Morgunblaðið - 21.11.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 19
ÚR VERINU
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Rangt að varpa ábyrgðinni af
þeim sem bera ábyrgð á frákasti
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, sagði í ávarpi sínu til Fiski-
þings í gær að þeir, sem bæru
ábyrgðina á því að henda físki, yrðu
sömuleiðis að sæta ábyrgðinni í þjóð-
félagsumræðunni og gagnvart lög-
um. í þessu sambandi væri ábyrgð
útvegsmanna og skipstjómarmanna
mest. Fram hjá því yrði aldrei litið.
„Vissulega geta fískveiðistjórnunar-
reglur haft ákveðin áhrif, en við
þekkjum það af reynslunni, bæði
okkar og annarra, að því miður er
það ekki svo að við getum leyst þenn-
an vanda bara með því að breyta
um fiskveiðistjómunarkerfí. Það
væri hinsvegar mjög freistandi ef svo
væri.“
Ráðherrann sagði að þær tölur,
sem lægju fyrir frá FAO, sýndu að
um 30% af heimsaflanum væri hent.
Ekki byggju allar þjóðir við sams
konar fískveiðistjórnunarkerfi. Inn-
an lögsögu Evrópusambandsins, þar
sem ekki er aflamarkskerfí af því
tagi sem við búum við heldur
sóknarstýring, væri gengið illa um
auðlindina og eins hefðum við dæmi
um slæma umgengni íslenskra tog-
ara, sem væru á frjálsum veiðum
utan landhelginnar. I sóknarmarks-
kerfí sæktu menn auðvitað í að veiða
verðmætasta fiskinn, t.d. þorsk,
fyrst og síðan aðrar tegundir, en
yrðu þá að henda þorskinum ef hann
slæddist með. „Þessi vandi kemur
upp í öllum fiskveiðistjórnunarkerf-
um. Það er þess vegna siðferðilega
rangt í umræðunni að varpa þessari
ábyrgð af herðum þeirra sem
ábyrgðina bera. Ef við gerum það,
þá er ekki mikil von til þess að við
Morgunbiaðið/Ásdís
55. FISKIÞING Fiskifélags íslands var sett í gær. Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra ávarpaði þingið. Olafur Sigurðs-
son fréttamaður ræddi um fréttaflutning og Einar K. Guðfinns-
son stjórnarformaður flutti setningarræðu.
náum árangri. Útgerðarmennirnir
og skipstjórarnir bera höfuðábyrgð
í þessu efni og umræðan verður að
snúast um það hvernig ábyrgðartil-
finning þeirra verður aukin og
hvernig ábyrgð verður komið fram
gagnvart þeim, sem brjóta lögin, því
að þeir sem eru að brjóta lögin með
þessum hætti eru ekki að plata ein-
hvetja skrifborðskarla uppi í sjávar-
útvegsráðuneyti. Þeir eru að svíkja
íslensku þjóðina, ekki bara íslensku
þjóðina sem lifir í dag heldur líka
þá þjóð sem lifir hér á morgun, af-
komendur okkar, sem eiga að
byggja á fiskveiðiauðlindinni til
lengri tíma. Og það er þess vegna
sem það er svo mikilvægt að okkur
takist að stíga frekari skref í þessu
efni og haga umræðunni á þann veg
að ábyrgðin liggi þar sem hún á að
liggja.“
Spjótunum sjaldan
beint að lögbrjótum
Þorsteinn sagði það valda sér
nokkrum áhyggjum á hvem veg hin
almenna umræða um þessi efni hafí
farið fram í þjóðfélaginu. Ljóst væri
að vandinn hefði hvergi verið leyst-
ur. Við stæðum enn frammi fyrir því
að físki væri hent þrátt fyrir að allar
þær ráðstafanir, sem gerðar hefðu
verið á undanförnum árum, hafi mið-
að að því að bæta ástandið. „En í
almennri umræðu um þetta efni, er
spjótunum mjög sjaldan beint af
þeim, sem eru að bijóta lögin, að
þeim sem eru að ganga illa um auð-
lindina, að þeim sem höfuðábyrgðina
bera. Sökinni er yfírleitt varpað eitt-
hvað annað. Það eru aðrir en útgerð-
armennimir eða skipstjórarnir sem
bera ábyrgð á því að físki er hent
og ýmist er bent á fiskveiðistjómun-
arkerfið, trékarlana í ráðuneytinu
eða annað í þeim dúr.
Ég held að það sé mjög alvarlegt
ef við leyfum umræðunni að þróast
á þann veg að þeir sem ábyrgð bera
á lögbrotunum komast upp með það
í umræðunni að varpa ábyrgðinni frá
sér. Meðan svo er, náum við ekki
tökum á vandanum. Þau lög, sem
við höfum sett núna, gera ráð fyrir
því að koma ábyrgð fram með skýr-
ari hætti en verið hefur. í síðustu
viku var t.d. mikil umræða um það
þegar skipstjóri kvaddi sér hljóðs og
greindi frá því að á skipi, sem hann
starfaði á, hafí físki verið hent á til-
teknu tímabili. Mér fínnst mjög mik-
ilvægt að þeir, sem á sjónum eru,
komi fram með upplýsingar sem
þessar og geri það mögulegt að taka
á afbrotum eins og þessum. Það fyr-
irtæki, sem þama á í hlut, getur, ef
þessar fullyrðingar reynast réttar,
átt verulegar refsingar í vændum,
háum sektum og jafnvel sviptingu
veiðileyfís," sagði sjávarútvegsráð-
herra.
Þorsteinn sagði það vera mikil-
vægt að sýna fram á það að við
stundum veiðar með ábyrgum hætti,
ekki bara af því að lífsafkoma okkar
sjálfra til lengri tíma litið væri undir
því komin, heldur vegna þess að við-
skipti okkar með afurðir gætu líka
verið háð því að við sýndum mark-
aðnum og öðrum þjóðum að við
stundum veiðar á sjálfbærum grund-
velli. Sem betur fer, gætum við í
öllum meginatriðum sýnt fram á
þetta með okkar veiðar ef frá væri
skilinn sá vandi, sem við væri að
glíma varðandi frákast á físki. Á síð-
ari árum hafí verið reynt að kapp-
kosta með margs konar ráðstöfun-
um, sem skilað hefðu nokkrum ár-
angri, að koma í veg fýrir slæma
umgengni, frákast fisks og svindl
framhjá vigt. „Ég er í engum vafa
um að lokanir á uppeldisstöðvum
hafa dregið úr veiðum á smáfíski og
að físki sé hent af þeim sökum. Við
höfum smám saman verið að setja
nýjar reglur um veiðarfæri sem hafa
fært okkur fram á við í betri um-
gengni. Á grundvelli tillagna frá
samstarfsnefnd sjómanna og útvegs-
manna var sett ný löggjöf um um-
gengni við fiskimiðin sem setur skýr
markmið í þessum efnum, skýrar
leikreglur og ákveðin viðurlög við
brotum."
Skæruliðastarfsemi
samtaka af ýmsu tagi
Ráðherrann nefndi annan vanda á
Fiskiþingi í gær sem við væri að
etja, en það væri efnahagsleg skæru-
liðastarfsemi samtaka af ýmsu tagi
sem beinlínis hefðu komið í veg fyrir
hvalveiðar og væru nú að reyna að
koma í veg fyrir fískveiðar með því
að ýta til hliðar öllum vísindalegum
rökum um sjálfbæra nýtingu fískim-
iðanna. Auðvitað þyrfti að gera
greinarmun á hvaða aðilar ættu hlut
að máli hveiju sinni þó engum vafa
væri undirorpið að við værum hér
að fást við ný og afar mikilvæg við-
fangsefni, sem skiptu þróun sjávar-
útvegsins á komandi árum miklu
máli. Þvi væri það fagnaðarefni að
Fiskifélagið skyldi hafa kosið að gera
umhverfismál að sérstöku viðfangs-
efni á þessu Fiskiþingi.
I tilefni af opnun nýrrar rannsóknarstofu
í mannerfðafræðum undir heitinu
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
verður haldinn fyrirlestur
um erfðavísindi laugardaginn 23. nóvember
klukkan I 3.00 í sal 4 í Háskólabíói.
Þetta er sá fyrsti í röð fyrirlestra sem Islensk erfðagreining mun standa fyrir
í vetur. Fyrirlesari er Peter Donnelly, prófessor og forseti tölfræðideildar
Oxfordháskóla og yfirmaður vísindaráðs Islenskrar erfðagreiningar.
________________ Erindið nefnist
The language of the genes:
What modern genetics can tell us about our origins.
Fyrirlesturinn er helgaður minningu
Ólafs Jenssonar prófessors og er öllum opinn.
HÁSKÓLIÍSLANDS
ISLENSK ERFÐAGREINING
ABGUS & ÖRKIN / SlA C0002