Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 40
i 40 E SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 *Sími 568 9066
- Þarfceröu gjöfina -
Stokke tripp trapp
Stóllinn sem vex
með barninu
5 ára ábyrgð
Sama verð og annars staðar
á Norðurlöndum
Kr. 10.970
KROSSINN
Skínandi fögur
jolagjof
Tákn heilagrar
þrenningar
Til styrktar
blindum
Fœst um allt land
Dreifinguraðili:
BHndrafélagið
SAMTÖK BI.INDIU OC SJÓNSKERTRA Á ÍSLANDI
Hamrahlíb 17, Reykjavík
S. 525 0000
4
Fiskwr er ef laust ekki
algengur á borðum
landsmanna á jólum.
En hina girnilegustu
hátíðarmatseóla má
auðveldlega setja
saman úr f iskmeti.
SIGRÍÐUR INGVARS-
DÓTTIR f réttaritari á
Sigluf irói tók að sér
að útbúa fiskihlað-
borð þar sem f jöl-
breytnin var látin
ráða rikjum.
Þegar hugsað er um jól er
kjöt og sætabrauð án efa
ofar í hugum lands-
manna en fiskur, sem lík-
lega er ekki algengur á hátíðar-
borðum jóladagana. Því getur það
verið kærkomin tilbreytlng frá
þungu kjötmeti og dísætum kökum
og tertum að bjóða upp á fiskmeti
í hátíðarbúningi. Þetta ætti sér-
staklega að vera auðvelt fyrir okk-
ur íslendinga, sem búum nánast
við nægtarkistu hafsins.
Til að elda fína og gómsæta fisk-
rétti þarf ekki endilega fagkunn-
áttu, heldur er skemmtilegast að
leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín
í matarundirbúningnum sem og
skreytingum. Ágætt er að styðjast
við uppskriftir að einhverju leyti í
bland við tilraunastarfsemi.
Við val á þeim réttum sem prýða
fiskihlaðborð Morgunblaðsins var
hafður í huga fjölbreytileiki og ætti
hver sem er að geta útbúið hlað-
borð sem þetta, hafi hann áhuga
á og tíma til. í þeim níu réttum sem
hér er boðið upp á er að finna
átta fisktegundir, þ.e. hörpudisk,
skötusel, lúðu, lax, rækjur, ýsu,
saltfisk og humar.
Meðlæti við hæfi á fiskihlaðborð
getur verið hrísgrjón, ferskt græn-
metissalat, gratíneraðar kartöflur
auk brauðmetis eftir smekk, t.d.
gerbollurog heimabakað rúgbrauð
ásamt íslensku smjöri.
Til að vinna sér í haginn má
útbúa hluta réttanna með góðum
fyrirvara, það á t.d. við um rækju-
paté og fiskirönd, sem gott er að
gera deginum áður og geyma í
ísskáp. Rúgbrauð, gerbollur og
dvergfiskibollur má útbúa með
góðum fyrirvara og geyma í frysti.
Þó hér sé sett upp hlaðborð
með fiskréttunum má allt eins hafa
hvern og einn þeirra sem forrétt á
undan kjötmeti.
mmmmmmmmm
Hörpudiskur
sérrisósu
u.þ.b. 500 g hörpudiskur
200-300 g ferskir sveppir
________75 g smjör_______
2 dl rjómi
Morgunblaðið/Áslaug
RÆKJURÉTTUR með grænmeti.
______________sérrí______________
___________salt og pipar_________
maizena-mjöl
_____________raspur______________
goudg-ostur
Sneiðið sveppina niður og látið
þá krauma um stund í smjörinu
og bætið síðan hörpudiskinum
saman við. Takið soðið sem mynd-
ast hefur af sveppunum og hörpu-
diskinum og bætið rjóma, sérríi
og kryddi saman við, þykkið með
maizena-mjöli. Blandið sveppum
og hörpudiski saman við sósuna
og setjið í eldfast mót. Blandið
saman rifnum osti og brauðraspi
og stráið yfir. Setjið að lokum smá
smjörklípur hér og þar ofan á.
Bakið við 200°C í u.þ.b. 15 mín.
Djúpsteiktur
skötuselur
Orly-deig
2 bollar hveiti
2 tsk karrý
Vi tsk sellerísalt
'A tsk hvítlaukssalt
'A tsk lauksalt
'A tsk pipar
3tsksalt
6 msk pilsner
_______1 egg_____
1 bolli mjólk
Þurrefnunum blandað vel sam-
an og hinu hrært út í. Skötuselur-
inn skorinn í litla bita og þerraður.
Síðan er honum velt upp úr orly-
deiginu og djúpsteiktur í olívuolíu.
Súrsæt sósa
4 msk tómotsósa
1 dl edik
1 dl vatn
6 msk sykur
2 msk sojasósa
'h tsk salt
maizena-mjöl
i