Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 57

Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 57 BRÉF TIL BLAÐSIIMS MUMPnifi Spilun íslenskrar tónlistar hefur minnkað Frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna: í FRAMHALDI af viðbrögðum nokkurra forráðamanna útvarps- stöðva hvað varðar bréf, sem send hafa verið til þess að fá upplýsingar um þá stefnumörkun sem fylgt er varðandi spilun á íslenskri tónlist, vilja undirritaðir formenn Félags ís- lenskra hljómlistarmanna, Félags tónskálda og textahöfunda, STEFs og Sambands hljómplötuframleið- enda taka fram eftirfarandi: Bréfið til forráðamanna útvarps- stöðvanna er ritað í ljósi upplýsinga um síminnkandi spilun á íslenskri tónlist og þær upplýsingar að mestu fengnar úr skýrslum útvarpsstöðv- anna sjálfra. Spilun á Rás 1 er aðeins 21% af heildartónlistarfiutningi og getur varla talist vitni um ræktarsemi við íslenska tónlist þó hlutfall þessarar stöðvar sé hæst allra útvarpsstöðva. Spilun á Rás 2 er aðeins 17,67% af heildartónlistarflutningi og hefur minnkað um tæp 30% á örfáum árum. Undir liðnum Tónlistarstjórn sem merkt er Magnúsi Einarssyni, tónlistarstjóra, á heimasíðu Rásar 2 á alnetinu stendur eftirfarandi: „Meginhluti dagskrár Rásar 2 er létt tónlist. Rás 2 hefur alltaf lagt mikla áherslu á að spila íslenska tónlist og hefur verið í algerum sér- flokki hvað það varðar meðal út- varpsstöðva." Yfirlýsingar tónlistar- stjóra í Qölmiðlum um íslenska tón- list eru því gjörsamlega á skjön við þessa stefnu svo ekki sé talað um framkvæmd hans á henni. Fullyrð- ingar hans um að baki krafna tón- listarfólks og útgefenda sé eingöngu krafa um meiri greiðslur til handa útgefendum eiga ekki við nein rök að styðjast. Auk höfundargjalda sem útvarpsstöðvar greiða fyrir afnotarétt sinn að tónlist er um að ræða greiðslu til íslenskra útgefenda og flytjenda. Hins vegar virðist tónlistarstjóri sér ekki meðvitaður að nákvæmlega samskonar greiðslur renna til er- lendra útgefenda og flytjenda eftir að svonefndur Rómarsáttmáli komst á fyrir tveimur árum. Þannig er sú minnkun á spilun íslenskrar tónlistar ekki til þess fallin að minnka útgjöld Kjarvalsstaðir 1 zíppol V Lækkað verð - V 100 mismunandi tegundir. J GARÐAR ÓLAFSSON úrsmiður - Lækjartorgi -s.5SI 0081. útvarpsstöðvanna. Fullyrðingar tón- listarstjóra Rásar 2 í garð hagsmuna- samtaka hljómlistarfólks og útgef- enda undirstrika þekkingarleysi hans á þessum málum. Spilun íslenskrar tónlistar á Bylgj- unni var á síðasta ári tæp 15% og hafði þá minnkað úr tæpum 22% frá því árið 1994. Þessi hlutdeild miðast við dag- og kvöldspilun eingöngu. Sé hins vegar tekið tillit til nætur- spilunar er þessi tala rúm 8% á síð- asta ári. Þá má geta þess að af 25 mest spiluðu lögunum á Bylgjunni á síðasta ári var eitt íslenskt og það var lagið í 25. sæti. Forráðamenn FM 95,7 hafa stað- fest að spilun þar á síðasta ári var aðeins 10%. Ekki eru til skráningar né gögn um spilun á Aðalstöðinni og X-inu. Áætlun um að Aðalstöðin spili 15% íslenskt er því byggð á hlustun og samanburði við spilun annarra stöðva. X-ið gefur hins vegar út vikulegan spilunarlista og áætlun um 5% spilun íslensks efnis er byggð á þessum spilunarlistum. Samkvæmt ofannefndu er alveg ljóst að það er svo sannarlega tími til að staldra við og fá skýringar forráðamanna útvarpsstöðva og sjónvarpsstöðva um hvaða stefnu- miðun sé fylgt hvað varðar flutning á íslenskri tónlist. Framkvæmdin undanfarin misseri hlýtur að vekja ugg allra þeirra sem vilja að íslensk tónlistarstarfssemi þrífist í landinu. Það er með fullri vinsemd sem við höfum óskað eftir því að fá upplýs- ingar frá forráðamönnum þessara útvarpsstöðva og svo væntanlega við- ræður um hvemig íslenskir ljósvak- amiðlar geti sem best stuðlað að framgangi íslensks tónlistariðnaðar, svo ekki sé talað um að uppfylla þær lagalegu skyldur sem ljósvakamiðlun- um, sérstaklega ríkisfjölmiðlum, era lagðar á herðar hvað þetta varðar. F.h. STEFs Magnús Kjartansson F.h. FTT Þórir Baldursson F.h. SHF Steinar Berg ísleifsson F.h. FÍH Björn Th. Árnason TILBOÐ Nýja myndastofan Laugavegi 18, sími 551 5125 Námslceið NOTKUN ILMKJARNAOLÍU í HEIMAHÚSUM Tveggja kvöda námskeið þann 25. og 26. nóv., 27. og 28. nóv. og 3. og 4. des. nk. Fræðsla fyrir almenning um notkun ilmkjarnaolíu til heilsueflingar. Leidbeinendur: Ásdís B. Þormar, nuddari, Lilja Þormar, hjúkrunarfræðingur og nuddari. Halur og sprund ehf. og nuddstofan Heil og sæl Innritun og nánari upplýsingar í síma 588 1110. Náttúruhamfarir í Vatnajökli og á Skeiðarársandi Frá Jóhanni Indriðasyni: YFIRLEITT hlusta ég ekki á Þjóð- arsálina í Ríkisútvarpinu, en í dag gerði ég undantekningu, vegna samgönguráðherra, Halldórs Blöndals, sem sat fyrir svörum. Spyijendur voru fullir áhuga og margar komu tillögur, allt frá jarð- göngum, vegagerð yfir hálendið og breyta Vatnajökli lítillega. Og allt skrafið var um það hvað það tæki langan tíma, eða miklu frem- ur stuttan tíma, að koma vegasam- bandi á. Einn held ég að hafi minnst á sjóleiðina, en það hefur alveg gleymst í umræðunni, að við búum á eyju og eigum skip, þó að Halldór sé búinn að leggja niður Ríkisskip og SÍS, gjaldþrota, þá er óskabarnið og Samskip samtaka og í samkeppni um flutningana út á landsbyggðina. Þessi fijálsa sam- keppni á að vera þannig, að þessi tvö skipafélög setji inn eitt skip, Þorlákshöfn/Höfn í Hornafirði, eina ferð á dag fyrir kostnaðar- verð, hálft gjald eða svo, meðan vegagerðin í svartasta skammdeg- inu endurhannar þessa brú sem fór alveg og skipuleggur verkið í heild. Engar bráðabirgðabrýr. Nú fer í hönd vetur og myrkur og margt bendir til að verði harður nokkuð. Hægt er núna næstu vik- ur, að ryðja svæðið og leggja vegi báðum megin frá meðan vega- gerðarmenn hanna brúna sem vantar og skipuleggja verkið í heild og framkvæmdir geta hafist strax og birta og veður leyfir. Maður, flýttu þér hægt, gefum vegagerðarmönnum tíma til að skoða málin, meta og fagna hvað þessi mannvirki hafa staðið sig vel, þessi rúmleg tuttugu ár og endurhanna þessa brú sem hvarf alveg í þessu snögga og kröftuga hlaupi. Kannski er hægt að koma í veg fyrir þessi hlaup með því að hæta að safna þessu vatni í Grænalón, sprengja þetta haft og leggja rafstreng þvert yfir Vatna- jökul frá suðri til norðurs og halda uppi sírennsli frá eldstöðvunum á jöklinum; notum vísindamennina okkar og tæknina í þágu okkar gegn náttúruhamförum þessa ágæta lands okkar. Tillaga mín er því þessi: Bráða- birgðabrýr engar, akstur helmingi lengri leið en var um þessa svæði, með snjómokstur og þá helmingi dýrari flutningskostnaður ekki á dagskrá. Eimskip og Flugleiðir annist flutningana á því verði sem áður var, kannski aðeins lægra svo að austanmenn finni vart fyrir þessu, á meðan vegagerðarmenn leggja línurnar og skipuleggja starfið á grunni þekkingar og reynslu þessara ára og vísinda- menn okkar snúa saman bökum og finni lausn á vatnsöfnun í Grænalóni, með sírennsli frá eld- stöðvunum á jöklinum. Þegar svo birta tekur og dag tekur að lengja, verkáætlun og skipulag klárt, hefjast þá handa á sandinum og setja vaktir og vinna allan sólarhringinn. Þá er hægt að gera mikið, látum vegagerðina um áætlunina, á meðan sér risinn okk- ar, Eimskip/Flugleiðir, um flutn- ingana. JÓHANN INDRIÐASON, Garðatorgi 17, Garðabæ. I I t t j t ÞÓR HF Reykjavík - Akureyri Reykjavík: Ármúla 11 -sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka-sími 461-1070 ESTEE LAUDER Þokkafullt Llflegt Kynnir: Nýtt litróf Við bjóðum þér að koma og kynnast samspili nýrra lita frá Estée Lauder. Vertu bíræfin og kannaðu alla þína möguleika hvað varðar litaval. Við hjálpum þér við að finna réttu litina fyrir varir, augu, kinnar og húo. Fáðu þrjá mismunandi förðunarbursta að gjöf ef þú verslar fyrir 2.500 krónur eða meira í nýja litrófinu frá Estée Lauder. Eftirfarandi verslanir selja Estée Lauder: Hugea Kringlunni, Hygea Austurstræti, Sara Bankastræti, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Snyrtistofan Hrund Grænatúni, Gullbrá Nóatuni, Snyrtistofan Maja Bankastræti, Amaró Akureyri, Apótek Keflavíkur, Ninja Vestmannaeyjum. Eðlilegt Ákveðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.