Morgunblaðið - 08.11.1996, Page 4

Morgunblaðið - 08.11.1996, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Strandríkin stefna að framlengingu síldarsamningsins Reynt að semja við ESB fyrir ársfund NEAFC STRANDRÍKIN fjögur, sem einkum hafa stundað veiðar á norsk-íslenzku síldinni stefna að framlengingu sam- komulags síns frá í vor um stjórnun síldveiðanna og skiptingu kvóta á ársfundi Norðaustur-Atlantshafs- fiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í London 20.-22. þessa mánaðar. Áður stefna strandríkin að því að efna til fundar með Evrópusambandinu og reyna að fá það til að gerast aðili að samkomulaginu. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er stefnt að fundi Is- lands, Noregs, Færeyja og Rúss- lands með fulltrúum Evrópusam- bandsins 18.-19. þessa mánaðar. Evrópusambandið fékkst ekki til þess að gerast aðili að samkomulagi því, sem strandríkin gerðu með sér í maí síðastliðnum og ákvað sér ein- hliða 150.000 tonna síldarkvóta. Skip sambandsins hafa hins vegar farið langt framúr þeim kvóta og hafa nú tilkynnt tæplega 200.000 tonna afla til NEAFC. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins telja strandríkin hins vegar að Evrópusambandinu beri tæplega nema um 10.000-40.000 tonna kvóti, miðað við að heildarkvótinn sé um 1.100 þúsund lestir eins og í ár. ísland leggur áherzlu á aukið eftirlit ísland mun á fundinum með strandríkjunum og ESB og á NEAFC-fundinum leggja mikla áherzlu á bætt eftirlit með veiðum úr stofnum, sem heyra undir NEAFC, bæði karfanum á Reykja- neshiygg og síldinni í Síldarsmug- unni. Þannig verði tryggt að einstök ríki eða ríkjasambönd fari ekki fram- úr kvóta sínum og að hentifánaskip stundi ekki rányrkju á miðunum. Meðal annars er rætt um gervi- hnattaeftirlit og herta tilkynninga- skyldu í þessu sambandi. ísland hefur áður gagnrýnt að mikill misbrestur sé á aflatilkynning- um skipa Færeyja og Evrópusam- bandsins á Reykjaneshrygg og að ESB veiti hentifánaskipum þjónustu í höfnum sínum. Gera má ráð fyrir að ísland leggi til að ýtarlegri ákvæði um þessi atriði verði sett í samkomu- lag NEAFC um karfaveiðar á hryggnum, sem að öllum líkindum verður endumýjað á ársfundinum. Utanríkisráðherrar Islands o g Rússlands ræddu stækkun NATO Ekki minnzt á einstök ríki HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir að ekki hafí verið rætt um aðild einstakra rikja að Atlantshafsbandalaginu (NATO) er hann ræddi um stækkun bandalags- ins við Jevgení Prímakov, utanríkis- ráðherra Rússlands, fyrr í vikunni. „Ég lýsti því sjónarmiði íslands að við styddum stækkunarferilinn. Við værum hins vegar andvígir því að ný landamæri sköpuðust í Evrópu. Stækkuninni væri ekki beint gegn neinu ríki, heldur ætti hún að auka stöðugleika í Evrópu, sem væri öllum þjóðum til góðs,“ segir Halldór. Ekki rætt um Eystrasaltsríkin og NATO Hann segir Prímakov ekki hafa rætt um stöðu Eystrasaltsríkjanna í þessu sambandi. „Hann lýsti stöðu Rússlands og sagði mikilvægt að Rússar tækju þátt í og hefðu eðlileg áhrif á framtíðaröryggiskerfi Evr- ópu. Rússarnir gera sér grein fyrir að þeir munu ekki geta komið í veg fyrir stækkun Atlantshafsbanda- lagsins, en vilja tryggja sér nauðsyn- leg áhrif í framtíðinni," segir Hall- dór. „Þetta er það, sem menn eru að reyna að finna flöt á og koma til móts við Rússa í þessu sambandi.” Aðspurður hvort hann hefði lýst sérstökum stuðningi íslands við NATO-aðild Eystrasaltsríkjanna segir Halldór: „Það var ekki sérstak- lega rætt um Eystrasaltsríkin eða neitt eitt ríki nefnt fremur öðru í þessum samtölum." Gerði grein fyrir deilum Rússa og Eistlendinga Halldór segir að Prímakov hafi gert sér grein fyrir viðræðum sínum við utanríkisráðherra Eistlands fyrr í vikunni, landamæradeilum Eist- lands og Rússlands og stöðu rúss- neska minnihlutans. „Við lögðum áherzlu á að þessi deilumál yrðu tekin upp á réttum vettvangi, sem er Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu," segir Halldór. „Ef um mannréttindabrot væri að ræða, ætti að sjálfsögðu að taka þau upp á þeim vettvangi. Ég lýsti hins veg- ar þeirri skoðun minni að ekki væri rétt að taka þetta mál upp á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna, sem hefur verið í umræðunni. Það yrði til þess að setja málin í verri farveg." Fáklædd í glugga Morgunblaðið/Ásdís LIFANDI gína i útstillingarglugga undirfata- verslunar gladdi augu vegfarenda um Laugaveg í gær. Vakti hún að vonum töluverða athygli, enda ekki á hveijum degi sem fáklædd snót spók- ar sig á svo áberandi stað í nýjustu tísku á þessu sviði nærklæða. Morðið á íslénskri konu í Sviss Réttar- höld hófust í gær Zíirich. Morgunblaðið. RÉTTARHÖLD vegna morðs- ins á Vivan Hrefnu Óttarsdótt- ur, sem var myrt á heimili sínu í Genf 9. september 1995, hófust í Sviss í gær. Hinn seki bar sig aumlega og sagðist lítið muna frá nótt- inni þegar hann myrti Vivan á hroðalegan hátt. Þegar hann var beðinn um skýringu á því sem hann gerði sagðist hann enga skýringu geta gefið. Hann hefur verið í varðhaldi í 13 mánuði. Dómur verður kveðinn upp í dag, föstudag. Læknir, sálfræðingur og fólk sem hitti Vivan og hinn ákærða morðnóttina var kallað sem vitni í gærmorgun. Gunn- ar Snorri Gunnarsson, sendi- herra, og þijár íslenskar vin- konur Vivan í Genf báru einn- ig vitni. Roland Niklaus, lög- fræðingi fjölskyldu Vivan á íslandi, þótti mikilvægt að það kæmi fram í réttarhöldunum hversu sérstök og lífsglöð kona Vivan var. Einkadóttir Vivan, 16 ára, bar vitni fyrir luktum dyrum. Hún vaknaði þegar móðir hennar var myrt og morðing- inn misþyrmdi henni einnig kynferðislega. Hún kallaði á hjálp hjá nágrönnum og þeir hringdu í lögregluna. Lög- fræðingur hennar og Niklaus tóku til máls í gær auk sak- sóknara og veijanda hins ákærða. Dómur væntanlegur í dag Kviðdómur kveður upp dóm í dag. Sálfræðingur sagði að hinn ákærði hefði verið mis- notaður kynferðislega sem barn og það væri möguleiki að mótspyrna Vivan hefði kall- að fram í honum óviðráðanleg- an ofsa. Sálfræðingurinn segir hann þó heilan á geðsmunum. Héraðsdómur Reykjavíkur í máli gegn Kaupþingi og Landsbankanum Sýkn af kröfu vegna riftunar kaupsamníngs HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur sýknað Kaupþing hf. og Lands- banka íslands af kröfu konu um tæplega 4,3 milljóna kr. greiðslu vegna riftunar á kaupsamningi vegna húseignar sem konan keypti af áðurnefndum aðilum. Konan krafðist þess að fá endur- greidda rúmlega 1,5 milljónir kr. sem hún hafði innt af hendi vegna kaupanna við undirritun kaupsamn- ings og tæplega 1,8 milljónir kr. vegna framkvæmda sem hún hafði unnið á eigninni. Jafnframt krafðist konan einnar milljónar kr. í skaða- bætur. Kaupþing og Landsbankinn eign- uðust umrædda húseign á nauðung- aruppboði sem fram fór í desember 1992. í janúar 1993 gerði stefnandi kauptilboð í húseignina og 29. mars gerðu aðilar með sér samning um kaup stefnanda á eigninni, en kaup- verðið var 8,5 milljónir króna. f dómnum kemur fram að í kaup- samningnum var ákvæði um að kaupandi húseignarinnar sam- þykkti að láta kaupin ganga til baka án þess að krefjast endur- greiðslu af innborguðu fé ef van- skil á greiðslum samkvæmt samn- ingnum færu tveim mánuðum fram yfir umsamda gjalddaga. í dómnum kemur fram að stefn- andi innti ekki af hendi greiðslur sem greiðast áttu 1. maí 1993 og 20. júlí sama ár létu stefndu þing- lýsa á eignina yfirlýsingu um rift- un, sem birt var stefnanda 11. nóv- ember. Stefnandi mótmælti riftun- inni viku síðar, en þann 14. febrúar 1994 kröfðust stefndu útburðar stefnanda úr húsnæðinu. Með úskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 25. mars 1994 var útburðarkröf- unni hafnað, en með dómi Hæsta- réttar 29. apríl 1994 var útburður heimilaður. Kaupþing seldi um- rædda eign með kaupsamningi dag- settum 27. febrúar 1995 og var umsamið kaupverð tæplega 8,5 milljónir króna. Gekk til samningsgerðar af fúsum og fijálsum vilja Sem fyrr segir krafðist stefnandi þess í málssókn sinni að fá endur- greiðslu á því sem hann hafði greitt við undirrtiun kaupsamnings, end- urgjald fyrir viðskeytingu og vinnu sem lögð var í eignina og skaðabæt- ur, en Héraðsdómur hafnaði þess- um kröfum. I niðurstöðum dómsins kemur fram að af hálfu stefnanda hafi verið sóst eftir þessum viðskipt- um og telja verði að stefnandi hafi gengið til samningsgerðar af fúsum og fijálsum vilja og án allrar nauð- ungar eða blekkingar af hálfu stefndu. Því verði að telja stefnanda bundinn af vanefndaákvæði kaup- samningsins. Þá hafi stefnandi ekki haft haft samráð við stefndu vegna framkvæmda á eigninni enda þótt umsamdar greiðslur væru í vanskil- um og mest allar framkvæmdirnar unnar eftir að heimilt var að rifta samningnum samkvæmt vanefnd- arákvæðinu. Því verði að telja að framkvæmdir þessar hafi stefnandi látið framkvæma á eigin áhættu og jafnframt verði að telja að stefn- andi hafi ekki verið í góðri trú við framkvæmdirnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.