Morgunblaðið - 08.11.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 9
FRÉTTIR
Breytingar á stjórnsýslu hjá Reykjavíkurborg
Kjörmr fulltrúar fari
með pólitíska valdið
í BÓKUN borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, sem lögð hefur
verið fram í borgarráði, er lýst yfir
stuðningi við hugmyndir um
rammaáætlanir fyrir málaflokka og
stofnanir borgarinnar. Bent er á að
í tillögum sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn sé lögð áhersla á að borgar-
fulltrúar sinni pólitískum þætti
stefnumótunar áður en starfsáætl-
anir borgarstofnana séu samþykkt-
ar. í bókun Reykjavíkurlistans seg-
ir að engum megi blandast hugur
um að kjörnir fulltrúar fari með hið
pólitíska vald, setji þjónustunni
markmið, ákveði þjónustustig og
forgangsraði verkefnum.
Misskilnings gætt
I bókun sjálfstæðismanna kemur
fram að pólitísk markmiðssetning
og forgangsröðun í þjónustu sé
forsenda rammaáætlunar, sem for-
stöðumenn beri síðan ábyrgð á að
framfylgja. Þeim sé hins vegar
gefið aukið svigrúm til að nýta þær
leiðir, sem þeir telji bestar til að
ná markmiðunum. Þá segir,
„Nokkuð hefur borið á að misskiln-
ings gæti um þetta hjá hinum
kjörnu nefndum og forstöðumönn-
um. Virðist sumum vera óljóst orð-
ið hvor hópurinn fer með hið póli-
tíska vald, markmiðssetningu og
forgangsröðun þjónustu, embætt-
ismenn eða kjörnir fulltrúar. Þenn-
an misskilning þarf að leiðrétta
strax og hefja vinnu nefndanna
sjálfra við markmiðssetningu áður
en starfsáætlanir stofnana eru
samþykktar nánast umyrðalaust.
Ef svo fer sem horfir stuðla hug-
myndir um aukið sjálfstæði stofn-
ana að „embættismannastjórn".
Því eru sjálfstæðismenn algerlega
mótfallnir."
Þjónusta en ekki sljórnvald
í bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlista segir að unnið
hafi verið að margvíslegum breyt-
ingum í stjórnsýslu og starfshátt-
um borgarinnar, sem miði að því
að færa þau nær nútímalegum
vinnubrögðum. Markmiðið sé að
gera borgina að þjónustufyrirtæki
fremur en stjórnvaldi. Þá segir,
„Skýrari verkaskipting milli stjórn-
málamanna og embættismanna er
liður í þessu og þ.a.l. skýrari
ábyrgðartilfinning. Hingað til hef-
ur hvoru tveggja verið nokkuð
óljóst. Það má hins vegar engum
blandast hugur um varðandi
rammaáætlun að kjörnir fulltrúar
fara með hið pólitíska vald, setja
þjónustumarkmið, ákveða þjón-
ustustig og forgangsraða verkefn-
um. Það er aftur á móti á ábyrgð
forstöðumanna að leggja tillögu
sem rúmast innan rammans fyrir
kjörnar nefndir sem eftir atvikum
geta síðan gert breytingar á þess-
um tillögum."
Húsnæðisnefnd
Reykjavíkur
Rúmar
167,2 millj.
fyrir 23
íbúðir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu stjórnar Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar um kaup Hús-
næðisnefndar Reykjavíkur á 23
íbúðum fyrir rúmar 167,2 milljónir
króna.
í erindi Húsnæðisnefndar til Inn-
kaupastofnunar er lagt til að fram-
kvæmdaheimild fyrir 23 íbúðir, sem
ónýttar væru frá árinu 1995, yrði
nýtt með samningum við tvo aðila.
Samþykkt var að semja við Tré-
smiðju Snorra Hjaltasonar hf. um
kaup á 14 íbúðum við Gullengi
37-39 fyrir um 95,5 milljónir og
við Kirkjutún sf. um kaup á 9 íbúð-
um fyrir rúmar 67,7 milljónir.
Aðrir sem buðu voru Á.H.Á.
byggingar, Gissur og Pálmi hf.,
Mótás hf., Fróðengi hf. Bygginga-
félag Gylfa og Gunnars hf., Angan-
týr Vilhjálmsson, Eykt hf., Skeifan
fasteignasala og Húsverk hf., sem
átti þijú tilboð.
Fram kemur að Húsnæðisnefnd-
in ætlaði sér að nýta þessar 23
heimildir til að kaupa notaðir íbúð-
ir á almennum markaði. Auglýst
var tvisvar á árinu í hverfum með
póstnúmer 104, 105 og 108. Ekki
fengust tilboð, sem féllu undir
viðmiðunarmörk Húsnæðisstofnun-
ar, auk þess sem þau voru hærri
en verð nýrra íbúða sem stofnunin
er að selja.
íslandsklukkan
fyrir jólin til
ættingja
og vina
erlendis
co -p
• 11.
EBfiS
Qjqfavörur
LAUGAVEGI 103 • SÍMI 551 5517
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
Tölvu- og hus-
búnaður keyptur
fyrir 31 millj.
BORGARRAÐ hefur samþykkt með
þremur atkvæsum Reykjavíkurlista
að heimila kaup á nýjum hús- og
tölvubúnaði fyrir Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur í Miðbæjarskólanum.
Áætlaður kostnaður er um 31 millj.
Gert er ráð fyrir að tilboða verði
aflað í tölvubúnaðinn.
í fyrri bókun borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins er bent á að
aðgerðir R-listans við breytingar á
Miðbæjarskólanum í embættis-
mannaskrifstofur hafi kostað borg-
ina á annað hundrað milljónir. Frá
upphafi hafi R-listinn mótmælt því
að breytingar kalli á kaup á nýjum
húsgögnum og tækjabúnaði. Nú
komi í ljós að kostnaður nemi sam-
tals 31 millj. Sjálfstæðismenn telji
að þessum ijármunum hefði verið
mun betur varið til grunnskólanna,
til aukinnar kennslu og búnaðar-
kaupa.
Furðuleg bókun
I bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlista segir að bókun D-
listans sé vægast sagt furðuleg.
Tölvu- og búnaðarkaup stofnunar
hljóti að vera óháð því hvar og í
hvaða húsi hún er staðsett. Grónar
stofnanir borgarinnar hafi að und-
anförnu verið að tölvuvæða sínar
skrifstofur með sambærilegum hætti
án þess að borgarráðsmenn D-list-
ans hafi verið því mótfallnir enda
tilgangurinn að bæta þjónustuna.
I ljósi þessarar bókunar D-lista
manna væri fróðlegt að heyra rök
þeirra fyrir þeim hundruðum millj.
króna sem varið var til húsbúnaðar
og tækjakaupa í Ráðhúsi Reykjavík-
ur þegar flutt var milli húsa.
Aldrei blekkt borgarbúa
I síðari bókun sjálfstæðismanna
segir að sjálfstæðismenn hafi aldrei
blekkt borgarbúa með fullyrðingum
um að húsbúnaður í nýbyggingu
Ráðhúss yrði nýttur úr leiguhúsnæði
borgarinnar þar sem borgarskrif-
stofu voru. R-listinn hafi hins vegar
horft á kostnaðinn vaxa vegna
ákvörðunar um að gera Miðbæjar-
skólann að skrifstofu. Til að afsaka
þennan mikla kostnað hafi verið
gefið í skyn að húsgögn og búnaður
myndu nýtast áfram.
Jólaföt fyrir sanna Islendinga
íslensku þjóðbúnmgavestin - einlit, köflótt og teinótt.
# Islensku þjóðbúningaskyrturnar með hálsklút.
sfc Hnélmxur, pokabuxur, síðar l»uxur.
íslensk hönnun, íslensk framleiðsla, Tslensk verslun.
Ps. Mikið úrval aí'
fallegum jólakjóluin
EN&LABÖRNÍN
Bankastræti 10, sími 552 2201
MARBERT dagar föstudag og laugardag
Glæsileg svört
hliðartaska
fylgir með
50 ml.
kremum.
M 1 §-7S55£EE
* ti'wL. mmn'
Snyrlivönwmlunin
SANÐRAr-~S
Reykjavíkurvegi 50,
sími 555 3422
Kasmír stuttfrakkar
Kasmír jakkar
Stærðir 38-48
Opið laugardaga frá kl. 10-14.
Ný sending
Vandaður þýskur kvenfatnaður
Stærðir 36 — 52
tyá*£ýGafiihitöi
Engjateig 5 • 105 Reykjavík • Sími 581 2141
Við erum 5 ára og af því tilefni bjóðum við 20% f
afslátt af kápum
í dag, föstudag - laugardag - mánudag - þriðjudag. (OiVl ;
^JJJ avation rmdemniselle kvenfataverslunin, Laugarvegi 97, sími 551-7015
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
90 milljónir
Vikuna 31. okt. - 6. nóv. voru samtals 90.032.593 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru
bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum
vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur Upphæö kr.
31.okt. Háspenna, Laugavegi....... 118.499
l.nóv. Glaumbar...................... 117.685
l.nóv. Spilast., Geislag., Akureyri. 281.979
l.nóv. Rauða Ijónið................... 69.169
1. nóv. Háspenna, Laugavegi....... 74.020
2. nóv. Keisarinn..................... 80.467
2. nóv. Mónakó....................... 139.089
3. nóv. Catalina, Kópavogi............ 86.606
3. nóv. Háspenna, Laugavegi...... 52.018
3. nóv. Háspenna, Hafnarstræti... 127.917
4. nóv. Hótel Saga.................... 78.307
4. nóv. Ölver......................... 74.199
4. nóv. Ölver........................ 137.679
4. nóv. Háspenna, Kringlunni..... 62.329
5. nóv. Háspenna, Laugavegi....... 127.176 %
6. nóv. Feiti dvergurinn.............. 128.688
6. nóv. Háspenna, Hafnarstræti.... 106.556 e
<
Q
Staöa Gullpottsins 7. nóvember, kl. 8.00
var 7.300.000 krónur.
Silfurpottarnir byrja ailtaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta.