Morgunblaðið - 21.11.1996, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Stefán Ólafsson
BISKUP Islands, herra Olafur Skúlason, vígir nýtt pípuorgel í Hafnarkirkju.
Nýtt pípuorgel vígt
í Hafnarkirkju
Höfn - Mikil hátíð var í Hafnar-
kirkju í Hornafirði sunnudaginn
17. nóvember sl. Þess var minnst
að 30 ár eru liðin frá vígslu kirkj-
unnar og um leið vígði biskup Is-
lands, herra Ólafur Skúlason, nýtt
21 raddar pípuorgel. Orgelið er
danskt, smíðað hjá P. Bruhn og
San og kostar uppsett um 26 millj-
ónir.
Formaður sóknarnefndar, Arni
Stefánsson, rakti í stuttu máli
byggingarsögu þessarar fyrstu
kirkju sem reist var á Höfn. Gerði
hann einnig grein fyrir orgelkaup-
unum og þeirri vinnu sem lagt var
í áður en endanleg ákvörðun um
kaup var tekin. Taldi hann að
kirkjan væri tæpast fullbyggð fyrr
en nú þegar í hana væri komið
þetta ágæta hljóðfæri.
Sóknarprestur Hafnarsóknar,
sr. Sigurður Kr. Sigurðsson, þjón-
aði fyrir altari ásamt fyrrum sókn-
arpresti staðarins, sr. Baldri
Kristjánssyni. Biskup Islands
flutti predikun og m.a. minntist
hann á hlutverk kirkjunnar á tím-
um mikilla náttúruhamfara. Einn-
ig voru viðstödd messuna þau sr.
Einar Jónsson, prestur á Kálfa-
fellsstað og sr. Sjöfn Jóhannes-
dóttir, prestur á Djúpavogi. Sam-
einaður kirkjukór Hafnarkirkju
og Bjarnaneskirkju söng við und-
irleik og stjórn organistanna Stef-
áns Helgasonar og Kristínar Jó-
hannesdóttur. Að lokinni messu
bauð sóknarnefnd til kaffisamsæt-
is í safnaðarheimilinu.
Þegar kirkjugestir höfðu notið
veitinga flutti fólk sig aftur yfir
í kirkjuna. Þar lék Haukur Guð-
laugsson, söngmálastjóri Þjóð-
kirkjunnar, á hið nýja hljóðfæri
og útskýrði fyrir viðstöddum
möguleika þess. Minnti hann á að
þótt ýmsum þætti svona hljóðfæri
dýrt mætti ekki gleyma því að það
gæti dugað í tvö hundruð ár enda
byggt á mjög langri hefð í orgel-
smiðum. Að leik hans loknum tók
við Guðni Þ. Guðmundsson, organ-
isti í Bústaðakirkju. Lýsti Guðni
yfir ánægju sinni með orgelið og
gat þess um leið hve vel kór og
hljóðfæri hefðu hljómað saman í
messunni.
Þvottabjörn flytur í
nýtt húsnæði
Reyðarfirði -1 lok októbermán-
aðar flutti fatahreinsunin og
þvottahúsið Þvottabjörn í nýtt
glæsilegt húsnæði í Hlunnavogi
3, Reyðarfirði. Nýja þvottahúsið
stenst nú ströngustu kröfur um
skipulag, búnað og hreinlæti og
afkastagetan hefur þrefaldast
með tilkomu gufuketils. Þetta er
mikill munur frá því sem var,
bæði fyrir starfsfóik og við-
skiptavini. Þjónustan verður
hraðari og betri og opnunar-
tíminn Iengist en hann er nú frá
kl. 11-16 og vinnuaðstaða stars-
fólks er eins og best verður á
kosið. Þvottabjörn sér um þvott
á vinnufatnaði frá matvæla-
vinnslum, fyrstihúsum, vélaverk-
stæðum, hótelum o.fl. Segja má
að hér sé allt þvegið sem hægt
er að þvo og allt hreinsað sem
hægt er að hreinsa. Tilboð eru
gerð í föst viðskipti og einnig
hefur Þvottabjörn gert við vinnu-
fatnað fyrir fasta viðskiptavini.
Fyrir okkur Austfirðinga eru það
gífurleg þægindi að hafa við
höndina eins góða og fullkomna
þjónustu og hér er veitt.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
BRYNDÍS Steinþórsdóttir og Björn Þór Jónsson, eigendur
Þ vottabj ar nar.
Fjargöng
við Fiskilæk
Borgarnesi - Nýverið voru grafin
fjárgöng undir þjóðveginn við
Fiskilæk í Leirár- og Melahreppi.
í tengslum við átak sem gert
var í að girða
af þjóðveginn
Morgunblaðið/Theodór
VEGAGERÐIN í Borgarnesi lét gera fjárgöng undir þjóðveginn við bæinn Fiski-
læk nýverið. Ekið hefur verið á um 10 kindur ár hvert á þessum slóðum.
sunnan Borg-
arfjarðarbrúar
inn í Hvalfjörð,
lét Vegagerðin í
Borgarnesi gera
hálfs annars
metra víð fjár-
göng við bæinn
Fiskilæk. Á liðn-
um árum hafa
orðið að jafnaði
um 10 um-
ferðaróhöpp ár
hvert á þessum
slóðum. Vonast
menn til þess að
þetta átak
Vegagerðarinn-
ar verði til þess
að umferðar-
slysum fækki
verulega á þess-
um slóðum.
Hagnýtt gildi rannsókna
í ferðaþjónustu
Félag háskólamenntaðra ferðamálafræðinga
(FHF) heldur sitt þriðja málþing
föstud. 22. nóvember kl. 14-19 í Mörkinni 6
(hús Ferðafélags fslands).
Þingforsetar:
Inga Sólnes, gæðafulltrúi á Hótel Sögu
Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar
Dagskrá:
14:00 Ávarp. Birgir Þorgilsson, formaður Ferðamálaráðs Islands
14:10 Setning. Sigrún Sigmundsdóttir, ferðamálafræðingur
14:15 'Tourism Research and its Practical Use"
Prófessor John E. Fletcher, forstöðumaður 'The International
Centre for Tourism and Hospitality Research’ við háskólann I
Bournemouth I Englandi
15:00 Fyrirspurnir
15:20 Kaffiveitingar
15:50 "Frá flugfélagi til ferðaþjónustufyrirtækis"
Helga Þóra Eiðsdóttir, deildarstjóri markaðsrannsókna hjá
Flugleiöum
16:05 "Rannsóknir - grundvöllur stefnumótunar í ferðamáium"
Rögnvaldur Guðmundsson, feröamálafræðingur, formaður FHF
16:20 "Gistináttatalning og Ferðavenjukönnun Hagstofu íslands"
Rut Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Hagstofu Islands
16:35 "Hlutverk rannsókna í uppbyggingu ferðaþjónustu á fslandi"
Prófessor Þórólfur Þórlindsson, varaformaður Rannsóknarráðs
(slands
16:55 Pallborðsumræður með frummælendum. Fyrirspurnir
17:55 Þingslit. Arnar Már Ólafsson, ferðamálafræðingur
18:00 Veitingar
Þinggjald kr. 1500
Skráning í s/fax. 555 4130 og s. 553 1266
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
ÞORSTEINN Ólafsson, formaður Umhyggju,
félags til stuðnings sjúkum börnum, tekur við
hinni veglegu peningagjöf til félagsins úr hendi
Haralds Sturlaugssonar, framkvæmdastjóra HB.
MAGNÚS Guðmundsson, skrifstofustjóri HB,
sem nýlega hélt upp á 50 ára starfsafmæli sitt
hjá fyrirtækinu, sker fyrstu sneiðina af afmælis-
tertunni. Með honum á myndinni eru þeir Eyjólf-
ur Sveinsson, stjórnarformaður HB, og Haraldur
Sturlaugsson, framkvæmdastjóri HB.
Haraldur Böðvarsson hf. á Akranesi 90 ára
Fjölmenm á afmælishátíð
Akranesi - Fjöldi fólks var viðstadd-
ur afmælishátíð í tilefni af því að
90 ár voru liðin frá stofnun Haraldar
Böðvarssonar hf. á Akranesi sl.
sunnudag. Fyrirtækið er elsta út-
gerðarfélag landsins og eitt það
stærsta og öflugasta.
Gestir sem talið er að hafí verið
um 700 talsins notuðu tækifærið til
að skoða fyrirtækið og þann rekstur
sem tengist því og jafnframt að njóta
glæsilegra veitinga sem í boði voru
í tilefni dagsins. Það kom í hlut
Magnúsar Guðmundssonar, skrif-
stofustjóra, að skera fyrstu sneiðina
af 10 metra langri afmælistertu en
Magnijs náði þeim áfanga 2. júlí sl.
að hafa starfað við fyrirtækið í 50 ár.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði í hátíðarræðu
sinni m.a. að velgengni fyrirtækisins
í 90 ára sögu þess væri fyrst og
fremst fyrrverandi og núverandi
starfsfólki að þakka og fór hann við-
urkenningarorðum um störf þess.
Hann titkynnti að stjórn fyrirtækisins
hefði ákveðið að gefa 2 millj. kr. til
ýmissa framfaramála í tilefni þessara
tímamóta og kæmi féð í hlut margra
aðila.
Eitt verkefni hefði þó verið styrkt
sérstaklega og tilkynnti hann á af-
mælishátíðini að það væri Um-
hyggja, félag til styrktar sjúkum
börnum. Haraldur afhenti formanni
félagsins, Þorsteini Olafssyni,
1.000.000 kr. sem verður stofnfram-
lag í sjóð sem fjölskyldur veikra
barna geta sótt um styrk úr ef fjár-
hagserfiðleikar koma upp vegna
veikindanna. í máli Haraldar kom
fram að vonast væri til að þessi litli
vísir yrði upphaf öflugs sjóðs sem
kæmi að góðu gagni í framtíðinni.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fyrir-
tækið styður góð málefni og hafa
margir notið góðs af gjafmildi þess
og ræktarsemi bæði á Akranesi og
annars staðar.
Þorsteinn Ólafsson þakkaði gef-
endum stórhug þeirra og kvað
stuðninginn vera ómetanlegan fyrir
félagið og hagsmuni umbjóðenda
þess.