Morgunblaðið - 08.11.1996, Page 40

Morgunblaðið - 08.11.1996, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 n/IIIMNINGAR MORGUNBLAÐIÐ EINAR SIG URJÓNSSON + Einar Sigur- jónsson fæddist í Hafnarfirði 2. apríl 1930. Hann lést 27. október 1996, 66 ára að aldri. Foreldrar Einars voru Sigur- jón Einarsson skip- stjóri, f. 1897, d. 1969, og Rannveig Vigfúsdóttir, f. , 1898, d. 1991. Systk- ini Einars eru Hulda, f. 1919, Vig- fús, f. 1920, d. 1983, Bára, f. 1922, og Sjöfn, f. 1924. Einar kvæntist árið 1951 eft- irlifandi eiginkonu sinni, Jó- hönnu Guðrúnu Brynjólfsdótt- ur, f. 1930. Foreldrar hennar voru Guðný Ólöf Magnúsdóttir, f. 1908, d. 1990, og Brynjólfur Brynjólfsson, f. 1899, d. 1993. Börn Einars og Jóhönnu eru 1. Brynja, f. 1952, maki Jón Birgir Þórólfsson, börn þeirra eru Ein- ar, Guðný Agla og Jóhann Gunn- ar, barnabarn Þórey Einarsdóttir; 2. Sig- urjón, f. 1968, maki Guðný Birna Ros- enkjær. Einar fór ungur til sjós og árið 1951 lauk hann hinu meira fiskimanna- prófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík og var eftir það á togurum, um alllangt skeið skipstjóri. Arið 1967 fór Einar til náms í Sviss á vegum Ál- versins í Straumsvík og starfaði þar frá því álverið tók til starfa 1969 til 1995. Einar tók mjög virkan þátt í starfi Slysavamafélags íslands, bæði í Hafnarfirði og í þágu heildarsamtakanna, sat 32 ár í stjórn og var forseti félagsins á árunum 1992-1996. Útför Einars verður gerð frá Hafnarfjarðar- kirkju og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku afi. Sunnudaginn 27. október feng- um við þau sorgartíðindi að þú hefðir kvatt þennan heim. Varð okkur mjög brugðið, því skömmu áður hafðir þú talað við eitt af okkur systkinunum og verið á leið á rjúpnaveiðar, hress og kátur eins og ávallt. Trúðum við því ekki að þú værir dáinn. Þú sem alltaf varst á ferð og flugi um landið. Nú, þegar við lítum yfir farin a»~ veg, eigum við erfítt með að hugsa til þess að hlátur þinn eigi ekki eftir að óma í eyrum okkar oftar eins og hann hefur svo oft gert. Við systkinin höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að fylgja ykkur ömmu alla tíð. Við minn- umst allra hringinga þinna að bjóða okkur með í sleðaferðir, þá hafði amma útbúið nesti og kakó og var öllum deginum eytt í þessar ferðir, þú að draga okkur á skíðum aftan í sleðanum um ljöllin. Þú hefur alla tíð reynt að miðla þinni vitn- eskju um landið, sem þú dáðir svo mjög, inn í kollinn á okkur, en eitt- hvað vafðist það fyrir okkur eldri systkinunum, þvi varstu svo glaður er sá yngsti af okkur fór að hafa eftir þér það sem þú reyndir að kenna okkur. Ekki má gleyma öll- um okkar samverustundum með ykkur ömmu hvort sem var á heim- ili ykkar eða á ykkar uppáhalds- stað, sumarbústaðnum ykkar í Eyjafirðinum. Sá staður hefur alla tíð verið okkur systkinunum mjög hjartfólginn sem og hann var þér. í kringum þig, afí, var ávallt mjög mikið að gerast. Ef þér datt ein- hver hlutur í hug, þurfti að fram- kvæma hann helst í gær. Þú hreifst okkur mjög áfram með krafti þín- um og dugnaði og höfum við lært mjög mikið af þér. í huga okkar hafa áramótin ávallt skipað stóran sess í lífí fjölskyldunnar. Þá varst þú ennþá meiri grallari en alla hina daga ársins. í þetta eina sinn á árinu sáum við þig með vindil í munnvikinu, sem þú frekar ást en reyktir. Þú varst ávallt fyrstur út og komst síðastur inn, því alltaf lumaðir þú á einni bombunni í við- bót. Því er erfitt að hugsa til þess að við höfum þig ekki hjá okkur um fleiri áramót. Elsku afí, margs er að minnast þar sem samverustundirnar með þér eru allmargar, og þær minning- ar sem við eigum í hjörtum okkar munu ylja okkur í framtíðinni. Það er fjölskyldunni mikið huggunarefni að vita til þess að þið amma fenguð að eyða síðustu ævidögum þínum á ykkar uppá- haldsstað fyrir norðan. Elsku afi, við vitum að þú munt veita ömmu og fjölskyldunni allan þann styrk sem við þörfnumst. Við vitum að þú munt njóta þessa ferðalags, eins og þeirra allra. Megi Guð fylgja þér. Einar, Guðný Agla og Jóhann Gunnar. Seinni hluta sunnudagsins 27. október sl. hringdi síminn heima hjá mér. Þetta var Hanna og hélt ég að hún væri að svara skilaboðum mínum. Ég hafði talað inn á sím- svarann hjá þeim Einari og Hönnu á föstudeginum á undan, en stjóm Slysavamafélagsins hafði hug á að fá að hitta þau heiðurshjón eftir stjórnarfund 9. nóvember og þakka þeim fyrir allt það fómfúsa og óeig- ingjarna starf sem þau hafa unnið fyrir Slysavarnafélag íslands. En Hanna hafði annað við mig að segja. Einar hafði orðið bráðkvaddur fyrir nokkmm klukkustundum. Það er erfítt að trúa slíkri frétt, við höfðum hitt hann glaðan í bragði við opnun Björgunar ’96 fyrir rúmri viku - nú var hann allur. Það kom i hlut Einars, sem for- seta Slysavarnafélagsins, að ráða mig til starfa sem framkvæmda- stjóra félagsins fyrir rúmum fjórum árum. Ráðningin sýndi hugrekki og var að mínu mati liður í þeirri framtíðarsýn sem yngri kynslóð félagsins vildi sjá. Einar helgaði líf sitt markmiðum Slysavarnafélags íslands; að sporna við hvers konar slysum og hjálpa þeim sem lenda í háska. Hann gekk ungur í Slysa- varnafélagið, sat yfir 30 ár í stjórn þess og síðustu fjögur árin sem forseti. Einar var hugsjónamaður og vann ötullega að öllum þeim málum sem hann var sannfærður um að væru til heilla fyrir Slysa- varnafélagið. Hann var fylginn sér og ákveðinn og hvikaði hvergi ef honum fannst vegið að félaginu. En það var líka stutt í glettnina og þrosið. Við Einar unnum mjög náið sam- an; hjá forseta og framkvæmda- stjóra í stóru félagi ber margt á góma, vandamálin mörg sem þarf að leysa, verkefnin stór sem þarf að taka ákvarðanir um, en þegar upp er staðið er það hið fjölbreytta og gjöfula starf sjálfboðaliðanna sem veitir manni mesta ánægjuna í starfí. Björgun mannslífa, vígsla nýrra björgunarstöðva, koma nýrra björgunarbáta til landsins eru m.a. þau atvik sem kölluðu fram sér- stakan glampa í augum Einars. Glampa ánægju og stolts vegna þeirra fjölmörgu kvenna og karla sem helgað hafa líf sitt slysavarna- hugsjóninni hér á landi, eins og hann gerði. Við Einar þurftum að ferðast mikið saman bæði innan lands og utan og í þeim ferðum var Hanna, eiginkona Einars, alltaf með. Hún var stoð hans og stytta. Slík hjón mættu margir taka sér til fyrir- myndar. Heimili þeirra í Hafnar- firði og á Akureyri stóð alltaf opið að nóttu sem degi, ef á þurfti að halda og var það óspart notað. Hanna mín, Brynja, Siguijón og fjölskyldur, sorg ykkar er mikil, sárið djúpt og myrkrið svart, en ég veit að það birtir fyrr en varir, ljósið sem skín, er frá líða stundir, er minningin um góðan dreng. Ég þakka Einari Sigutjónssyni stutta en góða samfylgd. Fyrir hönd starfsfólks Slysavarnafélags íslands þakka ég honum samstarf- ið og sendi fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Esther Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Slysa- varnafélags Islands. Einar Siguijónsson, skipstjóri og f.v. forseti Slysavarnafélags íslands, er látinn, langt um aldur fram. Áhugamál Einars voru mörg en segja má að hann hafí fæðst inn í Slysavamafélag íslands, þar sem foreldrar hans voru bæði virkir fé- lagar, og í félaginu starfaði hann af frábærum áhuga og dugnaði, bæði í heimabæ sínum, Hafnar- firði, og á vettvangi heildarsamtak- anna. Eiginkona Einars, Jóhanna Brynjólfsdóttir, tók ríkan þátt í þessu starfi með honum. Einar var í stjórn Slysavarnafé- lagsins í um 30 ár og síðustu 4 árin sem forseti þess. I viðamiklu starfí félagsins komu áherslur Ein- ars víða fram, ekki síst áhugi hans á að efla_ unglingastarf innan fé- lagsins. Á það lagði hann mikla áherslu í forsetatíð sinni og sá það sannarlega vaxa og blómgast. Ósjaldan viðhafði hann þau orð að unga fólkið væri framtíð félagsins og að því þyrfti að hlúa vel. Síðastliðin átta ár starfaði ég við hlið Einars í stjórn Slysavarnafé- lagsins. Þetta var tími mikilla um- brota innan félagsins, þar sem m.a. ungt fólk með ný viðhorf kvaddi sér hljóðs og átök urðu á milli hins nýja og hins gamla. Ekki voram við Einar alltaf sammála um leiðir en markmið.n voru þau sömu, að efla starf Slysavarnafélagsins. Þó var það aldrei svo að við kæmumst ekki að niðurstöðu sem báðir gátu sætt sig við. Á þessum tíma tókst með okkur mikil og traust vinátta sem seint fæst fullþökkuð. En við deildum saman fleiri áhugamálum því náttúra íslands var okkur báðum afar hugleikin. Fyrir nokkrum áram byggðum við fjallaskála, hvor við hlið hins, við Tjaldafell norðan Skjaldbreiðar. Þar kom glöggt í ljós athafnagleði Einars við að gera þennan sælureit sem best úr garði. Mér er sérlega minnisstætt að í sumar var boruð rannsóknarhola eftir köldu vatni skammt frá skálunum. Þegar að ég hringdi í Einar og greindi honum frá því fór hann strax að hugleiða hvort og hvernig hægt yrði að nýta kalda vatnið úr holunni fyrir skál- ana, eftir að rannsóknum lyki. Slík- ur var Einar, honum var tamt að horfa til framtíðarinnar. Hanna mín! Það var notaleg stund, þó stutt væri, þegar við komum við í sumarbústaðnum ykk- ar norður í Eyjafirði nú um dag- inn. Skal engan undra að þessi notalegi staður hafi heillað ykkur til sín, það sá ég best þegar Einar sýndi mér bryggjuna og aðrar framkvæmdir og ekki síður allan gróðurinn sem teygði sig hátt til himins. Við Anna sendum þér og börnum ykkar okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Genginn er góður drengur. Garðar Eiríksson, gjaldkeri Slysavarnafélags íslands. Fregnin um andlát vinar míns, Einars Sigurjónssonar, var vissu- lega óvænt. Þó Einar hefði um nokkurt skeið barist við erfiðan sjúkdóm hvarflaði ekki að sú hugs- un að kallið kæmi svo skyndilega. Á stundum sem þessum sefa ástvinir, vinir og samstarfsmenn sorgina við yl endurminninga. Og hér er margs að minnast. Leiðir okkar Einars lágu fyrst saman á vettvangi Slysavarnafélagsins. Þar hafði Einar þá staðið í fylkingar- bijósti um alllangt skeið og látið nokkuð að sér kveða. Uppreisnar- maður sem gekk oft gegn megin- straumnum. Boðberi nýrra tíma. Einn þeirra sem byggðu upp björg- unarstarfið í landinu. Einar var af kynslóð sem lagði ómælt af mörk- um fyrir félagið, kraftmikilli kyn- slóð, þar sem iðulega var hart tek- ist á um skoðanir, en sem út á við var samstætt afl sem skóp Slysa- varnafélaginu virðingu. Þessari kynslóð voru málefni Slysavarnafé- lagsins heilög. Þegar ný kynslóð knúði dyra, vildi aðrar starfsaðferð- ir, öðruvísi baráttu, mættust stálin stinn. Þar vildu margir hinna eldri síst hvika af hefðbundinni braut í baráttu fyrir hugsjónum félagsins, aðrir sáu að breyttir tímar kölluðu á nýjar aðferðir. Þannig bar fund- um okkar Einars saman; í neista- flugi ólíkra kynslóða. I straummiðju breytinganna stóðu fremstir í flokki Örlygur Hálfdanarson og Einar Siguijóns- son og tel ég á engan hallað þótt ekki séu aðrir nefndir hér. Þegar Örlygur hætti sem forseti félagsins árið 1992 kom það í hlut Einars að stýra Slysavarnafélaginu á vit framtíðarinnar. Það þurfti kjark- mann til þess að takast á við stjórn þessa félags í því umróti sem kyn- slóðaskiptin höfðu í för með sér. Aðferð Einars var sú að beina í einn farveg aðferðum nútímans og eldlegum áhuga frumheijanna. Með þetta að leiðarljósi sat Einar á forsetastóli Slysavarnafélags ís- lands í fjögur ár og þurfti oft að veijast og sækja í senn. Þá kom fyrir að meira var sagt en hollt var og minnist ég þess er svo harka- lega gneistaði á milli mín og hans að skynsemin fauk út um gluggann. Eftir þetta urðu mér ljósir mannkostir Éinars og í fram- haldinu tókst með okkur órjúfanleg vinátta. Einar var stoltur yfir því hlut- skipti að vera klettur í straumvatni mikilla umskipta, klettur sem svo mjög braut á. Megi minning Einars Siguijónssonar verða slysavarna- fólki á öllum aldri leiðarljós um- burðarlyndis og víðsýni. Um leið og ég bið algóðan Guð að sefa sorg ástvinanna og efla með þeim minninguna um góðan dreng þakka ég samfylgd góðs fé- laga og vinar. Ingi Hans Jónsson, ritari Slysavarnafélags Islands. Nú er fallinn frá mikilhæfur foringi, eldhugi og kær vinur okk- ar. Einar var í 25 ár formaður slysa- varnadeildarinnar Fiskakletts og var hann einnig einn aðalhvata- maðurinn að stofnun björgunar- sveitarinnar en stofnfundur sveit- arinnar var haldinn á heimili Ein- ars og Hönnu og var hann fyrsti formaður björgunarsveitarinnar og síðan lengst af í stjórn sveitarinnar sem varaformaður. Einar var sannarlega einn af frumkvöðlunum í björgunarsveitar- starfí eins og það er í landinu í dag og samstarf hans og Bjarna Björns- sonar varð okkur Fiskaklettsmönn- um happadijúgt, saman tókust þeir á við mörg og stór verkefni sem við njótum góðs af í dag. Þeir voru alltaf stórhuga saman og byggðu hús og keyptu bíl, vélsleða, bát og fleira það sem þurfti til að reka góða björgunarsveit. Einar var hugmyndaríkur og fylginn sér og þó ekki væru alltaf allir sammála í hópnum voru flest- ar hans hugmyndir okkar stærstu framfaraspor. Einhveiju sinni var það að hugmynd kom upp um að fara útí flugeldasölu sem fjáröflun og var hann aðalhvatamaðurinn að því og alla tíð síðan hefur það ver- ið aðal tekjulind björgunarsveitar- innar, og allt til dagsins í dag hafa þau hjónin borið hitann og þungann af því að flytja inn flugelda fyrir margar ef ekki flestar björgunar- sveitir Slysavarnafélagsins. Einnig var Einar einn aðal tals- maður þess að Fiskaklettur fengi nytjarétt af Krísuvíkurbjargi og þangað kom hann með okkur á hveiju vori í eggjatöku og dugnað- ur hans og orka smitaði útfrá sér og það að njóta útiverannar og vera í snertingu við náttúruna var eitt af því sem við lærðum af hon- um, ferðalög og útivist var hans aðaláhugamál og óhætt er að segja að Einar hafí leitt bæði björgunar- sveitina og unglingadeildina um landið þvert og endilangt hvort sem var að sumri eða vetri til og það var sama hvert við komum alltaf þekkti hann hveija þúfu eða hól með nafni og margir hafa lært að þekkja landið af samvistum við hann, og alveg frá því að hann sannfærði okkur um að rétt væri að reka unglingadeild í tengslum við björgunarsveitina hefur hann haft veg og vanda af vetrarferðum fyrir hana á hveijum vetri, auk þess sem hann hefur verið helsti hvatamaður að unglingastarfinu hjá Slysavarnafélaginu á landsvísu. Einar hefur í marga áratugi ver- ið í stjórn Slysavarnafélagsins og það fyllti okkur stolti og ánægju þegar hann var valinn til að vera forseti félagsins á þingi hér í Hafn- arfirði fyrir nokkrum áram og fannst okkur hann vera vel að því kominn, því fáum mönnum á Ís- landi hefur í gegnum tíðina auðn- ast að vera málstað slysavarna og björgunarstarfa jafn trúr og hann var. Gæfa hvers manns fer oft eftir því hvaða förunauta hann eignast í lífinu og auðvitað er kvonfang hvers manns það mikilvægasta fyr- ir hann sjálfan en þar var Einar einstaklega heppinn. En það var í senn okkar heppni líka því alltaf hafa þau hjónin verið boðin og búin að gera það sem þurfti og oft miklu meira en það og eins hefur öll fjölskyldan tengst þessu starfí með einum eða öðrum hætti. Elsku Hanna, Brynja, Siguijón og Ijölskyldur ykkar, megi guð styrkja ykkur öll í sorg ykkar. Félagar í slysavarnadeild og björgunarsveit Fiskakletts. Kveðja frá Hraunprýði Einar Siguijónsson, fyrryerandi forseti Slysavarnafélags íslands, er látinn langt um aldur fram. Einar gekk ungur til liðs við SVFÍ og helgaði hugsjón þess krafta sína til hinstu stundar. Hann var þeirrar gerðar sem gaf sig af- dráttarlaust í þau verkefni sem hann tók að sér og hlífði sér hvergi. Um áratuga skeið átti Einar sæti í stjóm SVFÍ þannig að öll stærstu verkefni félagsins eru unn- in í stjórnartíð hans. Hann hafði ákveðnar skoðanir á öllu er varðaði öryggi og því sem betur mátti fara í þeim málum, fylgdi skoðunum sínum fast eftir og fékk því miklu áorkað. Flest þau verk sem unnin hafa verið hér í Hafnarfirði í þágu SVFÍ era samofin lífi Einars. Um áratuga skeið var tæpast nokkrum ráðum ráðið í slysavamamálum hér í bæ að ekki kæmi heimili Einars og Hönnu þar við sögu. Þar var lagt á ráðin og verkin undirbúin. Heimili þerra hjóna var í senn fé- lagsheimili og uppeldisstöð ungra liðsmanna SVFI en unglingadeild- irnar og starfsemi þeirra stóðu alla tíð hjarta hans næst. Við Hraun- prýðiskonur minnumst hans í farar- broddi, hvatningar hans og bjart- sýni. Það viljum við þakka nú á skilnaðarstundu. í setningarræðu Einars á síðasta landsþingi félags- ins fórust honum svo orð: Getur nokkurt félag átti betri varasjóð en öflug ungmenni sem fylkja sér undir merki félagsins. Einar skildi til fulls þau orð Þor- steins Erlingssonar: „ef æskan vill rétta þér örvandi hönd þá ert þú á framtíðarvegi" og í þeim anda starfaði hann. I einkalífi sínu var Einar hamingjumaður. Hann bjó

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.