Morgunblaðið - 08.11.1996, Page 54
. 54 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
mnmmEmsi
HASKÖLABÍÓ
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
KLIKKAÐI PROFESSORINN
LÍL2)® U
★ ★★
A.I.MBL
Mynd sem lifgar
uppá tilveruna.
H.K. DV^
Harðsvíraður málaliði tekur að sér að uppræta eiturlyfjahring
sem hefur aðalbækistöðvar í gagnfræðaskóla í suður Flórída.
Aðalhlutverk: Tom Berenger (Platoon, The Big Chill), Ernie
Hudson (Congo, The Crow), Diane Venora (Heat)
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára.
SHANGHAI TRIAD
SHANGHAI GENGIÐ
HTTP://WWW.
THE ARRIVAL.COM
DAUÐUR
M. æ:
Sýnd kl. 5 og 7.
Nýasta
mynd
meistara
Zhang
Yimou
(Rauði
lampinn)
INNRASIN
IHARLÍE SHEEN
★ ★★
(| Taka 2
Sýnd kl. 9 og 11.15.
eftir Jim Jarmusch. Aðalhlutverk Johnny
Depp, Gabriel Byrne og Robert Mitchum.
Tónlist: Neil Young.
Sýnd kl. 9.
BREAKING THE WAVES
r ★★★★
^ AS Bylgjan
k ÍfÍ| ■ ÁÞ Dagsljós
I v Aflr
„Heldur manni hugföngnum"
★ ★★l/2 SV MBL
„Brimbrot er ómissandi"
★ ★★ 1/2 GB DV
Sýnd kl. 6 og 9.
Það blístrar
í vömbinni
BÍÓFÍKLAR standa nú væntanlega á
blístri að aflokinni átveislunni miklu,
þar sem er Kvikmyndahátíð Reykjavík-
ur. Sjaldan eða aldrei hefur hlaðborðið
verið stærra og fjölbreyttara. Jafnvel
þeir sem endalaust geta kýlt vömb sína
af kvikmyndum hafa ekki getað bragð-
að á öllum réttunum fimmtíu. Því er
hér með skorað á ísiensku sjónvarps-
stöðvamar að tryggja sér rétt á sem
flestum þeirra bestu og forvitnilegustu
sem hátíðin bauð upp á og bregða þeim
á eigin matseðla sem allra fyrst; þeir
eru áreiðanlega oftast matarmeiri en
undanrennan úr bandarísku skyndibita-
fabrikkunni. Takk.
Föstudagur
Sjónvarpið ►22.10 Bandaríska leik-
stjóranum George Roy Hili gekk allt í
haginn á árunum kringum 1970 með
pottþéttum myndum á borð við Butch
Cassidy And The Sundance Kid og The
Sting. Hann náði sér lítt á strik eftir
það og myndgerð hans á pólitískri
spennusögu Johns Le Carré Litli
trumbuslagarinn (The Little Drumm-
er Girl, 1984) berst vítt og breitt um
róstusaman heim en ferðin er ekki sér-
lega grípandi. Diane Keaton er misráð-
in í aðalhlutverkið. ★ ★
Stöð 2^13.00 og 0.20 Sá feitlagni
skapgerðarleikari Jack Weston ogRita
Moreno eru það skemmtilegasta við
Hótel Ritz (The Ritz, 1976), sem Ric-
hard Lester kvikmyndaði eftir farsa
Terence McNally, um rugl og ringul-
reið í baðhúsi fyrir homma. Dálítið leik-
sviðslegt. ★★
Stöð2 ►21.00BillCosbyogRobert
Culp léku lunkið spæjarapar í sjón-
varpssyrpunni vinsælu I Spy undir lok
sjöunda áratugarins. Þeir snúa aftur -
eldri en vonandi ekki þreyttari - í
Spæjarinn snýr aftur (I Spy Retums,
1994) og eru þar að störfum í Vínar-
borg. Umsagnir liggja ekki fyrir. Leik-
stjóri Jerry London.
Stöð 2 ►22.50 Hin nýja Eden (New
Eden, 1994) er framtíðarmynd Stöðvar
2 þessa helgina og fjailar um átök
vondra og góðra á fangaplánetu árið
2237 með einhvers konar Biblíuskír-
skotun til aldingarðar Adams og Evu.
Ég hef ekki séð þessa en Martin og
Petter gefa ★ ★ ★ (af fimm möguleg-
um). Leikstjóri Alan Metzger.
Stöð 3 ►21.05 Engar umsagnir
liggja fyrir um sannsögulegt hjóna-
bandsdrama Heillum horfin (Seduced
By Madness: The Diane Borchardt
Story), sem sýnd verður í tveimur hlut-
um, í kvöld og annað kvöld. í aðalhlut-
verkum eru úrvalsleikaramir Ann-
Margret og Peter Coyote.
Stöð 3 ►22.35 Ég hef ekki séð
dramatísku spennumyndina Dauða-
sök (Too Young To Die, 1994) en
Martin og Potter segja að Juliette Lew-
is o g Brad Pitt endurleiki þar sömu
hlutverk og þau fóru með í myndinni
Kalifornia. Þau gefa ★ ★. Leikstjóri
er Robert Markowitz.
Stöð 3 ►O .05 Erfítt samband
mæðgna tekur á sig nýja mynd þegar
dóttirin er grunuð um morð íTrúnað-
arbresti (Vioiation OfTrust). Engar
umsagnir og lítt þekktur leikhópur.
Sýn ^21.00 - Sjá umfjöllun í ramma.
Sýn ►23.30 Spennumyndin Flóttinn
(Escape) er sögð fjalla um myrkraverk
í friðsælum smábæ. Leikstjórinn Ric-
hard Styles hefur gert ódýrar útkjálka-
myndirsem sumara.m.k. hafaverið
hnýsilegar. Þessa þekki ég ekki - og
enginn annar sem ég veit um.
Laugardagur
Sjónvarpið ^21.30 Enn rýnir munk-
ur Dereks Jacobi í miðaldamorðgátur
í bresku sjónvarpsmyndinni Bróðir
Cadfael - Beinafundur (CadfaehA
Morbid Taste ForBones), eftir bókum
Ellis Peters.
Sjónvarpið ►22.50 Spennumyndin
Losti (Sea OfLove, 1989) kom A1
Pacino aftur á danskortið eftir nokkurn
tíma á bekkjunum, enda er hér um
seiðmagnaða raðmorðgátu að ræða.
Afburða túlkun Pacinos á miðaldra
löggu með einkalífsvandamál, Ellen
Barkin er lostafull og dularfull kona
sem fer að kynda ofninn hans og aðrir
leikarar eru vel valdir. Harold Becker
leikstjóri heldur þétt um fléttuna og
nýtir vel titilslagarann Sea Of Love
með Phil Phillips. ★ ★ ★
Stöð 2 ► l 5.00 og 0.35 Nokkra
skemmtun má hafa af bandarísku
dellugamanmyndinni Strýtukollum
(Coneheads, 1993) um kostulega geim-
verufjölskyldu sem verður skipreika á
jörðinni. Dan Aykroyd og Jane Curtin
eru í fyndnum gervum en í heildina er
þetta heldur rafmagnslítið glens. Leik-
stjóri Steve Barron. ★ ★
Stöð 2 ^21.20 Rafmagnsleysið teyg-
ir sig því miður inn í rómantísku mynd-
ina Astarævintýri (Love Affair, 1994),
endurgerð An Affair to remember sem
stöð 2 sýndi nýverið. Hjónin Warren
Beatty og Annette Bening skapa lítið
meira en lágspennu þar sem þau verða
skotin (hvort í öðru) um borð í flug-
vél. Katharine Hepburn kveikirörlítinn
gamaldags funa sem frænka Beattys.
VICTOR Mature sem uppljóstrarinn í Kiss Of Death - Ric-
hard Widmark er rétt handan við hornið.
Illmennskan uppmáluð
sérflokki þessa helgina
-er sýning SYNAR á glæpamyndinni
Koss dauðans (Kiss Of Death, 1947, föstudagur ►21.00), sem kom
Richard Widmark fyrir á stjörnuhimninum. Widmark er sérlega eftirminnileg-
ur í hlutverki Tommys Udo, samviskulauss leigumorðingja sem settur er
til höfuðs Victors Mature eftir að sá síðamefndi ákveður að koma upp um
félaga sína í glæpum. Atriði þegar Widmark flissandi hrindir gamalli konu
í hjólastól niður tröppur er frægt eða alræmt, eftir því hvernig á það er litið,
og ýmsir leikarar hafa tekið sjóðandi illmennskuna í túlkun Widmarks sér
til fyrirmyndar - og auðvitað bætt gráu ofan á svart. Þessi svart/hvíta
mynd Henrys Hathaway kann að virðast gamaldags að ýmsu leyti nú, en
hún er þétt og þrungin andrúmslofti, vel samin af Ben Hecht og Charles
Lederer. Hún gat af sér þokkalega endurgerð í fyrra undir stjórn Barbets
Schroeder. Hathaway var góður fagmaður sem einbeitti sér einkum að
vestrum og spennumyndum, eins og Johnny Apollo, Call Nothside 777 og
Niagara. ★★★
Leikstjóri Glenn Gordon Caron. ★ ★
Stöð2 ►23.10 Á valdi hins illa
(Seduced By Evil, 1994) er ósköp löm-
uð spennumynd um blaðakonu sem
haldin er anda aftan úr forneskju.
Aumingja Suzanne Somers fær sig
hvergi hrært í aðalhlutverkinu. Leik-
stjóri Tony Wharmby. ★
Stöð 3 ►20.50 - Heillum horfin -
seinni hluti (sjá föstudag).
Stöð 3 ►22.20 og 23.50 Umsagnir
vantar um spennumyndimar Milli
tveggja elda (Caughtln The Cross-
fire) og Vestri að austan (Americ-
anski Blues). Sú fyrri er sakamálamynd
um morð og spillingu í New Orleans
og sú seinni um bandaríska löggu í fríi
í Moskvu sem flækist í baráttuna við
þarlenda glæpastarfsemi. Lítt þekktir
leikarar í báðum.
Sunnudagur
Sjónvarpið ►22.35 Úrvalsleikarar á
borð við Alan Howard og Joss Ackland
taka þátt í uppfærslu BBC á leikriti
Shakespeares Kóríólanus. Leikstjóri
Elijah Moshinsky.
Stöð 2 ►22.00 Framhaldsmyndin
Hættuferð (Lie Down With Lions,
1994) er byggð á spennusögu Kens
Follett og flytur ástardrama inn í stríðs-
ástandið í Azerbædjan árið 1993. Góð-
ir leikarar úr ýmsum áttum - Timothy
Dalton, Marg Helgenberger, Ni Jurgen
Prochnow og Omar Sharif. Leikstjóri
er Bretinn Jim Goddard. Engar um-
sagnir. Seinni hlutinn er á dagskrá
annað kvöld.
Stöð2 ►1.00 í skjóli myrkurs
(Afraid Of The Dark, 1967) er orðin
sígild háspennumynd og hefur getið
af sérýmis konareftirlíkingar. Audrey
Hepburn er afbragð í hlutverki blindrar
húsmóður sem ætti að verða auðveld
bráð. En leikur kattarins að músinni
snýst við. Leikstjóri Terence Young.
★ ★ ★
Sýn ►23.00 Ofbeldi og blóðsúthell-
ingar eru töluverðar í löggumyndinni
Sérdeildin (S.I.S., öðru nafni Extreme
Justice, 1993) en hún er viðunandi af-
þreying fyrir unnendur slíks hasars.
Lou Diamond Phillips og Scott Glenn
eru harðjaxlar í sérstakri dauðasveit
lögreglunnar í Los Angeles. Leikstjóri
Mark L. Lester. ★ ★
Árni Þórarinsson
Pamela
auglýsir
pizzur
► FLATBÖKUKEÐJAN Pizza
Hut hefur undirritað samning
við Strandvarðastjörnuna Pam-
elu Anderson Lee um gerð sjón-
varpsauglýsinga sem sýna á í
Bretlandi og víðar í Evrópu.
„Við leituðum lengi að einhverj-
um sem gæti höfðað til sem
flestra Evrópubúa og við teljum
að Pamela sé rétta manneskjan,“
sagði Gary Haigh, markaðsstjóri
Pizza Hut í Bretlandi. Auglýs-
ingunni verður sjónvarpað í
Bretlandi í febrúar næstkomandi
og í Evrópu í beinu framhaldi.
Fyrirtækið hefur ekki viljað láta
neitt uppi um hve mikið það
borgar stjörnunni fyrir leikinn í
• auglýsingunni sem áætlað er að
verði 30-40 sekúndna löng.
Pamela er 29 ára gömul. Hún
er einkum þekkt fyrir leik sinn
í sjónvarpsþáttunum Strand-
vörðum auk þess myndir af
henni hafa birst á forsíðu karla-
tímaritsins Playboy oftar en
nokkrum öðrum, alls sex sinn-
um.
HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA