Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 60

Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 60
HEIMILISLÍNAN - Heildarlausn ájjármálum einslaklinga ($) BÚNADARBANKI ISIANDS JteWii£cL -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NhTFANG MBL(SCENTRVM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK STARFSMENN Vegagerðar ríkisins fóru að Skeiðarárbrúnni í gær til þess að undirbúa viðgerðirnar. Morgunblaðið/Golli Viðgerð á veginum yfir Skeiðarársand að hefjast Flokksþing Alþýðuflokksins Tvö framboð til vara- formanns ÁSTA B. Þorsteinsdóttir varaþingmaður Alþýðu- flokksins og Gunnar Ingi Gunnarsson, formaður Al- þýðuflokksfélags Reykjavík- ur, lýstu yfir í gær að þau gæfu kost á sér í kjöri vara- formanns Alþýðuflokksins á flokksþinginu, sem hefst í Perlunni í Reykjavík í dag. Konur styðja Ástu 28 konur sem sátu lands- fund Sambands alþýðuflokks- kvenna, sem haldinn var í gærkvöldi, samþykktu að styðja framboð Ástu B. Þor- steinsdóttur til varafor- manns. Mikil óvissa ríkir um kosningu í æðstu embætti flokksins en Sighvatur Björg- vinsson og Guðmundur Árni Stefánsson alþingismenn eru báðir í framboði til formanns. ■ Kosningaskjálfti/ll BRAÐABIRGÐAVIÐGERÐ á veg- inum yfír Skeiðarársand hefst í dag. Rögnvaldur Gunnarsson, verkfræð- ingur hjá Vegagerðinni, segir að byrjað verði á lagfæringum við Skeiðará og stefnt sé að því að leggja veg upp á brúna og nýta um 250 metra af henni. Margvíslegir erfiðieikar mæta vegagerðarmönnum á Skeiðarár- sandi á næstu dögum og vikum. Einn af þeim er að losna við ísjaka sem eru víða í vegastæðinu, sérstaklega við Gígju. Rögnvaldur sagði að sum- ir þeirra væru það stórir að ýtur ættu í vandræðum með að hagga þeim. Stærstu jakarnir væru á stærð við einbýlishús og fleiri tonn að þyngd. Auk þess væru sumir fastir í sandinum. Rögnvaldur sagði að Skeiðarár- sandur væri þakinn aur, fínum og grófum. Sumt af honum væri ekki gott efni í vegi og það kynni að vera að þetta kæmi til með að valda erfið- leikum. Þetta væri hins vegar ókann- að ennþá. Mestallt efni í vegi og vamargarða á Skeiðarársandi er tek- ið af sandinum sjálfum. Víða er efn- ið það gott að hægt er að ýta því upp við vegastæðið. Annars staðar þarf að flytja það til með bílum. Skeiðarárbrú verður strax tengd Ýtur og önnur tæki sem koma á Skeiðarársand í dag og næstu daga byija austanmegin á sandinum og leggja vegarslóða að Skeiðarárbrú. Rögnvaldur sagði stefnt að því að nota um 250 metra af brúnni til að byija með. Þar sem einn stöpull er farinn undan brúnni að austanverðu þarf að taka veginn niður af brúnni við eitt útskotið. Brúin er í átta metra hæð og ekki er hægt að fylla að henni með venjulegum hætti þar sem enda- stólpamir fóru í hlaupinu. Því þarf að leggja litla brú af fyllingunni og inn á Skeiðarárbrú. Rögnvaldur sagði að til skoðunar væri að taka niður gaml- ar biýr á Fjallsá og Hrútá, sem eru austan við Skeiðarársand og ekki leng- ur í notkun, og nota þær við þá bráða- birgðaviðgerð sem framundan væri. Nákvæmir útreikningar á kostnaði við bráðabirgðaviðgerð liggur ekki fyrir, en Rögnvaldur sagði að gengið væri út frá þvi að kostnaðurinn næmi um 200 milljónum króna. ■ Ekki sjálfgefið/7 ■ Kort/30-31 Endurskoðun lögræðislaga Geti falið ráðsmanni fjárráð sín TÍMABUNDIN lögræðissvipting, fjáræðissvipting bundin við tiltekn- ar eignir og umsjón ráðsmanns með eignum verða nýmæli í íslenskum lögum ef tillögur nefndar dóms- málaráðherra um endurskoðun lög- ræðislaganna verða samþykktar á Alþingi. Dómsmálaráðherra skipaði nefnd árið 1993 til að vinna að endurskoð- un laganna og stefnir hún að því að ljúka störfum fyrir áramót. Von er á frumvarpi til Alþingis í fram- haldi af því sem kveður á um mild- ari úrræði en lögræðissviptingu ein- staklinga sem eiga óhægt um vik með að sjá um persónuleg og fjár- hagsleg málefni. Núgildandi lög kveða á um allsheijar sviptingu fjár- ræðis og/eða sjálfræðis, ogfæst það ekki aftur nema með dómi. Nefndin leggur til nýtt úrræði sem nota megi þegar við á í stað sviptingar fjárræðis, og gengur það út á að einstaklingur geti óskað eftir ráðsmanni við sýslumann til að hafa umsjón með eignum sínum á meðan á veikindum stendur. Þann tíma getur hann ekki ráðstafað eignum sínum. Nefndin gerir ráð fyrir að aldraðir verði í meirihluta þeirra sem munu kjósa að notfæra sér þetta nýja úrræði. Urræði í stað allsheijar svipting- ar er tímabundin lögræðissvipting, sem að mati nefndarinnar skapar grundvöll til að koma einstakling- um í meðferð á sjúkrastofnunum, til dæmis vegna geðsjúkdóms, mis- notkunar á áfengi eða öðrum vímu- efnum. Bundið við tilteknar eignir Allsheijar svipting fjárræðis, sem lagaskylda er að tilkynna um í lög- birtingarblaðinu, er hart ákvæði í sumum tilfellum. Nefndin leggur því til að hægt verði að binda ijár- ræðissviptingu við tilteknar eignir eins og fasteign, bifreið og fjármuni hjá innlánsstofnunum, og yrði það skráð til dæmis í þinglýsingarbók. Nefndina skipa Drífa Pálsdóttir formaður, skrifstofustjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytis, Davíð Þór Björgvinsson prófessor í lögfræði við Háskóla íslands og Páll Hreins- son, aðstoðarmaður Umboðsmanns Alþingis. ■ Hve lengi/B3 Flugvirkjar Islandsflugs önnuðust skoðun samkvæmt ábendingu Sviknir boltar í festingum EFTIR að hafa fengið ábendingu um meinta svikna varahluti fundu flugvirkjaríslandsflugs 16-18 bolta í mótorfestingum Beech-flugvéla félagsins er ekki uppfylltu kröfur, sem til slíkra bolta eru gerðar. Skýrði Ellert Eggertsson, gæðastjóri í tæknideild íslands- flugs, frá þessu á Flugþingi í gær, en hann kvað varahlutasvik eiga eftir að verða eitt erfiðasta viðfangsefni flugmálayfirvalda á næstu árum. Ellert sagði, að íslenskir flug- rekendur hefðu sem betur fer sjaldan orðið varir við svikna varahluti. Ofangreint atvik hefði átt sér stað fyrir um þremur árum. Boltarnir hefðu verið í Beech-flugvélunum er þær komu til landsins, en þær hafa nú verið seldar úr landi. „Boltarnir voru allir sendir til verksmiðjunnar til rannsóknar en því miður frétti ég aldrei af niðurstöðunni," sagði Ellert. Ellert sagði, að íslandsflug reyndi að komast hjá hættum, sem varahlutaviðskiptum fylgdu, með því að kaupa sem mest af framleið- andanum sjálfum eða reyna að hafa sem fæsta milliliði. Hann sagði allt eftirlit með viðhalds- stöðvunum hafa aukist til muna síðustu ár og gæðaeftirlit stórauk- ist innan fyrirtækjanna. Ýmis atriði vektu menn þó til umhugsunar um hvernig eftirliti með framleiðendum íhluta og varahluta væri háttað. Nefndi hann í því sambandi, að síðastliðin tvö ár hefðu þeir hjá íslandsflugi lent óvenju oft í því, að fá bilaða varahluti frá framleiðandanum. „Fyrir u.þ.b. ári pöntuðum við stýrisstillatjakk fyrir hæðarstýri í eina af Dornier-vélunum. Hann reyndist bilaður. Tvo tjakka í við- bót fengum við senda bilaða áður en við fengum einn í lagi. Allir komu þeir beint frá framleiðand- anum í Frakklandi.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.