Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 17
Iduvæn tölva
□rgjörvi: PowerPC 6Q3e 120 MHz
Skjár: Apple Multiple Scan 14" litaskjár
Vinnsluminni: 8 Mb
Harðdiskur: 1.200 Mb
Geisladrif: Apple CD600Í
Forrit á íslensku:
ClarisWorks 3.0
Rta/öllur 3.0
Málfræöigreining
Leikir:
Amazing Animation
Sammy's Science House
Thinkin' Things
Spectre Supreme
Geisladiskar
3D Atlas
Asterix
Concertware
Daedalus Encounter - 3
Grolier
Making Music
Peanuts
Rock Rap'n Roll
Myst a
Lw
%
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavik, sími: 511 5111
Heimasíða: http://www.apple.is
ESB spáir
örari vexti á
næsta ári
Briissel. Reuter.
HAGVÖXTUR í Evrópusamband-
inu mun líklega aukast um 1,6%
í ár og 2,3% árið 1997 að sögn
framkvæmdastjómar sambands-
ins.
Samkvæmt hálfsársskýrslu
framkvæmdastjómarinnar er
búizt við að 12 lönd minnki fjár-
lagahalla í 3% vergrar landsfram-
leiðslu.
Að mati framkvæmdastjómar-
innar munu aðeins Grikkland, ítal-
ía og Bretland ekki fullnægja skil-
yrðum Maastricht-sáttmálans um
aðild að sameiginlegum gjaldmiðli
1999.
Mat framkvæmdastjórnar á
vexti í ESB hefur lítið breytzt síð-
an í vor þegar gert var ráð fyrir
að verg landsframleiðsla mundi
aukast um 1,5% 1996 og 2,4% á
næsta ári. í Þýzkalandi er gert ráð
fyrir verulega meiri hagvexti, 1,4%
í stað 0,5% áður.
Peningamálastjóri ESB, Yves-
Thibault de Silguy, sagði á blaða-
mannafundi að meirihluti aðildar-
landa hefði hafízt handa um mark-
tækar tilraunir til að minnka fjár-
lagahalla.
Um leið og betri efnahagshorfur
í Þýzkalandi hafa stuðlað að já-
kvæðara mati fyrir næsta ár er
bent á að horfur séu á minni hag-
vexti á Ítalíu, 0,8% í stað 1,8%
eins og áður hafði verið áætlað,
valdi því gert sér ráð fyrir minni
heildartiagvexti en ella.
Ef Ítalía væri ekki reiknuð með
væri vöxtur vergrar landsfram-
leiðslu í ESB 0,25% meiri 1996
og 1997.
♦ ♦ ♦-------
Hagnaður
BSkyB eykst
um 31%
London. Reuter.
BREZKA gervihnattasjónvarpið
BSkyB kveðst hafa til athugunar
frekari fjárfestingar í Þýzkalandi
og hyggst sjónvarpa öðrum meiri-
háttar íþróttaatburði gegn
greiðslu í Bretlandi síðar í þessum
mánuði.
Hagnaður fyrir skatta jókst um
31% í 66 milljónir punda eða 660
milljónir króna á þremur mánuð-
um til septemberloka.
Fyrirtækið, sem News Corp
Ruperts Murdochs er aðalhluthafí
í, segir að áskrifendum hafi íjölgað
í 5.65 milljónir til septemberioka,
eða um 146.000 á ársfjórðungn-
um.
BSkyB á þýzkan
sjónvarpsmarkað
í sumar kvaðst BSkyB mundu
kaupa allt að 49% hlut í DFl, hinu
stafræna þýzka sjónvarpi sem
bæverski fjölmiðlajöfurinn Leo
Kirch hleypti af stokkunum. Nú
kveðst BSkyB íhuga töluverða
fjárfestingu í öðru þýzku sjónvarpi
sem byggist á áhorfí gegn
greiðslu.
DFl hefur farið hægt af stað,
en búizt er við að þýzki greiðslu-
sjónvarpsmarkaðurinn verði í
örum vexti á næstu árum.
BSkyB hyggst bjóða íþróttaá-
horf gegn greiðslu á morgun 9.
nóvember þegar Mike Tyson kepp-
ir við Evander Holyfíeld í Las
Vegas um WBA krúnuna í hnefa-
leikum í þungavigt.
Seint á næsta ári hyggst BSkyB
koma upp stafrænu gervihnatta-
sjónvarpi í Bretlandi. Áhorf á
íþróttaðviðburði gegn greiðslu
verður líklega aðaltekjulind af
aukarásum sem byggjast á staf-
rænni tækni.
Volvo á batavegi
eftir uppstokkun
Gautaborg. Reuter.
VOLVO skilaði minni hagnaði en
efni stóðu til fyrstu níu mánuði
ársins 1996, en búist er við að
fyrirtækið sé á batavegi eftir al-
gera endurskipulagningu, sem
hófst 1995.
Sören Gyll forstjóri sagði á
blaðamannafundi nýlega að Volvo
hefði einbeitt sér að kjarna starf-
seminnar og sölu eigna væri að
mestu lokið. Við höfum fulla stjórn
á starfseminni og staðan á efna-
hagsreikningi fyrirtækisins er góð,
sagði hann.
Hagnaður fyrir skatta jókst um
12% í 12,03 milljarða sænskra
króna, en eingöngu vegna hagnaðar
af sölu eigna, meðal annars vegna
7.77 milljarða dollara hagnaðar af
sölu bandarísk-sænska lyfjafyrir-
tækisins Pharmacia & Upjohn Inc.
Sala minnkaði um 12% í 113.6
milljarða s.kr. Þar af minnkaði
sala vörubíla um 14% í 32.71 millj-
arða s.kr. og sala fólksbíla um 5%
í 59.83 milljarða.
Rekstrarhagnaður af bifreiða-
starfseminni minnkaði í 2,32 millj-
arða sænskar krónur. Þrátt fyrir
600 milljarða s. króna hagnað af
gengissveiflum í ár er talan aðeins
fjórðungur 8.84 milljarða rekstrar-
hagnaðar fyrir ári.
Þó segja yfirmenn Volvos að
fyrirtækið muni aftur skila dijúg-
um hagnaði á næsta ári vegna
nýrra gerða og betra ástands á
helztu mörkuðum.
Vonbrigði
með vörubíla
Frammistaða vörubíladeildar olli
einkumm vonbrigðum. Eftirspurn
var dræm í Norður- og Suður-
Ameríku, en í Evrópu voru afhent-
ir 6% fleiri bflar heldur en á sama
tímabili í fyrra.
Vörubílaforstjóri Volvo, Karl-
Erling Trogen, sagði að nýjum VN
flokki hefði verið vel tekið á Banda-
ríkjamarkaði og hefðu 1500 pant-
anir borizt.
Sala jókst um 8% á nýrri röð
850 fólksbíla og segir Volvo að
sala á S40/V40 línunni sé „hag-
stæð.“ Hinn nýi C70, sem sýndur
var í París á dögunum, hefur ekki
ennþá hitt í mark.
Sérfræðingar segja kvíðvæn-
legast að rekstrarhagnaður vöru-
bíladeildar minnkaði í 413 milljón-
ir sænskra króna úr 4.03 milljörð-
um ári áður. í því sambandi er
bent á að vörubíladeildin var aðal-
tekjulind Volvo í byijun þessa ára-
tugar.