Morgunblaðið - 31.10.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 81. OKTÓBER 1996 35
AÐSENDAR GREINAR
Þingmenn - stopp!
Hugsið - stopp!
HLUTVERK Al-
þingis íslendinga er
mjög skýrt. Því er ætl-
að að setja lög og vaka
yfir hagsmunum lands
og þjóðar. Þeir sem þar
sitja eiga að vera eins
konar samviska þjóð-
arinnar. En stundum
bregst þeim bogalistin.
Nýlega lögðu sex
stjómarþingmenn
fram tillögu um breyt-
ingar á hámarks-
hraðaákvæðum um-
ferðarlaga. Þessir
þingmenn era: Vil-
hjálmur Egilsson,
Gunnlaugur Sig-
mundsson, Siv _ Friðleifsdóttir,
Hjálmar Jónsson, Ami Johnsen og
Einar Kr. Guðfinnsson. Þeirra til-
laga er þess efnis að hámarkshraði
á þjóðvegum með bundnu slitlagi
verði 110 km á klukkustund í stað-
inn fyrir 90. Rökin era þau að vega-
kerfið hafi batnað það mikið og að
öryggisbúnaður bíla sé orðinn miklu
betri en þegar þessi lög vora sett.
Við þessar röksemdir er ýmis-
legt að athuga. Um leið og sam-
þykkt var að hækka hámarkshrað-
ann í 90 km á klukkustund voru
sett ákvæði í umferðarlög þess
efnis að lögreglu var gefinn kostur
á að beita þá sem ekki höfðu bíl-
belti spennt viðurlögum. Síðan þá
hefur ekkert breyst á vegunum.
Að vísu eru svokallaðir loftpúðar
(air-bags) í hluta bíla, en langt í
frá öllum. Fullyrðingar þingmanna
um breyttar forsendur eru al-
rangar. Þar við bætist að rann-
sóknir víða í heiminum leiða til
þeirrar niðurstöðu að bíllinn og
vegurinn séu í fæstum tilfellum
orsakavaldar í umferðarslysum,
heldur er það mannlegi þátturinn
sem bregst og manneskjan hefur
tekið sáralitlum breytingum til
aukins umferðaröryggis.
í desembermánuði árið 1987 var
hámarkshraði í Michigan-fylki í
Bandaríkjunum hækkaður úr um
MICRQN
1 TÖLVUR
fyrir kröfuharða
það bil 90 km hraða í
tæplega 110. í saman-
burðarrannsókn kom i
ljós að þessi breyting
hafði í för með sér
28,4% fjölgur. látinna
í umferðarslysum og
38,8% fleiri slösuðust
alvarlega. (Rannsókn
á vegum háskólans í
Michigan, kynnt árið
1991.)
Það er sárt til þess
að vita að þingmenn
sem eru fulltrúar kjör-
dæma, þar sem bana-
Sigurður slys í umferðinni hafa
Helgason verið tíð á undanförn-
um árum skuli leggja
fram tillögu eins og þessa. Arni
Johnsen er þingmaður Suðurlands
og í því kjördæmi hafa á allra síð-
ustu árum orðið fleiri banaslys í
umferðinni en á nokkru öðra svæði
Hækkun hámarkshraða
í 110 km í Michigan-
fylki hækkaði slysatíðni
verulega, segir Sigurð-
ur Helgason, dauða-
slysum fjölgaði um 28%.
á íslandi. Hjálmar Jónsson sat
ásamt undirrituðum á fundi á
Sauðárkróki ekki alls fyrir löngu
og lýsti hryggð sinni vegna tíðra
alvarlegra umferðarslysa á ungu
fólki fyrir stórum hópi fólks sem
taldi sig þurfa á aðgerðum til auk-
ins umferðaröryggis að halda. Þá
var hann jafnframt prestur á
staðnum og hefði undir eðlilegum
kringumstæðum átt að skynja ljós-
ar hugsanir og tilfinningar al-
mennings og beita sér fyrir hags-
munum hans, ekki gegn þeim eins
og hann gerir með þessari tillögu.
Siv Friðleifsdóttir er varafor-
maður heilbrigðisnefndar og hefur
látið forvarnir sig varða af heilum
hug. Það hryggir mig að sjá hana
í þessum hópi. Það væri lengi
hægt að halda áfram að nefna
mótsagnir og rangtúlkanir þess-
arra þingmanna
Það er misskilningur ef þing-
menn halda að málflutningur af
þessu tagi sé vænlegur til vin-
sælda. Almenningur á íslandi er
nefnilega vel upplýstur og vill að
slysum í umferðinni fækki. Fólk
veit að það gerist ekki með því að
auka hámarkshraðann. Erfitt er
að fullyrða hvers vegna menn
ganga fram fyrir skjöldu að algjör-
lega óathuguðu máli og leggja
fram tillögu eins og þessa. Hlægi-
legasta röksemdin er sú að það
aki hvort eð allir á þessum hraða.
Reynslan segir okkur hins vegar
að með því að leyfa þennan hraða
eykst meðalhraði á þjóðvegum
landsins enn frekar og þykir flest-
um nóg um. Boðskapur þing-
mannahópsins um stórkostlegar
bætur á bíium og vegakerfinu end-
urspeglast í þeirri staðreynd að á
siðustu árum hafa banaslysin og
alvarlegu slysin í umferðinni í
auknum mæli verið að færast út
fyrir þéttbýli og út á þjóðvegina.
Alvarlegustu og ljótustu slysin
verða þegar hratt er ekið. Danski
umferðannálaráðherrann Jan
Tröjborg sagði nýlega að ef allir
ökumenn í Danmörku virtu há-
markshraðareglur, sem eru lægri
en á hliðstæðum vegum á íslandi,
myndi alvarlegum slysum og bana-
slysum þar í landi fækka um 20%.
Á sama tima leyfa íslenskir þing-
menn sér að vega að hagsmunum
íslenskra vegfarenda og leggja
fram ógrundaða tillögu. Að mínu
áliti getur aðeins eitt bjargað þeim
frá því að verða sér til skammar
og það er að draga tillöguna til
baka.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Umferðarráðs og baráttumaður
fyrir bættri umferðarmenningu.
Tölvu-Pósturinn
HámnrksgæS > Lágmarksverð
GLÆSIBÆ, ÁLFHEIMUM,
SÍMI 533 4600, FAX: 533 4601
WICANDERS
GUMMIKORK
í metravís
• Besta undirlagið fyrirtrégólf
og linoleum er hljóðdrepandi,
eykur teygjanleika gólfsins.
w
WICANDERS
• Stenst hjólastólaprófanir.
• Fyrir þreytta fætur.
GUMMIK0RK róar gólfin niður!
ÞÞ
&CO
í rúllum - þykktir 2.00 og 3.2 mm.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMI 553 8640 568 6100
1, ÍJ tY'j. M, I-U-
W0I I ; 1
r 1 W
■j'
andíítsfercmi fylgir þessi
glæsiíegi feaupaufei*
1
‘ífKPl
UTSÖLUSTAÚÍR Hygea, Krin
Sólbaðstofan, Grafarvogi
Daghrem
® Rakakrem
® Body lotion
• Ilmprufa
• 2 varalitir
• Takmarkn' masn
ibía, Mjódd - Spes, Háaleítisbraut • Sautjárt, Laugavegr ■
udurrresja, Keflavík - Akraness Apótek - Nírrja, Vestmarrnaeyjum
ÓTTU ÞESS BESTA
í MAT OG DRYKK.
ÞAÐ KOSTAR EKKI MEIRA
REIAIS &
CHATEAUX.
RIGGjA RETTA
HÁDEGISVERÐURÁ
KR
BERGSTAÐASTRÆTI 37
SÍMI: 552 57 00, FAX: 562 30 25
I M P E X
Sterkf • auðvelt • fljótlegt
Hillukerfi
sem allir geta sett saman
0DEXION SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTUNI31 ■ SIMI 562 72 22
'<‘L
Sértilboð
tn Londori
11. nóvember
,17.570
Nú bjóðum við sfðustu sætin á sértilboði þann 11. nóvember, hvort sem
þú vilt aðeins flugsæti eða gista á einu vinsælasta hótelinu okkar, Butlins
Hotel, einföldu en góðu hóteli skammt frá Oxford-stræti. Öll herbergi með
sjónvarpi, síma og baðherbergi. Og að auki getur þú valið um fjölda annarra
hótelvalkosta í hjatla London.
17.570
Verð kr..
Flugsæti. Verð með flugvallarsköttum,
mánudagur til fimmtudags í nóvember.
Síðustu sætin
11. nóvember
20.700
Verð kr.
M.v. 2 í herbergi, Butlins hotel með morgunverði,
4. nóv. og 11 nóv., 3 nætur. Skattar innif
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600
(1)
rR5T