Morgunblaðið - 08.11.1996, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LiSTIR
GUNNAR B. Guðmundsson, Hallgrímur Hróðmarsson og Anna
Ólafsdóttir í hlutverkum sinum í Stalín er ekki hér.
Hugmyndin
sem hrundi
Morgunblaðið/Theodór
BJÖRN Haukur Einarsson og Jóhanna Sigrún Árnadóttir í hlut-
verkum sínum í leikritinu „Þorláki þreytta". Á milli þeirra má
sjá hvar „Þorlákur", sem leikinn er af Bjarka Má Karlssyni,
liggur steinsofandi. Leikritið er sýnt um þessar mundir í félags-
heimilinu Brún í Bæjarsveit.
IFIKUST
Bæjarbíó
STALÍN ER EKKI HÉR
eftir Véstein Lúðvíksson. Leikfélag
Hafnarfjarðar. Leikstjóri Hanna
Maria Karlsdóttir. Leikendur: Hall-
grímur Hróðmarsson, Bára Jónsdótt-
ir, Huld Óskarsdóttir, Anna Ólafs-
dóttir, Gunnar B. Guðmundsson og
Ingi Fróði Helgason. Föstudagur 1.
nóvember 1996.
LEIKRITIÐ Stalín er ekki hér var
frumflutt í Þjóðleikhúsinu 1977 og
hvergi síðan, fyrr en nú, í Hafnar-
firði, 19 árum síðar.
Verkið er það sem stundum er
kallað stofuleikrit, einn veggur einnar
stofu er fjarlægður, eða teygður aft-
ast í salinn. Síðan fylgjast áhorfendur
með íbúum stofunnar einsog flugur
á þeim vegg. Þetta form á sér langa
hefð og eru nokkur af síðari verkum
Henriks Ibsens í þessum stíl.
En hvað sem öllum hefðum líður
þá finnst mér þetta form það ieiðin-
legasta af þeim öllum. Það takmark-
ar í raun og veru allt sem hægt er
að takmarka; persónur, tímann og
söguna. Ekki er hægt að fylla stof-
una af einhveiju „fólki utan úr bæ“,
tíminn er núið og sagan er í sjálfu
sér alltaf sú sama; einhver kemur
inn í líf fólksins í stofunni - oftar
en ekki eftir langa fjarveru og snýr.
öllu á hvolf.
Sýningu Leikfélags Hafnarfjarðar
var leikstýrt af Hönnu Maríu Karls-
dóttur sem fórst það vel úr hendi.
Engir meiri háttar leiksigrar voru
unnir í Bæjarbíói á föstudaginn.
Hallgrímur Hróðmarsson var alls
ekki nógu sannfærandi í hlutverki
Þórðar, einvaldsins á heimilinu.
Hann var alltof mjúkur og mikill
aumingi. Hefði Vésteinn skrifað
hann svona þá hefði aldrei neitt leik-
rit orðið til, enginn á heimilinu hefði
hlustað á hann og allir gengið út.
Hanna María „tekur á sig sökina"
fyrir aulahætti Þórðar í viðtali í leik-
skránni. En þrátt fyrir það má segja
að Þórður hafi aldrei lifnað við fyrr
en í síðustu línu sinni: Andskotastu
með þetta á fornsölu - og þegiðu
svo. Ef sá Þórður hefði verið á svið-
inu allt kvöldið hefði útkoman orðið
allt önnur og betri.
Hulda (sú sem kom inní líf fólksins
í stofunni - eftir langa íjarveru - og
sneri öllu á hvolf), sem Anna Ólafs-
dóttir lék, var einhver allt önnur Hulda
en „huldustelpan“ sem var skrifuð inn
í þetta leikrit. Anna faldi flagðið alltof
vel og gerði hana að sérlega indælli
og vænni ungri konu, sem var nokkuð
óheppilegt þar sem Hulda er allt ann-
að en indæl og væn. Gunnar B Guð-
mundsson lék Kalla, soninn og heimil-
istrúðinn. Hann var heilsteyptur allan
tímann og tókst þó nokkrum sinnum
að fá áhorfendur til að hlæja að -
því sem honum fannst - þessu hallær-
islega heimilislífi.
Var Stalín er ekki hér ekki bam
síns tíma? Það er spuming í huga
undirritaðs, hvort það á nokkurt er-
indi við nútímann. Hvort ekki hefði
verið óhætt að leyfa því að liggja í
dvala áfram. En kannski einhveijum
skoðanabræðram Þórðar og spænsk-
um byltingarkommum og -anarkistum
þyki það núna góður farsi: „Hahaha,
skelfing vorum við miklir krakkar hér
í denn“? Spyr sá er ekki veit.
Heimir Viðarsson
Þorlákur
þreytti
í Brún
Borgarnesi. Morgunblaðið.
UNGMENNAFÉLAGIÐ Íslend-
ingur í Andakíl, frumsýndi gam-
anleikritið Þorlák þreytta, eftir
Neal og Farmer, sunnudags-
kvöldið 2. nóvember s.l. í félags-
heimilinu Brún í Bæjarsveit.
Frumsýnt var fyrir fullu húsi
og við góðar undirtektir frum-
sýningargesta.
Kynslóðaskipti hafa orðið í leik-
araliði Ungmennafélagsins ís-
lendings að þessu sinni. Yngra
fólk er tekið við og þar af leið-
andi þurftu sumir að leika nokk-
uð upp fyrir sig í aldri á þess-
ari sýningu félagsins. En í leik-
riti eins og „Þorláki" þá gerir
það ekki svo mikið til, því þar
er nánast allt leyfilegt, „ef mað-
ur skammast sín“ á eftir eins
og Þorlákur verður svo oft að
gera.
Leikurinn fór hægt af stað og
augljós frumsýningarskrekkur
var í hnjánum á nokkrum leikar-
anna. En viðbrögð frumsýning-
argestanna voru styrkjandi og
hvetjandi og fljótlega þéttist
leikurinn og öryggið og sjálfs-
traustið jókst hjá Ieikurunum.
KVIKMYNPIR
lláskólabíó
STAÐGENGILLINN
„THE SUBSTITUTE" ★
Leikstjóri: Robert Mandel. Aðalhlut-
verk: Tom Berenger, Emie Hudson,
Diane Venora. Orion Pictures.
SPENNUTRYLLIRINN Stað-
gengillinn með Tom Berenger
bryddar uppá nokkuð nýstárlegri
hugmynd sem gæti gagnast í óróa-
sömum framhaldsskólum. Berenger
leikur kennara sem er málaliði, sér-
þjálfaður hermaður, leikinn í sjálfs-
varnaríþróttum og getur sært eða
banað manni á andartaki án þess
að blása úr nös. Og hann er fijáls-
lyndur og skemmtilegur fræðaþul-
ur. Agavandamál ættu að vera úr
sögunni og eru það í Staðgenglinum
Þó sprellið og misskilningurinn
væri mestur í kringum Þorlák
sjálfan þá var senuþjófurinn
tvímælalaust tónskáldið Jón
Fúss, sem Björn Haukur Einars-
son leikur af mikilli innlifun og
„átti“ hann salinn, allt frá fyrstu
innkomu og þar til eftir síðasta
uppklapp. Fór hann á kostum í
túlkun sinni á misskilda tón-
skáldinu, allt frá lýsingum á
stórbotnum tóndæmum til hár-
fínna svipbrigða og Iátbragðs.
Þá var einnig sannfærandi leik-
ur hjá Ragnheiði Guðmunds-
dóttur sem lék skvísuna Mjöll
af mikilli innlifun.
Leikstjóri verksins er Þröstur
Guðbjartsson og hefur hann
en myndin fjallar svosem um meira
en venjulegt agavandamál því skól-
inn, sem málaliðinn kennir í, er
dreifíngarmiðstöð fyrir dópsala og
skólastjórinn er dreifingaraðilinn.
Berenger hefur hin seinustu ár
sérhæft sig i B-myndum í ætt við
Staðgengilinn þar sem fjarstæðu-
kenndur söguþráður smellpassar
um staðlaðar hasarmyndapersónur
og spennan er vandfundin en hasar-
inn jafnan nokkur þótt hann sé
mjög af ódýrari gerðinni. Berenger
gengur til verksins eins og hann
viti að hann þurfí ekki að leggja
sig fram og gerir ekki mikið fyrir
myndina. Það er greinilega engin
ástríða hans að leika í B-myndum.
Enginn er kominn til að dást að
leikhæfileikum hans. Þetta er ein
af þessum myndum þar sem óþokk-
arnir eru svipljótir og bera það utan
á sér að vera níðingar svo að þegar
unnið vel sitt verk. Verkið hafði
hann staðfært skemmtilega á
ýmsa lund. Meðal annars var
Þorlákur orðinn yfirþjónn á
Mótel Venusi í Hafnarskógi og
var hluti verksins látinn gerast
þar. Þá voru einnig skemmtileg-
ar tilvitnanir í ýmsar þekktar
innansveitarpersónur sem oft
hittu í mark, ef marka mátti
viðbrögð áhorfenda.
Eitt er víst, kvöldstund með
Þorláki þreytta og hans fólki,
er vel varið. Tilvalið er fyrir
fólk á öllum aldri að þenja í sér
hláturtaugarnar í notalega fé-
lagsheimilinu Brún í Bæjarsveit
á næstunni.
okkar maður, sem ætíð hefur rétt-
lætið sér við hlið, tekur að beija þá
í buff finnst áhorfandanum eins og
hann þurfi ekki að sjá eftir miða-
kaupunum.
Myndin gerist í Miami og óþokk-
arnir í Staðgenglinum eru ekki hvít-
ir. Kannski er það yfirsjón af hálfu
framleiðenda sem reyna helst ekki
að móðga minnihlutahópa. Ernie
Hudson er skólastjórinn sem hefur
meira gaman af því að skjóta menn
í bakið en sitja foreldrafundi. Hud-
son hefur hingað til leikið valmenni
og það tekur mann tíma að venjast
honum. En það tekur ekki langan
tíma að venjast myndinni. Hana
hefur maður séð milljón sinnum
áður og veit hvernig hún gengur
fyrir sig lið fyrir lið. Slíkt er hand-
bragðið og slíkur er frumleikinn í
Staðgenglinum.
Arnaldur Indriðason
Málaliðinn í skólastofunni
Sýning í
Hornstofu
HELGINA 9.-10. nóvember verður
Inga Arnar fatahönnuður með
sýningu á vestum, kjólum og slæð-
um úr silki og góbelínefnum í
Hornstofu Heimilisiðnaðarfélags-
ins, Laufásvegi 2.
Inga Arnar rekur Gallerí Gróf-
ina í Listagilinu á Akureyri þar
sem hún ásamt öðrum handverks-
konum var með opna vinnustofu.
Selur hún þar sérsaumaðan fatnað
úr handmáluðu silki o.fl. Þá hefur
Inga haldið námskeið í ýmsum
greinum fatasaums, bútasaums og
silkimálunar.
Hornstofan er opin laugardag
kl. 10-18 og sunnudag kl. 13-18.
Aðgangur er ókeypis.