Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 19
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Kristinn
SÆVAR Gunnarsson var endurkjörinn formaður Sjómannabands íslands á þingi þess í gær.
Allur fiskafli verði
seldur á fískmörkuðum
Sjómannasambandið vill stöðva framsal leigukvóta
ÞING Sjómannasambands íslands
vill að útgerðarmönnum verði óheim-
ilt að versla með veiðiheimildir sín á
milli. Nýtist veiðiheimildir útgerð-
unum ekki, verði þeim skilað. Þingið
vill að tekið verði á verðmyndun sjáv-
arafla og allur fiskur verði seldur á
mörkuðum. í ályktun sinni um at-
vinnu- og kjaramál hafnar þingið
ennfremur hugmyndum um auð-
lindaskatt, er á móti heimildum til
að veðsetja aflaheimildir og vill að
samið verði um veiðar við aðrar þjóð-
ir á alþjóðlegum hafsvæðum. Þá vill
þingið að hvalveiðar verði hafnar að
nýju og tekið verði á mönnun ís-
lenzka kaupskipaflotans. Sævar
Gunnarsson var í gær endurkjörinn
formaður Sjómannasambandsins, en
þingi þess lýkur í dag.
Taka verður á verðmyndun á fiski
og óheftu framsali á Ieigukvóta, eigi
að nást kjarasamningar milli sjó-
manna og útgerðar um áramótin.
Þetta var boðskapur forseta þriggja
stéttarfélaga til 20. þings Sjómanna-
sambands íslands, sem nú stendur
yfir. Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, sagði í ávarpi sínu til þingsins
að ljóst virtist að útgerðarmenn
hefðu seilzt æði langt til að skerða
þann hlut sem til skipta kæmi. Guð-
jón A. Kristjánsson, forseti Far-
manna- og fiskimannasambands ís-
lands, sagði að taka yrði á hömlu-
lausu framsali veiðiheimilda og Helgi
Laxdal, formaður Vélstjórafélags ís-
lands, segir að allur fiskur verði af
fara um markaði og nauðsynlegt sé
að setja löggjöf um verðmyndun á
sjávarafla.
Meira lag til kjarabóta
en oft áður
„Boðskapur stjórnvalda felst í
hnotskurn í því, að þó stáðan í efna-
hagsmálum sé nokkuð góð, sé lítið
sem ekkert svigrúm til kjarabóta án
þess að allt fari úr böndunum," sagði
Grétar Þorsteinsson. „Þetta þekkjum
við vel og höfum heyrt það oft áður.
Enn einu sinni verðum við að ganga
til kjarasamninga undir þessum
harmakveinum. Við vitum engu að
síður að nú er meira lag en oft áður
til kjarabóta.
Aðstæður sjómanna í komandi
kjarasamningum eru eins og oft áður
þónokkuð frábrugðnar því, sem ger-
ist meðal landverkafólks. Miklar
breytingar hafa orðið á útgerðarhátt-
um á síðustu árum og með tilkomu
fiskveiðistjórnunar og kvótakerfis
hafa orðið til mörg mikil vandamál.
Eitt meginvandamálið í kjaramálum
landverkafólks er meðal annars
launamunur á milli hópa. Þó sjómenn
hafi leyst sín launamál með föstu
hlutaskiptakerfi er ekki þar með sagt
að kjaramál sjómanna séu án vanda-
mála. Við höfum á undanförnum
misserum heyrt um vandamál sjó-
manna vegna kvótabrasks af ýmsu
tagi og vandamál vegna verðlagning-
ar á þeim afla, sem dreginn er úr sjó.
Það virðist nokkuð ljóst að útgerð-
armenn hafa á síðustu tímum seilzt
æði langt til að skerða þann hlut sem
kemur til skipta til sjómanna. Það
er ekki nóg að hafa samið um skipt-
ingu á tekjum, þegar útgerðarmað-
urinn getur ráðskazt að vild með þá
stærð sem til skiptanna er. Eg held
að það sé brýnna en nokkru sinni
fyrr að koma því í farsælan farveg
hvernig verðlag aflans er ákvarðað
og hvernig sú stærð er fest, sem til
skiptanna er.“
Verður að taka á
verðmynduninni
„Ég tel að mjög auðvelt verði að
leggja fram kröfur í 20 til 40 atriðum
fyrir næstu kjarasamninga," sagði
Guðjón A. Kristjánsson. „En það er
kannski rétt að velta því fyrir sér
hvers vegna svo er. Eins og málum
er nú háttað, eru það tvö atriði sem
skipta verulegu máli. Það er fis-
kverðsmyndunin og kvótaleigan.
Verði þessi tvö atriði til lykta leidd,
verða kröfurnar svona margþættar
til að hægt verði að mæta afleiðing-
um hinna tveggja. Ég held því að
Sjómannasambandið verði að ein-
beita sér að því að taka á verðmynd-
uninni og hömlulausu framsali leigu-
heimilda. Þetta hvort tveggja er und-
irrót hins stóra vanda, sem við stönd-
um nú frammi fyrir. Verði þessi mál
leyst til frambúðar, verður framhald-
ið auðvelt. Það gengur ekki að velta
þessum málum á undan sér ár eftir
ár.
Verði það niðurstaðan að kvóta-
leigan verði afnumin og allur fiskur
fari á markað, verðum við að gera
svo. Okkur kemur ekkert við hvað
stjórnvöld vilja í því máli. Það getur
vel verið að við lendum á vegg og
rúllað verði yfir okkur. Það verður
bara að koma í ljós. Okkur ber að
vinna að hagsmunamálum okkar af
heilindum og einurð."
Löggjöf um verðmyndun
á sjávarafla
„Við erum búnir að ganga í gegn
um tvö mikil verkföll vegna verðlagn-
ingar á fiski,“ sagði Helgi Laxdal.
„Ég viðurkenni að ég hef verið á
sama máli og sjávarútvegsráðherra,
að það sé óskynsamlegt að slíta
tengslin milli útgerðar og fisk-
vinnslu. Því miður hafa verkföllin og
skipan tveggja nefnda ekki skilað
þeim árangri sem vænst var. Því
miður hefur það komið í ljós að út-
gerðin hefur ekki hinn minnsta
áhuga á því að koma þessum málum
í gott horf í samvinnu við okkur sjó-
menn. Það er því aðeins eitt eftir.
Það er að setja allan sjávaraflann á
opinberan markað. Ég skora því á
sjávarútvegsráðherra að gangast
fyrir því að sett verði löggjöf um
verðmyndun á sjávarafla. Staðreynd-
in er sú að þarna er fiskur að verð-
mæti um 50 milljarðar að skipta um
eigendur án þess að nokkur lög gildi
um það hvemig standa skuli að því.
Hins vegar má tæpast reka litla
sjoppu eða veitingastofu án þess að
fara að ótal reglum um starfsemina."
bragð
v léltrvhur
Alltaf tilbúnir í fjörið!
Color StyleWriter 1500:
Prentaöferö: „ThermaF-bleksprauta
720x360 pát með mjúkum útlínum í sv/hv
360x360 pát fyrir l'ita- og grátónaprentun
Háhraða raðtengi (885 Kbps)
Beintenging við tölvunet með StyleWriter
EtherTalk Adapter (aukabúnaður)
Allt aö 3 síður á mínútu í svart/hvítu
Stuöningur við TrueType- og
Adobe PostScript letur
Pappírsmötun: Fjölnota bakki sem tekur allt að 100 síður
eða 15 umslög
Prentefni: Flestallur pappír, glærur, „back-print film“,
umslög og límmiöar
Prentgæði:
Hraði:
Leturgeröir:
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Heimasíöa: http://www.apple.is
teMigiiMH
é
PowerMacintosh 6320/120:
Örgjörvi: PowerPC 603e RISC
Tiftíðni: 120 megarið
Vinnsluminni: 12 Mb (má auka í 64 Mb)
Skjáminni: IMbDRAM
Harðdiskur: 1.200 Mb
Geisladrif: Apple CD1200i (átta hraða)
Skjár: Apple Multiple Scan 14" litaskjár
□iskadrif: 3.5' - les Mac- og PC-diska
Hnappaborð: Apple Design Keyboard
Nettengi: Innbyggt LocalTalk (sæti fyrir Ethernet-spjald)
Hljóð: 16 bita hljóð inn og út
Stýrikerfi: System 7.5.5, sem að sjálfsögðu er allt
á íslensku
Hugbúnaður: Hið fjölhæfa ClarisWorks 3.0. í forritinu er
ritvinnsla, töflureiknir, tvö teikniforrit, gagna-
grunnur og samskiptaforrit. Ritvöllur 3.0 -
stafsetningarleiðrétting og samheitaorðabók
og Málfræðigreining - kennsluforrit í íslenskri
málfræði. Öll þessi forrit eru á íslensku.
Leikir o.fl.: Mac Gallery Clip Art, Thinkin' Things, At
Ease, Millies Math House, Click Art
Performa, Spin Doctor og Supermaze Wars.
Geisladiskar: Groliers Encyclopedia, Myst, Mega Rock
Rap 'n' Roll, RedNex, The Way Things Work,
Deadalus Encounter, Making Music, Aladdin
Activity Centre, Lion King Story Book og Toy
Story Preview