Morgunblaðið - 31.10.1996, Side 49

Morgunblaðið - 31.10.1996, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 49 BREF TIL BLAÐSINS Beðið eftir bótunum Frá Maríu Gabríellu Urbena: ÞEGAR ég kom til íslands hlýnaði mér um hjartarætur er ég sá græn- ar hlíðar landsins, en því miður sá ég allt of lítið af þessu yndislega landi. Þremur dögum eftir að ég kom til íslands frá Ítalíu lenti ég í um- ferðarslysi í rútu sem ég ferðaðist með. Ég gleymi aldrei hávaðanum þegar gler og járn í rútunni brotn- aði. Það var hræðileg reynsla, sem varð þó til þess að ég kynntist nokkrum íslendingum og voru það sannarlega góð kynni. Þegar hinum hræðilegu látum linnti opnaði ég augun og sá að ég gat mig hvergi hreyft, því umhverf- is mig var allt fullt af glerbrotum. Þá kom til mín maður, sem ég veit því miður ekki hvað heitir og hjálp- aði hann mér að komast _ út um brotinn glugga rútunnar. Ég grét mikið og gat því ekki greint andlit mannsins, en samt minnist ég hans eins og ljóss í hjarta mínu. Kærar þakkir til allra sem komu og réttu okkur hjálparhönd. Ég get ekki dæmt bílstjórann, enda sat ég ekki undir stýri þegar slysið varð. Ég held þó að þessi ferð hafi ekki ver- ið skemmtileg fyrir hann fremur en okkur hin. Ég var lögð inn á sjúkrahúsið á Blönduósi vegna beinbrots og starfsfólk, læknar og hjúkrunar- fólk, sá til þess að mér leið ekki 90-110 hug- leiðingar um áhrif aukins ökuhraða Frá Jóni Baldri Þorbjörnssyni: UNDANFARIÐ hafa í fjölmiðlum birst fréttir af tillögu sex stjórnar- þingmanna um breytingar á um- ferðarlögum til aukningar á leyfi- legum hámarkshraða ökutækja ut- an þéttbýlis. í DV 23. október sl. er getið álits tveggja sýslumanna að landsbyggðinni, sem telja að greinilegt samband sé á milli öku- hraða og alvarleika umferðarslysa. Sýslumennirnir hafa rétt fyrir sér. Skýringarinnar er hins vegar ekki að leita í beinu, eðlilegu sam- bandi milli hraðaaukningar og um- fangs slysa. Ástæðan fyrir því hversu augljóst og órofa þetta sam- band er, er fólgin í eðlisfræðilegri mögnun við aukinn hraða. Þetta má útskýra á eftirfarandi hátt: Hreyfiorka hluta, sem mestu veldur um hversu alvarleg umferðarslys verða, vex ekki línulega heldur í öðru veldi með auknum hraða. Við tvöföldun ökuhraða, t.d. úr 50 km/klst. í 100 km/klst., tvöfaldast því ekki hreyfiorkan heldur fjórfald- ast. 110 km/klst. hraði er 22% meiri hraði en 90 km/klst. Við þann hraðamun má aka 22% lengri leið á sama tíma. En hreyfiorkan, sem í raun ræður umfangi slysa þegar þau verða, hefur ekki aukist um rúm 20% heldur tæp 50% lengri stöðvunarvegalengd, 50% meira högg sem ökutæki veldur eða verð- ur fyrir og líkur á 50% meiri meiðsl- um þeirra sem fyrir verða þegar eitthvað ber út af í akstrinum. Að teknu tilliti til raunhraða í umferðinni, sem við góðar aðstæður liggur oftast a.m.k. 10 km/klst. yfir lögbundum hámarkshraða (hver sem hann er); að teknu tilliti til akstursaðstæðna á íslandi, þ.e. tiltölulega mjórra vega, fjölda ein- breiðra brúa og krefjandi veðurfars; og síðast en ekki síst að teknu til- liti til eðlisfræðinnar, tel ég að að svo stöddu sé óráðlegt að grípa til aðgerða sem hvetja til aukins um- ferðarhraða á íslenskum vegum. JÓN BALDUR ÞORBJÖRNSSON, bíltækniráðgjafi og dipl.ing. (FH) í bíltækni, Fögrubrekku við Vatnsenda. illa og fannst ég ekki vera einmana, heldur umvafin hlýju. Þetta sama kvöld fékk ég ferðatöskuna mína aftur, en hún hafði orðið eftir í Amsterdam á leið minni til íslands. Mér finnst ég standa í þakkarskuld við ítalska ræðismanninn á íslandi og einnig starfsfólk ferðaskrifstofu, sem reyndist mér afar vel. 9. nóvember 1994 hittumst við, sem vorum lögð inn á sjúkrahús, í Genóa. Þar var einnig íslenskur fararstjóri okkar og skáluðum við fyrir lífinu sjálfu. Meðan ég var á sjúkrahúsinu á Blönduósi sagði mér einhver að við fengjum ferðalagið bætt. Sumir sögðu að við fengjum aðra íslandsferð okkur að kostnað- arlausu og vona ég sannarlega að það verði niðurstaðan. Itölsku ferðaskrifstofurnar sem eiga í hlut hafa bætt okkur hluta tjónsins og fyrir hver jól fáum við sendingu frá þeim, bók, dagatal eða annað í þeim dúr. Tryggingafélagið sem tryggði rútuna bað aðeins um persónulegar uppiýsingar, nöfti, fæð- ingardaga og heimilisföng okkar. Við vitum að skriffinska tekur tíma og langan tíma getur tekið að fá tjón bætt hjá tryggingafélög- um, en eftir nærri tvö ár spyijum við okkur hversu lengi við eigum að bíða. Tvö ár til viðbótar, þijú eða fjögur? MARÍA GABRIELLA URBENA Ville delle Vigne, 71 0137 Rinciglione (Viterbro) Ítalíu. þíf/jyMKT/AURHKT ^TjÖRNUR HAUSTSIN^ Gréta Boða, förðunarmeistari, kynnir nýju haust- og vetrarlitina í dag og á morgun. G lœsilegir litir • Frábœr tilboð Hægt er að panta tíma í förðun ^erið velkomirf V i h y r i i v f) t ii ' i' Mjódd Stór og sterkur konungur í ríki sínu rið 1989, þartn 1. mars, komu lítil Ijón til landsins. Þau náðu miklum vinsældum og þekktust á því að vera aldrei færri en sex saman á ferð sinni um ríkið. Nú hafa Ijónin stækkað en halda þó enn hópinn á ferðum um ríki sitt á vit ni/rra ævintýra. Þú getur nálgast Ijónin í ríki sínu eða fræðst um þau á vefsíðunni: http://www.this.is/lowenbrau LOWENBRAU LETTOL ESt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.