Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 58

Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 58
58 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Innilegar þakkir sendi ég öllum, sem glöddu mig meÖ heimsóknum, heillaóskum og gjöfum á áttrœöisafmœli mínu. Erlendur Sigmundsson. Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, féhg laganema. OROBLU KYNNING AFSLÁTTUR af öllum OROBLU sokkabuxum fimmtudaginn 21. nóvember kl. 13.00-18.00. ■ PLAISIR 40 DEN Frábærar lycra stuðnings/nudd- sokkabuxur - 40 den. Venjulegt verð 583 kr. - kynningarverð 466 kr. HOLTS APÓTEK Glæsibæ - Sími 553 5212 I DAG SKAK Umsjón Margcir Pétursson Staðan kom upp í viður- eign tveggja stórmeistara á Ólympíumótinu í Jerevan í haust. Larry Christiansen (2.555), Banda- ríkjunum, hafði hvítt og átti leik, en Ashot Anasta- sjan (2.550), Armeníu. Svartur er veik- ur fyrir á svörtu reitunum og það gat Bandaríkja- maðurinn nýtt sér: 21. Bg5! - Bxfl 22. e5! (Nú kemst svartur ekki hjá því að tapa tveim- ur mönnum fyrir hrók, en kýs í staðinn að gefa drottninguna:) 22. — Rxd5!? 23. Bxd8 - Bxc4 24. Bh4 - Hae8 25. Dg4 - b5 26. Hel - Bxc4 27. Dd7. Svartur hefur aðeins fengið hrók fyrir drottning- una og gafst skömmu síðar upp. HVÍTUR leikur og vinnur. COSPER ÞVÍ miður missti ég ísinn ÞINN á leiðinni. Farsi VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: laugaÞmbl.is Fyrirspurn GUÐMUNDUR Jónsson hringdi og vildi koma á framfæri þremur spurn- ingum til Fiskveiðisjóðs og Iðnlánasjóðs. Guð- mundur innir eftir því hvar reikningar þessara stofnana séu birtir, hversu mörg skip stofn- anirnar hafí eignast á sl. 10 árum og hvort von sé á lækkun vaxta, vísi- tölubóta o.þ.h. Þakkir og hvatning SKÚLI Einarsson hringdi: „Eg vil þakka Mar- gréti Thoroddsen og Páli Gíslasyni fyrir góðar greinar í Morgunblaðinu í dag. Einnig vil ég hvetja fólk til að fylgjast með verkum alþingismanna og verkalýðsforingja næstu vikumar og meta þá síðan eftir verðleikum. Að endingu vil ég hvetja fólk til að ganga í Félag eldri borgara því með því sýnum við sam- stöðu okkar. Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Tapað/fundið Seðlaveski tapaðist DÖKKBRÚNT vandað seðlaveski tapaðist á leið- inni frá Lyfju í Lág-múla að Suðurlandsbraut. Skil- ríki og peningar voru í veskinu. Veskið var eig- andanum mjög kært og skilríkin er nauðsynlegt að fá. Finnandi er vin- samlega beðinn að skila a.m.k. veskinu og skil- ríkjunum. Upplýsingar í síma 557-5660. Ullarjakki tapaðist SVARTUR ullarjakki hvarf úr Kaffí Reykjavík sl. laugardagskvöld. Jakkinn sjálfur er ómerktur, en í honum var marglit topphúfa og brúnir leðurhanskar sem eru merktir Þórarni. Finnandi vinsamlega hafi samband við Þórarin í s. 551-7561 og er fundarlaunum heitið. Gæludýr Kettlingur í óskilum SVARTUR og hvítur ómerktur fjögurra mán- aða kettlingur fannst sl. fimmtudag á homi Klapparstígs og Grettis- götu. Eigandinn er beð- inn að vitja hans í síma 562-3616. Tjúlli er týndur TJÚLLI er svart og hvítt fimm ára gamalt fress, eyrnamerkt og með græna ól. Hann hvarf frá Langholtsvegi 190 fyrir u.þ.b. viku og eru þeir sem geta gefið upplýs- ingar um ferðir hans beðnir að hringja í síma 588-2519. Páfagaukur tapaðist HVÍTUR páfagaukur tapaðist í Lyngmóum í Garðabæ sl. mánudag. Þeir sem geta gefið upp- lýsingar hringi í síma 565-7224. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót o.fl. lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggia daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329 sent á netfangið: gusta@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Dagbók Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Víkveiji skrifar... YÍKVERJI verður að viðurkenna að hann hefur ekki séð veður- fregnir nú um nokkurn tíma í ríkis- sjónvarpinu. Ástæðan er að veður- fregnirnar hafa nú verið færðar fyr- ir klukkan 20, áður en fréttir hefj- ast, en einmitt á þeim tíma horfir Víkverji, sem er algjör fréttafíkill á fréttir Stöðvar 2. Víkveiji verður að mótmæla þess- um hringlandahætti með veðurfregn- imar. Þær hafa verið að loknum fréttum eða í enda þeirra allt frá upphafi sjónvarps og Víkveija finnst að þar eigi þær að vera áfram. Nú sér þær varla nokkur maður og því væri allt eins gott fyrir sjónvarpið að fella þær algjörlega niður. Kannski er þetta líka undanfari þess. Eftir einhvem tíma er unnt að gera áhorfskönnun og kemur þá væntan- lega í ljós að á veðurfréttirnar horfa sárafáir. Þá er ástæða til þess að fella þær niður á þeim forsendum að áhorf hafi dvínað svo mjög. Þegar sjónvarpið hóf starfsemi sína og verðurfræðingar fóru að skýra verðurspár á skjánum, var það rétt eins og hæfist kennslustund í því að lesa út úr veðurkortum. Nú geta jafnvel börn lesið af veður- kortum og séð hvernig spár eru. Áður skildi varla nokkur maður um hvað málin snerust. XXX UNDANFARIÐ hefur Víkveiji horft talsvert á sjónvarpsstöð- ina Discovery. Það verður að viður- kennast, að sú stöð hefur oft og einatt langáhugaverðustu þættina. Nýlega var t.d. sýnd þar þáttaröð um líf og starf Franklins Delanor Roosevelts Bandaríkjarforseta, sem var einkar áhugaverð og fræðandi. Ennfremur hefur stöðin sýnt mjög athygliverða þætti um heimsstyrj- öldina síðari og margt fleira mætti nefna. IÞÆTTI um hið sorglega slys er stórskipið Titanic fórst árið 1912, var nýíega skýrt frá rann- sóknum á stálinu í skrokki skips- ins, sem fannst fyrir nokkrum miss- erum á botni Atlantshafsins. Þáttur þessi var á sjónvarpsstöðinni Discovery. Rannsóknamenn náðu upp sýni af stálinu í skipinu og tóku það til rannsóknar. Við smá- sjárrannsóknir hefur komið í ljós, að stálið í byrðingi skipsins er mun lakara en ætla hefði mátt. Telja þeir, að líkleg skýring á því hversu fljótt skipið sökk sé sú, að um leið og skipshliðin hafi marizt af ísjak- anum, sem það sigldi á, hafi svo til öll hlið þess opnazt. Stálið var svo stökkt, að það hafði nær ekk- ert togþol og beyglaðist því ekki heldur sprakk við að ísinn marðist við skipshliðina. Þetta var skipið, sem átti ekki að geta sokkið, en þegar það sökk íörust hálft annað þúsund manns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.