Morgunblaðið - 04.01.1997, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
4
AKUREYRI
Þrettánda-
gleði Þórs
ÁRLEG Þrettándagleði íþróttafé-
lagsins Þórs verður haldin á félags-
svæði þess við Skarðshlíð næstkom-
andi mánudag, 6. janúar og hefst
hún kl. 20.
Furðuverur af ýmsu tagi verða á
kreiki, álfakóngur og drottning
koma á svæðið, jólasveinar, tröll,
púkar og álfar.
Kveikt verður í bálkesti og boðið
upp á skemmtiatriði, m.a. syngur
Óskar Pétursson nokkur lög, Lilli
klifurmús kemur og spjallar við
krakkana og Skralli trúður verður á
ferðinni. Kirkjukór Glerárkirkju
syngur fyrir skrúðgöngunni og mun
hann syngja nokkur lög.
-----»" »• ■»-
Fær reikn-
inginn
sendan
heim
Atvinnuleysisbætur til félagsmanna tíu stéttarfélaga í Eyjafirði
Mun lægri upphæð í
bætur á liðnu ári
MUN lægri upphæð var greidd í
atvinnuleysisbætur á vegum
Verkalýðsfélagsins Einingar á nýl-
iðnu ári en var árið 1995. Félagið
greiddi á síðasta ári, eða til 26.
desember síðastliðinn, út atvinnu-
leysisbætur til félagsmanna í tíu
stéttarfélögum, samtals að upp-
hæð um 160,5 milljónir króna, en
árið 1995 voru bæturnar greiddar
til félagsmanna átta stéttarfélaga
og námu þá rúmum 182 milljónum
króna.
Tvö félög bættust við milli ára,
Félag byggingamanna og Félag
verslunar- og skrifstofufólks. At-
vinnuleysisdagar voru samtals
107.376 hjá félagsmönnum þess-
ara tíu félaga á liðnu ári.
Atvinnuleysisdagar hjá félags-
mönnum Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar í Eyjafírði voru tæplega 60
þúsund og námu atvinnuleysis-
bætur samtals 98,3 milljónum
króna, en árið áður voru þær tæp-
ar 139 milljónir króna.
Greiðslur til félagsmanna Fé-
lags verslunar- og skrifstofufólks
námu tæpum 27 milljónurm króna
á liðnu ári og voru atvinnuleysis-
dagar um 17 þúsund. Félagsmönn-
um í Iðju, félagi verksmiðjufólks,
voru greiddar um 18 milljónir
króna í atvinnuleysisbætur og voru
atvinnuleysisdagar 10.725 talsins.
Árið á undan voru um 22 milljón-
ir króna greiddar í atvinnuleysis-
bætur til Iðjufélaga.
Atvinnuleysisdagar hjá félögum
í Sjómannafélagi Eyjafjarðar voru
tæplega 16 þúsund og námu bæt-
ur um 8,5 milljónum króna, en
voru tæpar 11 milljónir árið áður.
Hjá Sjómannafélagi Ólafsfjarðar
voru atvinnuleysisdagarnir 183 og
bætur að upphæð tæplega 370
þúsund voru greiddar út, en voru
rúm hálf milljón árið áður. Tæp-
lega 1,7 milljónir króna voru
greiddar í atvinnuleysisbætur til
félagsmanna í Skipstjóra- og stýri-
mannafélagi Norðlendinga, en var
1,9 milljónir árið á undan, en at-
vinnuleysisdagar á liðnu ári voru
851.
Helmingi lægri upphæð var
greidd til félaga í Verkstjórafélag-
inu á nýliðnu ári miðað við árið á
undan, eða um 1 milljón á móti
um 2 árið 1995.
Betra atvinnuástand hjá
málmiðnaðarmönnum
Mun lægri upphæð var greidd
út til félagsmanna í Félagi málm-
iðnaðarmanna, sem árið 1995 var
um 4 milljónir en um 1,1 á nýliðnu
ári. Atvinnuleysisbætur til félaga
í Vélstjórafélagi íslands, Eyjafirði,
námu rúmum 800 þúsund krónum
í fyrra en voru um 2 milljónir ári
fyrr. Hjá Félagi byggingamanna
voru atvinnuleysisdagar samtals
1.867 og voru greiddar út 3,6
milljónir króna í atvinnuleysisbæt-
ur til félagsmanna.
UNGUR maður kleif upp í topp á
jólatrénu á Ráðhústorgi snemma
á nýársdagsmorgun.
Áð sögn varðstjóra lögreglunn-
ar neitaði maðurinn að koma nið-
ur úr trénu og hótaði að stökkva
niður. Hópur fólks niðri á torginu
hrópaði að piltinum og manaði
hann til að stökkva niður. Lög-
regla kallaði til körfubíl slökkvi-
liðsins, þar sem ekki var hægt að
taka þá áhættu að hann skaðaði
sig. Þegar aðstoð barst þverneit-
aði maðurinn að koma upp í körf-
una, en hún var hífð dálítið yfir
hann og hann hálfhrakinn niður
úr trénu. Datt hann niður nokkra
síðustu metrana, en slökkviliðs-
menn tóku á móti honum í stökk-
púða sem þeir héldu úti undir
trénu.
Að sögn varðstjóra verður unga
manninum væntanlega sendur
reikningur vegna útkalls slökkvi-
liðs og körfubils auk þess sem
hann er bótaskyldur fyrir
skemmdum sem hann olli á trénu
og Ijósaseríum.
Hrint gegnum rúður
Líflegt var í miðbæ Akureyrar
á nýársnótt, fjöldi fólks var á ferli
fram til kl. 9 um morgunin og
höfðu lögreglumenn í nógu að
snúast. Meðal þess sem þeir höfðu
afskipti af var að tvívegis var
ungum piltum hrint á verslunar-
glugga, rúðurnar brotnuðu og
flytja þurfti piltana á slysadeild
þar sem gert var að sárum þeirra.
Flestir þeir sem voru á ferli í
miðbænum voru þó í þokkalegu
áramótaskapi að sögn varðstjóra.
Morgunblaðið/Benjamin
KÖRFUBÍLL slökkviliðs var sendur eftir ungum manni sem
klifraði upp í jólatréð á Ráðhústorgi, en hann neitaði að koma
niður og hótaði að stökkva.
—
Stuðningur við þróun og nýsköpun
í matvælaiðnaði á Norðurlandi
Þann 8. janúar næstkomandi býðst fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum á Norðurlandi
einstakt tækifæri til að kynna sér þjónustu ýmissa aðila, sem veita aðstoð vió að koma á fót
samstarfsverkefnum og sækja um styrki sem íslendingar eiga möguleika á í tengslum við
Evrópusambandið. Haldinn veróur kynningarfundur undir heitinu Stuóningur við þróun og
nýsköpun í matvælaiónaði á Noróurlandi á Hótel KEA miðvikudaginn 8. janúar frá kl. 12-14.
Eftirtaldir aðilar standa aó fundinum: Háskólinn á Akureyri, Kynningarmiðstöð
Evrópurannsókna, Landsskrifstofa Leonardó, Euro Info skrifstofa Útflutningsráðs og
Upplýsingastofu SÍTF. Á fundinum er lögð áhersla á að fulltrúar atvinnulífs, menntastofnana,
sveitarfélaga, hagsmunasamtaka og fjármálastofnana fái yfirsýn yfir þá möguleika sem í boði
eru á sviði rannsókna- og nýsköpunarverkefna, starfsmannaskipta og starfsþjálfunar, og ráð-
gjafar við útflutning og markaðssetningu.
Nánari upplýsingar gefa: Þórleifur Björnsson Háskólanum á Akureyri, í síma 463 0900 og
Sigurður Tómas Björgvinsson, Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna, í síma 525 4900.
Aðgangur að fundinum er ókeypis.
hAskúunn
A AKUHEVRI
Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar
Konráð endur-
kjörinn formaður
KONRÁÐ Alfreðsson var endurkjörinn formaður Sjómannafélags Eyja-
fjarðar til tveggja ára á aðalfundi félagsins milli jóla og nýárs. Þá var
Gylfi Gylfason kjörinn varaformaður í stað Sveins Kristinssonar, sem
ekki gaf kost á sér til endurkjörs.
Kjaradeila sjómanna og útgerð-
armanna er komin til ríkissátta-
semjara og segir Konráð að
deiluaðilar hafi verið boðaðir til
fundar hjá honum 9. janúar nk.
„Það hafa engar viðræður farið
fram ennþá við útgerðarmenn og
í raun er ósköp lítið að gerast. Á
aðalfundi okkar var samþykkt til-
laga þess efnis að félagar í Sjó-
mannafélagi Eyjafjarðar muni
sýna samninganefnd Sjómanna-
sambands íslands fullan stuðning
og jafnframt hlýða kalli um verk-
fall, ef til þess kemur.“
Erfiðir samningar framundan
Konráð segist ekki hafa mikla
trú á að deiluaðilar nái saman fljótt
og örugglega. „Miðað við viðbrögð
útgerðarmanna við okkar kröfum
á ég ekki von á öðru en þetta
verði mjög erfitt. Það kvað við
neikvæðan tón hjá útgerðarmönn-
um við öllum okkar kröfum og það
er ekkert í spilunum af útgerðar-
innar hálfu. Eg hef heyrt í kolleg-
um okkar víða um land og það er
greinilegt að menn eru tilbúnir til
að beijast fyrir því að kveða niður
óréttlætið og um leið fyrir bættum
kjörum.“
Sjómenn hafa gert kröfu um
að allur fiskur fari á markað og
að verðmyndunin fari fram á upp-
Verkmenntaskólinn á Akureyri
NEMENDUR!
Stundaskrár verða afhentar á skrifstofu skólans
miðvikudaginn 8. janúar kl. 13.00-17.OO.
Kennsla hefst fimmtudaginn 9. janúar skv. stundaskrá.
Skólameistari
p tirpmM&Mli - kjarni málsins!
boðsmarkaði. Þá segir Konráð að
taka þurfi á þátttöku sjómanna í
kvótakaupum.
MESSUR
AKUREYRARPRESTA-
KALL: Messað verður í Ak-
ureyrarkirkju á morgun,
sunnudaginn 5. janúar kl.
14.
GLERÁRKIRKJA:
Guðsþjónusta verður í kirkj-
unni á morgun, sunnudag-
inn 5. janúar kl. 14.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Almenn samkoma kl. 20. á
morgun, sunnudaginn 5.
janúar. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning kl. 11 á
morgun, sunnudag. Vakn-
ingasamkoma sama dag kl.
14. Bænasamkomur verða í
kirkjunni frá 7. til 10. janúar
kl. 20. öll kvöld. Allir hjartan-
lega velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN;
Eyrarlandsvegi 26: Messa
kl. 18 í dag, laugardag,
messa kl. 11 á morgun,
sunnudaginn 5. janúar og
kl. 18. mánudaginn 6. jan-
úar.