Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 43
_____AÐSENPAR GREIIMAR_
Umboðsmaður
sjúklinga er nauðsyn
Guðrún Maria Ásdís
Óskarsdóttir Frímannsdóttir
HVERS vegna
skyldum við hjá Sam-
tökunum Lífsvog,
óska eftir því að
sjúklingar á íslandi
eigi sér umboðs-
mann?
Ástæðan er sú, að
á þeim stutta tíma
er samtök þessi hafa
starfað, hefur komið
æ betur í ljós, hversu
illa gengur hjá
starfsmönnum heil-
brigðisþjónustunnar,
þar með talið emb-
ætti landlæknis, að
finna og viðurkenna
mistök og óhöpp er
verða í læknismeðferð.
Hin langa ganga sjúklinga um
óravegu kerfisins, í leit sinni að
sanngirni og réttlæti, er með ólík-
indum. Sem dæmi er sjúklingum,
bent á að sækja um bætur úr sjúkl-
ingatryggingasjóði af embætti
landlæknis, en er síðan hafnað af
Tryggingastofnun. Við teljum hér
aðeins verið að þvæla fólki fram
og til baka í kerfínu og hér inni
handhafi stjórnvalda ekki nægilega
vel af hendi leiðbeiningarskyldu
sína, er kveður til dæmis á um í
stjórnsýslulögum III kafla 7. máls-
grein, er segir „Stjórnvald skal veita
þeim er til þess leita nauðsynlega
aðstoð og leiðbeiningar varðandi
þau mál er snerta starfssvið þess.“
Hvað varðar rannsóknarþátt í
mistakamálum, má raunar segja að
II kafli hinna sömu laga geti vart
talist uppfylltur, en hann varðar
sérstakt hæfi, í 3. grein segir að
starfsmaður eða nefndarmaður sé
vanhæfurtil meðferðar máls. 1. „Ef
hann er aðili máls, fyrirsvarsmaður,
eða umboðsmaður aðila.“ I reynd
er landlæknir fyrirsvarsmaður
lækna en yfirleitt leitar hann álits
lækna þeirra er taldir eru valdir að
mistökunum, og þar með aðilar
máls. Þetta höfum við gagnrýnt
mjög og teljum ekki viðunandi.
Hvað varðar eðli meintra mistaka-
mála, er berast til Lífsvogar, eru
sýkingar í kjölfar aðgerða ýmiss
konar að virðist óhemjustór áhættu-
þáttur, áhættuþáttur er virðist því
miður ekki svo mjög til umræðu
fyrir aðgerðir. Það vekur einnig at-
hygli, hve ótrúlegan fjölda skurð-
aðgerða einn sjúklingur hefur mátt
undirgangast. Við höfum spurt hvort
ekki séu takmörk fyrir því hvað
hægt sé að leggja margar aðgerðir
á einstaka hluta líkamans, s.s. að
laga það sem aflaga fór í fyrri að-
gerðum. Oftrú íslenskra lækna á
pillulækningum er ekki einsdæmi,
því Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
hefur nú varað við t.d. ofnotkun
sýklalyfja í heiminum. Gleðipillunni
Prozac tóku íslendingar fagnandi,
með aðstoð lækna, enda tíska í
Bandaríkjunum, þótt enn séu menn
ekki komnir til botns hvað varðar
langtímanotkun lyfsins.
Við teljum það ranga sjúkdóms-
greiningu, ef heilbrigðu fólki er
gert að gleypa gleðipillur, án nokk-
urrar virkilegrar ástæðu. Hið sama
má reyndar segja um að gefa fólki
gleðipillur í stað þess að reykja síg-
Umboðsmaður sjúkl-
inga er nauðsynlegur,
segja Guðrún María
Oskarsdóttir og Asdís
Frímannsdóttir, í flóknu
ferli nútíma heilbrigðis-
þjónustu.
arettur, sem er aðeins að fara úr
öskunni í eldinn, að okkar áliti.
Hið versta er að allt þetta pilluát
við öllum mögulegum kvillum höf-
um við fyrir börnum okkar. „Ekk-
ert mál að éta pillur við hveiju sem
er“ tæknilausnir tæknialdar. Sem
betur fer hafa augu manna nú opn-
ast ögn, hvað varðar gagnrýnt við-
horf í málum þessum.
Frumskógarlögmál markaðs-
hyggjunnar er nefnilega að fínna á
þessum vettvangi, samanber lækna
í starfí hjá tóbaksframleiðendum
úti í heimi. Við teljum hina duglegu
og frábæru lækna er við eigum,
allsendis ekki njóta sannmælis,
meðan nokkrir fljótfærir og kæru-
lausir fá að starfa óáreittir við hlið
þeirra. Við vitum það einnig að hin-
um duglegu geta orðið á mistök,
enda eru læknar mannlegir. Spurn-
ingin er hins vegar sú að geta viður-
kennt þau hin sömu mistök. Þess
eru hins vegar dæmi og þeir lækn-
ar svo sannarlega menn að meiri
fyrir vikið, því sjúklingar þeirra
munu ef til vill geta fengið bættan
þann skaða er af hlaust, en hinir
sjúklingarnir aftur á móti, sem hitta
á lækna er geta ekki viðurkennt
eigin mistök, eiga ekki eins auðvelt
með að sjá sér og sínum farborða
á komandi tímum, vegna þess að
fáist orðið mistök ekki staðfest, er
eigi svo auðvelt að fá bættan skaða
þann er af hlaust.
Það gefur augaleið hversu mjög
hinar svokölluðu „calculated risks“
eykst, svo notuð séu orð landlækn-
is, þegar síaukið álag á starfsfólk
innan veggja sjúkrastofnana er til
staðar, í formi spamaðar og til-
færslna. Þegar hin margfalda
áhætta er fylgir læknisaðgerðum
yfírleitt, getur enn aukist vegna
annarra áhættuþátta svo sem
sparnaðar í mannskap, hraða og
ef til vill mistaka í kjölfar þess, þá
er þörf að staldra við og skoða
ávinnigninn af slíku til lengri tíma
litið.
Eftirlitshlutverkið vegur því af-
skaplega þungt í þessu sambandi,
og þarf að virka sem skyldi. Við
getum tekið sem dæmi mann er
hefur greitt sín gjöld til samfélags-
ins, gegnum tíðina. Hann lendir á
biðlista eftir aðgerð á sjúkrahúsi,
kemst loks í aðgerð eftir árs bið.
Hann lendir í því að fá sýkingu í
kjölfar aðgerðar, og er verri eftir
en áður. Þessi maður kvartar yfír
meðferðinni, en meðferð kvörtunar
hans hlýtur ef til vil lítinn hljóm-
grunn í fyrstu, svo hann kvartar
til æðra stjórnvalds. Enn gæti geng-
ið illa að fínna eitthvað athugavert
við meðferðina, svo hann kvartar
áframhaldandi til æðsta stjórn-
valds.
Lítið gengur, málsmeðferð hans
hefur nú tekið rúmlega þann tíma
sem það tók hann að bíða eftir
umræddri aðgerð á biðlista, og enn-
þá er hann jafnóvinnufær og fyrr.
Þessi maður gæti hugsað sem svo.
„Til hvers í ósköpunum hef ég greitt
mína skatta og skyldur samvisku-
samlega öll þessi ár?“ Hvar er rétt-
lætið í þessum efnum?
Við er störfum með Lífsvog höf-
um talið og teljum brýna nauðsyn
bera til þess að setja á fót sér-
stakan umboðsmann sjúklinga hér
á landi, umboðsmann er gæta
myndi hagsmuna sjúklinga til fulln-
ustu í hinu flókna ferli nútíma heil-
brigðisþjónustu, ásamt því að
standa vörð um heilbrigt samfélag
er hefur réttlætisvitund til marks
um stöðu sína í samfélagi þjóðanna.
Höfundar eru stfórnarnienn í
Samtökunum Lífsvog.
Listasjóður Pennans
Myndlistarmenn
Auglýsing um umsóknir úr sjóðnum
árið 1996.
Styrkir úr Listasjóði Pennans verða veittir
í fimmta sinn um nk. áramót.
Umsóknir þurfa að berast stjórn sjóðsins
fyrir 1. desember 1996.
Sérstök umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins
fást í verslunum og á skrifstofu Pennans.
Penninn hf, Hallarmúla 4,
pósthólf 8280,128 Reykjavík,
sími 540 2000, fax 568 0411.
Góður
í samanburði
Bma
:£»$8SíÉKt
iSamanburðurinn hjálpar þér að velja rétt
| 3 dyra bílar
Rúmtak vélar sm2
Hestöfl
Lengd
Breidd
Völcva- og velfistýri
Utvarp + segulb.
VERÐ
HYUNDAI Atcent LSI vw GolFCt TOYOTA Corolla XLi OPEL Asfra GL NISSAN Almera LX
1341 1398 1330 1389 1392
84 60 75 60 87
4103 4020 4095 4051 4120
1620 1696 1685 1691 1690
J J J J J
J J N J/N J
979,000 1.220.000 1.164.000 1.199.000 1.248.000
Negld vetrardekk fylgja öllum Accent bílum.
3 dyra LSi.Verðfrá
m
HYUHDHI
til framtídar