Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 31.10.1996, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator féiag laganema. Jóga gegn kvíða Helgamámskeið í Reykjavík dagana 9. og 10. nóvember (iaugardag kl. 9-15 og sunnnudag kl. 9-14.30). Námskeið fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til að slaka á og öðlast aukið frelsi og ltfsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Leiðbeinandi: Asmundur Gunnlaugsson. Ásmundur verður með fyrirlestur og kynningu föstudaginn 8. nóv. kl. 20. Fjallað verður um kvíða, fælni og streitu. Aðgangseyrir kr. 500. YOGA STUDIO i Hátúni 6A, 105 Reykjavík, sími 511 3100. Eigum laus kvöld eftir áramót. umboassími 892 8683. Fitubrennslunámskeió: 6 vikur (4. nóv. - 13. des.) þriðjud. og fimmtud. kL 10:00 Veró: 6500 (Kennari: Nonni) máit, miðv. og föst kl 19:00 Verð: 7500 (Kennari: Védis) Mappa með fróðleik • Kynningarfundur • Rtumælingar • Vigtun Óvæntir glaðningar • Mikið aðhald • Bamagæsla meó morguntima Karlanámskeið: 6 vikur (5. nóv. • 13. des.) þriójud, fimmtud. kL 20:00 \ Verð: 7500 og föstudaga. kL 19:30 / (Kennarar Nonni og Bjargey) Súperbrennsla: 6 mánuðir (4. nóv. • 4. maí '97) mánud. og miðv, kL 20:30 Veró: 20.000 (Kennari: Védis) Hugsað fyrir þá sem hafa verið á filubrennslunámskeiðum eða annari líkamsþjálfun og þurfa aðhald. Mætt, vigtað, fræósla, mjólkursýru-, blóóþrýstings- og fitumælingar, Hópurinn mætir alllavega 3x I viku, 2x I hópum og 1x I aðra opna tima (Fylgst með mætingum). Skráðu þig strax í síma 561-3535 Aukakílóin j fjúka af i AUKaKIIOin j TJUK txþ ÍDAG Með morgunkaffinu TM Rag. U.S. PM. OH. — M Hghti rawbMd (c) 1996 Ltw AngMM TlmM SyvxfcMc MÖMMU langar í bað áður en hún fer í háttinn. COSPER ÞAÐ varst þú sem vildir hafa djúpt og niðurgrafið baðkar i húsinu. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: laugaÞmbl.is Fleygsími? LAGT er til að íslenska nafnið á GSM-sínia verði fleygsími. Nafnið fleyg- sími vísar til þrefaldrar merkingar orðsins fleyg- ur. a) Fleygsíminn hefur svipaða lögun og fleygur. b) Fleygsíminn er geymdur á svipaðan hátt og vínfleygur. c) Boð fleygsímans eru fleyg, þ.e. berast þráð- laust (fljúga). Loftur A. Þorsteinsson Laugarásvegi 4, Reykjavík. Tapað/fundið Vetrardekk töpuðust VETRARDEKK undir Toyotu hurfu úr bílskýli við Dalsel 10, líklega fyr- ir u.þ.b. mánuði. Sé ein- hver með þessi dekk er hann beðinn að skila þeim á sama stað aftur. Úlpa í óskilum GÓÐ barnaúlpa var skil- in eftir fyrir utan Leifs- götu 10 fyrir nokkru. Upplýsingar eru veittar í síma 552-1068. Barnastígvél tapaðist GLÆNÝTT stígvél, ræki- lega merkt Valdísi Ösp, var tekið í misgripum sunnudaginn 20. október í Boltalandi í Ikea. Annað eldra stígvél, ómerkt, var skilið eftir, og eru þau bæði á sama fót. Móðir Valdísar heyrði hjá konunum í Ikea að þær séu með heila dyngju af óskilafatnaði sem aldrei sé spurt um. Kannist ein- hver við að vera með stíg- vél Valdísar er hann vin- samlega beðinn að hringja í síma 555-2020. Ermahnappur tapaðist GYLLTUR ferkantaður ermahnappur tapaðist í eða við Sjúkrahús Reykjavíkur í Fossvogi þriðjudaginn 22. október sl. Skilvís fínnandi vin- samlega hafi samband í síma 551-3554. Hjól tapaðist RAUTT 19,5“ hjól af gerðinni Treck 830 SHX hvarf frá Grensáskirkju sl. föstudagskvöld. Viti einhver um hjólið er hann beðinn að hringja í síma 553-6441. ( I Farsi Víkverji skrifar... VAXANDI áhuga gætti meðal fólks eftir því sem lengra leið á riðlakeppni Ólympíumótsins í brids. Fólk var farið að tala um Ólympíugull og Bermúdaskálar og stoltið gerði vart við sig hjá ýmsum, sem varla spila Olsen, Olsen við börnin sín. Er fréttir fóru að berast á þriðjudag um erfiða stöðu í átta þjóða úrslitum gegn Indónesíu fóru að heyrast aðrar raddir og neikvæð- ari. Staðreynd málsins er hins vegar sú að 5.-8. sæti á alþjóðlegu stór- móti eins og Ólympíumóti í brids er glæsilegur árangur. Það er því miður ekki oft sem íslendingar ná svo langt á Ólympíu- eða heims- meistaramótum og fólk getur verið stolt af bridslandsliðinu. xxx YND á baksíðu Morgunblaðs- ins fimmtudaginn fyrir viku af tveimur strákum með reiðhjólin sín vakti athygli. í fyrirsögn mynd- artexta sagði: „Tveir vinir og annar með hjálm“. Allir eiga að vita að hættulegt er að hjóla án þess að hafa hjálm á höfðinu og er brýnt fyrir hjólreiðafólk að nota þetta ein- falda öryggistæki. I klausu sem fylgdi myndinni kom fram að annar drengjanna væri við öllu búinn, en hinn hefði eflaust bara gleymt hjálminum heima í þetta skiptið. Forystumaður um öryggismál sjómanna hafði samband við blaðið í framhaldi af þessari myndbirtingu - sem hann þakkaði. Hann benti á að sama dag hefði birst í blaðinu önnur mynd af tveimur strákum að leik niður við höfn. Hann sagði að á þeirri mynd hefði verið æp- andi að hvorugur drengjanna var í björgunarvesti. Sagði maðurinn, að börn ættu ekki að vera að leik við bryggjur landsins án þess að nota öryggisbúnað. Alltof mörg slys hefðu orðið við sjóinn og brýnt væri að fólk yrði meðvitað um hætturnar sem þar leyndust ekki síður en á reiðhjólum. LÍTIL en athyglisverð frétt birt- ist nýlega á forsíðu Kópa- vogstíðinda, þar sem fjallað var um hina miklu Ijölgun íbúa í Kópavogi á liðnum árum og áratugum. Þar segir að gert sé ráð fyrir að íbúar bæjarfélagsins verði um 18.500 um næstu áramót og fjölgi um 6-800 á þessu ári. Til gamans er svo sagt frá því að þegar Kópavogur fékk kaupstað- arréttindi fyrir liðlega 40 árum hafí íbúarnir verið um 3.500 og hafi því fjölgað um 15.000 á þessu tímabili. Því láti nærri að íbúum hafi ljölgað um einn á dag þessi liðlega 40 ár. Kópavogur er næst stærst sveitarfélaga á landinu á eftir höfuðborginni og þenslan þar hefur verið með ólíkindum á síðustu árum. Skrifara finnst einnig að vel hafi tekist til með þessa uppbygg- ingu og það er gaman að koma í nýju hverfin í Kópavoginum og sjá gróskuna og kraftinn sem einkenn- ir þau.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.