Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sagan end-
urtekur sig
hjá Bhutto
Sagt að hroki hafí orðið forsætisráðherra
Pakistans, Benazir Bhutto, að falli en for-
seti landsins vék henni úr embætti í vikunni.
Reuter
BENAZIR Bhutto, sem nú hefur verið svipt völdum í Pakistan
í tvígang, ræðir við blaðamenn í Islamabad á miðvikudag. Hún
sakar leyniþjónustu hersins um að hafa rænt manni sínum,
Asif Ali Zardari, samkvæmt skipunum Farooqs Legharis forseta.
BENAZIR Bhutto var eitt sinn eft-
irlæti vestrænna fjölmiðla. Hún hlaut
menntun í Oxford og Harvard, en
náði aldrei tökum á að stjóma þjóð
sinni, að sögn breska blaðsins The
Daily Telegraph. Sagt er að maður
stígi aldrei tvisvar í sama fljótið, en
það virðist ekki eiga við um Bhutto.
Tvisvar var hún kosin til valda, tvisv-
ar hefur stjóm hennar leitt til póli-
tísks og eftiahagslegs glundroða og
tvisvar hefur henni verið vikið úr
embætti forsætisráðherra.
Hittir mann sinn
Bhutto fékk í gær að hitta mann
sinn, Asif Ali Zardari, fyrsta sinni
frá því að henni var vikið frá á
þriðjudag. Talsmaður Bhutto, Shah
Mahmood Qureshi, sagði að forsæt-
isráðherrann fyrrverandi hefði verið
færður til opinbers bústaðar
skammt fyrir utan Islamabad að
kvöldi miðvikudags, en maður henn-
ar hefði ekki birst fyrr en fjórum
klukkustundum síðar.
Hermenn handtóku Zardari á
þriðjudag og var sagt að hann væri
í gæsluvarðhaldi.
Farooq Leghari, forseti Pakistans
og fyrrverandi bandamaður Bhutto,
ber hana sömu sökum og hún var
borin þegar fyrri stjóm hennar hrök-
klaðist frá árið 1990 eftir að hafa
verið aðeins tvö ár við völd. Þá gat
hún þó haldið því fram að pólitískur
andstæðingur hefði verið að verki,
en nú er því ekki að heilsa.
„Rót vanda Bhutto var sú hroka-
fulla trú hennar að frá guði hefði
hún fengið rétt til að stjórna Pakist-
an,“ sagði vestrænn stjórnarerind-
reki á þriðjudag. „Hvorki hæfni, né
hæfileikinn til að viðhalda pólitískri
samstöðu eða velja rétt fólk í réttar
stöður varð til að vega upp á móti
þessum hroka.“
Hafði meðbyr
Þegar Bhutto komst til valda öðru
sinni eftir kosningarnar 1993 hafði
hún góðan meðbyr. Herinn, embætt-
ismannakerfíð og vestræn ríki
studdu hana. Hún fylgdi sigrinum
eftir með því að styðja Leghari, sem
hafði verið frammámaður í flokki
hennar, Þjóðarflokki Pakistans, í 20
ár, til forseta.
„Hún gaf sér að Leghari mundi
aldrei nota vald sitt til að víkja henni
frá,“ sagði háttsettur félagi í flokki
Bhutto. „En ekki einu sinni hann gat
virt síversnandi ástandið vettugi."
Bhutto glataði trausti Legharis,
rétt eins og hún glataði trausti flestra
sinna pólitísku bandamanna og vina.
Henni tókst einnig að egna herinn
og skriffinnana gegn sér með linnu-
lausri spillingu og fyrirgreiðslu fyrir
vini og frændfólk á meðan hæfum
stjómendum var vikið til hliðar.
Tilraunir til að losa um viðskipta-
höft og einkavæða ríkisfyrirtæki
hafa farið fyrir lítið vegna lengstu
og mestu efnahagskreppu í sögu
Pakistans. Kreppan á að hluta til
rætur að rekja til mistaka stjórn-
enda efnahagsmála í stjórninni, auk
þess sem hún gerðist sjálf fjármála-
ráðherra.
„Hún leit á sjálfa sig sem meist-
ara hagfræðinnar eins og hetja
hennar, Margaret Thatcher," sagði
háttsettur vestrænn bankamaður.
„En í raun vissi hún ekkert um
hagfræði."
Bhutto lét ekki af embætti fjár-
málaráðherra fyrr en i síðustu viku,
en þá var það um seinan.
Eiginmaðurinn
Akkillesarhællinn
í Sind, heimahéraði Bhutto, hóf
hún ofsóknir á hendur Muhajir
Qaumi-hreyfingunni, öflugasta flokk-
inum í Karachi, og létu næstum þrjú
þúsund manns lífíð. í Norðvesturhér-
aðinu hafa um eitt þúsund manns
látið lífið í átökum stjómarinnar og
íslamskra bókstafstrúarmanna.
Það var hins vegar Zardari, eigin-
maður Bhutto, sem var hennar Akk-
illesarhæll. Meint spilling hans, ítök
hans í efnahagsmálum, lán- og verk-
efnaveitingar til viðskiptafélaga og
ýmisleg fyrirgreiðsla, sem hann var
sakaður um, urðu Bhutto að falli.
Zardari sat í fangelsi frá 1990
til 1992 í stjórnartíð Nawaz Sharif
forsætisráðherra. Hann var sakaður
um stórfellda spillingu og skiptu
einstök mál tugum. Saksóknara
tókst hins vegar ekki að sanna mál
sitt fyrir dómi og var Zardari sleppt.
Þegar kona hans varð forsætis-
ráðherra á ný komu ásakanimar
einnig fram aftur. Þegar Leghari
og Jehangir Karamat, yfirmaður
hersins, ráðlögðu Bhutto að hafa
taumhald á manni sínum hundsaði
hún þá með því að gera hann að
ráðherra erlendra fjárfestinga.
Fjölskylduvandi Bhutto var ekki
aðeins bundinn við mann hennar.
Hún og bróðir hennar, Murtaza
Bhutto, höfðu eldað grátt silfur og
á þessu ári blossaði deila þeirra upp
með þeim afleiðingum að til skotbar-
daga kom við lögreglu í september.
í átökunum féll bróðir hennar.
Þrýstingur frá hemum
Leghari hefur einnig fengið fjölda
kvartana frá hernum, sem er í við-
bragðsstöðu vegna borgarastyijald-
arinnar í Afganistan, mikillar
spennu í samskiptum við Indveija
og aukins ofbeldis heima fyrir.
Fyrst þrýsti herinn á Leghari um
að greiða úr mistökum Bhutto bak
við tjöldin. Þegar það gekk ekki
krafðist herinn að Leghari svipti
hana völdum. Bhutto missti völdin
með sama hætti árið 1990.
Leghari lét aftur til skarar skríða
í gær og rak stjórn Sind, iðnvædd-
asta héraðs Pakistans. Bhutto er
þaðan og þar er Karachi, háborg
fjármála í landinu. í Karachi búa
12 milljónir manna og þar hefur
ofbeldi milli trúarhópa valdið mikilli
sundrungu. Kamal Azfahr, ríkis-
stjóri Sind, rak stjórnina að skipun
Legharis og skipaði Mumtaz Bhutto,
fjarskyldan ættingja Benazir
Bhutto, forsætisráðherra nýrrar
stjórnar Sind. Frændsystkinunum
mun ekki vera vel til vina.
Hinn nýi forsætisráðherra Pakist-
ans, Meraj Khalid, sem situr til
bráðabirgða, ætlar ekki að fá á sig
sama stimpil og forveri hans. Hann
ferðast á almennu farrými þegar
hann flýgur og ekur um í einum bíl
í stað lögreglubílalestar eins og for-
verar hans höfðu fyrir sið.
Ætlar ekki að gefast upp
Á fyrsta stjómarfundi Khalids
var ákveðið að ráðherrakaup yrði
lækkað um helming og hætt yrði
að hlaða undir fyrirmenni, enda
væri slíkt í andstöðu við bæði ísl-
amska menningu og forsendur lýð-
ræðis.
Bhutto vísar ásökununum á bug
og krafðist afsagnar Legharis á
blaðamannafundi á miðvikudag.
„Ég var kosin forsætisráðherra og
ég mun verða forsætisráðherra aft-
ur,“ sagði hún.
Haldi Bhutto áfram að bjóða Leg-
hari byrginn mun það enn auka á
óvissuástandið í Pakistan.
Stefnt að tvíhliða samningi Sviss og ESB fyrir næsta vor
Enn deilt um atvinnurétt
Reuter
Aðild Króat-
íu mótmælt
KRÓATÍA varð með formlegum
hætti 40. aðildarríki Evrópuráðsins
á miðvikudag, er Mate Granic ut-
anrikisráðherra (t.v.) undirritaði
aðildarslgölin ásamt Daniel Tarsc-
hys, framkvæmdastjóra ráðsins
(t.h.). Félagar í samtökunum
Blaðamenn án landamæra stóðu
fyrir mótmælum við undirritunar-
athöfnina. Fleygðu þeir yfír Granic
bæklingum, þar sem fordæmdar
eru hótanir króatiskra stjórnvalda
í garð gagnrýnna fjölmiðla.
Lausanne. Reuter.
SVISS og Evrópusambandið stefna
að því að ná samningum um tvíhliða
samskipti fyrir næsta vor. Viðræður,
sem hafa nú staðið hátt á þriðja ár,
hafa snúizt um mál, sem búið var
að leysa í samningunum um Evr-
ópska efnahagssvæðið (EES), en
verður að greiða úr með öðrum hætti
eftir að Svisslendingar felldu EES-
samninginn í þjóðáratkvæðagreiðslu
fyrir fjórum árum. Enn eru það sam-
göngumál og gagnkvæmur atvinnu-
og búseturéttur, sem út af standa.
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjómar ESB, og Jean-Pascal
Delamuraz, forseti Sviss, sögðu á
blaðamannafundi í Lausanne á mið-
vikudag að stefnt væri að því að ljúka
samningaviðræðunum á næstu mán-
uðum. Þegar hefur náðst samkomulag
um fjóra málaflokka: landbúnaðarmál,
tæknilegar viðskiptahindranir, opinber
útboð og samstarf í rannsóknum.
Hins vegar hefur enn ekki náðst
samkomulag um atvinnu- og búsetu-
rétt ESB-borgara í Sviss. Svisslend-
ingar vilja halda lagaheimild til að
setja kvóta á fjölda útlendinga í land-
inu sem eins konar baktryggingu,
en bjóðast til að ákveða kvótann svo
háan, að hann skipti i raun ekki
máli. ESB heimtar hins vegar afnám
lagaákvæða, sem leyfa setningu
kvóta.
Þá er deilt um samgöngumál,
og samg’öngnr
EVRÓPA^
annars vegar reglur Sviss um há-
marksþyngd vörubíla, sem fá að aka
um svissneska fjallvegi og hins veg-
ar kröfur Svisslendinga um að flug-
félög þeirra fái að fljúga til tveggja
flugvalla innan ESB í sama flugi,
en flugfélög innan ESB óttast að
slíkt veiki samkeppnisstöðu þeirra.
„Við ætlum okkur að ná samning-
um við svissnesk stjómvöld um mála-
flokkana sex... Samningaviðræðum-
ar eru á lokaspretti," sagði Santer á
blaðamannafundinum. Hann bætti
við að hugsanlega gætu samningar
náðst í desember, en þó væri líklegra
að það drægist fram á næsta vor.
Delamuraz sagði að atvinnu- og
búseturétturinn væri erfíðasta málið.
Ekki væri langt á milli samningsaðil-
anna, en nauðsynlegt að hnýta síð-
ustu lausu endana áður en hægt
væri að undirrita samninga.
Santer segir að „talsverður
fjöldi“ komist í EMU
JACQUES Santer, forseti fram-
kvæmdastjómar Evrópusambands-
ins, lýsir ánægju með hagspár, sem
framkvæmdastjómin gaf út í vik-
unni, og segir að „talsverður flöldi"
aðildarríkja sambandsins muni sam-
kvæmt þeim uppfylla skilyrði fyrir
þátttöku í Efnahags- og myntbanda-
laginu (EMU) í ársbyijun 1999.
Samkvæmt hagspá framkvæmda-
stjómarinnar verður hagvöxtur i ESB
1,6% að meðaltali á þessu ári og 2,3%
á næsta ári. Hagfræðingar ESB spá
því að á næsta ári muni tólf af fimmt-
án aðildarríkjum ná þvi markmiði að
fjárlagahalli verði minni en 3% af
vergri landsframleiðslu (VLF). Aðeins
Grikkland, Ítalía og Bretland muni
ekki uppfylla skilyrði Maastricht-sátt-
málans fyrir þátttöku í EMU.
Yves-Thibault de Silguy, sem fer
með peningamál í framkvæmda-
stjóminni, sagði á blaðamannafundi
á miðvikudag að í meirihluta aðild-
arríkjanna hefði verið gripið til trú-
verðugra aðgerða til að lækka fjár-
lagahalla.
Jacques Santer sagði í yflrlýsingu,
sem hann sendi frá sér á miðvikudag,
að „talsverður fjöldi“ aðildarríkja
gæti uppfyllt skilyrði fyrir þátttöku í
EMU 1. janúar 1999. „Það em afar
góðar fréttir," sagði forsetinn.