sýningunni er einnig að fínna ýmis sjálfstæð smærri verk, sem sum hver hafa verið sýnd áður á samsýningum. Þær myndir sem Jón Garðar skapar innan þessa ramma eru í raun sjálfstæð myndverk, sem rað- ast að þeim efnisþræði, sem finna má í frásögnunum. í þeim leitar listamaðurinn fanga annars staðar, jafnframt því sem hann kynnir eig- in persónur og leikendur til sögunn- ar. Þannig er t.d. leitað í smiðju til Benedikts Gröndals um texta fyrir „Sjóvíti og sjóskrímsl", þó þar spinnist einnig fleiri þræðir. Það hefur verið lögð mikil vinna í hvert og eitt þessara verka, þykkt málað og vel til vandað. Raunar má fremur tala um mörg verk í ein- um ramma í sumum tilvikum, þar sem sjómenn, blómabreiður, fegurð- ardísir, furðufiskar og sjóræningjar koma fyrir í sömu andránni. Hér verður ekki lagt upp í að lesa úr þessum sögum, enda því verki ætlað að verða undirstaða samræðulistar- innar hjá þeim sem taka til við lest-' urinn. Verkið „Útskrift og hamra- borg“ er þó væntanlega nærtækur lestur fyrir marga, og gott dæmi um þá geysilegu vinnu, sem hefur verið lögð í þessi málverk. Smáverkin eru mörg hver sjálf- stæð saga út af fyrir sig, sem hægt er að lesa og fylgja fram og aftur, og er innri salurinn fylltur af slik- um; er gaman að sjá hversu mikið má fá fram með jafn litlum flötum og t.d. „Veruleiki og málverk“ og „Giverny-Akureyri", sem ætti að gefa þeim sem þekkja listasöguna enn eitt umræðuefnið. Ef eitthvað ætti öðru fremur að segja um þessa fyrstu einkasýningu Jóns Garðars væri það að hér er umtals-verð list á ferðinni; lista- maðurinn hefur lagt mikið í verkin, bæði hvað varðar efni og innihald, og uppsker eftir því. Er rétt að hvetja sem flesta til að leggja leið sína í Hafnarborg áður en sýning- unni lýkur. Eiríkur Þorláksson Skuggarnir ídjúpinu BÓKMENNTIR Unglingaskáldsaga ÉG SAKNA ÞÍN eftir Peter Pohl og Kinna Gieth í þýðingu Sigrúnar Árnadóttur, Mál og menning, 1996 - 231 bls. SORGIN hefur verið áleitið umræðuefni hér á landi að undanförnu eins og margt annað sem hefur legið í þagnargildi og ekki mátti tala um áður á mannamótum. Bókin Ég sakna þin fellur vel inn í þá umræðu. Hún er skáld- saga sem þó er byggð á raunverulegum at- burðum, dauða annarrar eineggja tvíburasyst- ur í bílslysi á unglingsaldri, en sænski rithöf- undurinn Peter Pohl samdi hana í samvinnu við hinn tvíburann, Kinna Gieth. Umljöllunar- efnið og aðferð Pohls hringja strax aðvörunar- bjöllum enda auðvelt að lenda í ýmsum gild- rum. Bæði er hætta á að slík bók verði um of hlaðin persónulegri tilfinningasemi og eins eru svo hinar öfgarna.r að hún verði of sál- fræðileg til að hafa nokkurt skemmtigiidi. En Iausn Pohls er hafin yfir slíka gagn- rýni. Þótt bókin sé úttekt og vangaveltur um sorgina og fjallað sé um djúpar og sárar tilfinn- ingar er sagan sögð af næmi og mannskiln- ingi. Hún er laus við óþarfa tilfinningasemi og það er rétt sem segir á bókakápu. Hún lætur engan ósnortinn. Ef til vill veldur þar einna mestu um sú meginhugmynd höfundar að veita okkur snemma í sögunni innsýn í hugarheim og líf Sillu, tvíburans sem ferst. Hún er þrettán ára og rétt að hefja það stig þroskans þar sem barnið er kvatt og kynþroskinn og veröld hinna fullorðnu taka við og dýpka huga hennar og lífsreynslu. Hún er að byrja að þroskast frá tvíburasystur sinni, Tinu, sem fram að þessu hafði verið nánast hluti hennar svo að oft gerðu menn ekki greinarmun á þeim. Tína hefur enn ekki hafið þessa ferð en býr við sakleysi bernskunnar. Þær fá hins vegar ekki að þroskast eðlilega hvor frá annarri því að skyndilega er klippt á strenginn og Tína er ein eftir með sorg sinni. Með því að sýna okkur á þennan hátt inn í hugarheim Sillu veitir Pohl lesanda hlutdeild í reynslu hennar og lífi þannig að hann samsam- ar sig meir söguefninu og skynjar sorgina bet- ur með augum Tínu og skilningi Sillu. Þetta finnst mér vera einn höfuðstyrkur bókarinnar. Meginviðfangsefni bókarinnar er þó sorg- arferlið því eins og segir í upphafi bókar: „Þetta á ekki að vera spennusaga með útsmog- inni fléttu sem ekki sér fyrir endann á fyrr en á síðustu blaðsíðu, heldur fjallar þessi saga um Tínu sem lifði af og varð að reyna að harka af sér og spjara sig í lífinu án Sillu.“ Samt ekki aðeins sorg Tínu, heldur einnig fjöl- skyldu hennar og vina. Þó er Tína ávallt mið- depillinn og við fylgjum henni frá skilnings- leysi og taugaáfalli, í gegnum doða, afneitun, reiði, sektarkennd og endalausan söknuð. Við hverfum frá djúpum hugsunum og þroska Sillu til Tínu sem ekki er almennilega farin að vaxa frá henni, var ekki farin að finna sín sérkenni en svamlar á yfirborðinu. Við skynj- um hvernig henni er kastað inn í óstöðvandi sorgarferli sem steypist um flúðir og boðaföll uns um hægist og hún finnur sinn hyl með hjálp vina og sálfræðings til að kafa í og þar sættist hún við lífið og dauðann og uppgötvar þá þverstæðu lífsins að í djúpinu finnur hún til gleðinnar á yfirborðinu: „Það var ekki fyrr en skuggarnir dimmu í djúpinu voru að því komnir að kæfa mig sem ég gerði mér ljósa gleðina sem fólgin er í svifléttum dansi gei- slaglitsins á gáruðu yfirborðinu.“ Það er þó ekki þar með sagt að sagan sé öll ein sorgarumfjöllun. Hún er svo margt fleira. í henni er að finna margvíslegt sögu- efni sem höfðar vel til unglinga svo sem um vináttu, ást og kynlíf. Efnistök höfundar eru afar traust. Hann hefur gott vald á frásagnartækninni. Textinn er alla jafnan raunsær, uppfullur af frásagn- argleði en einnig ljóðrænn og íhugull, hlaðinn heimspekilegum vangaveltum um h'fið og til- veruna enda er bókin ætluð hugsandi ung- mennum. Þannig fléttast inn í söguna hugleið- ingar um eðli orða, boðskipti milli manna, sálfræðilegar kenningar, umíjöllun um gildi listarinnar o.s.frv. Þýðingin er vandvirknislega unnin á góðu máli og textinn þægilegur aflestrar svo að hvergi virðist vera misbrestur á. Hér er á ferð bók um sorg sem eykur mann- skilning og þroska en er þó skemmtileg og kímin á köflum. Raunar hygg ég að hún höfði ekki síður til fullorðinna en unglinga, ekki síst þeirra sem umgangast sorgmædda ungl- inga. En umfram allt er hún góð bók sem segir áhugaverða sögu og vekur menn til umhugsunar. Skafti Þ. Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.