Morgunblaðið - 08.11.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 11
FLOKKSÞING ALÞYÐUFLOKKSINS
Kosningaskjálftí og
vaxandi spenna
Talsverðrar spennu gætir innan Alþýðu-
flokksins fyrir formannskjörið á flokksþing-
inu sem hefst í Perlunni í dag. í grein
Ómars Friðrikssonar kemur fram að nú
stefnir einnig í spennandi kosningar til
annarra æðstu embætta flokksins.
ÞETTA er lokaður póker eins
og stendur og menn sýna
mjög iítið á spilin," sagði
einn viðmælenda Morgun-
blaðsins um þá óvissu sem uppi er
innan Alþýðuflokksins við upphaf 48.
flokksþingsins, sem hefst í Perlunni
í dag. Nú er ljóst að valið um eftir-
mann Jóns Baldvins Hannibalssonar
stendur á milli Sighvats Björgvins-
sonar og Guðmundar Arna Stefáns-
sonar, en kosning um formannsemb-
ættið fer fram á laugardag. Strax
að því loknu verður varaformaður
kjörinn en mikil og vaxandi óvissa
er um kjör í það embætti.
Uppstilling Jóns Baldvins talin
styrkja Sighvat
„Það verður áreiðanlega ekki
gengið á dyr eða hurðum skellt á
þessu flokksþingi en það er óneitan-
lega sögulegt þegar skipt er um
formann í flokknum eftir tólf ára
formennskutíð Jóns Baldvins. Þetta
getur orðið merkilegt og líflegt
þing,“ segir flokksþingsfulltrúi í
samtali við Morgunblaðið.
Hugmynd Jóns Baldvins um æski-
lega skipan forystusveitarinnar, sem
hann kynnti opinberlega, hefur mælst
misjafnlega vel fyrir innan flokksins.
Þar hvatti hann Alþýðuflokksfólk til
að sameinast um kjör Sighvats Björg-
vinssonar til formanns, Guðmundur
Ámi gegndi áfram varaformennsku,
Rannveig yrði áfram þingflokksfor-
maður og Össur Skarphéðinsson al-
þingismaður tæki við formennsku í
framkvæmdastjóm. Ljóst er talið að
þessi „erfðaskrá" fráfarandi for-
manns hefur styrkt stöðu Sighvats
umtalsvert í kosningabaráttunni og
gert um leið öðmm erfiðara um vik.
Það mun m.a. hafa vakað fyrir Jóni
Baldvin að koma í veg fyrir innbyrðis
átök og sundmngu við kosningar og
taka margir Alþýðuflokksmenn undir
það sjónarmið.
Rannveig Guðmundsdóttir hefur
nú lýst yfir að hún gefi hvorki kost
á sér til formanns né varafor-
mennsku. Hún ætlar ekki að lýsa
yfir stuðningi við formannsframbjóð-
endur fyrir kosningamar. Flestir við-
mælendur blaðsins vom þeirrar skoð-
unar að ef Rannveig hefði blandað
sér í formannsslaginn hefði komið upp
mjög óræð staða sem hefði leitt til
þess að kjósa hefði þurft
í tveimur umferðum, þar
sem enginn frambjóðend-
anna hefði náð }rfír 50%
atkvæða í fyrstu umferð-
inni.
Sighvatur úti-
lokar varafor-
mennsku
Rannveig segist hafa átt viðræður
við fjölda stuðningsmanna sinna um
hugsanlegt framboð. „I þessum sam-
tölum kom fram að ég hef feikilega
sterka pólitíska stöðu í flokknum. Það
fólk sem ég talaði við gaf mér það
ótvírætt til kynna að því þætti fengur
að því að ég væri í pólitískri forystu
Alþýðuflokksins. Sumir vildu afdrátt-
arlaust að ég færi í framboð en aðrir
höfðu áhyggjur af hugsanlegum átök-
um við formannskosningu," segir
Rannveig.
Skiptar skoðanir á fylgi
frambjóðenda
Margir eindregnir stuðningsmenn
Sighvats og fleiri viðmælendur innan
flokksins eru þeirrar skoðunar að
Sighvatur eigi öruggan sigur vísan
á þinginu en stuðningsmenn Guð-
mundar Árna halda því hins vegar
fram að hann eigi mun meira fylgi
innan flokksins en stuðningsmenn
Sighvats hafi reiknað með og að
mjótt geti orðið á munum.
Þrátt fyrir að heimildir Morgun-
blaðsins hermi að þungavigtarmenn
innan Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
hafi ráðið Guðmundi Áma frá því
að fara fram, eigi hann næsta vísan
stuðning þorra Hafnfirðinga á þing-
inu, sem senda rúmlega 60 fulltrúa
til þingsins en höfuðvígi Sighvats er
talið í Reykjavík, sem á 70-80 þing-
fulltrúa. Ogerningur er að spá fyrir
af einhverri vissu um hvernig aðrir
flokksmenn muni skipa sér að baki
frambjóðendum.
Ýmsir telja að ávirðingar þær sem
bornar voru á Guðmund Árna fyrir
embættisfærslur í ráðherratíð hans,
og urðu til þess að hann sagði af sér
ráðherraembætti, verði honum fjötur
um fót. Aðsgurður um þetta segir
Guðmundur Árni: „Öll afskipti mín
af pólitík eru undir, bæði það sem
vel hefur verið gert og annað sem
menn telja að miður hafi verið gert.
Menn verða síðan að leggja þetta
saman og draga frá og fá út ein-
hveija niðurstöðu. Ráðherraferill
minn var endasleppur en ég minni á
að það var nú sitthvað sem ég kom
fram í minni ráðherratíð sem ekki
hefur farið eins hátt í umræðunni.
Ég er umfram allt reynslunni ríkari
og sterkari á eftir,“ segir hann.
Óvissa í kringum
varaformannskjör
Formannsframbjóðendurnir hafa
enn sem komið er ekki stillt upp
varaformannsefnum sér við hlið og
flestir eru þeirrar skoðunar að þau
mál muni ekki skýrast fyrr en á þing-
inu sjálfu. „Núna eru menn að hoppa
inn í eyðurnar en það kemur ekki í
ljós fyrr en á flokksþinginu hvort
menn njóta stuðnings í þessi emb-
ætti," sagði einn viðmælenda.
Traustar heimildir eru fyrir því, að
eins og nú er komið málum, sé ólík-
legra en áður að stuðningsmenn Sig-
hvats myndu fallast á að Guðmundur
Ámi gegndi varaformennsku áfram
ef Sighvatur ber sigur úr býtum í
--------- formannsslagnum. Vísað
er til hefðar innan flokksins
fyrir þvi að nýkjörinn for-
maður hafi mikið um það
að segja hver valinn er til
........ varaformennsku þegar úr-
slit í formannskjörinu liggi fyrir.
„Ég hef ekki stillt mér upp með
neinum hópum eða gert bandalag um
kosningu við nokkum mann,“ segir
Sighvatur. Hann segist ekki geta
hugsað sér að taka við varafor-
mennsku ef hann verður undir í form-
annskjörinu. „Það teldi ég vera mjög
óeðlilegt. Ef kosið er um formann og
ekki er deilt um stefnu, heldur fyrst
og fremst um einstaklinga, þá teldi
ég mjög óæskilegt og óeðlilegt af
mér að gera ráð fyrir að ég yrði stað-
gengill þess fonnannsefnis sem ég
hefði barist gegn og lotið í lægra
haldi fyrir,“ segir Sighvatur.
Aðspurður hvort hann yrði reiðu-
búinn að gegna áfram stöðu for-
Formannakosningar
í Alþýðuf lokknum frá 1984
Ar
Formannskjör
Varaformannskjör
t 58,92% Jón Baldvin n Hannibalsson r\/ 38,17% Kjartan Jóhannsson Vörir 2,91% fl ■k Jóhanna ■ Sigurðardóttir pF 96,99% ðrir 3,01%
(jáifö n-cp t Jón Baldvin ■ Hannibalsson ^ 98,20% Vðrir 1,80% fl ^ Jóhanna ■ Sigurðardóttir ^ 99,50% ðrir 0,50%
(lá88 S-xZP / fek Jón Baldvin Wm Hannibalsson ^ 92,23% Vðrir 7,77% fl |r Jóhanna ■ Sigurðardóttir pF 96,65% iðrir 3,35%
íáM VN_CP 1 öfc 80,21% Jón Baldvin jm Hannibalsson 11,50% Guðmundur Árni tðrlr 8,29% Stetánsson t ^ Jóhanna Sigurðardóttir 90,67% Iðrir 9,33%
íáM i 76,04% Jón Baldvin Hannibalsson 17,36% Guðmundur Árni Iðrir 2,91% Stefánsson ; ^ Jóhanna Sigurðardóttir 74,65% iðrir 25,35%
íáM i 60,26% Jón Baldvin K Hannibalsson / 38,93% Jóhanna Sigurðardóttir Iðrir 0,81% I |^^51,5% Guðmundur Árni H Stefánsson \Vyý 43,5% Össur Skarphéðinsson Iðrir 5,0%
Guðmundur Árni
manns ef hann tapar formannskosn-
ingunni sagði Guðmundur Árni: „Ég
er eingöngu í framboði til formanns.
Það er flokksþingið sem skipar til
sætis og ég get unnið með öllum
góðum Alþýðuflokksmönnum en það
er mál sem flokksþingið mun skoða
og meta þegar þar að kemur,“ sagði
hann.
Össur Skarphéðinsson hefur lítið
haft sig í frammi í umræðunum að
undanförnu en athygli vekur að
stuðningsmenn beggja formanns-
frambjóðendanna segja sterkar líkur
á því í samtölum við Morgunblaðið
að Össur gæti náð kosningu sem
varaformaður ef hann gæfi kost á
því, en til þess kæmi þó væntanlega
ekki fyrr en á síðustu stundu, þegar
úrslit í formannskjörinu liggja fyrir.
Össur kveðst sjálfur ekki ætla að
lýsa yfir stuðningi sínum við ákveð-
inn frambjóðanda fyrir kjörið og seg-
ist ekki hafa í hyggju að bjóða sig
fram til æðstu embætta sem kosið
verður um. „Ég er frekar frábitinn
því að taka að mér trúnaðarstörf en
mun styðja þann formann sem kjör-
inn verður af öllum mínum þunga,
sem þó fer ört minnkandi þessa dag-
ana,“ segir Össur. „Ég er hins vegar
þeirrar skoðunar að sá sem verði
formaður eigi að fá talsvert ráðrúm
til að stilla upp þeim mönnum með
sér sem hann telur líklegt að geti
myndað baráttusveit. Ég hefi ekki
mikinn áhuga á að vera
í þeim hópi. Það var að
vísu ósk Jóns Baldvins
að ég yrði formaður
framkvæmdastjómar
en mér sýnist á við-
brögðum nánustu sam-
starfsmanna hans að
það hafi ekki vakið
mikinn fögnuð og ég
hef ekki sérstakan
áhuga á því,“ segir
Össur.
Gunnar Ingi Gunn-
arsson, læknir og for-
maður Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur, til-
Sighvatur kynnti í gær að hann
gæfi kost á sér í kjöri
varaformanns. Gunnar Ingi hefur lýst
.yfir að hann styðji Sighvat í for-
mannskjöri en segir að framboð sitt
til varaformennsku sé óháð framboði
Sighvats til formanns. „Það eru
spennandi tímar framundan í pólitík.
Mig langar til að taka virkan þátt í
allri þeirri umræðu sem á sér stað
um samfylkingu jafnaðarmanna,“
segir hann. „Ég tel að varaformaður
sem á að sinna innri málefnum flokks-
ins sé ekki bundinn þingmennsku og
hafi tíma til að sinna mál- -------
efnum flokksins. Alþýðu-
flokkurinn þarf að skipu-
leggja sig betur og koma
sterkur og samstæður að
þeim viðræðum sem eru
framundan,“ segir Gunnar Ingi.
Konur innan Alþýðuflokksins ætla
sér stóran hlut við kjör í trúnaðarstöð-
ur flokksins á þinginu og var það
meginumræðuefnið á landsfundi
Sambands Alþýðuflokkskvenna, sem
haldið var í gærkvöldi. 28 konur voru
á fundinum af alls 90 konum sem
rétt eiga til setu á flokksþinginu og
samþykktu þær á fundinum að styðja
Ástu B. Þorsteinsdóttur, varaþing-
mann flokksins, í varaformannskjör-
inu og féllst Ásta á að gefa kost á sér.
Helga E. Jónsdóttur, formaður
sambandsins, segir að Alþýðuflokks-
konur ætli að koma sér saman um
fulltrúa í stjórnir og ráð flokksins.
Rætt hefur verið við Sigrúnu Bene-
diktsdóttur, lögfræðing, sem á sæti
í stjórn Alþýðufiokksfélags Reykja-
vikur, að gefa kost á sér til gjald-
kera og Valgerður Guðmundsdóttir
hefur lýst því yfír að hún hyggist
gefa kost á sér áfram sem ritari.
Helga Jónsdóttir segir að konurn-
ar ætli að fylgja framboði Ástu fast
eftir, en það sé á engan hátt tengt
formannskjörinu. Hún segist sjálf
hafa ákveðið að styðja Sighvat til
formennsku eftir að Rannveig Guð-
mundsdóttir, formaður þingflokks
jafnaðarmanna, ákvað að gefa ekki
kost á sér.
Talið er hugsanlegt að fleiri muni
blanda sér í varaformannsslaginn og
hafa nöfn Lúðvíks Bergvinssonar
alþingismanns, Gests G. Gestssonar,
formanns SUJ, og Magnúsar Á.
Magnússonar, fyrrv. formanns SUJ,
verið nefnd.
Samstarf jafnaðarmanna
ofarlega á baugi
Samstarf jafnaðarmanna verður
ofarlega á baugi á flokksþinginu. Það
er skoðun Guðmundar Árna að sam-
hengi hljóti að vera á milli umræð-
unnar um sameiningu jafnaðar-
manna og kjör nýs formanns Alþýðu-
flokksins. „Ég held að það skipti
máli. Ég tel óhjákvæmilegt að við
reynum til þrautar hvort hægt sé að
slíðra sverðin og jafnaðarmenn
treysti og þétti raðirnar. Ég vil ganga
býsna langt í þeirri tilraun, þótt ég
geri mér grein fyrir því að þetta
hafa menn reynt áður. Ég tel að nú
sé gott lag og við eigum að nýta
það. Ég er reiðubúinn í samtöl um
umdeild mál á borð við Evrópumál,
sjávarútvegsmál, landbúnaðarmál,
sem eru dæmi um málaflokka, þar
sem menn hafa ekki stigið í takt til
jarðar. Ég tel að Alþýðuflokkurinn
eigi að hugsa stórt og leyfa ólíkum
sjónarmiðum að njóta sín,“ segir
Guðmundur Árni.
Sighvatur kveðst ætla að leggja
mikla áherslu á að fylgja fram sam-
starfí jafnaðarmanna, verði hann
kjörinn. „Alþýðuflokkurinn er eini
stjómmálaflokkurinn, fyrir utan Þjóð-
vaka, sem er alveg heill og óskiptur
í þeim vilja, að leggja sig fram um
að ná samstöðu jafnaðarmanna. Það
er mikilvægasta verkefni okkar á
komandi mánuðum og misserum að
ná því fram,“ segir Sighvatur.
Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins á Akureyri, hef-
ur ekki trú á að umræða um sam-
starf vinstri flokka verði mjög ofar-
lega á baugi á þinginu eða hafi bein-
línis áhrif á kjör forystunnar. „Ég
held að menn ætli sér að fara var-
lega í þetta og taka smá skref í einu
og reyna að leiða þetta í rólegheitum
til lykta,“ segir hann. Hann kveðst
styðja Sighvat Björgvinsson til for-
mennsku. „Sighvatur verður allt öðru
vísi formaður en Jón Baldvin, ef
hann nær kjöri. Þó ég telji að Jón
Baldvin hafi staðið sig á margan
hátt mjög vel, þá held ég að Sighvat-
ur myndi sinna flokksstarfinu mikið
betur. Ég hef trú á að hann geti
orðið sterkur og farsæll foringi,“
segir Gísli.
Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði og stuðningsmaður Guð-
mundar Árna, er ósammála því að
sameiningarumræðan blandist ekki
inn í forystukosningarnar. „Þeir
flokksmenn sem vilja láta reyna á
samruna á vinstri vængnum verða
að hugsa til þess að sá sem verður
valinn til forystu sé líklegur til að
---------- geta leyst þau mál farsæl-
lega. Þar kemur berlega í
ljós að jafnaðarmönnum
sem standa utan Alþýðu-
flokksins lýst vægast sagt
ekki vel á að Sighvatur
28 konur
styðia
Ástu B.
gegni því starfí. Sumir segja að það
sé álíka og að ætla að setja Svavar
Gestsson á oddinn í sameiningarvið-
ræðum af hálfu Alþýðubandalagsins,“
segir Tryggvi.
Margir orðaðir við formann
framkvæmdastjórnar
A þinginu verða lagðar fram taga-
breytingatillögur um að fella starf
formanns framkvæmdastjórnar og
framkvæmdastjóra Alþýðuflokksins
saman í eitt embætti, sem kosið verði
til og það verði gert mun veigameira
en verið hefur. Eru góðar líkur tald-
ar á að tillögumar verði samþykktar
og eru fjölmargir flokksmenn nú
orðaðir við þá stöðu.