Morgunblaðið - 08.11.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 47
Málþing
um íslenskt
bændasam-
félag
FÉLAG um átjándu aldar fræði held-
ur málþing sem ber yfirskriftina:
„íslenskt bændasamfélag á upplýs-
ingaöld" laugardaginn 9. nóvember
í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2.
hæð. Málþingið hefst kl. 13.30 og
gert er ráð fyrir að því ljúki um kl.
16.30.
Það skeið í sögu íslands sem kennt
er við upplýsingaöld, hina fjölþjóð-
legu hugmyndastefnu er oft talið ná
yfír tímabilið 1770-1830.
Á málþinginu verða flutt fjögur
erindi sem hér segir: Örn Hrafnkels-
son, sagnfræðingur Sýslusafns Aust-
ur-Skaftafellssýslu: Útgerð og
bændasamfélag á upplýsingaöld,
Davíð Ólafsson sagnfræðingur: Að
skrá sína eigin tilveru. Upphaf dag-
bókaskrifa á íslandi og tengsl þeirra
við upplýsinguna, Inga Huld Hákon-
ardóttir sagnfræðingur: „Hún Rann-
veig segir að guð hafí skapað mig.“
Af hlut kvenna í miðlun menningar
á upplýsingaöld.
Flutningur hvers erindis tekur um
20 mínútur. Að erindunum loknum
verða almennar umræður. Veitingar
verða fáanlegur í kaffistofu Þjóðar-
bókhlöðu á 2. hæð. Öllum er heimill
ókeypis aðgangur.
Basar Kvenfé-
lags Grensás-
sóknar
KVENFÉLAG Grensássóknar heldur
sinn árlega basar og kökusölu í safn-
aðarheimilinu á morgun laugardag
sem hefst kl. 14.
Á boðstólum verða hinir margvís-
legustu hlutir, kökur, heitar vöfflur
og kaffisopi.
Kvenfélagið hefur stutt nýju kirkj-
una dyggilega með rausnarlegum
gjöfum en hún verður vígð þann 8.
desember nk.
Basarmunum og kökum er hægt
að skila inn eftir kl. 17 í dag og kl.
10 í fyrramálið.
Fyrirlestur um
ítrekaðan missi
á vegum Nýrrar
dögunar
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, stendur að fyrirlestri
í safnaðarheimili Breiðholtskirkju á
morgun laugardag kl. 13.30.
Páll Eiríksson, yfirlæknir í Sví-
þjóð, mun fjalla þar um ítrekaðan
missi, sem sé missi fleiri en eins
ástvinar ítrekað eða samtímis.
ítrekaður ástvinamissir getur
reynst ákaflega erfiður fyrir þá sem
eftir lifa og með þessum fyrirlestri
reyna samtökin í fyrsta skipti að
mæta þörf syrgjenda sem verða fyr-
ir ítrekuðum missi.
Páll Eiríksson hefur látið sig mál-
efni syrgjenda mjög varða und-
anfarna áratugi og býr yfir mikilli
þekkingu á málefninu.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir og aðgangur er ókeypis.
Listin að elska
o g njóta
„NÁMSKEIÐ um listina að elska og
njóta verður haldið sunnudaginn 10.
nóvember kl. 13-18 að Hótel Örk í
Hveragerði. Leiðbeinendur eru Bragi
Skúlason, sjúkrahúsprestur og Anna
Valdimarsdóttir, sálfræðingur.
Anna hefur rekið sálfræðistofu í
Reykjavík frá 1982 og haldið fjöl-
mörg námskeið fyrir konur. Á annað
þúsund konur hafa sótt námskeið
hennar. Bragi hefur sinnt málefnum
karlmanna og unnið með ýmsum
stuðnings- og sjálfshjálparhópum
m.a. sálgæslu, áfallahjálp og sorgar-
vinnu. Þá hefur Bragi unnið að um-
bótum í starfsmannamálum Ríkis-
spítalanna.
Um 130 manns hafa sótt tvö
fyrstu námskeiðin um Listina að
elska og njóta. Vegna hinnar miklu
aðsóknar hefur verið ákveðið að
halda fleiri námskeið," segir í frétta-
tilkynningu.
Hlaupið í Skeið-
ará skoðað
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist verður
með dagsferð vegna hlaupsins í
Skeiðará laugardaginn 9. nóvember.
Lagt verður af stað frá BSÍ kl. 8
á laugardagsmorguninn. Ekið verður
austur Lómagnúp þar sem hægt er
að komast í beina snertingu við þær
hamfarir sem þarna hafa átt sér stað.
Fararstjóri er Gunnar Hólm Hjálm-
arsson. Tilkynna verður um þátttöku
á skrifstofu Útivistar. Allir velkomnir.
Náttúruhamf-
araferð FI
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
dagsferðar austur að Skeiðarársandi
iaugardaginn 9. nóvember.
Lagt verður af stað kl. 7 frá
Umferðarmiðstöðinni austanmegin
og Mörkinni 6. Ekið eins langt aust-
ur og leyfilegt er og ummerki hlaups-
ins skoðuð eftir því sem tök verða á.
Verð 3.200 og hálft gjald fýrir
börn. Allir velkomnir.
Auglýst eftir
vitnum að
árekstri
RANNSÓKNADEILD lögreglunnar
í Reykjavík auglýsir eftir vitnum
að árekstri sem varð við Suður-
Athugasemd við
umræðu á Alþingi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Ólöfu
Rún Skúladóttur, fréttamanni
fréttastofu Sjónvarps:
„Það kemur að því að jafnvel þeim
sem seinþreyttir eru til vandræða
blöskrar. Umræða í kjölfar Kast-
ljóss, fréttastofu Sjónvarps, um
fíkniefnaneyslu unglinga hefur tekið
á sig undarlega mynd á köflum.
Félagsmálaráðherra vænir fjölmiðla
um að gera of mikið úr vandanum,
ræðst að sendiboðanum í stað þess
að horfast í augu við vandann og
orðaskipti milli stofnana í „kerfinu“
um málið virðast fremur snúast um
það hvort þau ungmenni undir sext-
án ára sem eiga í verulegum vanda
vegna fíkniefna séu einhvetjum tug-
um fleiri eða færri.
Ranglega er vitnað í Kastljós í
Morgunblaðinu í gær og víðar í
tengslum við svar við fyrirspurn á
Alþingi um fíkniefnaneyslu ung-
menna.
í Kastljósi var ekki fullyrð að 200
börn undir sextán ára aldri væru
ofurseld fíkniefnum. í Kastljósi var
sagt: „Fullyrt er að um 200 börn
undir sextán ára aldri séu í harðri
neyslu hér í Reykjavíkurborg. Það
er fyrir utan þau sem byijuð eru
að fikta við fíkniefni og fyrir utan
alla neytendurna í nágrannabyggð-
arlögum og úti á landi.“ í Kastljósi
var ekki farið með töluna 200 sem
staðreynd heldur vitnað til þess að
„fullyrt væri“. Þar er mikill munur
á. Umræðan að undanförnu hefur
sýnt svo ekki verður um villst að í
raun vita menn ekki fyrir víst
hversu margir eiga í verulegum
vanda þótt ýmsar stofnanir sem
koma að málinu viti hversu mörg-
um þær hafa haft afskipti af. Rétt
skal eftir haft.“
FRÉTTIR
landsbraut 30 fimmtudaginn 31.
október um kl. 14.
Japanskur bíll, grár að lit, ók
austur Suðurlandsbraut og ætlaði
að beygja inn að húsi Rafmagns-
veitu Reykjavíkur en stöðvaði til
þess að hleypa út skutbíl af gerð-
inni Subaru, vínrauðum að lit. Þá
varð árekstur milli Subaru-bílsins
og brúndrapplitaðs Chevrolet-bíls.
Þeir sem urðu vitni að árekstrin-
um og einkum og sér í lagi ökumað-
ur gráa japanska bílsins eru beðnir
um að hafa samband við rannsókna-
deild lögreglunnar í Reykjavík.
Arleg kaffisala
Húnvetninga-
félagsins í
Reykjavík
HÚN VETNIN G AFÉLAGIÐ í
Reykjavík verður með kaffisölu í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, 2.
hæð, sunnudaginn 10. nóvember kl.
15.
Húnakórinn kemur og syngur
nokkur lög. Allur ágóði af kaffisöl-
unni rennur til starfsemi fyrir eldri
félaga.
Félagið er með félagsvist alla
laugardaga kl. 14 í Breiðfirðingabúð.
Ekki átt við
Casablanca
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá eigendum
skemmtistaðarins Casablanca:
„Að gefnu tilefni vilja forráða-
menn Casablanca við Lækjargötu
koma því til skila að ekki er átt við
skemmtistaðinn Casablanca í frétt
er birtist í Morgunlaðinu á bls. 9
þann 6. nóvember sl.
Vilja forráðamenn benda á að
Casablanca er opið um helgina eins
og vanalega."
Trúnaðarbréf
afhent
EIÐUR Guðnason sendiherra afhenti
24. október sl. Kiro Gligorov, forseta
Makedóníu,_ trúnaðarbrétt sitt sem
sendiherra íslands í Makedóníu með
aðsetur í Ósló.
Yfirlýsing'
MORGUNBLAÐINU hefur borst
eftirfarandi frá forráðamönnum
skemmtistaðarins Tunglsins:
„Vegna fréttar í Morgunblaðinu
um lokun skemmtistaðar á Lækjar-
götunni 6. nóvember sl. viljum við
benda á að Tunglið er opið fyrir
almenning á föstudagskvöldið en
einungis lokað fyrir vínveitingar á
laugardagskvöldinu en þá verður
haldinn skóladansleikur. Þessi lok-
un dómsmálaráðuneytisins á
áfengisveitingar staðarins á því ein-
göngu við um laugardagskvöldið
9. nóvember."
Yfirlýsing
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi samþykkt frá Prestafé-
lagi íslands:
„Stjórn Prestafélags íslands hefur
fjallað um fréttaflutning Stöðvar 2
af lausnarbeiðni sóknarprestsins á
Þingvöllum.
Stjórnin harmar að einkamál emb-
ættismannsins séu dregin inn í opin-
bera umfjöllun með þeim einstæða
hætti sem þar var gert og varar við
fréttamennsku af þessum toga.“
LEIÐRÉTT
Ekki mér
í FYRIRSÖGN í Morgunblaðinu í
gær var vitlaust farið með fleyg
orð. Þar var vitnað til orða stjúp-
unnar í ævintýrinu um Mjallhvíti
og sagt:„Spegill, spegill, herm þú
mér...“ en rétt er auðvitað:„Spegill,
spegill, herm þú hver, hér á landi
fegurst er...“ Morgunblaðið biðst
afsökunar á þessum mistökum.
ELÍN Guðmundsdóttir og Elísabet F. Eiríksdóttir.
Um undrageim
UM undrageim er yfirskrift tón-
leika sem Elísabet F. Eiríksdóttir
sópransöngkona og Elín Guð-
mundsdóttir píanóleikari halda
um helgina í Félagsheimilinu
Tjarnarborg, Ólafsfirði og í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju og í Norræna húsinu í
Reykjavík á þriðjudag.
Yfirskrift tónleikanna, Um
undrageim, er samhljóða titli
nýútkominnar geislaplötu með
íslenskum sönglögum sem Elisa-
bet og Elín hafa sent frá sér. Á
efnisskrá tónleikanna verða
kunn sönglög og einnig lög sem
heyrast sjaldnar, eftir höfunda
frá Bjarna Þorsteinssyni til Jór-
unnar Viðar og Jóns Ásgeirsson-
ar.
Elísabet og Elín eru kennarar
við Söngskólann íReykjavík.
Tónleikarnir í Ólafsfirði verða
haldnir laugardaginn 9. nóvem-
ber kl. 17, á Akureyri sunnudag-
inn 10. nóvember kl. 17 og í
Reykjavík þriðjudaginn 19. nóv-
ember kl. 20.30.
25. útdráttur 7. nóv. 1996
íbúðarvinningur
Kr. 2.000.000________Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6309
Ferðavinningar
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
23843
26061
41029
75258
Ferðavinningar
Kr. 50.000 1 O o o L )0 (tvöfaldur)
16990 37990 45144 64000 65658 75583
28774 41864 57159 64764 72470 78182
Húsbúnaðarvinningar
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur
218 8730 19002 29382 37763 47454 56892 70135
414 8789 19286 29427 37812 48160 57413 70392
515 9429 19324 29491 38469 48420 59355 71102
520 10276 19584 29835 39179 48427 60317 71514
929 10392 19785 29960 39241 48479 60806 71520
987 10842 20386 30204 39327 49213 60839 71606
1117 11024 20528 30228 40109 49601 61279 72110
1241 11150 21208 30907 40140 50037 61606 72490
1682 11590 21678 31025 40188 50833 61696 73451
1710 12157 21723 31137 40573 50929 62662 73692
2077 12413 21728 31531 40794 51372 62688 74784
2522 12460 22089 31865 40826 51408 62958 75005
2559 12643 23536 32262 41001 51520 62979 75078
3061 13220 23868 32321 41085 52170 63525 75351
3131 14327 24348 32335 41118 52557 63657 75496
3149 14447 24959 32361 41302 52725 63853 75996
3549 14535 25103 32852 41454 53239 64506 76060
3563 14717 25393 32991 41638 53804 65081 76377
4073 15075 25555 33586 41720 53852 65238 76444
4269 15487 26290 34278 42386 53990 65500 77430
4366 15687 26349 34350 42569 54142 65722 77744
5152 15768 26505 35872 43094 54362 65873 78202
5233 16018 26882 36443 43896 55118 66519 78312
6632 16041 27186 36492 44374 55238 67470 78528
6744 16831 27285 36789 44859 55771 67583 79149
6991 17354 27294 36980 45350 55824 67696 79613
7694 17662 27950 37376 46188 55919 68218 79785
7802 18067 28134 37463 46460 56443 68656 79917
8310 18645 29329 37608 46541 56719 69189
8373 18654 29379 37664 46954 56820 69976
Heitnasiða á Intemeti: Http//www.itn.is/das/