Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 21
ERLENT
79 ár frá byltingunni í Rússlandi
„Dagur samstöðu og sátta“
að tílskípun Jeltsíns
Moskvu. Reuter.
örlög, eina framtíð og sömu fortíð,"
sagði Jeltsín í yfirlýsingunni í gær.
Sagði hann, að vonir byltingarinnar
hefðu brugðist og milljónir manna
látið lífíð á altari hennar. „Látum
þau mistök okkur að kenningu verða
og vinnum saman að heill lands og
þjóðar."
Má fá sér í staupinu
Jeltsín steig í fætuma 1 fyrsta sinn
í gær eftir uppskurðinn og telja lækn-
ar hans, að hann verði farinn af
sjúkrahúsinu eftir tvær eða þijár vik-
ur. DeBakey sagði í gær, að kólester-
ói í blóði hans hefði lækkað verulega
en framvegis yrði Jeltsín að gæta
sín á feitmetinu. Þá gæti hann brátt
fengið sér í staupinu við og við en
DeBakey lagði áherslu á, að Jeltsín
væri enginn áfengissjúklingur.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
sem kominn er á stjá eftir hjartaað-
gerðina fyrir þremur dögum, gaf í
gær út tilskipun um, að byltingar-
dagurinn, 7. nóvember, skyldi hér
eftir heita „Dagur samstöðu og
sátta“.
Læknar Jeltsíns segja, áð honum
fari vel fram og bandaríski hjarta-
læknirinn Michael DeBakey segir,
að hann muni endurheimta starfs-
þrekið á nokkrum vikum.
„Rauðhærði kardinálinn“
Kommúnistar gengu í gær undir
rauðum fánum í Moskvu og fleiri
borgum Rússlands til að minnast
þess, að þá voru iiðin 79 ár frá bylt-
ingu bolsévika. Söfnuðust þeir saman
á Rauða torginu við styttu af Karli
Marx og létu ræðumenn skammirnar
dynja á ríkisstjórn Jeltsíns,
sem þeir sögðu ætla að selja
landið í hendur kapitalistum.
Var kommúnistum sér-
staklega uppsigað við „rauð-
hærða kardinálann", Anatolí
Tsjúbajs, skrifstofustjóra
Jeltsíns og helsta höfund
einkavæðingarinnar.
„Tsjúbajs í fangelsi," hrópaði
Víktor Anpflov, leiðtogi
einna kommúnistasamtak-
anna, og hvatti til, að ríkisstjórn
Jeltsíns yrði rekin frá.
Einn ræðumanna krafðist þess,
að „heimsborgarar með tvöfaldan
ríkisborgararétt" yrðu reknir og átti
þá við gyðinginn og kaupsýslumann-
inn Borís Berezovskí, sem nýlega var
skipaður varaformaður rússneska
öryggisráðsins. Samkvæmt blaða-
fréttum er hann jafnt ísra-
elskur sem rússneskur borg-
ari.
Gennadí Zjúganov, leið-
togi kommúnistaflokksins,
talaði líka en ljóst er, að lítil
samstaða er með honum og
mönnum eins og Anpílov og
öðrum leiðtogum harðlínu-
kommúnista. Zjúganov legg-
ur æ meiri áherslu á rúss-
neska þjóðerniskennd en æ
minni á hina sovésku fortíð.
í ræðu sinni sagði Zjúganov, að
Jeltsín hefði gert hjartauppskurðinn
að skrípaleik og tekist að gera alla
þjóðina hlægilega með því að af-
henda Víktor Tsjernomyrdín forsæt-
isráðherra forsetavöldin í aðeins tæp-
an sólarhring, 23 klukkustund-
ir. „Við erum ein þjóð, eigum ein
Jeltsín
Nyrup
heldur
velli
Kaupmannahöfn. Reuter.
SÓSÍALÍSKI þjóðarflokkurinn
(SF)og Einingarlisti vinstri-
manna á danska þinginu hafa
ákveðið að koma í veg fyrir
stjórn Poul Nyrup Rasmussens
verði felld vegna máls rithöf-
undarins Salmans Rushdies.
Heimsókn Rushdies til Dan-
merkur til að taka við verðlaun-
um var nýlega aflýst en síðan
frestað. Að sögn ráðherra var
ekki væri hægt að tryggja ör-
yggi hans en stjórnin var sökuð
um að taka tillit til útflutnings-
hagsmuna og reyna að blíðka
ráðamenn í Iran sem vilja rit-
höfundinn feigan.
Talsmenn vinstriflokkanna
tveggja sögðust hafa sann-
færst um að eingöngu hefði
verið um klaufaskap að ræða.
Japan
Gamli kjarn-
inn í stióm
Reuter.
RYUTARO Hashimoto, forsætis-
ráðherra Japans, kynnti í gær
nýja minnihlutastjórn sína en hún
er að mestu skipuð gömlum
frammámönnum í Fijálslynda lýð-
ræðisflokknum. Er nýi fjármála-
ráðherrann 69 ára gamall.
Enginn ráðherranna 20 er
yngri en fimmtugur og aðeins ein
kona í þeirra hópi. „Þessarar ríkis-
stjórnar bíður að takast á við kröf-
ur nýrra tíma,“ sagði Seiroku
Kajiyama, ráðuneytisstjóri í for-
sætisráðneytinu, þegar hann
kynnti nýju ráðherrana.
Fjármálaráðherra verður Hi-
roshi Mitsuzuka, fyrrverandi við-
skiptaráðherra, og fær hann nú
það verkefni að fjörga staðnað
efnahagslífið og greiða á sama
tlma úr gífurlegri skriffinnsku hjá
hinu opinbera.
Nýju ráðherrarnir hétu því allir
að beita sér fyrir umbótum en þó
hefur aðeins einn þeirra fengið
orð fyrir umbótaáhuga. Er það
Junichiro Koizumi heilbrigðisráð-
herra en hann beitti sér fyrir
einkavæðingu þegar hann var
póst- og fjarskiptaráðherra.
FLEIRI BILR5TIEÐI
NOATUN
Lambaskrokkar
■niðursagaðir í poka
Haustslátrun '96
399r
Verslanir Nóatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld
NÓATXJN
NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP.
• ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68