Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÆTLIÐ þið að eyðileggja kvótakerfið þorskhausarnir ykkar? Eru stjórnvöld ekki marg
búin að banna ykkur allt samneyti við aðrar tegundir?
Samstarfi háskóla og
atvinnulífs ábótavant
ÞORKELL Sigurlaugsson fram-
kvæmdastjóri hjá Eimskip benti á
niðurstöður könnunar danska við-
skiptablaðsins Börsen á opnum
fundi Hollvinasamtaka Háskóla
íslands fyrir skömmu en þar kem-
ur fram að samstarf háskóla og
atvinnulífs er lítið hérlendis í sam-
anburði við nágrannaþjóðirnar.
Samkvæmt könnuninni eru ís-
lendingar í 25. sæti af 30 möguleg-
um en Bandaríkjamenn í 1. sæti,
Finnar í 2. en Danir í 21. sæti.
Þorkell telur að með aukinni
þátttöku aðila úr þjóðlífinu í stjórn-
un Háskólans mætti auka sam-
starfið til muna. Að mati hans er
stofnun Marels hf. eitt besta dæm-
ið um vel heppnað samstarf há-
skóla og atvinnulífs.
Á vit nýrrar aldar
„Háskólinn á vit nýrrar aldar“
var yfirskrift fundarins þar sem
Anna Lilja Gunnarsdóttir, for-
stöðumaður áætlana- og hagdeild-
ar Ríkisspítalanna, Steingrímur
Hermannsson, bankastjóri í Seðla-
bankanum, og Þorkell Sigurlaugs-
son héldu erindi.
Skortur á þjálfun í að beita
gagnrýnni hugsun og góðri sam-
skiptatækni er veikleiki á íslenska
menntakerfinu að mati Önnu Lilju
Gunnarsdóttur. Hún velti m.a. fyr-
ir sér hvernig háskólinn getur stað-
ist kröfur í framtíðinni og hvaða
breytingar eru nauðsynlegar á
rekstrarumhverfi hans. „Það þarf
að kenna nemendum að vega og
meta alla hluti á gagnrýninn hátt
m.a. þar sem starfsmenn í fyrir-
tækjum þurfa að geta rökstutt
skoðanir sínar. Samkiptahæfileika
er líka hægt að þjálfa og án nokk-
urs vafa ætti að leggja áherslu á
þann þátt í íslenskum skólum,“
sagði Anna Lilja.
Steingrímur Hermannsson telur
að nám almennt verði mun alþjóð-
legra í framtíðinni en nú er m.a.
þar sem íslendingar starfa í sífellt
auknum mæli utan landsteinana.
Auk þess þarf að mati Steingríms
að taka mið af helstu vandamálum
næstu aldar í kennsluháttum s.s
fólksijölgun og gróðurhúsaáhrif-
um.
Deildir háskólans sjálfstæðari
Ef deildir háskólans væru sjálf-
stæðari en nú er væri hægt að
virkja fyrirtækin og fólkið í iandinu
til meira samstarfs að mati Stein-
gríms. „Gefa þarf atvinnulífinu og
almenningi betri kost á að koma
sínum áherslum að m.a. við
kennslu. Háskólinn má alls ekki
vera í eins konar fílabeinsturni,"
sagði hann.
Þorkell Sigurlaugsson situr í
nefnd sem Björn Bjarnason
menntamálaráðherra skipaði til að
kanna nám í rekstrar- og við-
skiptafræði í fjórum skólum á há-
skólastigi; Háskóla íslands, Há-
skólanum á Akureyri, Tækniskóla
íslands og Samvinnuháskólanum á
Bifröst. Að mati Þorkels er furðu-
legt hve kröftunum er dreift þegar
allir búa við þröngan kost, ekki
síst viðskiptafræðideild Háskóla
íslands. „Væri ekki hægt að gera
betur með meiri sérhæfingu í stað
þess að allir séu að vinna að því
sama? Einnig þyrfti að takmarka
fyrr fjölda nemenda í viðskipta-
fræðideild Háskólans en fyrir-
komulagið þar sem tvö hundruð
til þrjú hundruð nemendur eru
teknir inn á fyrsta ári og síðan
felldir á öðru og þriðja ári er afar
óhagkvæmt," sagði Þorkell.
10 ára afhiedisMaðkorð
Cafe Óperu er b^rjað
Jólahlaðborðið svignar undan krœsingum öll kvöld og jólaandinn svíjur um í húsið með sái
Hluti af'Oerði jótahlaðborðsins rennur
tit krabbameinssjúkra bama.
c-Æltí) spennandi, alltaf best. ,—1 "■
Sorréttir
Hefðbundnir og óhefðbundnir réttir.
'i/lðalréttir
Állt það besta sem tilheyrir alvöru jólahlaðborði.
Fflirréltir
Hver öðrum girnilegri
ShwökK&SSO J'ifanili veilingahús í midborginni, Lækjargötu 2.
Stmnr 5S24045
5629499
Krabbamein og starfshópar kvenna
Islendingar eru
ekki allir jafnir
SÍÐASTLIÐIN tíu ár
hef ég unnið að
rannsóknum á
krabbameinsmynstri og
dánarmynstri ólíkra
starfshópa, jafnt kvenna
sem karla, með Vilhjálmi
Rafnssyni, yfirlækni í At-
vinnusjúkdómadeild
Vinnueftirlits ríkisins. í
dag ætla ég að tala sér-
staklega um konurnar í
hópnum. Ég er raunar að
vinna að stærra verkefni
um það hvort munur er á
krabbameinsmynstri og
dánarmynstri starfshópa á
íslandi eins og komið hefur
í ljós erlendis,“ segir Hólm-
fríður K. Gunnarsdóttir en
hún mun flytja fyrirlestur
um þessi efni í Odda í há-
deginu á vegum Rann-
sóknarstofu í kvennafræðum.
Nefnir hún fyrirlesturinn „Dánar-
mein og krabbameinsmynstur
mismunandi starfshópa kvenna.
Mótar starfið lífshætti, sem skipta
sköpum?“ Er Hólmfríður að vinna
að doktorsritgerð um þessi efni
en í fyrirlestrinum í hádeginu fjall-
ar hún um þann mun, sem er á
dánar- og krabbameinsmynstri
verkakvenna og hjúkrunarfræð-
inga.
„Það hefur sýnt sig alls staðar
þar sem þetta hefur verið rannsak-
að, að það er munur á þessu eftir
því hvar fólk er í þjóðfélagsstigan-
um. Það getur að vísu verið erfitt
að meta hvar hver og einn er
staddur þar en helstu mælikvarð-
arnir eru menntun, tekjur og
starfið."
Hvernig kemur þessi munur
fram hjá starfsstéttunum?
„Erlendar rannsóknir hafa sýnt,
að dánartíðnin almennt er hærri
meðal þeirra, sem hafa lágar tekj-
ur og litla menntun, en þessu er
dálítið öðruvísi háttað með
krabbameinstíðnina. Krabbamein
er ekki endilega algengara í öðrum
hópnum en hinum en mynstrið er
annað. Ef litið er á konur þá kem-
ur í ljós, að bijóstakrabbamein er
algengara hjá þeim, sem eru
menntaðar og eru í vel launuðum
störfum eða giftar mönnum í góð-
um stöðum.
Samkvæmt þessum sömu rann-
sóknum er krabbamein í leghálsi
tíðara hjá konum, sem hafa litla
menntun og eru ófaglærðar eða
eru giftar ófaglærðum láglauna-
mönnum."
Hvaða skýringar eru á þessu
ólíka mynstri miili hópanna?
„Þær eru ýmsar og svo ég nefni
aðeins bijóstakrabba-
meinið þá er ein þeirra
sú, að konur, sem afla
sér menntunar, eignast
börn yfirleitt seinna en
konur í hinum hópnum.
Það er einn af mörgum
áhættuþáttum bijóstakrabba-
meins á hvaða aldri konan er þeg-
ar hún eignast fyrsta barnið. Mörg
önnur atriði koma við sögu, til
dæmis ættarsagan, hvenær tíðir
hefjast og hvenær þeim lýkur,
bijóstagjöf, mataræði eða lífs-
hættir og um það ætla ég að ræða
í fyrirlestrinum að hve miklu leyti
lífshættirnir virðast skipta máli í
þessu sambandi.
Lífshættir þeirra, sem hafa
menntun og sæmilega afkomu,
eru oft heilsusamlegri en þeirra,
sem hallari fæti standa, og þess
vegna er dánartíðni þeirra al-
mennt lægri. Þeir bregðast fyrr
við ýmsum straumum í þjóðfélag-
inu, til dæmis auknum áhuga og
áróðri fyrir meiri hreyfíngu og
hollara mataræði. Þetta kemur
► Hólmfríður K. Gunnarsdótt-
ir lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík,
kennaraprófi frá Kennaraskóla
Islands, BA-prófi í sænsku og
íslensku við Háskóla Islands,
hjúkrunarprófi frá Hjúkrunar-
skóla íslands og meistaraprófi
í heilbrigðisvísindum frá lækna-
deild Háskóla íslands.
einnig fram í reykingum, sem
hafa að vísu ekki verið tengdar
bijóstakrabbameini, heldur
lungnakrabbameini. Sá sjúkdóm-
ur er líka algengari hjá þeim, sem
hafa litla menntun og lágar tekjur.
í fyrirlestrinum í hádeginu mun
ég fyrst og fremst fjalla um þær
krabbameinstegundir, sem eru
ólíkar hjá mismunandi starfshóp-
um kvenna, t.d. bijóstakrabba-
mein, legháls- og lungnakrabba-
mein.“
Hvernig ber íslensku niðurstöð-
unum saman við erlendar?
„Við erum að vísu fá hér á landi
og hóparnir því litlir en vísbend-
ingarnar eru þær sömu. Hjúkrun-
arfræðingarnir eru rúmlega 2.000
og þótt það kunni að þykja stór
hópur á okkar íslenska mæli-
kvarða þá er hann það ekki í svona
rannsókn.
Við höfum verið með marga
aðra starfshópa og í því verkefni,
sem ég er að vinna að, athuga ég
líka mynstrið hjá körlum. Við höf-
um til dæmis verið að athuga
bændur og sjómenn og menn í
ýmsum störfum og þá kemur í ljós,
að mynstrið er ekki það sama þar
heldur. Sem dæmi má nefna, að
bændur koma miklu betur út en
aðrar starfsstéttir. Það hefur einn-
ig komið fram við rann-
sóknir erlendis."
Skera íslendingar
sig ekki úr að neinu
leyti?
„í þessum rannsókn-
um hefur það komið
fram, að okkar íslenska þjóðfélag
er svipað öðrum, það er ekki rétt,
að við séum verulega frábrugðin
öðrum þjóðum. Ýmsir hafa kannað
viðhorf almennings til íslensks
samfélags, til dæmis Stefán Ólafs-
son prófessor, Siguijón Björnsson
prófessor, Dóra Bjarnason félags-
fræðingur og fleiri, og þau hafa
fengið þau svör, að þetta samfélag
okkar sé alveg sérstakt og öðru
vísi, hér séu allir jafnir eða lítill
munur manna á milli. Rannsóknir
þeirra hafa sýnt hið gagnstæða.
Niðurstöður okkar benda í sömu
átt. Við föllum vel inn í það mynst-
ur, sem er meðal annarra vest-
rænna þjóða og jöfnuðurinn er lík-
lega goðsögn. Markmiðið með
þessum rannsóknum er að afla
þekkingar til að byggja forvarnir
Ólíkt mynstur
eftir starfs-
hópum