Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
ERLEIMT
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Réttarhöldin vegna fjöldamorða á Tasmaníu í vor
Nýjar plötur
Reuter
KOMIÐ hefur verið upp krossi fyrir utan veitingahúsið Broad Arrow
Cafe til minningar um þá, sem féllu fyrir hendi Martin Byants.
Játaði
sig sekan
skelli-
hlæjandi
Hobart. Reuter.
MARTIN Bryant, sem sakaður er
um mestu fjöldamorð í Ástralíu á
síðari tímum, viðurkenndi í gær
hlæjandi, að hann hefði orðið 35
manns að bana. Fram að því hafði
hann haldið því fram, að hann
væri saklaus.
Bryant kom óvænt í dómshúsið
í Hobart, höfuðstað Tasmaníu, þar
sem verið var að undirbúa hin
eiginlegu réttarhöld og kvaðst vilja
lýsa sig sekan. Voru honum þá
lesnar ákærumar, 72 að tölu, og
svaraði hann því ávallt til hlæj-
andi, að hann væri sekur. Varð
honum stundum litið til grátandi
ættingja fólksins, sem hann myrti,
og glotti þá við þeim. Einu sinni
skellti hann upp úr með svo miklum
bakföllum, að við lá, að hann félli
aftur sig. Þá var hann að játa á
sig morðið á Madeline Mikac,
þriggja ára gamalli stúlku.
Vitnaleiðslur
óþarfar
Það var síðla dags sunnudaginn
28. apríl sl., að Bryant tók að
skjóta á fólk á ferðamannastað í
Port Arthur á Tasmaníu með
öflugum riffli. Eftir nokkrar mín-
útur lágu 24 í valnum og innan
klukkustundar höfðu 32 týnt lífi.
Flýði þá Biyant inn f lítið gistihús
skammt frá og var síðan handtek-
inn morguninn eftir þegar hann
forðaði sér út úr húsinu, sem þá
var alelda. Þar fundust þijú lík að
auki.
Réttarhöldin hefjast 19. nóvem-
ber en til stóð að kalla fyrir meira
en 100 vitni. Er nú ekki lengur
þörf á því sem betur fer því að
margir þeirra, sem urðu vitni að
óhugnaðinum, hafa ekki náð sér
fullkomlega síðan.
Ný könnun í Bretlandi
Yfirburðir Blairs minnka
London. Reuter.
YFIRBURÐIR Verkamannaflokksins breska gagnvart
stjórnarflokki íhaldsmanna hafa minnkað verulega
ef marka má nýja skoðanakönnun sem birt var í
dagblaðinu Guardian í gær.
Verkamannaflokkurinn var með 47% fylgi, íhalds-
flokkurinn 34% og Frjálslyndi demókrataflokkurinn
15%. ICM-stofnunin, sem gerði könnunina, segist álíta
að stuðningsmenn íhaldsmanná séu margir ófúsir að
viðurkenna hvemig þeir ætli að kjósa og séu niðurstöð-
ur leiðréttar í samræmi þá forsendu. í öðrum könnun-
um hefur Verkamannaflokkurinn yfírleitt verið með
mun meira forskot. Þingkosningar verða ekki seinna
en í maí á næsta ári.
George Stephanopoulos, einn af nánustu ráðgjöfum
Bills Clintons Bandaríkjaforseta, segist í viðtali við
Guardian fús að veita Verkamannaflokki Tony Blairs
aðstoð í kosningabaráttunni. „Ég veit hvernig á að
starfa síðustu 90 daga baráttunnar ... hvemig á að
bregðast við þrautreyndum aðferðum hægrimanna,"
sagði Stephanopoulos sem er 35 ára og var um hríð
fréttafulltrúi Clintons. Hann hefur gefið til kynna að
hann vilji gjaman hætta störfum í Hvíta húsinu og
hyggst hugsa sinn gang næstu daga. Talsmaður Bla-
irs tók vel í hugmyndina í gær.
Ljóst þykir að vinni Stephanopoulos fyrir Blair
muni það ekki bæta fremur stirð samskipti Clintons
og Johns Majors, forsætisráðherra Breta. Fullyrt er
að Clinton hafí aldrei getað fyrirgefíð Major að hann
skyldi láta sérfræðinga íhaldsmanna starfa fyrir repú-
blikanann George Bush 1992.
SOLUSYNING
LAUGARDAG 9. NÓVEMBER
FYRIR HEIMILIÐ
| Suðurlandsbraut 20 • 108 Reykjavík • Sími 588 02101
BLÁSTURSOFNAR
FYRIR HEIMILIÐ
Suðurlandsbraut 20 • 108 Reykjavík • Sími 588 0210
Míele
ÞRIGGJA HÆÐA
w
UPPÞVOTTAVELAR
Vetrarferð Krist
ins o g Jónasar
Vetrarferðin er
komin út á
geislaplötu í
flutningi Krist-
ins Sigmunds-
sonar og Jónas-
ar Ingimund-
arsonar
„Mér líður
vel. Það er viss
léttir að koma Slgrmundsson
þessu frá sér. Við Jónas erum nú
búnir að vera að vinna í Vetrarferð-
inni í ein tíu ár svo það var kom-
inn tími til að setja hana á plötu
og syngja sig frá henni í bili,“ sagði
Kristinn Sigmundsson í samtali við
Morgunblaðið. Kristinn sagðist
ekki hafa tölu á því, hversu oft
þeir Jónas hefðu flutt Vetrarferð-
ina opinberlega frá því þeir tóku
hana fyrst á efnisskrá 1986, en
taldi tónleikana hafa verið eina tíu
talsins og síðast fluttu þeir Vetrar-
ferðina í Þýskalandi fyrir nokkrum
dögum. „Þetta
var svona smá-
konsert í Þýska-
landi og gekk
vel. Fólk kunni
að meta flutning
okkar,“ sagði
Kristinn.
Hann er nú á
förum til Flór-
ens, þar sem
hann syngur í Töfraflautunni fram
í miðjan desember og þaðan fer
hann til Genfar og syngur fram
undir jól, en áætlunin er að koma
heim aftur á Þorláksmessu.
Geislaplötunni fylgir bæklingur
með kynningu á flytjendum og
Halldór Hansen skrifar kynningu
á Vetrarferðinni, auk þess sem
allur flokkurinn er birtur á þýsku
og í íslenskri þýðingu Þorsteins
Gylfasonar.
Útgefandi er Mál og menning.
Heildartími er 76 '06. Verð 1.980 kr.
Jónas
Ingimundarson
Nýjar bækur
Handbók fyrir
efn
ÚT ER komin bókin Árin eftir sex-
tugt - Allt sem þ'; þarft að vita
til þess að njóta efri áranna.
I kynningu segir; „Árin eftir
sextugt er fyrsta íslenska hand-
bókin sem fjallar sérstaklega um
efri árin. í henni eru ráðleggingar
og lausnir á ýmsum vandamálum
sem fylgja aldrinum og svör við
þeim fjölmörgu spurningum sem
kunna að vakna í daglega lífinu
þegar árin færast yfír.
I bókinni er tekið á þeim and-
legu, líkamlegu og félagslegu breyt-
ingum sem tíminn færir mönnum.
Til þess að halda fullu fjöri og lifa
lífínu lifandi þegar árin færast yfir
er nauðsynlegt að þekkja og skilja
þær breytingar sem óhjákvæmilega
verða með aldrinum.
Bókin er aðgengileg og lipur
aflestrar, prýdd fjölda ljósmynda
og byggð á traustum fræðilegum
grunni enda rituð af hópi íslenskra
kunnáttumanna. Hún er víðfeðm
að efni og veitir góða yfírsýn yfír
það æviskeið sem við öll viljum
njóta.
arm
Fjallað er um hagsmunamál og
góð ráð gefin í þeim efnum. í bók-
inni er einnig mikið af hagnýtum
upplýsingum um það sem stendur
þessum aldurshópi sérstaklega til
boða af þjónustu og afþreyingu,
til dæmis listi yfír gagnleg heim-
ilisföng. Öll umfjöllun miðar að því
að lesandinn geti fært sér upplýs-
ingamar í nyt og brugðist við í
tíma. Hann getur þannig staðið
betur að vígi en áður og lifað lífinu
á ánægjulegri og fyllri hátt.
Þijátíu og átta höfundar leggja
til efni í bókina. Þeirra á meðal
eru læknar, hjúkrunarfræðingar,
sálfræðingar, rithöfundur, heim-
spekingur, næringarfræðingur,
sjúkraþjálfari, tannlæknar, félags-
ráðgjafar, lögfræðingur, prestur
og margir fleiri.
Útgefandi er Forlagið. Páll !
Gíslason, læknir og formaður Fé- |
lags eldri borgara, skrifar formála.
Ritstjórar bókarinnar eru sálfræð-
ingarnir Hörður Þorgilsson ogJak-
ob Smári sem einnig ritstýrðu Sál-
fræðibókinni. Verð 6.990 kr.
Verk eftir Siguijón
sýnt á Thorvald-
sens-safninu
Á ÞESSU hausti er
haldið nýstárleg sýning
á Thorvaldsens-safninu
í Kaupmannahöfn þar
sem valin verk eftir
Bertel Thorvaldsen eru
sýnd andspænis 29
höggmyndum úr
dönskum söfnum eftir
jafn marga mynd-
höggvara. Sýningin er
liður í stórsýningunni
Dönsk höggmyndalist í
125 ár sem Den danske
Bank íjármagnar í til-
efni af 125 ára afmæli
bankans og er hún haldin samtím-
is í átján söfnum víðsvegar um
landið.
Sýningin í safni Thorvaldsens
nefnist Eðli höggmyndalistar. Sýn-
ingarstjórinn Eva
Henschen segir í form-
ála sýningarskrár að
tilgangurinn með að
setja list Thorvaldsens
í samhengi við list nú- j
tímans hafí verið að
opna hug manna fyrir
nýju mati og nýjum
skilningi og miðla fróð-
leik um nokkur grun-
neinkenni höggmynda-
listar.
í Thorvaldsens-safn-
inu má meðal annars
sjá verk Siguijóns Ól-
afssonar, Maður og kona (1939)
sem er í eigu Nordjyllands Kunst- 1
museum, og hefur höggmyndinni I
verið valinn staður andspænis
sjálfsmynd Thorvaldsens.
Sigurjón Ólafsson.
Maður og kona.