Morgunblaðið - 21.11.1996, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C
267. TBL. 84. ÁRG.
Mótmæla
fegurðar-
keppni
FATLAÐAR indverskar stúlkur
mótmæla því, að fegurðarsam-
keppnin Ungfrú heimur skuli
haldin í heimalandi þeirra nk.
laugardag. Keppninni hefur ver-
ið mótmælt í marga daga víða í
Indlandi á þeirri forsendu, að
með henni séu aðstandendur
keppninnar að nota konulíkam-
ann í ábataskyni.
-----»■ -----
Clinton í Ástralíu
Ekki hag-
ur okkar
að halda
Kínverj-
umniðri
BILL Clinton Bandaríkjaforseti,
sem staddur er í Ástralíu, sagði
þegar hann ávarpaði þingið í Canb-
erra að það samræmdist ekki hags-
munum Bandaríkjamanna að
„halda Kínveijum niðri". Clinton er
mjög í mun að styrkja samskiptin
við ríki Asíu og Kína er þar ofar-
lega á lista.
Bandaríkjaforseti sagði að það
væru „miklir hagsmunir okkar“ að
Kína væri opið land og velmeg-
andi: „Samstarf er bæði mögulegt
og augljóslega til góðs.“
Clinton sagði, að því er fram kom
í dagblaðinu Boston Globe, að mik-
ið væri í húfi og „stefnan, sem Kín-
veijar munu taka á komandi
árum ... mun eiga þátt í að ákvarða
hvort í hönd fer öld ágreinings eða
samstarfs".
Clinton sagði að Bandaríkjamenn
vildu að samskipti við Kínveija
héldust. „Það eykur möguleikana á
auknu frelsi, velmegun og raun-
verulegu samstarfi í framtíðinni."
Clinton bætti því við að hann
mundi engu að síður ræða þau
mál, sem varða Bandaríkjamenn og
Kínverja, þegar hann hitti Jiang
Zemin, forseta Kína, á þingi Kyrra-
hafsríkja í Manila á Filippseyjum á
sunnudag.
Christopher lesinn pistillinn
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, var í gær
staddur í Peking til að undirbúa
fund Clintons og Zemins. Qian
Qichen, utanríkisráðherra Kína,
sagði Christopher að stuðningur
Bandaríkjamanna við Taiwan og
vopnasala þangað gæti leitt til þess
að kastaðist í kekki milli Bandaríkj-
anna og Kína. Qian skoraði á
Bandaríkjamenn að standa við 18
ára gamlan samning um að draga
úr vopnasölu til Taiwans, þangað
til væri hætt við að upp úr syði
með reglulegu millibili.
STOFNAÐ 1913
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Noregur
Villti lax-
innað
deyja út?
Ósló. Reuter.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að banna allar
veiðar í mörgum norskum laxám á
næsta sumri og í öðrum, til dæmis
Orkla, Verdalselva, Stjordalselva og
Altaelva, verða þær takmarkaðar
verulega.
Laxveiðin í norsku ánum hefur
minnkað ár frá ári og yfirvöld telja
óhjákvæmilegt að grípa til róttækra
ráðstafana til að bjarga stofnunum.
Talið er, að ástandið sé aðeins nokk-
urn veginn eðlilegt í tveimur ám,
Tanavassdraget og Numedalslágen,
en á Hörðalandi óttast menn, að lax-
inn sé einfaldlega útdauður.
Auk bannsins við veiði í ánum
verða settar enn strangari reglur en
áður um veiðar í sjó.
Lúkashenko hyggst hvergi
hvika þrátt fyrir áskoranir
smnlpniik Mnskvii.Rpiitpr.
Smolensk.Moskvu.Reuter.
ÞINGLEIÐTOGAR í Rússlandi og
Hvíta-Rússlandi hvöttu sameigin-
lega til þess í gær, að málamiðlun
yrði fundin í deilunum í Hvíta-Rúss-
landi vegna áforma Alexanders
Lúkashenkos, forseta landsins, um
að halda þjóðaratkvæðagreiðslu á
sunnudag til þess að auka völd for-
setans. Hann sagðist ekki myndu
hvika frá þeim áformum þrátt fyrir
áskoranir um að hófs yrði gætt og
pólitísk lausn deilunnar yrði fundin.
Þingleiðtogarnir mættust í borg-
inni Smolensk, miðja vegu milli
Moskvu og Minsk, og féllst Semjon
Sharetskíj, forseti þings Hvíta-
Reuter
Jeltsín eldmóðugur
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
sagðist eldmóðugur í samtali
við fréttastofuna RIA í gær og
laus við alla verki, sem hann
fann fyrir í hjartanu fyrir hol-
skurðinn fyrir 15 dögum. For-
setinn labbaði um lóð hjarta-
sjúkrahússins í Moskvu með
konu sinni Najnu, dótturinni
Tatjönu og dótturdótturinni
Möshu. Var hann stirður til
gangs en hins vegar var honum
liðugt um mál og röddin kröft-
ug, andstætt því sem var fyrir
aðgerðina. „Nú þarf ég að æfa
mig og safna kröftum," sagði
Jeltsín sem fer á Barvíkha-
heilsuhælið fyrir utan Moskvu
í dag eða morgun til frekari
endurhæfingar. I fyrradag átti
hann fyrsta formlega vinnu-
fundinn með Víktor Tsjerno-
mýrdín forsætisráðherra eftir
aðgerðina.
Rússlands, þar á að slá af kröfum
þingsins í deilu þess við Lúkashenko
ef hann léti af ítrustu kröfum sínum
um breytingar á stjórnarskránni.
Vonir um árangur voru þó ekki
miklar því'Lúkashenko hafnaði boði
um að að koma til fundarins í
Smolensko fyrst Viktor Tsjern-
omýrdin, forsætisráðherra Rúss-
lands, yrði ekki viðstaddur.
Ural Latýpov, talsmaður Lúkash-
enko, lét í veðri vaka, að forsetinn
myndi funda með Tsjernomýrdín á
morgun eða laugardag og þar yrði
þess freistað að semja um lausn á
deilu forsetans og þingsins. Tals-
maður rússnesku stjórnarinnar vís-
aði því á bug í gær og sagði forsæt-
isráðherrann áformaði að vera í
Múrmansk á þeim tíma.
Rússar hafa gert samninga um
mjög náið samstarf ríkjanna og
segja mikilsvert, að stöðugleiki
haldist eigi áformin ná fram að
ganga. Boris Jeltsín Rússlandsfor-
seti ræddi við Lúkashenko og Shar-
etskíj í síma í gær til þess að reyna
leysa hnútinn.
Áhyggjur nágranna
Forsetar Póllands, Litháens og
Úkraínu létu í ljós miklar áhyggjur
af ástandinu í Hvíta-Rússlandi í
sameiginlegri yfirlýsingu. Hvöttu
þeir granna sína til þess að fmna
íausn á stjórnarskrárdeilunni, sem
yrði í samræmi við góðar lýðræðis-
hefðir og tæki eðlilegt tillit til mann-
réttinda og borgaralegra lýðrétt-
inda.
Prófniðurstöður birtar í Bretlandi
Mat á skólum sagt
bæta frammistöðu
London. The Daily Telegraph.
ÁRLEGAR skrár um frammi-
stöðu skóla og háskóla í Bret-
landi voru lagðar fram fimmta
sinni í gær og sagði Gillian Shep-
hard, mennta- og atvinnumála-
ráðherra, að þetta opinbera mat
á skólastarfi hefði leitt til fram-
fara í skólum um landið allt.
í matinu er að finna frammi-
stöðu á prófum, kröfur verk-
námsskóla og tölur um mætingu
í tæplega 4.000 skólum.
Shephard sagði að þessar upp-
lýsingar ættu að vera skólum
framúrskarandi hvatning til að
gera enn betur og stjórnendur
skóla, sem væru undir meðallagi,
sæju hvað þyrfti að bæta.
Verkamannaflokkurinn sagði
að matið sýndi að skólar hefðu
ekki náð því takmarki, sem
stjórnin hefði sett, og þaðan af
síður þeirri frammistöðu, sem
náðst hefði meðal keppinauta
Breta á alþjóðlegum vettvangi.
Joan Olivier, yfirkennari við
Lady Margaret School í Ham-
mersmith, sem er meðal þeirra
skóla, er mest hafa bætt sig, líkti
skránum við svipu yfir höfði
kennara.
Skrárnar sýna hvaða skólar
standa sig best og hveijir verst
á hverju svæði. Foreldrar eru
hvattir til að senda börn sín í
betri skólana og hunsa þá verri
þannig að flýta megi falli þeirra
og uppgangi.