Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Tilsvör ráðherra sögð ófull- nægjandi SVÖR Bjöms Bjarnasonar mennta- málaráðherra við munnlegri fyrir- spurn Bryndísar Hlöðversdóttur, þingmanns Alþýðubandalags, í sér- stökum fyrirspurnatíma á Alþingi á mánudag, urðu þingmönnum tilefni til allítarlegra umræðna um fyrir- komulag slíkra fyrirspurna, sem samkvæmt þingsköpum eiga að veita þingmönnum tækifæri til að krefja ráðherra um snör svör við einföldum spurningum. Lýstu nokkrir þing- menn áhyggjum yfir því hvernig ófullnægjandi tilsvör ráðherra við fyrirspurnum græfu undan gildi fyr- irspurnatímanna. Bryndís beindi til ráðherrans spurningum varðandi störf nefndar sem vinnur að endurskoðun laga um Lánasjóð ísienzkra námsmanna. Ráðherrann svaraði fyrirspurnunum með því að vísa til ræðu sem hann hefði flutt um málefni LÍN á Alþingi 12. nóvember si. Dónaskapur gagnvart Alþingi Svavar Gestsson, formaður þing- flokks Alþýðubandalags, hóf umræð- una með því að lýsa óánægju sinni með það að „ráðherrar hafi stundum komizt upp með að svara engu“ í fyrirspurnartímunum. Taldi Svavar menntamálaráðherra hafa sýnt Al- þingi „dónaskap" með því svari sem hann bauð upp^á. Að mati Svavars var ráðherra „að reyna að snúa sig út úr málinu af pólitískum ástæð- um“. Svavar fór þess á leit við þing- forseta, að aðferða yrði leitað til að knýja ráðherrana til að veita fuli- nægjandi svör við fyrirspurnum, ann- ars myndu þessir fyrirspurnatímar tapa gildi sínu, eins gagnlegur hluti þingskapa og þ_eir annars væru. Þingforseti, Ólafur G. Einarsson, sagðist ekki sjá hvernig hægt væri að knýja ráðherra til að veita önnur svör en þeir kysu sjálfir. Forseti hét því hins vegar, að málið yrði tekið fyrir á vettvangi forsætisnefndar og formanna þingflokka. Vandaðir dömu- 09 berra leður- og mokkajakkar. Laugavegi 66, 2. hæö. Sími 552 0301. FRÉTTIR Tannlæknastj órnin tekur við völdum Nýr meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks, svokölluð tannlæknastjórn, ætlar að endur- skoða stöðu sína innan Eyþings og koma upp eig- in skólaþjónustu ef það gengur ekki öðruvísi. Sjálf- stæðismenn þurftu að yfirvinna sárar tilfinningar áður en þeir sættust við framsóknarmenn.Helgi Bjarnason kynnti sér meirihlutaviðræðurnar og ræddi við hina nýju forystumenn um helstu áherslur þeirra. Morgunblaðið/RAX TANNLÆKNASTJÓRNIN á Húsavík, Stefán Haraldsson og Sig- urjón Benediktsson, ráða ráðum sínum við lok vinnudags. SEXTÁN ára meirihlutasamstarfi framsóknarmanna og sjálfstæðis- manna lauk við síðustu kosningar. Framsóknarflokkur tapaði manni til G-lista Alþýðubandalags og óháðra en Sjálfstæðisflokkur bætti við sig fylgi án þess að ná inn þriðja manninum. Það hafði einnig gerst að fyrir kosningarnar tók nýr mað- ur, Siguijón Benediktsson tann- læknir, við forystu D-listans og lagði höfuðáherslu á sameiningu sjávarútvegsfyrirtækjanna sem bærinn átti verulega ítök í og að bærinn losaði sig síðan út úr rekstr- inum. Málflutningur Siguijóns fór fyrir brjóstið á framsóknarmönnum þó stefna flokkanna hafi ekki verið ólík og gengu þeir síðarnefndu beint til samstarfs við G-listann án þess að eyða orðum á samstarfsflokk sinn til sextán ára. Á fyrrihluta kjörtímabilsins tók- ust fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks mjög á í bæjar- málunum. Þannig gagnrýndi Sigur- jón meirihlutann harkalega fyrir það hvernig unnið var að samning- um við íslenskar sjávarafurðir og tengd fyrirtæki. Síðar nálguðust flokkarnir þegar sjálfstæðismenn studdu tillögu framsóknarmanna um sameiningu Fiskiðjusamlags Húsavíkur og Höfða. G-listinn var mjög á móti sameiningunni og sölu á hluta af eign bæjarins og urðu þau mál til þess að framsóknar- menn slitu samstarfi við G-listann. Ágreiningur í röðum sjálfstæðismanna Sjálfstæðismenn voru í lykilað- stöðu þegar kom að myndun nýs meirihluta. Að gamla stjórnar- mynstrinu frágengnu var ekki hægt að mynda meirihluta án þeirra. Bæði framsóknarmenn og G-lista- menn leituðu eftir viðræðum. Bæj- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Sigurjón Benediktsson og Katrín Eymundsdóttir, ákváðu að láta „dólgslega framkomu" framsóknar- manna eftir síðustu kosningar ekki á sig fá og ganga til samstarfs við þá. Innan Sjálfstæðisflokksins var nokkur andstaða við að endurnýja samstarfið við Framsóknarflokkinn og kom hún meðal annars upp á yfirborðið á flokksfundi á sunnu- dagskvöld þegar bæjarfulltrúarnir kynntu málefnagrundvöll flokk- anna. Greinilegt er að samstarfsslit- in eftir síðustu kosningar sitja enn í mörgum. Vildu sumir fundarmenn láta reyna frekar á samstarf við G-listann en bæjarfulltrúarnir sögð- ust ekki treysta sér til þess. And- staða við samstarfið við Framsókn kom þó ekki fram í atkvæða- greiðslu, það var samþykkt án mót- atkvæða. „Það þýðir ekki að skella hurðum í pólitík. Þegar hagur flokks og bæjarfélags stangast á verður maður að setja hagsmuni bæjarins ofar,“ segir Siguijón Benediktsson. Kröfðust bæjarstjórastóls fyrir Sigurjón í meirihlutaviðræðunum var tog- ast á um bæjarstjóraembættið. „Meirihlutinn hefur ekki gert grein fyrir málefnum en ég hef ekki trú á því að hægt sé að fitja upp á mörgum nýjum málum á þeim stutta tíma sem eftir er af kjörtíma- bilinu. Málið snerist því um það hvort sami bæjarstjóri sæti út kjör- tímabilið eða hvort fenginn yrði nýr,“ segir Kristján Ásgeirsson, foringi G-listans. I upphafi samtala við fulltrúa hinna flokkanna gerðu sjálfstæðis- menn kröfu um að fá bæjarstjóra- stólinn. Katrín Eymundsdóttir bæj- arfulltrúi segir að þau hafi boðið Siguijón Benediktsson fram í því sambandi. Nauðsynlegt væri að vinna hratt og vel þann stutta tíma sem eftir væri af kjörtímabilinu og Sigutjón hefði þann dugnað og þekkingu sem nauðsynleg væri. Bæði Framsóknarflokkur og Al- þýðubandalag og óháðir höfnuðu þessari kröfu Sjálfstæðisflokks. Einar Njálsson bæjarstjóri hefur ekki aðeins verið framkvæmdastjóri bæjarfélagsins heldur að sumra mati einnig pólitískur oddviti gamla meirihlutans eða að minnsta kosti Framsóknarflokksins. Hann hefur verið í flestum mikilvægustu nefnd- um og stjórnum sem Húsavíkurbær skipar í, meðal annars formaður bæjarráðs, stjórnarformaður Fisk- iðjusamlags Húsavíkur og Höfða og formaður Héraðsnefndar Þing- eyinga og landshlutasamtakanna Eyþings. Þegar sjálfstæðismenn sáu að þeir gætu ekki náð fram kröfu sinni um bæjarstjórastólinn kröfðust þeir breytinga á starfi bæjarstjóra þannig að hann gæti einbeitt sér að rekstri bæjarfélags- ins. Samþykktu framsóknarmenn það og segir Einar af sér umrædd- um aukaembættum. Stefán Haraldsson, foringi framsóknarmanna, segir of sterkt til orða tekið þegar talað sé um að völd bæjarstjóra hafi verið skert. „Það hafa hlaðist mörg erfið og mikilvæg mál á herðar bæjar- stjórans, það hefur hentað okkur bæjarfulltrúunum ágætlega. Nú viljum við nota hann í brýn verk- efni við rekstur bæjarins," segir Stefán. „Það bar á því í fyrrver- andi meirihlutasamstarfi að litið var á bæjarstjórann sem pólitískan oddvita. Með þessari breytingu færist sá þáttur yfir á pólitískt kjörna fulltrúa. Ég er ánægður með niðurstöðuna enda hefur mér gengið vel að vinna með Einari Njálssyni í stjórn Fiskiðjusamlags Húsavíkur," segir Siguijón Bene- diktsson. Höfum ekki stjórntækin Framsóknarflokkur og Sjálf- stæðisflokkur hafa ekki birt mál- efnasamning sinn. Blaðamaður hitti foringja stjórnarfiokkanna, tann- læknana Stefán Haraldsson og Sig- uijón Benediktsson, í lok vinnudags á tannlæknastofunni sem þeir reka saman í Heilsugæslustöðinni. Þeir segja að ekki sé ástæða til að greina frá málefnagrundvelli fyrr en þeir hafi fengið stjórntæki til að hrinda stefnunni í framkvæmd. Þessir tveir flokkar afhentu samstarfsflokkum sínum í meirihluta og minnihluta hluta af þeim völdum sem þeim sjálfum ber samkvæmt kjörfylgi. Þótt þeir séu með meirihluta í bæj- arstjórn eru þeir í minnihluta í bæjarráði, mikilvægustu nefnd bæj- arfélagsins, og helmingi allra nefnda. Og í þeim nefndum sem þeir hafa meirihluta er fulltrúi G- listans í formennsku. „Ég treysti á pólitíska og al- menna kurteisi en hef ekki fundið hana á öllum bæjum hér,“ segir Siguijón og vísar til þess að bæjar- fulltrúar minnihlutans hafi ekki samþykkt að láta kjósa að nýju í nefndir og ráð bæjarins eins og honum finnst eðlilegt að sé gert við meirihlutaskipti. Sumar nefndirnar eru kosnar til loka kjörtímabilsins en aðrar fram á vor. Stefán segir að sveitarstjórnarlög séu afskap- lega ófullkomin að ákvæðum um breytingar sem gera þurfi við myndum meirihluta á miðju kjör- tímabili. Þeir segja þó að leiðirnar séu til og ætla að reyna að komast til valda með því að láta afturkalla umboð allra nefnda á næsta bæjar- stjórnarfundi og kjósa að nýju. „Það er einkennilegt að það þurfi að vera fyrsta verk meirihlutans að sýna löggjafarvaldinu fram á hvað erfitt er að skipta um meirihluta nema með því að nota lagakróka," segir Siguijón. Kristján Ásgeirsson sagði eftir bæjarráðsfund á mánudag að nefnd- ir og ráð gætu setið nema brýnustu ástæður krefðust og það væri mats- atriði hvort myndun nýs meirihluta teldist svo mikilvæg. Rétt er að taka fram að hann þvertók ekki fyrir það að minnihlutinn gæfi eftir völdin en sagði að ekkert lægi á ákvörðun um það. Stefán segir að ef mál þetta fengi eðlilega niðurstöðu á næsta bæjarstjórnarfundi myndi þessi frestun á valdatöku ekki tefja vinnu við ijárhagsáætlun eða önnur brýn úrlausnarefni. Ekki selt meira í bili Sjálfstæðismenn höfðu það meg- instefnumál í síðustu kosningum að sameina sjávarútvegsfyrirtækin og vildu síðan hafa það sem fram- tíðarverkefni að selja hlutabréf bsejarins. Flokkarnir stóðu saman að sameiningu Höfða við Fiskiðju- samlagið og er því verki að fullu lokið og auk þess búið að selja stjórn FH 10,6% af hlut Húsavíkurbæjar fyrir liðlega 100 milljónir kr. Tannlæknarnir eru tregir til að segja frá ákvæðum meirihluta- samningsins um Fiskiðjusamlagið, annað en að þeir vilji standa að því að friður ríki um reksturinn og að ung og efnileg framkvæmdastjórn fyrirtækisins fái svigrúm til að efla rekstur þess. Á þeim er þó að heyra, án þess að það komi alveg hreint fram, að ekki verði selt meira af hlutabréfum bæjarins á þeim tíma sem eftir er af kjörtímabilinu vegna þess að Fiskiðjusamlagið þurfi svig- rúm til að selja sín bréf. Báðir segj- ast þó fylgjandi því að bærinn hverfi sem ráðandi afl úr fyrirtækinu á næstu árum. „Þann tíma sem við erum við völd verður ekki aukið við eign bæjarins, fremur verður losað um pólitískar krumlur okkar Stef- áns af því,“ segir Siguijón. Skólaþjónusta á eigin vegum Ljóst er að nýi meirihlutinn mun ekki una þeirri stöðu sem bærinn er í innan Eyþings, landshlutasam- taka Norðurlandskjördæmis eystra. Einar Njálsson er þar formaður en mun hætta samkvæmt samkomu- lagi stjórnarflokkanna. Hinir nýju forystumenn Húsvíkinga eru sér- staklega óánægðir með það að Ey- þing hafí ekki sett upp útibú skóla- þjónustu sinnar á Húsavík eins og þeir segja að samið hafi verið um. Ekki hefur tekist að ráða þá tvo til þijá starfsmenn sem um var rætt. „Við teljum að Eyþing þjóni ekki því hlutverki sem það var stofnað til. Ef samtökin geta ekki sett upp þessa þjónustu hér þá verð- um við að gera það sjálfir," segir Siguijón. Bendir hann á að tilbúin sé skrifstofa fyrir þá starfsemi sem átti að vera á vegum skólaþjón- ustunnar á Húsavík en starfsmenn- irnir hafi ekki sést. Telja þeir að til greina geti komið að starfsemin verði sett upp í samvinnu við önnur sveitarfélög í Þingeyjarsýslum og benda á að búið sé að sameina hér- aðsnefndirnar í eina og ráða fram- kvæmdastjóra. „Við höfum hingað til verið í varnarstöðu gagnvart hinu opin- bera. Við ætlum að breyta því, við ætlum að vera í sókn þó ekki viljum við allir vera í Framsókn," segir Siguijón Benediktsson þegar þeir félagar eru spurðir að því hvernig Húsvíkingar muni verða varir við nýja stjórn bæjarins. Stefán Har- aldsson nefnir í þessu sambandi málefni framhaldsskólans og sjúkrahússins, auk þeirra mála sem þegar hafa verið nefnd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.