Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Tilsvör
ráðherra
sögð ófull-
nægjandi
SVÖR Bjöms Bjarnasonar mennta-
málaráðherra við munnlegri fyrir-
spurn Bryndísar Hlöðversdóttur,
þingmanns Alþýðubandalags, í sér-
stökum fyrirspurnatíma á Alþingi á
mánudag, urðu þingmönnum tilefni
til allítarlegra umræðna um fyrir-
komulag slíkra fyrirspurna, sem
samkvæmt þingsköpum eiga að veita
þingmönnum tækifæri til að krefja
ráðherra um snör svör við einföldum
spurningum. Lýstu nokkrir þing-
menn áhyggjum yfir því hvernig
ófullnægjandi tilsvör ráðherra við
fyrirspurnum græfu undan gildi fyr-
irspurnatímanna.
Bryndís beindi til ráðherrans
spurningum varðandi störf nefndar
sem vinnur að endurskoðun laga um
Lánasjóð ísienzkra námsmanna.
Ráðherrann svaraði fyrirspurnunum
með því að vísa til ræðu sem hann
hefði flutt um málefni LÍN á Alþingi
12. nóvember si.
Dónaskapur gagnvart Alþingi
Svavar Gestsson, formaður þing-
flokks Alþýðubandalags, hóf umræð-
una með því að lýsa óánægju sinni
með það að „ráðherrar hafi stundum
komizt upp með að svara engu“ í
fyrirspurnartímunum. Taldi Svavar
menntamálaráðherra hafa sýnt Al-
þingi „dónaskap" með því svari sem
hann bauð upp^á. Að mati Svavars
var ráðherra „að reyna að snúa sig
út úr málinu af pólitískum ástæð-
um“. Svavar fór þess á leit við þing-
forseta, að aðferða yrði leitað til að
knýja ráðherrana til að veita fuli-
nægjandi svör við fyrirspurnum, ann-
ars myndu þessir fyrirspurnatímar
tapa gildi sínu, eins gagnlegur hluti
þingskapa og þ_eir annars væru.
Þingforseti, Ólafur G. Einarsson,
sagðist ekki sjá hvernig hægt væri
að knýja ráðherra til að veita önnur
svör en þeir kysu sjálfir. Forseti hét
því hins vegar, að málið yrði tekið
fyrir á vettvangi forsætisnefndar og
formanna þingflokka.
Vandaðir dömu-
09 berra leður-
og mokkajakkar.
Laugavegi 66, 2. hæö.
Sími 552 0301.
FRÉTTIR
Tannlæknastj órnin
tekur við völdum
Nýr meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks, svokölluð tannlæknastjórn, ætlar að endur-
skoða stöðu sína innan Eyþings og koma upp eig-
in skólaþjónustu ef það gengur ekki öðruvísi. Sjálf-
stæðismenn þurftu að yfirvinna sárar tilfinningar
áður en þeir sættust við framsóknarmenn.Helgi
Bjarnason kynnti sér meirihlutaviðræðurnar og
ræddi við hina nýju forystumenn um helstu
áherslur þeirra.
Morgunblaðið/RAX
TANNLÆKNASTJÓRNIN á Húsavík, Stefán Haraldsson og Sig-
urjón Benediktsson, ráða ráðum sínum við lok vinnudags.
SEXTÁN ára meirihlutasamstarfi
framsóknarmanna og sjálfstæðis-
manna lauk við síðustu kosningar.
Framsóknarflokkur tapaði manni
til G-lista Alþýðubandalags og
óháðra en Sjálfstæðisflokkur bætti
við sig fylgi án þess að ná inn þriðja
manninum. Það hafði einnig gerst
að fyrir kosningarnar tók nýr mað-
ur, Siguijón Benediktsson tann-
læknir, við forystu D-listans og
lagði höfuðáherslu á sameiningu
sjávarútvegsfyrirtækjanna sem
bærinn átti verulega ítök í og að
bærinn losaði sig síðan út úr rekstr-
inum. Málflutningur Siguijóns fór
fyrir brjóstið á framsóknarmönnum
þó stefna flokkanna hafi ekki verið
ólík og gengu þeir síðarnefndu beint
til samstarfs við G-listann án þess
að eyða orðum á samstarfsflokk
sinn til sextán ára.
Á fyrrihluta kjörtímabilsins tók-
ust fulltrúar Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks mjög á í bæjar-
málunum. Þannig gagnrýndi Sigur-
jón meirihlutann harkalega fyrir
það hvernig unnið var að samning-
um við íslenskar sjávarafurðir og
tengd fyrirtæki. Síðar nálguðust
flokkarnir þegar sjálfstæðismenn
studdu tillögu framsóknarmanna
um sameiningu Fiskiðjusamlags
Húsavíkur og Höfða. G-listinn var
mjög á móti sameiningunni og sölu
á hluta af eign bæjarins og urðu
þau mál til þess að framsóknar-
menn slitu samstarfi við G-listann.
Ágreiningur í röðum
sjálfstæðismanna
Sjálfstæðismenn voru í lykilað-
stöðu þegar kom að myndun nýs
meirihluta. Að gamla stjórnar-
mynstrinu frágengnu var ekki hægt
að mynda meirihluta án þeirra.
Bæði framsóknarmenn og G-lista-
menn leituðu eftir viðræðum. Bæj-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins,
Sigurjón Benediktsson og Katrín
Eymundsdóttir, ákváðu að láta
„dólgslega framkomu" framsóknar-
manna eftir síðustu kosningar ekki
á sig fá og ganga til samstarfs við
þá.
Innan Sjálfstæðisflokksins var
nokkur andstaða við að endurnýja
samstarfið við Framsóknarflokkinn
og kom hún meðal annars upp á
yfirborðið á flokksfundi á sunnu-
dagskvöld þegar bæjarfulltrúarnir
kynntu málefnagrundvöll flokk-
anna. Greinilegt er að samstarfsslit-
in eftir síðustu kosningar sitja enn
í mörgum. Vildu sumir fundarmenn
láta reyna frekar á samstarf við
G-listann en bæjarfulltrúarnir sögð-
ust ekki treysta sér til þess. And-
staða við samstarfið við Framsókn
kom þó ekki fram í atkvæða-
greiðslu, það var samþykkt án mót-
atkvæða. „Það þýðir ekki að skella
hurðum í pólitík. Þegar hagur
flokks og bæjarfélags stangast á
verður maður að setja hagsmuni
bæjarins ofar,“ segir Siguijón
Benediktsson.
Kröfðust bæjarstjórastóls
fyrir Sigurjón
í meirihlutaviðræðunum var tog-
ast á um bæjarstjóraembættið.
„Meirihlutinn hefur ekki gert grein
fyrir málefnum en ég hef ekki trú
á því að hægt sé að fitja upp á
mörgum nýjum málum á þeim
stutta tíma sem eftir er af kjörtíma-
bilinu. Málið snerist því um það
hvort sami bæjarstjóri sæti út kjör-
tímabilið eða hvort fenginn yrði
nýr,“ segir Kristján Ásgeirsson,
foringi G-listans.
I upphafi samtala við fulltrúa
hinna flokkanna gerðu sjálfstæðis-
menn kröfu um að fá bæjarstjóra-
stólinn. Katrín Eymundsdóttir bæj-
arfulltrúi segir að þau hafi boðið
Siguijón Benediktsson fram í því
sambandi. Nauðsynlegt væri að
vinna hratt og vel þann stutta tíma
sem eftir væri af kjörtímabilinu og
Sigutjón hefði þann dugnað og
þekkingu sem nauðsynleg væri.
Bæði Framsóknarflokkur og Al-
þýðubandalag og óháðir höfnuðu
þessari kröfu Sjálfstæðisflokks.
Einar Njálsson bæjarstjóri hefur
ekki aðeins verið framkvæmdastjóri
bæjarfélagsins heldur að sumra
mati einnig pólitískur oddviti gamla
meirihlutans eða að minnsta kosti
Framsóknarflokksins. Hann hefur
verið í flestum mikilvægustu nefnd-
um og stjórnum sem Húsavíkurbær
skipar í, meðal annars formaður
bæjarráðs, stjórnarformaður Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur og Höfða
og formaður Héraðsnefndar Þing-
eyinga og landshlutasamtakanna
Eyþings. Þegar sjálfstæðismenn
sáu að þeir gætu ekki náð fram
kröfu sinni um bæjarstjórastólinn
kröfðust þeir breytinga á starfi
bæjarstjóra þannig að hann gæti
einbeitt sér að rekstri bæjarfélags-
ins. Samþykktu framsóknarmenn
það og segir Einar af sér umrædd-
um aukaembættum.
Stefán Haraldsson, foringi
framsóknarmanna, segir of sterkt
til orða tekið þegar talað sé um
að völd bæjarstjóra hafi verið
skert. „Það hafa hlaðist mörg erfið
og mikilvæg mál á herðar bæjar-
stjórans, það hefur hentað okkur
bæjarfulltrúunum ágætlega. Nú
viljum við nota hann í brýn verk-
efni við rekstur bæjarins," segir
Stefán. „Það bar á því í fyrrver-
andi meirihlutasamstarfi að litið
var á bæjarstjórann sem pólitískan
oddvita. Með þessari breytingu
færist sá þáttur yfir á pólitískt
kjörna fulltrúa. Ég er ánægður
með niðurstöðuna enda hefur mér
gengið vel að vinna með Einari
Njálssyni í stjórn Fiskiðjusamlags
Húsavíkur," segir Siguijón Bene-
diktsson.
Höfum ekki stjórntækin
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur hafa ekki birt mál-
efnasamning sinn. Blaðamaður hitti
foringja stjórnarfiokkanna, tann-
læknana Stefán Haraldsson og Sig-
uijón Benediktsson, í lok vinnudags
á tannlæknastofunni sem þeir reka
saman í Heilsugæslustöðinni. Þeir
segja að ekki sé ástæða til að greina
frá málefnagrundvelli fyrr en þeir
hafi fengið stjórntæki til að hrinda
stefnunni í framkvæmd. Þessir tveir
flokkar afhentu samstarfsflokkum
sínum í meirihluta og minnihluta
hluta af þeim völdum sem þeim
sjálfum ber samkvæmt kjörfylgi.
Þótt þeir séu með meirihluta í bæj-
arstjórn eru þeir í minnihluta í
bæjarráði, mikilvægustu nefnd bæj-
arfélagsins, og helmingi allra
nefnda. Og í þeim nefndum sem
þeir hafa meirihluta er fulltrúi G-
listans í formennsku.
„Ég treysti á pólitíska og al-
menna kurteisi en hef ekki fundið
hana á öllum bæjum hér,“ segir
Siguijón og vísar til þess að bæjar-
fulltrúar minnihlutans hafi ekki
samþykkt að láta kjósa að nýju í
nefndir og ráð bæjarins eins og
honum finnst eðlilegt að sé gert við
meirihlutaskipti. Sumar nefndirnar
eru kosnar til loka kjörtímabilsins
en aðrar fram á vor. Stefán segir
að sveitarstjórnarlög séu afskap-
lega ófullkomin að ákvæðum um
breytingar sem gera þurfi við
myndum meirihluta á miðju kjör-
tímabili. Þeir segja þó að leiðirnar
séu til og ætla að reyna að komast
til valda með því að láta afturkalla
umboð allra nefnda á næsta bæjar-
stjórnarfundi og kjósa að nýju. „Það
er einkennilegt að það þurfi að vera
fyrsta verk meirihlutans að sýna
löggjafarvaldinu fram á hvað erfitt
er að skipta um meirihluta nema
með því að nota lagakróka," segir
Siguijón.
Kristján Ásgeirsson sagði eftir
bæjarráðsfund á mánudag að nefnd-
ir og ráð gætu setið nema brýnustu
ástæður krefðust og það væri mats-
atriði hvort myndun nýs meirihluta
teldist svo mikilvæg. Rétt er að taka
fram að hann þvertók ekki fyrir það
að minnihlutinn gæfi eftir völdin en
sagði að ekkert lægi á ákvörðun um
það. Stefán segir að ef mál þetta
fengi eðlilega niðurstöðu á næsta
bæjarstjórnarfundi myndi þessi
frestun á valdatöku ekki tefja vinnu
við ijárhagsáætlun eða önnur brýn
úrlausnarefni.
Ekki selt meira í bili
Sjálfstæðismenn höfðu það meg-
instefnumál í síðustu kosningum
að sameina sjávarútvegsfyrirtækin
og vildu síðan hafa það sem fram-
tíðarverkefni að selja hlutabréf
bsejarins. Flokkarnir stóðu saman
að sameiningu Höfða við Fiskiðju-
samlagið og er því verki að fullu
lokið og auk þess búið að selja stjórn
FH 10,6% af hlut Húsavíkurbæjar
fyrir liðlega 100 milljónir kr.
Tannlæknarnir eru tregir til að
segja frá ákvæðum meirihluta-
samningsins um Fiskiðjusamlagið,
annað en að þeir vilji standa að því
að friður ríki um reksturinn og að
ung og efnileg framkvæmdastjórn
fyrirtækisins fái svigrúm til að efla
rekstur þess. Á þeim er þó að heyra,
án þess að það komi alveg hreint
fram, að ekki verði selt meira af
hlutabréfum bæjarins á þeim tíma
sem eftir er af kjörtímabilinu vegna
þess að Fiskiðjusamlagið þurfi svig-
rúm til að selja sín bréf. Báðir segj-
ast þó fylgjandi því að bærinn hverfi
sem ráðandi afl úr fyrirtækinu á
næstu árum. „Þann tíma sem við
erum við völd verður ekki aukið við
eign bæjarins, fremur verður losað
um pólitískar krumlur okkar Stef-
áns af því,“ segir Siguijón.
Skólaþjónusta á eigin vegum
Ljóst er að nýi meirihlutinn mun
ekki una þeirri stöðu sem bærinn
er í innan Eyþings, landshlutasam-
taka Norðurlandskjördæmis eystra.
Einar Njálsson er þar formaður en
mun hætta samkvæmt samkomu-
lagi stjórnarflokkanna. Hinir nýju
forystumenn Húsvíkinga eru sér-
staklega óánægðir með það að Ey-
þing hafí ekki sett upp útibú skóla-
þjónustu sinnar á Húsavík eins og
þeir segja að samið hafi verið um.
Ekki hefur tekist að ráða þá tvo
til þijá starfsmenn sem um var
rætt. „Við teljum að Eyþing þjóni
ekki því hlutverki sem það var
stofnað til. Ef samtökin geta ekki
sett upp þessa þjónustu hér þá verð-
um við að gera það sjálfir," segir
Siguijón. Bendir hann á að tilbúin
sé skrifstofa fyrir þá starfsemi sem
átti að vera á vegum skólaþjón-
ustunnar á Húsavík en starfsmenn-
irnir hafi ekki sést. Telja þeir að
til greina geti komið að starfsemin
verði sett upp í samvinnu við önnur
sveitarfélög í Þingeyjarsýslum og
benda á að búið sé að sameina hér-
aðsnefndirnar í eina og ráða fram-
kvæmdastjóra.
„Við höfum hingað til verið í
varnarstöðu gagnvart hinu opin-
bera. Við ætlum að breyta því, við
ætlum að vera í sókn þó ekki viljum
við allir vera í Framsókn," segir
Siguijón Benediktsson þegar þeir
félagar eru spurðir að því hvernig
Húsvíkingar muni verða varir við
nýja stjórn bæjarins. Stefán Har-
aldsson nefnir í þessu sambandi
málefni framhaldsskólans og
sjúkrahússins, auk þeirra mála sem
þegar hafa verið nefnd.