Morgunblaðið - 21.11.1996, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 21.11.1996, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Á aðalfundi Skógræktarfélags íslands í Hafnarfirði í sumar. Stef- án Pálsson, bankastjóri Búnaðarbanka Islands, klippir á borða við inngang að nýju trjásýnisafni Skógræktarfélags Hafnarfjarðar við athafnasvæði félagsins í Höfða ofan Hvaleyrarvatns en bankinn gerði með rausnarlegu framlagi kieift að opna sýnireitinn. ÚR Vatnshlíð við Hvaleyrarvatn. Guðrún Bjarnason, ekkja Hákonar Bjarnasonar skógræktarsljóra, tók á móti fulltrúum á aðalfundi Skógræktarfélags Islands í sumar. Árið 1955 fékk Hákon landið til erfðafestu en Guðrúnu leist ekki meira en svo á fyrirtækið enda landið ofbeitt og ákaflega berangurs- legt. Hér má sjá eitt áhrifamesta dæmi um gagnsemi alaskalúpínunnar, sem Hákon flutti með sér frá Alaska, en henni var sáð i örsnauða melana í Vatnshlíð um 1957, til dæmis má sjá alaskaösp sem vaxið hefur mjög vel í lúpínunni og nýtur greinilega góðs af starfsemi hennar. Þegar öspin vex upp úr lúpínubreiðunum og myndar laufþak hverfur lúpínan og ýmsar aðrar kröfuharðar tegundir taka við. Skógræktarfélag kemst í góða kippilykkju EFTIR gott og gjöfult sumar, með langa sprota á trjám og hag- stætt haust, eru skógræktarfélögin sum hver í byijun vetrar að halda fræðslufundi og fara yfir afrakstur sumarsins. í vikunni sem leið var undirritað- ur boðinn á skemmtilega og fræð- andi menningarkvöldvöku sem haldin var í Hafnarborg, lista- og menningarmiðstöð Hafnarfjarðar, ■þar sem Skógræktarfélag Hafnar- fjarðar fagnaði 50 ára afmæli sínu. Bekkurinn var þétt setinn og það sem gladdi hjarta skógræktar- mannsins öðru fremur var að meðal gesta var einn af stofnendum fé- lagsins, Jón Magnússon. í kaffisam- sætinu sem boðið var til eftir hátíð- ardagskrána flutti þessi hugsjóna- maður skörulega ræðu. Jón í Skuld eins og hann er oftast nefndur stendur næstum því á hálftíræðu. Hann er em vel og hefur í fáu glat- að þeim eldmóði sem upphaflega þurfti til við ræktun og uppgræðslu meðan þorri samtímamanna var gjörsamlega sneyddur tilfinningu fyrir skógrækt. Jón orðaði þetta eitthvað á þá leið í frásögn sinni, að á þeim árum hefðu verið margir Jónarnir í Hafn- arfirði: Eitt sinn bar svo til að tveir Jónar hittust á förnum vegi niðri í bæ, annar var rollukall en hinn hríslukall. Sagði annar að nú væri illt í efni hjá Finnum. Þeir væru orðnir mjög uggandi um sinn hag viðvíkjandi timburframleiðslu. Á íslandi væri nefnilega byijað að hola niður hríslum og stutt í stórvið- inn. Innti hann kunningja sinn eftir hvort rétt væri að Finnar væru við það að missa atvinnuna og hvort skógræktarmenn á íslandi væru gjörsamlega samviskulaus kvikindi að fara svona illa með frændur sína. Kunninginn svaraði þessu engu en sagði að Nýsjálendingar væru ekki í rónni út af fyrirhuguðum áformum sauðabænda í Hafnarfirði um að flytja út ódýrt sauðaket á gamalgróinn markað í Bretlandi en frést hefði að það myndi slíkt líklega kippa fót- unum undan útflutn- ingi andfætKnganna. Innti hann sauðabónd- ann eftir því hvort rétt væri og hvað niður- greiðslurnar kæmu til með að hækka og hvort hann vissi hvernig hægt væri að fá ódýrt kjöt. Skildu þeir bræð- ur við það og fór hvor sína leið. Frásögn Jóns er í hnotskum söguleg skýring á viðhorfi og deilum sem stóðu áratugum saman milli þess- ara fylkinga. Öldin er önnur nú á dögum. Minna um útflutning á sauðakjöti en aftur á móti æ fleiri bændur sem njóta orðið stuðnings við að leggja grunn að framtíð- arskógi á Islandi, landi og þjóð til gagns. Það var Jóni í Skuld og hans líkum að þakka að viðhorfin breyttust. Hins vegar má segja um hugsjónastarfið í skógræktarfélög- unum eins og oft vill verða um hugsjónastörf að það eru fyrst og fremst aðrir sem njóta ávaxtanna. í Hafnarfirði geta nú íbúar bæjarins og aðrir sem leið eiga um upplönd hans notið skógi vaxinna hlíða, holta og hrauna sem bjóða upp á nánast endalausa útivistarmögu- leika, náttúmskoðun og skjól allan ársins hring. Gráhelluhraun, Sel- höfði, umhverfi Hvaleyrarvatns og Seldalur, Sléttuhlíð og Undirhlíðar allt að Skólalundi og fjölmörg nýleg svæði þar á milli, þar með talin landnemasvæði sem eru orðin yfir 130, eiga eftir að mynda nokkuð samfellt skóglendi á næstu árum. Þannig munu eldri skógarlundir og teigar, sem frumherjarnir og sjálf- boðaliðar fyrr á árum ræktuðu, tengjast og mynda fjölbreytt skóg- lendi sem jafnframt mun tengjast stórskógi alls höfuðborgarsvæðisins sem nefndur hefur verið „Græni trefillinn". Það var létt yfir máli Jóns þegar hann þakkaði fyrir sig, enda hlýtur það að hafa verið mikið gleðiefni fyrir hann, eins og alla aðra sem nutu kvöldsins og sátu í þétt setnum listasal Hafnarborgar, þegar bæjar- stjórinn, Ingvar Viktorsson, og Hólmfríður Finnogadóttir, formað- ur Skógræktarfélags Hafnarfjarð- ar, rituðu undir plagg sem markar tímamót. Með samningnum hefur starf félagsins sannarlega verið metið að verðleikum og bæjarbúar munu einnig koma til með að sjá að það mun skila sér í betri útivist- arsvæðum þegar fram líða stundir. Eins og áður var bent á eru vaxnir upp fjölmargir skógarreitir, sem fólk hefur leitað mikið í síðari ár. Þegar gengið er um þessi skóglendi er hollt að hafa í huga að þessar vinjar urðu til fyrir atbeina sjálf- boðaliða og áratuga ósérhlífni eld- línumanna, sem gerðu skógræktar- hugsjónina að nokkurs konar lífs- viðhorfi. Á aðalfundi Skóg- ræktarfélags íslands í ágúst sl. kom í ljós hve öflugt og lifandi starf Skógræktarfélag Hafnarfjarðar vinnur um þessar mundir. Til marks um hið merka kynningar- og fræðslustarf félagsins má meðal annars nefna útgáfu þess á blaðinu „Þöll“ sem komið hefur út árlega frá árinu 1989. Á þessu ári var ráðist í mikið stórvirki með útgáfu bókar um sögu félagsins, „Græðum hraun og grýtta mela“ og er bókin í alla staði fróðleg og skemmtileg aflestrar. Þá hefur félagið látið gera myndband um starfsemi og sögu félagsins og er varla ofmælt þó fullyrt sé að félagið sé á þessum vettvangi eins og raunar víða ann- ars staðar leiðandi meðal aðildarfé- laganna. Samningur, sem Skógræktarfé- lag Hafnarfjarðar og Hafnarfjarð- arbær gerðu í sl. viku, er lofsverður viðburður í skógræktarmálum og ánægjulegur lokapunktur á gjöfulu sumri sem lengi verður minnst. Rétt er að vekja athygli á samkomu- laginu, ekki síst í ljósi þess skiln- ings og framsýni sem bæjarfélagið Löngu er tímabært að opinber stjórnvöld end- urmeti og hagræði, seg- ir Sigurður Jónsson, framkvæmd og umsýslu hvers konar skógræktarstarfs. sýnir því langtímamarkmiði sem skógrækt og uppgræðsla er hvar- vetna. Mér segir svo hugur að með þessu framtaki hafí bæjaryfirvöld í Hafnarfirði tekið forystu í sam- skiptum við skógræktarfélög og hér sé komin verðug fyrirmynd margra annarra skógræktar- og sveitarfé- laga sem vinna við svipaðar aðstæð- ur. Með samningnum er félaginu gert að axla ákveðnar skyldur gagnvart bæjarfélaginu og þeim samningssvæðum sem félagið hefur umsjón með en á móti leggur bæjar- félagið meira fé til reksturs félags- ins sem gerir það jafnframt sjálf- stæðara og færara um að takast á við umfangsmikil verkefni. Slíkt hið sama hefur reyndar verið að gerast á miklu fleiri sviðum í þjóðfélaginu um samskipti ýmissa félagasam- taka og löngu tímabært að opinber stjórnvöld endurmeti og hagræði skynsamlega framkvæmd og um- sýslu hverskonar skógræktarstarf- semi. Höfundur er framkvæmdasljóri Skógræktarfélags Islands. Bryiyólfur Jónsson Ljósmyndasýning Morgunblaðsins NÁTTÚRUHAMFARIRNAR Á VATNAJÖKLI OG SKEIÐARÁRSANDI hlaup á Skeiðarársandi í byrjun nóvember eru meðal mestu náttúru- hamfara á íslandi á þessari öld. Á svipstundu stórskemmdust samgöngumannvirki á Skeiðarársandi og hringvegurinn rofnaði sem olli einstaklingum og fyrirtækjum á sunnan- og austanverðu landinu miklum óþægindum. Ljósmyndarar Morgunblaðsins fylgdust vel með náttúruhamförunum og í anddyri Morgunblaðshússins, Kringlunni 1, hefur verið komið upp yfirlitssýningu á völdum myndum sem teknar voru þar. Sýningin stendur til föstudagsins 6. desember og er opin á afgreiðslutíma blaðsins kl. 8-18 alla virka daga og laugardaga kl. 8-12. Allar myndimar á sýningunni eru til sölu. MYNDÁSAFN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.