Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996
MCRGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Alþingismenn deila um svör ráðherra við fyrirspurnum
Ríkisendurskoðun leggi mat
á svör félagsmálaráðherra
JÓHANNA Sigurðardóttir sakaði á
fundi Alþingis í gær Pál Pétursson
félagsmálaráðherra um „ámælis-
verð og ófyrirleitin svör“ við fyrir-
spurn hennar um félagslegar íbúð-
ir, sem dreift var skriflegum til
þingmanna, og sagði ástæðu til að
þess yrði farið á leit við Ríkisendur-
skoðun, að hún leggi mat á svör
ráðherrans.
Með mótmælum sínum hleypti
Jóhanna af stað allheitum umræð-
um þingmanna um þann hátt sem
ráðherrar tíðkuðu að meðhöndla
fyrirspurnir þingmanna á, en svip-
aðar umræður áttu sér stað á Al-
þingi sl. mánudagerBryndís Hlöðv-
ersdóttir mótmælti því hvernig
menntamálaráðherra hefði háttað
svari sínu við munnlegri fyrirspum
frá henni.
Fyrirspum Jóhönnu fjallaði um
samanburð á verði, greiðslubyrði
og leigu íbúða í félagslega kerfinu
og á almennum markaði. Jóhanna
sagði „við jaðra, að um beina fölsun
á staðreyndum“ væri að ræða í
svörum félagsmálaráðherra. Þau
vinnubrögð ráðherrans, sem Jó-
hönnu þóttu ámælisverðust, voru
þau, að hann hefði leyft sér að bera
verð á nýjum félagslegum íbúðum
saman við verð á gömlum, notuðum
íbúðum á sex stöðum úti á landi,
þar sem markaðsverð er mjög lágt,
á meðan um 70% allra félagslegra
íbúða séu á höfuðborgarsvæðinu.
Sú niðurstaða sem ráðherra
kemst að í svarinu er að mun hag-
stæðara sé fyrir efnalítið fólk að
kaupa íbúð á almennum markaði
en í félagslega kerfinu. Húsnæðis-
stofnun kemst hins vegar að þveröf-
ugri niðurstöðu í útreikningum sem
hún gerði í tilefni af fyrirspurninni.
„Pólitískur ásetningur"
Jóhanna vændi ráðherra um að
hafa hagað svörum sínum á þennan
veg af pólitískum ásetningi, þar sem
hann virtist vilja félagslega hús-
næðiskerfið feigt.
Páll Pétursson var fjarverandi
umræðurnar, en Ólafur Þ. Þórðar-
son varði málstað hans. Ólafur
sagði það ekki vera sjálfsagt, „að
þó að einhver stofnun sé að mestu
leyti mönnuð krötum“, að ráðherra
Framsóknarflokksins „lesi það
hrátt upp“ á Alþingi sem „viðkom-
andi kratar svara öðrum krötum“.
Þannig væri í raun óþarfí að beina
fyrirspurninni til ráðherrans; þing-
manninum væn nær að spyqa beint
um viðhorf Húsnæðismálastofnun-
ar, ef það væri það eina sem hann
vildi.
Jóhanna fór fram á að forsætis-
nefnd þingsins beindi því til Ríkis-
endurskoðunar, að stofnunin leggði
mat á svarið og jafnframt að félags-
málanefnd Alþingis fari ofan í sau-
mana á því.
Margir þingmenn stjórnarand-
stöðuflokkanna tóku undir ásakanir
Jóhönnu og skoruðu á forsætis-
nefnd þingsins að kanna málið.
Forseti Alþingis, Ólafur G. Einars-
son, sagði sjálfsagt að málið yrði
rætt í forsætisnefnd, en ítrekaði þá
skoðun sína, að nefndin hefði engin
tök á því að hafa áhrif á það hvern-
ig ráðherrar höguðu svörum við
fyrirspurnum yfirleitt.
Framsóknarfélag
Reykjavíkur
Opinn fund-
ur um sjáv-
arútvegs-
stefnuna
FRAMSÓKNARFÉLA.G Reykjavík-
ur boðar til opins fundar á Hótel
Borg í dag kl. 12-13.30 um sjávar-
útvegsstefnuna, hvort taka eigi upp
veiðileyfagjald í einhverju formi og
hvort breyta eigi fiskveiðistjórnun-
inni. Á fundinum munu þeir Einar
Svansson, framkvæmdastjóri Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur, og Ingólfur
Bender, hagfræðingur hjá Samtök-
um iðnaðarins, flytja erindi.
í fréttatilkynningu frá Fram-
sóknarfélaginu kemur fram að með
fundinum gefíst tækifæri til að
undirbúa þá umræðu sem kunni að
verða um sjávarútvegsstefnuna á
flokksþingi Framsóknarflokksins
sem hefst á morgun, föstudag.
HÓPIJR hermanna í Zaire aðstoðar við að draga jeppa Friðriks og fjölskyldu yfir fljót í Nagero-
þjóðgarðinum í Zaire. Ferjan var gerð úr trédekki sem Iagt hafði verið yfir nokkrar olíutunnur.
Eftir mikið umstang gekk áfallalaust að koma jeppanum yfir.
Sala á lambakjöti
Beinir samningar
bænda ólöglegir
SAMNINGAR, sem bændur gerðu
í sumar um sölu lambakjöts beint
við afurðastöðvar og verzlanir á
öðru verði en verðlagsnefndir
ákvörðuðu, bijóta í bága við gild-
andi lög um framleiðslu, verðlagn-
ingu og sölu a búvörum. Þetta kom
fram í svari Guðmundar Bjamason-
ar landbúnaðarráðherra við fyrir-
spum Svanfríðar Jónasdóttur al-
þingismanns. Ráðherra sagðist þó
ekki ætla að hafa afskipti af þessum
samningum, enda hefðu engar
kvartanir eða kærur borizt vegna
þeirra.
Landbúnaðarráðherra sagði það
hafa verið rætt á fundi verðlags-
nefndar landbúnaðarins í júlí sl., að
gefa verðlagningu á sumarslátruðu
fijálsa, en fyrir slíku eru ekki heim-
ildir í búvörulögunum. Ráðherra
benti á, að samkvæmt ákvæðum
gildandi samnings um framleiðslu
sauðfjárafurða er gert ráð fyrir að
verðlagning til sauðfjárbænda verði
gefin fijáls frá 1. september 1998.
Gekk berserksgang og
kveikti í gluggatjöldum
LÖGREGLAN í Reykjavík var köll-
uð að húsi í vesturborginni í gær-
morgun en þar gekk maður ber-
serksgang, kastaði ýmsu lauslegu
út um glugga og kveikti að því
búnu í gluggatjöldum. Maðurinn
var yfírbugaður en töluverðar
skemmdir hlutust af.
Þegar lögreglan kom á vettvang,
um klukkan hálfellefu, hafði maður-
inn kastað sjónvarpstæki út um
glugga á íbúð sinni á 2. hæð í fjöl-
býlishúsi. Hann kastaði öðrum mun-
um út og áður en lögreglan komst
inn í íbúðina kveikti hann í glugga-
tjöldum. Lögreglan braust inn í
húsið og greip manninn og slökkvil-
iðið réð mjög fljótlega niðurlögum
eldsins. Maðurinn var fluttur á lög-
reglustöðina en var síðar komið
undir læknishendur þar sem hann
á við geðræn vandamál að stríða.
Bratust
í gegnum
Zaire á fjór-
um vikum
ÍSLENSKA fjölskyldan sem hefur
verið á ferðalagi á sérútbúnum
jeppa norður yfir endilanga Afr-
íku er nú komin til Evrópu eftir
rúmlega sjö mánaða ferðalag.
Hjónin Friðrik Már Jónsson og
Birna Hauksdóttir ásamt börnum
sínum, Andra Fannari, Stefáni
Hauki og Rannveigu, lögðu af stað
frá Góðrarvonarhöfða 14. apríl
og var ætlunin að aka um Afríku
allt norður til Evrópu á fjórum til
fimm mánuðum og enda svo ferð-
ina á Siglufirði en áætluð vega-
lengd er rúmlega 30 þúsund kíló-
metrar.
Fjölskyldan var komin til Spán-
ar frá Marokkó í síðustu viku og
gera þau ráð fyrir að koma til
Islands i næstu viku. Hafa þau
lent í ýmsum ævintýrum og erfið-
leikum á þessari leið. Voru þau
m.a. fjórar vikur að brjótast yfir
2.000 km langar vegleysur og fjöl-
mörg fþ'ót í gegnum Zaire í ágúst
og september, á miðjum regntím-
anum. Voru þau samt komin úr
landinu og yfir til Mið-Afríkulýð-
veldisins áður en styrjöldin í Zaire
braust út. Var þetta erfiðasti hluti
ferðalagsins, að þeirra sögn.
Morgunblaðið mun birta ítar-
lega frásögn fjölskyldunnar af
ferð hennar í gegnum Uganda og
Zaire á næstunni.
Tákn til að vara við ofbeldi í sjónvarpi
Ráðherra vtll
kanna möguleika
„MÉR finnst sjálfsagt að kanna
þennan möguleika hér á landi,
þegar fjallað er um ráðstafanir til
að vara fólk við ofbeldi í sjón-
varpi,“ sagði Bjöm Bjarnason,
menntamálaráðherra, um þá ráð-
stöfun franskra sjónvarpsstöðva
að birta tákn á sjónvarpsskjánum
til að vara foreldra við klámi og
ofbeldi sem skaðað gæti börn.
Morgunblaðið skýrði frá því í
gær að Frakkar hefðu ákveðið að
taka þetta viðvörunarkerfí upp
vegna viðhorfskönnunar, sem
benti til þess að 80% sjónvarpsá-
horfenda teldu að ofbeldið sem
stöðvarnar sýndu keyrði um þver-
bak. „Ég vakti máls á svokölluðum
rafrænum ofbeldissíum á þingi um
ofbeldismyndir nú nýlega og benti
á að tæknin væri fyrir hendi og
hana mætti nýta til að vara fólk
við ofbeldisefni," sagði mennta-
málaráðherra.
Björn sagði að þessi kostur hlyti
að vera til athugunar. „Þarna er
komin leið, sem mér fínnst að eigi
að nota hér. Ég beiti mér ekki
fyrir því að öðru leyti en að lýsa
þessari skoðun minni.“
Morgunblaðið/Golli
NIKULÁS Úlfar Másson arkitekt og Anna Lísa Guðmundsdóttir
jarðfræðingur kanna aðstæður í kjallaranum við Hafnarstræti.
Gólfið er ekki
fjörukambur
í NIÐURGRAFNA kjallaranum á
bak við Hafnarstræti 21 er eitt elsta
steinsteypta gólf á íslandi en ekki
fjörukambur eins og talið var, að
sögn Nikulásar Úlfars Mássonar,
arkitekts hjá Árbæjarsafni.
Starfsmenn gatnamálastjóra rák-
ust fyrir tilviljun á kjallarann, sem
stendur Tryggvagötumegin við
Borgarbílastöðina. „Um er að ræða
grunn á pakkhúsi sem byggt var
skömmu eftir síðustu aldamót. Þegar
húsið var rifíð í kringum árið 1930
var ekki fyllt upp í sökkulinn," segir
Nikulás Ulfar.
Pakkhúsið var í eigu kaupmanns-
ins Detlev Thomsen. „Húsið hlýtur
að hafa verið vel byggt því í kjallar-
anum er eitt elsta steinsteypta gólfið
í Reykjavík, lagt með jámbitum."
Kjallarinn er um 160 fm að stærð en
í hann hefur hrunið ógrynni af möl
og sandi í gegnum tíðina. „Þar er
komin skýringin á af hveiju Borgar-
bílastöðin var alltaf að bæta við möl
á bílaplanið," segir Nikulás Úlfar.
Við Hafnarstræti var fyrr á öldinni
flöldi pakkhúsa og telur Nikulás Úlf-
ar þvl ekki ólíklegt að fleiri slíkir
kjallarar leynist víðar.
1
l
i
i
l
I:
(
G