Morgunblaðið - 21.11.1996, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 33
AÐSENDAR GREINAR
Frá fortíð til
framtíðar
Hálfrar aldar afmæli
Ökukennarafélags íslands
Á TÍMAMÓTUM
eins og 50 ára afmæli
Ökukennarafélags Is-
lands nú föstudaginn
22. nóvember er ekki
úr vegi að láta hugann
reika og velta fyrir sér
sögulegu samhengi og
faglegri stöðu öku-
kennslu og ökuréttinda-
veitinga á íslandi.
Þegar saga ökurétt-
inda og ökunáms á ís-
landi er skoðuð kemur
í Ijós að fyrst árið 1915
var sett reglugerð um
sérstakt próf fyrir bif-
reiðastjóra, sem höfðu
fengið kennslu í þeim
fræðum sem þá var
krafist. Þessu samfara var einnig
kveðið á um að sérstakir, löggiltir,
ökukennarar skyldu annast kennsl-
una.
Sagan segir, að þeir menn sem
fengu útgefin fyrstu ökuskírteinin á
íslandi, hafi verið á námskeiði þar
sem aðalkennarinn hafði ekki þessa
sérstöku löggildingu. Fyrstu ökuskír-
teinin voru gefin út 17. júní 1915.
Fyrsta löggildingin til handa öku-
kennara var gefin út 9. desember
1915, en hana fékk Björgvin Jónsson
vélfræðingur.
Vélfræðileg sjónarmið
Svo virðist sem aðaláherslan í ár-
daga ökukennslunnar hafi verið lögð
á „mekanísk" eða vélfræðileg sjónar-
mið. Má það teljast eðlilegt þar sem
tiltölulega fáir höfðu innsýn í þessi
flóknu tæki og bilanatíðni ekkert í
líkingu við og miklu meiri en sú, sem
menn þekkja frá síðari tímum. Á
þessum tímum þurftu ökumenn að
geta bjargað sér á áfangastað, þó
að eitthvað færi úrskeiðis varðandi
hinn tæknilega búnað. Það var svo
árið 1941 að settar voru reglur um
að aðeins þeir, sem orðnir voru 25
ára og höfðu fengið ökuskírteini sem
heimilaði akstur leigubifreiðar gátu
fengið réttindi til ökukennslu. Af því
má ráða að einhveijar áherslubreyt-
ingar voru orðnar í öku-
kennslunni.
Vafalaust jókst öku-
hraðinn með bættum
vegum. Atvik eins og
umferðarslys fara að
gera vart við sig. í sögu
aksturs og umferðar-
menningar voru áhrif
síðari heimsstytjaldar-
innar byltingarkennd,
eins og á flestum öðrum
sviðum íslensks þjóð-
lífs.
Nauðsyn
samræmingar
Upp úr þessu fóru
menn, sem unnu að
umferðar- og öryggis-
málum á íslandi, að gera sér grein
fyrir mikilvægi þess að þeir sem
stunduðu ökukennslu ættu að vinna
saman að þessum mikilvæga mála-
flokki. Ekki er að efa að þeir ágætu
menn, Jón Oddgeir Jónsson, fulltrúi
hjá Slysavarnafélagi íslands, og
Viggó Eyjólfsson, bifreiðaeftirlifs-
maður, sem báðir störfuðu að örygg-
ismálum, höfðu þjóðarhag að leiðar-
ljósi þegar þeir kölluðu ökukennara
í Reykjavík saman til fundar í þeim
tilgangi að hvetja til stofnunar fé-
lags. Samræming vinnuaðferðanna
myndi hafa bætandi áhrif á um-
ferðarsöryggismál landsmanna.
Á fundi 22. nóvember 1946 var
svo ákveðið að ökukennarar stofnuðu
með sér félag og hlaut það nafnið
Bifreiðakennarafélag Reykjavíkur.
Tilgangur féiagsins skyldi vera:
a) Að vinna að aukinni umferðar-
menningu allra þeirra er ökutækjum
stjórna.
b) Að koma á fót bifreiðakennslu-
skóla á svo víðtækum grundvelli sem
frekast er kostur.
c) Að tryggja að nemendur fái sem
besta og fullkomnasta kennslu í bif-
reiðaakstri og aukna þekkingu á
umferðareglum.
d) Að koma á föstu formi um
kennsluaðferðir.
e) Að vinna að hagsmunamálum
Guðbrandur
Bogason
Sértilboð til
London
28. nóvember kr. 29.270
lAðeins 1 vinnudagur
Flug og hótel
Tryggðu þér nú síðustu sætin til London á lága verð-
inu í vetur, þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Viðbótar-
gisting á Butlins hótelinu, sem hefur notið mikilla vinsælda
hjá farþegum okkar, enda skammt frá Oxfordstræti. Öll her-
bergi með sjónvarpi, síma og baðherbergi. Og að auki er fjöl-
di annarra hótelvalkosta í hjarta London.
17.570
Verð frá
Flugsæti. Verð með flugvallar-
sköttum, mánudagur til
fimmtudags í nóvember.
verð frá
29.270
M.v. 2 í herbergi, Butlins Hótel,
með morgunverði, 28. nóvember,
3 nætur. Skattar innifaldir.
Hvenær er laust?
21. nóv. - uppselt
25. nóv. — 17 sæti
28. nóv. — 18 sæti
HEIMSFERÐIR
Siðustu sœtin í vetur
Austurstræti 17, 2. hæð. Simi 562 4600
Ökukennara-
félagið hefur, að mati
Guðbrands Bogason-
ar, unnið að bættri
umferðarmenningu og
auknu umferðaröryggi.
félagsmanna, eftir því sem við verður
komið.
Má segja að meginstefna félagsins
sé með mjög svipuðum áherslum enn
þann dag í dag, þó að nokkrar breyt-
ingar hafí að sjálfsögðu orðið.
Útgáfa kennsluefnis
Málefni sem félagið hefur unnið
að eru fjölmörg á sviði bættrar um-
ferðar. Þar má meðal annars nefna,
að óslitið frá árinu 1960 hefur félag-
ið annast útgáfu kennsluefnis fyrir
almennt bifreiðastjórapróf og síðar
annað ökukennsluefni. I dag er út-
gáfa kennsluefnis snar þáttur í starf-
semi félagsins.
Með breytingunni 26. maí 1968
frá vinstri umferð í hægri má segja
að nýtt tímabil hefjist í sögu Öku-
kennarafélagsins, en við þá aðgerð
og allan undirbúning voru félags-
menn mjög virkir þátttakendur.
Umsvif félagsins jukust stöðugt og
það hafði afskipti af æ fleiri mála-
flokkum. Félagið var gert að lands-
félagi og nafni þess breytt í Öku-
kennarafélag íslands.
Félagið hefur alla tíð beitt sér
fyrir faglegum framgangi í öku-
kennslu og frá 1968 hefur félagið
staðið fyrir rekstri ökuskóla, sem
hefur ávallt verið í fararbroddi við
að innræta verðandi ökumönnum
skynsamleg viðhorf til umferðarsam-
félagsins.
Mark sett á
urnferðarmenninguna
ísland er mjög ungt land þegar
litið er til skipulagðrar umferðar.
Samfélagið hefur nú notið samferðar
Ökukennarafélags íslands í fimmtíu
ár. Það leikur varla mikill vafí á því
að starfsemi félagsins hefur átt stór-
an þátt í að marka umferðarmenn-
ingu þessara áratuga.
Þó ökukennslan gegni stóru hlut-
verki í umferðarmálum og geti talist
leiðandi að nokkru leyti eru fjölmarg-
ir aðrir þættir sem hafa áhrif á mót-
un ökumanna og vegfarenda al-
mennt. Þar má nefna heimilin, skól-
ana og aðrar uppeldisstofnanir, lög-
gjafann, eftirlitsstofnanir og þá al-
mennu þjóðfélagsumgjörð sem við
lifum í.
Með frumherjastörfum félagsins,
sem hefur beitt sér fyrir nýjungum
og þróun heppilegra aðferða í um-
ferðinni, hefur Ökukennarafélag Is-
lands lagt þung lóð á vogarskálar
bættrar umferðar og reynt að kalla
fram og móta leiðir við aksturslag,
sem auðveldar hinum almenna öku-
manni að ferðast um í nútímaþjóð-
félagi. Það má þó aldrei láta staðar
numið við framþróunina. Ökukennsl-
an þarf að miða að því að allir öku-
menn hafí jákvæð viðhorf til umferð-
arinnar og leggja áherslu á mannleg
samskipti. Að kennslan leiði af sér
færni við stjómun ökutækis og þekk-
ingu á náttúrulögmálunum þannig
að hættuástand skapist ekki heldur
nái ökumaðurinn að meta aðstæður
á ábyrgan hátt í tíma. Að hann þurfi
sem sjaldnast að beita leikni við úr-
lausn hættulegra aðstæðna, sem því
miður skapast of oft í umferðinni.
Með þetta að leiðarljósi getur
Ökukennarafélag íslands horft björt-
um augum til framtíðarinnar, og
heitið þjóðfélaginu stuðningi sínum
í baráttunni við þann mikla vágest,
umferðarslysin.
Eitt er víst. Áherslur í ökunámi
þurfa og eiga að vera aðrar en þær
voru í árdaga umferðar á Islandi,
þegar aðaláherslan var lögð á mót-
orviðgerðir. Næg verkefni eru fram-
undan við að þróa og bæta umferð-
armenninguna á íslandi.
Fyrir hönd Ökukennarafélags ís-
lands vil ég þakka öllum þeim sam-
ferðamönnum sem greitt hafa götu
félagsins, fyrir ánægjulega samfylgd
á liðnum árum.
Höfundur er formaður
Okukennarafélags Islands.
NDVEMBER-SPRENGJA
FIMMTUDAG-S UNN U DAG
Allar dragtir
og
stakir jakkar
+30%
afsláttur
Laugavegi 44, Kringlunm